DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Violet Meadow Cardigan

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni, með v-hálsmáli og stuttum puffermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 230-56
DROPS Design: Mynstur ks-189
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-150-150-175-200-200 g litur 11, fjólublár

DROPS TALA NR 621: 3-3-3-4-4-4 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 6, 17 og 28 cm
M: 6, 17 og 29 cm
L: 6, 18 og 30 cm
XL: 6, 14, 22 og 31 cm
XXL: 6, 14, 23 og 32 cm
XXXL: 6, 8, 24 og 33 cm

ÚRTAKA (á við um v-hálsmálI)
Öll úrtaka er gerð frá réttu:
VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka, á hringprjóna í stykkjum. Ermar eru prjónaðar fram og til baka. Stykkið er prjónað neðan frá og upp.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 93-103-113-125-135-149 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-20-22-26-26-30 lykkjur jafnt yfir = 77-83-91-99-109-119 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hvorri hlið þannig: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-3-4-5-7-9 sinnum og 1 lykkja 2-2-3-4-4-4 sinnum = 59-61-63-65-67-69 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 33-35-37-37-39-41 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 21-23-25-25-27-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 18-18-18-19-19-19 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með 5 lykkjur garðaprjón við háls, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 52-56-62-68-72-80 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu og frá hlið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, endið með 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-10-12-14-13-16 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 43-46-50-54-59-64 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

Nú er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli og handveg, þetta er gert á sama tíma, lestu því allan næsta kafla áður en þú prjónar:
V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fækkið um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli innan við 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 1 cm millibili alls 16-17-18-18-19-20 sinnum.
HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handvegi í hlið eins og á bakstykki. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 18-18-18-19-19-19 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 52-56-62-68-72-80 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu og frá miðju að framan þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-10-12-14-13-16 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 43-46-50-54-59-64 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram, þegar stykkið mælist 6 cm, byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Nú er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli og handvegi, þetta er gert á sama tíma, lestu því allan næsta kafla áður en þú prjónar:
V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, fækkið um 1 lykkju fyrir v-hálsmáli innan við 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 1 cm millibili alls 16-17-18-18-19-20 sinnum.
HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm, fellið af fyrir handvegi í hlið eins og á bakstykki. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 18-18-18-19-19-19 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm.

STUTTAR PUFFERMAR:
Fitjið upp 48-50-52-54-56-58 lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út um 13 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 61-63-65-67-69-71 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: 12-13-11-12-10-11 lykkjur slétt, aukið síðan út um 12-12-14-14-16-16 lykkjur yfir næstu 36-36-42-42-48-48 lykkjur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju, endið með 13-14-12-13-11-12 lykkjur slétt = 73-75-79-81-85-87 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið. Prjónið síðan mynstur í næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-0-2-3-5-2 lykkjur sléttprjón, A.1 alls 8-9-9-9-9-10 sinnum, endið með 4-1-3-4-6-3 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með A.1 á hæðina. Þegar stykkið mælist 9 cm eru fellda af 4 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum.
Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið með því að prjóna 3 fyrstu og 3 síðustu lykkjur í umferð saman (þær lykkjur sem ekki passa inn í mynstur eru prjónaðar í sléttprjóni). Endurtakið úrtöku í 8-.8.-6.-6.-6.-6. hverri umferð alls 3-3-4-4-4-4 sinnum = 53-55-55-57-61-63 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-20-21-22-24-25 cm prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 2-4-1-3-1-3 lykkjur jafnt yfir í umferð = 51-51-54-54-60-60 lykkjur. Í næst umferð eru allar lykkjur prjónaðar 3 og 3 brugðið saman = 17-17-18-18-20-20 lykkjur. Fellið af. Stykkið mælist ca 21-21-22-23-25-26 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.05.2022
Leiðrétting á númeri á tölu. DROPS TALA NR 621: 3-3-3-4-4-4 st.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn

symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-56

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Camo Krage wrote:

Er der ikke fejl i mønsterforklaringen- der er to tegn for slå om for ekstra maske men ikke forklaring af indtag. Mangler beskrivelsen af halskanten ikke også? Hvor mange masker skal tages op for half kant? På forhånd tak.

15.01.2024 - 09:35

DROPS Design answered:

Hej Camo, så er diagramteksten rettet - tak for info :)

16.01.2024 - 14:23

country flag Daphne wrote:

I would like to see a picture of the back. I don't understand what it's supposed to look like at the neck.

16.09.2023 - 23:11

DROPS Design answered:

Dear Daphne, we don't have any pictures of the back; all of the available photos have been posted online. The neck edge on the back is the last section of the back: an edge worked in garter stitch and it should have a round shape and go right around the neck at the back. Happy knitting!

17.09.2023 - 23:29

country flag Joan wrote:

The V neck shaping says ‘decrease 1 stitch for the neck inside the 5 band stitches mid front’. Does this mean decrease at stitches 6&7? What does mid front mean?

14.06.2023 - 21:39

DROPS Design answered:

Hi Joan, The increases are after the first band and before the last band, so th 6th stitch at the beginning of the row and the 6th-to-last stitch at the end of the row. Happy knitting!

15.06.2023 - 08:34

country flag Davina wrote:

Hi there, Please advise, when it says ‘ When the piece measures 31-32-33-34-35-36 cm, cast off for the armholes at the beginning of each row as follows: 3 stitches 1 time, 2 stitches 2-3-4-5-7-9 times and 1 stitch 2-2-3-4-4-4 times on each side = 59-61-63-65-67-69 stitches.’ The ‘CO 3 stitches 1 time’ is this only at the beginning of 1 row, ie one side? Thank you,

23.04.2023 - 21:46

DROPS Design answered:

Hi davina, No, the cast off stitches are symmetrical, so at the beginning of every row, and each number of stitches is repeated on both the right and wrong side before starting the next number of stitches. In other words you cast off 3 stitches one time on each side, then 2 stitches the correct number of times on each side. Happy knitting!

24.04.2023 - 06:49

country flag Raquel wrote:

Hola! Cuando la labor mida 9 cm cerrar 4 puntos al inicio de las siguientes 2 filas. Cuando la labor mida 10 cm disminuir 2 puntos a cada lado trabajando juntos de derecho los primeros 3 puntos y los últimos 3 puntos en la fila. 1. No entiendo como cerrar los cuatro puntos, cierro 4 en el derecho y 4 en el revés ? O 4 al inicio de cada derecho? En total son 8 puntos cerrados? 2. Tampoco entiendo lo de “2 puntos a cada lado… Gracias!

20.04.2023 - 02:15

DROPS Design answered:

Hola Raquel, sí, son 4 puntos por el lado derecho y 4 pts por el lado revés, así que en total 8x2 = 16 puntos (1 fila es tanto por el lado derecho como por el lado revés). 2 pts a cada lado quiere decir 2 pts al inicio y al final de la fila, así que los primeros 3 pts y los últimos 3 pts de cada fila se trabajan juntos de derecho, disminuyendo 2 pts a cada lado.

23.04.2023 - 19:59

country flag MARIE ROMAN wrote:

C'est un joli modèle - je voudrais le tricoter avec des aiguilles droites - pouvez-vous m'envoyer explications - Merci beaucoup -

03.09.2022 - 11:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Roman, ce modèle se tricote en différentes parties assemblées entre elles à la fin, chaque pièce se tricote en allers et retours sur aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles, vous pouvez ainsi simplement utiliser des aiguilles droites. Découvrez ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!

05.09.2022 - 08:52

country flag Susan Huddleston wrote:

Please would you convert your sizes for the Violet Meadow Cardigan into inches as I cannot find these measurements anywhere and forward to my email address, thank you.

24.06.2022 - 14:59

DROPS Design answered:

Dear Susan, the measurements are located in the measurements schematic under the pattern; choose the number according to your size. You can see how to read this schematic here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=24&cid=19 These measurements are in cm, you can convert them to inches here:https://www.garnstudio.com/conversions.php?cid=19 Happy knitting!

26.06.2022 - 13:19

country flag Bertha Hernandez wrote:

Esta muy lindo este modelo lo estoy elaborando para mi nieta solo no entiendo lo de la hebra entre dos puntos es una lazada por favor me ayuda muchas gracias

25.05.2022 - 13:01

DROPS Design answered:

Hola Bertha, si, la hebra entre dos puntos es una lazada. Trabajas 1 derecho, lazada, 1 derecho.

25.05.2022 - 20:20

country flag Christine Corneillie wrote:

Beste, ik zou graag het model 230-56 breien .Maat M . er staat 150 gram .Is dat voldoende om het pull met 2 draden te breien met naald 5?

21.05.2022 - 18:29

DROPS Design answered:

Dag Christine,

Ja hoor, dat is genoeg. Kid Silk is heel dun en licht garen, waardoor je niet veel gram nodig hebt. Een bol weegt 25 gram, dus je hebt dan 5 bollen nodig.

23.05.2022 - 17:06

country flag Sarah Rudd wrote:

Please can you explain the instruction on the sleeves "on the next row purl all stitches together 3 and 3 = 17 - 17 - 18 - 18 etc" It doesn't make sense.

14.05.2022 - 21:49

DROPS Design answered:

Dear Sarah, you repeat "purl 3 together"the whole round, over all stitches, decreasing from 51.... to 17..... stitches. Happy knitting!

15.05.2022 - 23:37