Laurence Canepa skrifaði:
Après les cotes pourquoi diminuer de 12 mailles alors que le modèle a l’air de forme droite? Merci
14.08.2022 - 15:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Canepa, il faut plus de mailles pour la même largeur pour tricoter en côtes avec les aiguilles 8 que pour tricoter en jersey/point fantaisie avec les aiguilles 9, raison pour laquelle on va diminuer après les côtes, pour conserver la bonne largeur. Bon tricot!
15.08.2022 - 08:28
Martine ALZINGRE skrifaði:
Bonjour pour tricoter aiguilles droites dois je diviser les mailles par 2 pour ce modèle ou pas Je vous remercie
02.05.2022 - 05:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Alzingre, ce modèle se tricote en allers et retours sur aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles, seul le col se tricote en rond. Vous pouvez ainsi suivre les indications telles quelles pour le dos et le devant, faire la couture de l'une des épaules, relever les mailles du col (+ 1 m lis de chaque côté) et faites ensuite la couture du col + de la 2ème épaule. Bon tricot!
02.05.2022 - 10:30
Marianne Göransson skrifaði:
Hej, jag har stickat många mönster o köpt era garner genom åren....men nu känner jag att jag måste säga ifrån. Varför har ni alltid som i detta mönster 5 bilder nästan exakt lika förutom att man vänder på huvudet..... hade önskat få se hur plaggen ser ut bakifrån o från sidan. tänker att det måste vara mer än jag som hade velat se dem så. Hoppas på ändring
21.02.2022 - 12:09
Mia Svane skrifaði:
Hej, fantastisk hjemmeside 😊 Jeg vil rigtig gerne strikke Louise slipover med uden knap i siden, altså strikket sammen. Kan dette lade sig gøre på en “nem” måde? Jeg er nybegynder, så ikke rutineret nok til bare selv at udtænke det. Mvh Mia
13.02.2022 - 16:48DROPS Design svaraði:
Hej Mia, Hvis du hellere vil strikke vesten rundt på rundpind, så får du hverken slids eller knap i siden. Men da slår du bare dobbelt antal masker op og strikker rundt ifølge rygstykket til du kommer op til ærmegabet, da er du nødt til at dele på arbejdet og strikke ryg og forstykke færdig hver for sig. Se størrelsen på de mål som passer dig i måleskitsen nederst i opskriften. God fornøjelse!
15.02.2022 - 14:27
Veronique Cadet skrifaði:
Er staat een foutje in 82 steken opzetten - 10 minderen om verder te gaan = 72 en er staat 74 waardoor de rest niet klopt
13.12.2021 - 14:27
Louise Slipover#louiseslipover |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti / slipover úr DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með háum kraga eða tvöföldum kanti í hálsmáli og köntum í stroffprjóni og garðarpjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-59 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum hvoru megin á framstykki. Þau 2 fyrstu hnappagötin eru gerð þegar stykkið mælist 14 cm og 2 seinni hnappagötin eru gerð þegar stykkið mælist 28 cm. Hnappagötin eru gerð þannig: Prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð. Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í byrjun á umferð frá hálsi þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar við hálsmál þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 1 lykkju slétt (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í 2 stykkjum. Stykkin eru saumuð saman á öxlum og prjónað er annað hvort hár kragi eða tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring á stutta hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 82-88-90 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Prjónið 4-5-6 kantlykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) og endið með 4-5-6 kantlykkjum í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 3 cm er skipt yfir á hringprjón 9 og prjónað er frá réttu þannig: Prjónið 4-5-6 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón og fækkið um 10-12-10 lykkjur jafnt yfir næstu 74-78-78 lykkjur og prjónið 4-5-6 kantlykkjur í garðaprjóni = 72-76-80 lykkjur. Prjónið nú sléttprjón með 4-5-6 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið að loka máli. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 57-61-65 cm, fellið af miðju 18-20-22 lykkjur fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 26-27-28 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 60-64-68 cm eru lykkjur settar á þráð. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 14 cm frá uppfitjunarkanti. Nú byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 54-56-58 cm. Setjið nú miðju 12-14-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 2 lykkjur fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsmáli. Síðan er lykkjum fækkað innan við 1 lykkju frá hálsmáli – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan, fækkið lykkjum svona alls 2 sinnum = 26-27-28 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 60-64-68 cm eru lykkjur settar á þráð. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Notið lykkjuspor og saumið axlirnar saman sem settar voru á þráð. Saumið tölur í bakstykkið þannig að þær passi við hnappagötin á framstykki. HÁR KRAGI EÐA TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 64-68-72 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) á stuttan hringprjón 8. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið stroffprjón hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) prjónið þar til stroffið mælist 15 cm, ef þú vilt hafa kragann hærri eða prjónaðu þar til stykkið mælist ca 20 cm ef kanturinn í hálsmáli á að vera tvöfaldur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ef kanturinn á að vera tvöfaldur: Brjótið kantinn niður í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #louiseslipover eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-59
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.