Ellen L skrifaði:
Hello I am calling myself a beginner going on to the next level. I am ok on the pattern - left mittens until you get to the 7-8 cm, I have the 7-9 stiches on thread, it's the casting on 5-7 stictes that I think I goobered up. I am think it is not meant to add the new sticthes all at once... It looks ahh interesting. How should one do that so the transtion is smooth please? Thank you
09.10.2024 - 17:32DROPS Design svaraði:
Dear Ellen, in this pattern the thumb will not be worked with increases for a gusset but as shown in this video, ie slip sts on a thread for thumb opening then or as here work them with another yarn then cast on new stitches over stitches on the thread then thumb will be worked around opening afterwards. You will find more patterns for mittens with a thumb gusset, check all patterns here. Happy knitting!
10.10.2024 - 08:46
Sarahlu skrifaði:
Hej, I opskriften står der, at man skal bruge pinde nr. 6 og 7, men hvilken pind skal man så bruge til at strikke de 12 masker i bredden og 16 pinde i højden? Dbh, Sarahlu
02.12.2023 - 08:32DROPS Design svaraði:
Hei Sarahlu. Pinne str. 6 brukes til vrangbord (1 rett / 1 vrang). Strikkefastheten er oppgitt i glattstrikk og da brukes det pinne 7, (kan ha som huskregel at strikkefastheten/heklefasthet er som regel oppgitt i det plagget strikkes/hekles i, ikke vrangborder). mvh DROPS Design
04.12.2023 - 09:16
Laura skrifaði:
Hej med jer! Jeg er lidt i tvivl om, hvor på hånden omkredsen måles? Tak på forhånd :o)
29.11.2023 - 16:08DROPS Design svaraði:
Hej Laura, du måler omkredsen på hånden indenfor tommelfingeren, tommelfingeren skal altså ikke tælles med :)
30.11.2023 - 10:26
Karla skrifaði:
Man man strikke med rundpind i stedet for strømpepinde?
17.11.2022 - 17:29DROPS Design svaraði:
Hei Karla. Om du har en veldig liten/kort rundpinne til å få alle maskene på en rundpinne, kan du fint bytte. Men du må uansett bytte til settpinner når det felles mot slutten. mvh DROPS Design
21.11.2022 - 08:04
Friendship Mittens#friendshipmittens |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir vettlingar úr DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með kanti í stroffprjóni. Stærð S-XL.
DROPS 226-57 |
|
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Vettlingarnir eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 28-30 lykkjur á sokkaprjóna 6 með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 14 cm – prjónið e.t.v. að óskaðri lengd. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Skiptið yfir á sokkaprjóna 7 og prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 4-4 lykkjur jafnt yfir = 24-26 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í 21. -22. lykkju í umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 2 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki (aukið út með því að slá uppá prjóninn, uppslátturinn er síðan prjónaður snúinn í næstu umferð) = 26-28 lykkjur. Prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7-8 cm, prjónið op fyrir þumal í næstu umferð þannig: Prjónið 18-18 lykkjur eins og áður, setjið næstu 7-9 lykkjur á þráð fyrir þumal án þess að prjóna þær, fitjið síðan upp 5-7 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið síðustu lykkjuna í umferð = 24-26 lykkjur á prjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-20 cm. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd. Í næstu umferð er fækkað um 6-6 lykkjur jafnt yfir (prjónið ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman) = 18-20 lykkjur. Prjónið 2 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 9-10 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 5-5 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 36-37 cm meðtalið stroff og ca 22-23 cm án stroffs. VINSTRI ÞUMALL: Setjið til baka 7-9 lykkjur af þræði á sokkaprjóna 7 og prjónið að auki upp 5-7 nýjar lykkjur í kringum op á þumli = 12-16 lykkjur skipt niður á sokkaprjóna 7. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 0-2 lykkjur jafnt yfir = 12-14 lykkjur. Prjónið þar til þumallinn mælist ca 6-7 cm (mælt frá þar sem lykkjur voru settar til baka á prjóninn). Nú er er eftir ca 1 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið þumalinn að óskaðri lengd. Prjónið 2 umferðir sléttprjón þar sem lykkjurnar eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 í báðum umferðunum = 3-4 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Þumallinn mælist ca 7-8 cm. HÆGRI VETTINGUR: Fitjið upp 28-30 lykkjur á sokkaprjóna 6 með 1 þræði DROPS Wish eða 2 þráðum DROPS Air. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 14 cm – prjónið e.t.v. að óskaðri lengd. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Skiptið yfir á sokkaprjóna 7 og prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 4-4 lykkjur jafnt yfir = 24-26 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í 4.-5. lykkju í umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 2 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki (aukið út með því að slá uppá prjóninn, uppslátturinn er síðan prjónaður snúinn í næstu umferð) = 26-28 lykkjur. Prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7-8 cm, prjónið op fyrir þumal í næstu umferð þannig: Prjónið 1 lykkju, setjið næstu 7-9 lykkjur á þráð fyrir þumal án þess að prjóna þær, fitjið síðan upp 5-7 nýjar lykkjur á prjóninn og prjónið þær lykkjur sem eftir eru eins og áður = 24-26 lykkjur á prjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-20 cm. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd. Í næstu umferð er fækkað um 6-6 lykkjur jafnt yfir (prjónið ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman) = 18-20 lykkjur. Prjónið 2 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 9-10 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 5-5 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 36-37 cm meðtalið stroff og ca 22-23 cm án stroffs. HÆGRI ÞUMALL: Prjónið á sama hátt og vinstri þumall. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #friendshipmittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-57
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.