Find the Magic |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónaðir og þæfðir vettlingar úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað í sléttprjóni og gatamynstri. Stærð S - XL.
DROPS 225-15 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ATH: Vegna mynsturs mun fjöldi lykkja í hverri mynstureiningu vera á bilinu 5 til 6 lykkjur. Lykkjufjöldinn sem kemur fram í mynstri er reiknaður út að það séu 5 lykkjur í hverri mynstureiningu, en hafið þetta í huga ef þú ert í umferð þar sem 6 lykkjur eru í hverri mynstureiningu þegar lykkjur eru taldar. ÚRTAKA (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 34 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 8,5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 7. og 8. hverja lykkju og 8. og 9. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING (á við um op fyrir þumal): Aukið er út um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur í sömu lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 59-61-63 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með DROPS Lima. Prjónið 4 umferðir sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig: 2-2-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 yfir næstu 20 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið 3 fyrstu lykkjur í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og prjónið 34-36-37 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir 34-36-37 lykkjur í lok umferðar (þ.e.a.s. á eftir A.1) – sjá ÚRTAKA-1 (lykkjum er ekki fækkað yfir lykkjur í A.1). Endurtakið úrtöku með 1½ cm millibili alls 3 sinnum á hæðina = 47-49-51 lykkjur. Þegar stykkið mælist 8-8-7 cm, setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju í umferð. Nú eru lykkjur auknar út fyrir opi fyrir þumal með því að auka út 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út utan við útauknar lykkjur í 4. hverri umferð alls 6-7-8 sinnum á hæðina = 59-63-67 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-17-18 cm (útaukningum fyrir opi fyrir þumal á að vera lokið), setjið lykkju með prjónamerki í + útauknar lykkjur + 1 lykkju hvoru megin við þessar lykkjur á þráð fyrir þumal = 15-17-19 þumallykkjur. Prjónið hringinn eins og áður og fitjið jafnframt upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur af þræði = 47-49-51 lykkjur. Prjónið þar til 1 umferð er eftir áður en stykkið mælist ca 12-11½-11 cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp yfir opi fyrir þumal – endið eftir 3. umferð í A.1. Stykkið mælist nú ca 28-28½-29 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 5 lykkjur jafnt yfir 23 lykkjur í A.1 = 42-44-46 lykkjur eftir. Nú byrjar úrtaka efst á vettlingi. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á vettlingi þannig: Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð og 1 prjónamerki í 22.-23.-24. lykkju í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-5-6 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4 sinnum = 10-8-6 lykkjur eftir. Klippið þráðinn frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 32-33½-35 cm ofan frá og niður. ÞUMALL: Þumallinn er prjónaður í hring í sléttprjóni. Setjið 15-17-19 þumallykkjur á sokkaprjóna 4,5 – prjónið að auki upp 3 lykkjur í 3 lykkjur sem fitjaðar voru upp aftan við þumal = 18-20-22 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til þumallinn mælist ca 6-6½-7 cm. Fækkið nú um 3 lykkjur jafnt yfir = 15-17-19 lykkjur. Prjónið 3 umferðir án úrtöku. Í næstu umferð er fækkað um 5-7-7 lykkjur jafnt yfir = 10-10-12 lykkjur. Prjónið áfram þar til þumallinn mælist 7½-8-8½ cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 5-5-6 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 59-61-63 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með DROPS Lima. Prjónið 4 umferðir sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig: 34-36-37 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 yfir næstu 20 lykkjur (= 4 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið 3 fyrstu lykkjur í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins og prjónið 2-2-3 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir 34-36-37 lykkjur í byrjun á umferð (þ.e.a.s. á undan A.1) – sjá ÚRTAKA-1 (lykkjum er ekki fækkað yfir lykkjur í A.1). Endurtakið úrtöku með 1½ cm millibili alls 3 sinnum á hæðina = 47-49-51 lykkjur. Þegar stykkið mælist 8-8-7 cm, setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð. Nú eru lykkjur auknar út fyrir opi fyrir þumal með því að auka út 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út utan við útauknar lykkjur í 4. hverri umferð alls 6-7-8 sinnum á hæðina = 59-63-67 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-17-18 cm (útaukningu fyrir opi fyrir þumal á að vera lokið), setjið lykkju með prjónamerki í + útauknar lykkjur + 1 lykkju hvoru megin við þessar lykkjur á þráð fyrir þumal = 15-17-19 þumallykkjur. Prjónið hringinn eins og áður og fitjið jafnframt upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn yfir lykkjur af þræði = 47-49-51 lykkjur. Prjónið þar til 1 umferð er eftir áður en stykkið mælist ca 12-11½-11 cm frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp yfir opi fyrir þumal – endið eftir 3. umferð í A.1. Stykkið mælist nú ca 28-28½-29 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 5 lykkjur jafnt yfir 23 lykkjur í A.1 = 42-44-46 lykkjur eftir. Nú byrjar úrtaka efst á vettlingi. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á vettlingi þannig: Setjið 1 prjónamerki í 21.-22.-23. lykkju í umferð og 1 prjónamerki í síðustu lykkju í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-5-6 sinnum og síðan í hverri umferð alls 4 sinnum = 10-8-6 lykkjur eftir. Klippið þráðinn frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 32-33½-35 cm ofan frá og niður. Prjónið þumal á sama hátt og á vinstra vettlingi. ÞÆFING: Til þess að koma í veg fyrir að þumallinn þæfist saman, snúið vettlingnum við og setjið lítinn plastpoka í þumalinn. Festið hann með nælu – ATH: Festið næluna lóðrétt niður að topp á þumli þannig að auðvelt sé að taka hana úr eftir þæfingu. Snúið vettlingnum til baka þannig að vettlingurinn þæfist með réttuna út. Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (4)
Emilia wrote:
Tack så mycket för hjälpen, blev jättebra! Förutom att tummen inte tovades så mycket när jag hade plastpåse i den… Finns det något sätt att fixa det på?
06.12.2023 - 11:22DROPS Design answered:
Hej Emilie, vad kul :) hm.... skull du kunna doppa bara tummen i varmt vatten kanske...?
06.12.2023 - 15:27Emilia wrote:
Hej igen, är det ett omslag på varv 1? Kan inte se det i diagrammet
30.11.2023 - 10:45DROPS Design answered:
Hej igen Emilie, jo du börjar varv 1 nederst i diagrammet till höger :)
30.11.2023 - 10:50Emilia wrote:
Hej! I början står det att man ska sticka 20 maskor i A1, och sen upprepa det varvet tills arbetet når 3 cm. Men andra varvet i A1 är det 6 maskor och inte 5 som i första, undrar hur man ska gå tillväga då? Alltså hur nästkommande varv ska vara tack på förhand!
29.11.2023 - 21:49DROPS Design answered:
Hej Emilia, jo omslaget på varv 1 stickas rät på varv 2, det ser du i diagrammet :)
30.11.2023 - 10:42Rikke wrote:
Hej. Det ser ud til at instruktionerne til denne opskrift på dansk mangler. Der bliver gentaget størrelse, materialer, pinde og strikkefasthed. Der er et diagram men ikke nogen instruktioner. Har i mulighed for at ligge instruktioner ind? Tak.
15.01.2022 - 21:04DROPS Design answered:
Hej Rikke. Tack för info, nu finns hela opskriften på dansk. Mvh DROPS Design
17.01.2022 - 13:45