Marilou Masclaux skrifaði:
Comment tricoter avec le fil de début de pelote et le fil intérieur, donc 2 fils sans tricoter avec un fil double. Je ne comprends pas l’astuce talon de ce modèle
23.02.2024 - 11:00
Claudia skrifaði:
Hei! Jeg forstår dessverre ikke beskrivelsen av hælen. Jeg har økt med fem masker. Strikker jeg nå 5,5 cm videre uten endringer? Eller begynner jeg med en gang å felle igjen? Og så håper jeg at jeg har strikket 5,5 cm? Men jeg har økt med fem masker på ca. 2,5 cm, så jeg skjønner ikke hvordan jeg skal komme på hele 5,5 cm for den sammen prosessen (felle fem masker) hvis jeg bare gjør det hele omvendt. Tipper at hele biten skal være 7-8 cm total? Tusen takk for en forklaring!
21.02.2024 - 21:33DROPS Design svaraði:
Hei Claudia. Når arbeidet måler ca 22 cm deles, settes noen masker på en tråd og over de andre maskene skal det strikkes hæl. Så strikkes det vrangbord frem og tilbake over hælmaskene i 5½ cm, samtidig som det på første pinne økes med 5 masker jevnt fordelt. På siste pinne når arbeidet måler 5½ cm, felles det 5 masker jevnt fordelt. Altså du øker på 1. pinne og feller på siste pinne (av de 5½ cm). Nå skal du strikke det som står under HÆLFELLING i forklaringen. mvh DROPS Design
26.02.2024 - 13:39
Vanja Toften skrifaði:
Farvevalg; brun, er ikke korrekt i forhold til bilde!
31.01.2022 - 16:21
Josie skrifaði:
Bonjour, merci aux tricoteuses de nous donner les explications pour réaliser de vraies merveilles. Merci à drops pour les vidéos sur les chaussettes avec 5 aiguilles.
13.11.2021 - 14:34
Екатерина skrifaði:
Model "Raspberry cake with pistachio"
06.08.2021 - 11:16
Johanna skrifaði:
Stripeys
05.08.2021 - 14:47
Rigmor skrifaði:
Høst
04.08.2021 - 08:53
Autumnal Footsteps#autumnalfootsteps |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað með röndum. Stærð 35 - 43.
DROPS 227-61 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= mitt að aftan): Lykkjum er fækkað mitt að aftan, í 8. hverri umferð. Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= byrjun á umferð). Lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið síðustu lykkju í umferð slétt. RENDUR: Prjónið nú rendur þannig: * 1 umferð með litnum brúnn, 1 umferð með litnum skógur *, prjónið frá *-*. LEIÐBEININGAR (á við um hæl): Til að styrkja hælinn er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan úr og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-14-16 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um tá): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Sokkurinn er prjónaður í röndum. SOKKUR: Fitjið upp 72-76-80 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum brúnn í DROPS Fabel. Prjónið 1 umferð slétt. Haldið áfram með stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið stroff þar til stykkið mælist 4 cm í öllum stærðum. Prjónið síðan 1 umferð slétt með brúnn, setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftan. Prjónið síðan RENDUR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í 1. umferð byrjar úrtaka á bakhlið á stykki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og röndum og fækkið lykkjum í 8. hverri umferð þar til lykkjum hefur verið fækkað alls 9 sinnum = 54-58-62 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið rendur þar til stykkið mælist ca 22 cm. Nú á eru lykkjur settar á þráð (= ofan á fæti), yfir hinar lykkjurnar á að prjóna hæl. Haldið eftir fyrstu 13-14-15 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 28-30-32 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir þeim 13-14-15 lykkjum sem eftir eru á prjóni fyrir hæl = 26-28-30 hællykkjur. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið fram og til baka með litnum skógur yfir hællykkjur, jafnframt í fyrstu umferð eru auknar út 5-5-7 lykkjur jafnt yfir (= 31-3-37 lykkjur fyrir hæl). Prjónið stroff í 5-5½-6 cm, í síðustu umferð er fækkað um 5-5-7 lykkjur jafnt yfir = 26-28-30 lykkjur fyrir hæl. Setjið eitt prjónamerki mitt í síðustu umferð, prjónamerkið er notað síðar til að mæla lengd á fæti frá. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA með litnum skógur – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig – passið uppá að ekki sé prjónað með sama lit og prjónað var með strax fyrir hælúrtöku, þannig að það koma ekki 2 rendur með saman lit beint á eftir hvorri annarri á fæti: Prjónið sléttar lykkjur yfir 14-14-16 lykkjur frá hæl, prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hlið á hæl, setjið til baka 28-30-32 lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið sléttar lykkjur yfir þessar lykkjur. Prjónið upp 13-14-16 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hælnum og prjónið sléttar lykkjur fram að miðju á hællykkjum = 68-72-80 lykkjur í umferð. Byrjun á umferð á að vera mitt undir fæti. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 28-30-32 lykkjur á fæti. Prjónið síðan rendur eins og áður – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 28-30-32 lykkjur á fæti í annarri hverri umferð þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki á fæti snúnar slétt saman og prjónið 2 lykkjur á eftir seinna prjónamerki á fæti slétt saman (= 2 lykkjur færri). Fækkið alls 8-8-10 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Prjónið rendur eins og áður þar til stykkið mælist 18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 4-5-6 cm að loka máli – stillið af að næsta umferð sem prjóna á sé með litnum skógur (mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, þannig að það verða 26-28-30 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram með litnum skógur, í næstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-3-2 sinnum = 16 lykkjur eftir í öllum stærðum. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 8 lykkjur eftir í öllum stærðum. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið enda vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnalfootsteps eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-61
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.