LIMOSIN JOELLE skrifaði:
Bonjour. Lors du tricotage du plastron, lorsque l’ouvrage est séparé, j’ai l’impression que sur la photo, le travail est réalisé deux fois par rapport aux explications. Et non une fois comme indiqué dans les explications. Pouvez vous me répondre sur ce sujet . Merci d’avance
02.03.2025 - 14:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Limosin, vous aurez bien 2 fois A.5 avant de diviser l'ouvrage car vous tricotez (5à 8 cm de côtes anglaises avec l'aiguille 4,5, puis A.5 avec l'aiguille 4) et vous tricotez encore 1 fois de (à) = 2 fois A.5, puis vous divisez l'ouvrage au tour suivant. Bon tricot!
03.03.2025 - 10:10
Ronny skrifaði:
Leider sind die angegebenen masse für Kinder völlig utopisch. Da wird mit einem kopfumfang von 42cm bei 6 jährigen gerechnet. Der Umfang bei solchen kleinen Kindern beträgt eher 34cm - nicht mehr. Zudem wird eine ungerade maschenanzahl angegeben bei einem vollpatent. Das geht schon mal rein vom Muster her nicht.
13.11.2024 - 19:14
Susanne Andersen skrifaði:
Der mangler en forklaring på mønster A5. Kan se, at der er svaret på islandsk i januar. Vil I ikke gøre det på dansk også. Kan også se, at der er en anden 15.9. , der efterlyser det samme. Kom nu please☀️
02.10.2022 - 07:29DROPS Design svaraði:
Hej Susanne, det skal vi få lagt ud, den tomme rude er ret fra retsiden og vrang fra vrangen, den rude med - er vrang fra retsiden og ret fra vrangen :)
03.10.2022 - 14:46
Line skrifaði:
Au début du bandeau, il est indiqué de monter avec les aiguilles et 1 fil de chaque qualité (= 2 fils). Que signifie ? Est-ce que l'on doit doubler le fil ?
26.09.2022 - 17:18DROPS Design svaraði:
Bonjour Line, le bandeau se tricote entièrement avec 1 fil DROPS Alpaca + 1 fil DROPS Kid-Silk (cf échantillon), autrement dit avec les 2 laines tricotées ensemble. Bon tricot!
27.09.2022 - 08:22
Kristine skrifaði:
Jeg tror der mangler en oversigt over symbolerne i A5 hvordan den skal strikkes
14.09.2022 - 18:25DROPS Design svaraði:
Hej Kristine, det skal vi få lagt ind :)
15.09.2022 - 15:20
Helga skrifaði:
Ég er að prjóna hálskjólið en ég er ekki að skilja þegar þeir segja að maður eigi að prjón A5. Skil ekki myndina eða hvað ég á að gera. Væri gott að fá betri útskýringu eða myndband sem gæti útskýrt þetta betur. Mbk
11.01.2022 - 01:31DROPS Design svaraði:
Blessuð Helga. Ör: Prjónið 1 umferð slétt (eftir klukkuprjón, prjónið lykkjur og uppslátt saman) og prjónið 4 umferðir sléttprjón (= 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið) og endið með 1 umferð slétt. Gangi þér vel.
24.01.2022 - 10:19
Bente L Knutsen skrifaði:
Hei jeg strikker denne halsen , men forstår ikke helt. Skal jeg strikke M5 hva er det? Hvor lang skal den være før jeg deler den? Mvh bente l knutsen
04.01.2022 - 19:04DROPS Design svaraði:
Hei Bente. Når du har strikket vrangbord i 2 cm, byttes det til rundpinne 4,5 og det strikkes 5-6-7-8 cm med Helpatent med kast (det strikkes fortsatt rundt). Deretter byttes det til rundpinne 4 og nå strikkes det etter diagram A.5 (diagrammet ser du sammen ved skissene A.1-A.4). Så strikkes det 5-6-7-8 cm med Helpatent med kast på pinne 4,5 1 gang til og deretter byttes det til rundpinne 4 og nå strikkes det etter diagram A.5 1 gang til. Nå skal arbeidet deles, hvor lang den er kommer an på hvilken str. du strikker. mvh DROPS Design
14.01.2022 - 13:12
Winter Companions#wintercompanionsset |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónað eyrnaband og hálsskjól fyrir börn úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk í klukkuprjóni. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 41-23 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR (á við um eyrnaband): Til að eyrnabandið komi til með að sitja vel á höfðinu, þá verður að prjóna ca 7-8 cm styttra en ummál höfuðs. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, prjónið 1 lykkju slétt og endið með kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið og endið með kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkju, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman og endið með kantlykkju eins og útskýrt er í uppskrift Endurtakið umferð 2 og 3. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað í hring): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 2: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 3 * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Endurtakið umferð 2 og 3. MYNSTURTEIKNING: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning er notuð við frágang á eyrnabandinu. MYNSTUR (á við um hálsskjól): Sjá mynsturteikningu A.5. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- EYRNABAND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Endarnir eru síðan saumaðir saman þannig að það myndast kaðall fyrir miðju framann á eyrnabandinu. EYRNABAND: Fitjið upp 15-15-17-19 lykkjur aðeins laust á prjóna 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka) – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Fyrsta kantlykkjan í umferð er alltaf lyft af prjóni, síðasta kantlykkjan í umferð er prjónuð slétt. Þetta er gert bæði frá réttu og frá röngu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til eyrnabandið mælist ca 40-42-44-46 cm frá uppfitjunarkanti – sjá LEIÐBEININGAR. Skiptið yfir á prjón 3,5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Stykkið er nú rétthyrningur, brjótið rétthyrninginn saman á lengdina þannig að hann liggi tvöfaldur – sjá mynsturteikningu A.1. Nú á að leggja löngu hliðarnar á eyrnabandinu inn í hvora aðra í lögum án þess að snúa stykkinu – sjá mynsturteikningu A.2. Endarnir á eyrnabandinu liggja nú til skiptis innan í og utan á hvorum öðrum og endarnir liggja kant í kant – sjá mynsturteikningu A.3. Nú á að sauma í gegnum öll lögin þannig: Saumið meðfram strikuðu línunni í mynsturteikningu A.4 (þ.e.a.s. yfir endana á stykkinu), saumið með þéttu spori með 1 spori í hverja lykkju – það er mikilvægt að sauma í gegnum öll lögin þannig að saumurinn sjáist ekki þegar stykkinu er snúið við. Klippið þráðinn frá og festið. Snúið stykkinu þannig að saumurinn sé að innanverðu á eyrnabandinu. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið og hvort stykki er prjónað til loka fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp aðeins laust 62-62-74-86 lykkjur á hringprjóna 4 með 1 þræði Alpaca og 2 þráðum Kid-Silk (= 3 þræðir). Takið frá annan þráðinn með Kid-Silk. Afgangurinn af stykkinu er prjónaður með 1 þræði í hvorri tegund (það er fitjað upp svona til að uppfitjunarkanturinn dragist ekki saman). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Prjónið síðan þannig: * Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 5-6-7-8 cm með KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað í hring) – sjá útskýringu að ofan, skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.5 *, prjónið frá *-* einu sinni til viðbótar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú skiptist stykkið í hvorri hlið þannig að bæði stykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig eins og útskýrt er að neðan: Setjið næstu 31-31-37-43 lykkjur á hringprjón 4,5 og setjið þær 31-31-37-43 lykkjur á þráð. Prjónið KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka) með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið áfram þar til stykkið mælist 20-23-26-29 cm frá uppfitjunarkanti, næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á undan kantlykkjum, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan stroff fram og til baka í 2 cm með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Hálsskjólið mælist ca 22-25-28-31 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Setjið til baka lykkjur af þræði á hringprjóna 4,5 og prjónið á sama hátt og fyrra stykki. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintercompanionsset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.