Mary-Ann Lundvik skrifaði:
Då jag delat arbetet för frambenen, hamnar jag ju att sticka mönster A.1 på avigan . Hur gör jag då??
23.12.2024 - 15:12DROPS Design svaraði:
Hej, du stickar mönster A.1 från avigsidan genom att läsa diagrammet från vänster mot höger. Se även vår video om hur man stickar med två färger.
02.01.2025 - 18:32
Rebecka Larsson skrifaði:
När jag stickar bakstycket så får jag ju 2 maskor kvar när jag stickar på rätsidan.. stämmer det verkligen?
28.12.2023 - 10:21DROPS Design svaraði:
Hej Rebecka, har du stickat 1 kantmaska i varje sida (som rätstickas) :)
05.01.2024 - 11:39
Agata skrifaði:
Dzien dobry, mam pytanie do CZESC MIEDZY PRZEDNIMI LAPAMI. Czy tam ma byc 11cm (rozmiar S) od podzialu robotki czy od markera za karczkiem? 11cm wyszla mi ogromna dziura jak na takie male lapki. Prosze o porade
25.02.2022 - 10:51DROPS Design svaraði:
Witaj Agato, mierzysz od podziału robótki. Ta dziura/ odcinek, o którym piszesz to 11 cm w linii prostej. Jak powstanie z tego okrąg (dziurka na łapę) to będzie miała średnicę ok. 7 cm. A jak zrobisz ściągacz to jeszcze się zmniejszy. Miłej pracy!
25.02.2022 - 11:10
Vigdis Brenno skrifaði:
Skulle gjerne hatt hefte 1704 og hvem som forhandler Dropsgarn i Drammen Mvh Vigdis Brenno Buskerudveien 217a 3027 Drammen
05.10.2021 - 12:28
Atlanterhavsveien#Atlanterhavsveiendogsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð hundapeysa / peysa fyrir hund með norrænu mynstri úr DROPS Alaska. Stærð XS - M.
DROPS 228-53 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 6. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón. Síðan er peysan prjónuð í hring á hringprjón að opi fyrir framfætur. Síðan er prjónað fram og til baka á magastykki og fram og til baka á bakstykki. Þegar op fyrir framfætur hefur verið prjónað til loka er stykkið sett saman og prjónað er í hring áður en fellt er af mitt undir maga. Eftir það er prjónað fram og til baka. Prjónaður er kantur í kringum op fyrir framfætur og prjónaður er kantur í kringum op á peysu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 48-60-80 lykkjur á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4 með litnum ljós grár Alaska. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í hring þar til kantur í hálsmáli mælist alls 7-8-9 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 6-12-10 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 54-72-90 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, stykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið hringinn í sléttprjón með litnum ljós grár þar til stykkið mælist ca 2-3-5 cm frá prjónamerki. Prjónið A.1 hringinn (= 9-12-15 mynstureiningar í umferð) þar til stykkið mælist 3-4-7 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið við framfætur og stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum áður en það er sett aftur saman. BAKSTYKKI: Prjónið fyrstu 17-23-29 lykkjur í umferð og setjið þær síðan á þráð = 37-49-61 lykkjur á prjóni. Nú er prjónað fram og til baka yfir þessar 37-49-61 lykkjur, í lok 2 fyrstu umferða er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 39-51-63 lykkjur á prjóni. Prjónið síðan bakstykki fram og til baka með A.1 eins og áður og með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 9-11-13 cm frá skiptingu, í byrjun á 2 síðustu umferðum er felld af 1 kantlykkja í hvorri hlið, stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá röngu = 37-49-61 lykkjur. Klippið þráðinn. MAGASTYKKI: Setjið 17-23-29 af þræði á hringprjón 5, í lok fyrstu umferða er fitjuð upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 19-25-31 lykkjur. Prjónið síðan fram og til baka með A.1 eins og áður og með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 9-11-13 cm frá skiptingu – í byrjun á 2 síðustu umferðum er felld af 1 kantlykkja í hvorri hlið, stillið af að síðasta umferðin sem prjónuð er sé sama umferð og á bakstykki. Haldið eftir lykkjum á prjóni. MAGA- OG BAKSTYKKI: Nú er stykkið sett saman þannig: Byrjið frá réttu og prjónið yfir 17-23-29 lykkjur á prjóni, fitjið upp 6 nýjar lykkjur, prjónið síðan yfir 37-49-61 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 6 lykkjur = 66-84-102 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 16-21-29 cm frá prjónamerki, þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka, prjónað með litnum ljós grár að loka máli. Það eru eftir ca 3 cm neðan á peysu (meðfram maga) og ca 8-11-11 cm ofan á peysu (meðfram baki). Mátið e.t.v. peysuna á hundinn og prjónið að óskaðri lengd. Setjið fyrstu 17-23-29 lykkjur í umferð á þráð (= mitt undir maga) = 49-61-73 lykkjur. Prjónið síðan fram og til baka í sléttprjóni og fellið af lykkju í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2 sinnum, 1 lykkja 1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 1-2-2 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni = 27-29-41 lykkjur. Setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð. Stykkið mælist ca 21-29-37 cm frá prjónamerki. KANTUR Í KRINGUM OP FYRIR FRAMFÓT: Notið sokkaprjóna 4, prjónið upp ca 48 til 68 lykkjur með litnum ljós grár Alaska innan við 1 kantlykkju í kringum annað opið fyrir framfót. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn þar til kanturinn mælist ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Prjónið kant í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt. KANTUR Í KRINGUM MAGA- OG BAKSTYKKI: Nú er prjónaður kantur í kringum opið á peysu, frá miðju að neðan og í kringum allan kantinn. Byrjið frá réttu og notið hringprjón 4, prjónið upp ca 88 til 104 lykkjur með litnum ljós grár (meðtaldar lykkjur á þræði). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til kanturinn mælist ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 24-32-40 cm frá eftir kanti í hálsi á baki og ca 19-24-32 cm frá eftir kanti í hálsi (undir maga). Felið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #Atlanterhavsveiendogsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-53
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.