Pina skrifaði:
Hallo! Ich bin neu dabei mit Kraus-Maschen. Haben Sie irgendwo eine genauere Erklärung wie man A1 versteht, oder wie bei Rück und Hin-Masche in rechts ein vertikales Rippenmusster entsteht?
22.11.2021 - 22:04DROPS Design svaraði:
Liebe Pina, A.1 besteht aus Rippenmuster 1 Masche rechts verschränkt/1 Masche links, dh bei Hinreihen stricken Sie: *1 Masche rechts verschränkt, 1 Masche links*, von *bis* wiederholen und Reihe mit 1 Masche rechts verschränkt enden (= 1. M in A.1); Rückreihe = 1 Masche links verschränkt, *1 Masche rechts, 1 Masche links verschränkt*, von *-* wiederholen. Viel Spaß beim stricken!
23.11.2021 - 08:27
Merja Ylivarvi skrifaði:
Beautiful and easy help. Knit instructions according to the instructions! And Drops Air
22.10.2021 - 09:06
Mille skrifaði:
Simplicity slipover
17.08.2021 - 02:01
Olena skrifaði:
Beautiful!
12.08.2021 - 07:28
Susanne Pedersen skrifaði:
Really beautiful 😻
09.08.2021 - 09:47
Carina Degner Steffen skrifaði:
The nice one
05.08.2021 - 09:17
Christine Boucher skrifaði:
Frimas
03.08.2021 - 17:18
Sugar Glaze Vest#sugarglazevest |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónað vesti með tvöföldum kanti í hálsmáli úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-41 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 112 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 110 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 32) = 3,4. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca aðra hverja og 3. hverja lykkju og 3. hverja og 4. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um handveg og hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN Á UMFERÐ ÞANNIG: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki og framstykkin eru prjónuð fram og til baka í hlutum. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp fyrir tvöfaldan kant í hálsmáli og kanta á ermum. BAKSTYKKI: Fitjið upp 112-120-132-142-156-170 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 32-34-38-40-44-48 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 80-86-94-102-112-122 lykkjur. Skiptið yfir á prjón nr 5. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, fellið af 4-4-5-5-6-7 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 72-78-84-92-100-108 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2. Haldið áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 2-3-3-5-7-8 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) alls 6-6-7-8-8-9 sinnum = 56-60-64-66-70-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 30-32-34-34-36-36 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. VINSTRI ÖXL (þegar stykkið er mátað): Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun umferðar – munið eftir ÚRTAKA-2 = 12-13-14-15-16-18 lykkjur eftir. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRI ÖXL (þegar stykkið er mátað): Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar – munið eftir ÚRTAKA-2 = 12-13-14-15-16-18 lykkjur eftir. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 112-120-132-142-156-170 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til stykkið mælist 8 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 32-34-38-40-44-48 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 80-86-94-102-112-122 lykkjur. Skiptið yfir á prjón nr 5. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, fellið af 4-4-5-5-6-7 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 72-78-84-92-100-108 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2. Haldið áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir handveg í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 2-3-3-5-7-8 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) alls 6-6-7-8-8-9 sinnum = 56-60-64-66-70-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-43-44-46-47-49 cm, setjið miðju 16-18-20-20-22-22 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. HÆGRI ÖXL (þegar stykkið er mátað): Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun umferðar – munið eftir ÚRTAKA-2. Haldið áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 8 sinnum = 12-13-14-15-16-18 lykkjur eftir. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. VINSTRI ÖXL (þegar stykkið er mátað): Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar – munið eftir ÚRTAKA-2. Haldið áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 8 sinnum = 12-13-14-15-16-18 lykkjur eftir. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður – saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3 og DROPS Air. Byrjið frá réttu við aðra öxlina og prjónið upp ca 100-104-112-112-118-118 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) í kringum hálsmál innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið A.1 hringinn í 9-9-9-10-10-10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir snúnar sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. KANTUR ERMI: Notið hringprjón 3 og DROPS Air. Byrjið frá réttu neðst í öðrum handveginum og prjónið upp ca 118-122-126-130-134-138 lykkjur í kringum handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið A.1 hringinn þar til kantur á ermi mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir snúnar sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sugarglazevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-41
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.