Lisianne RICHARD skrifaði:
Bonjour, sur le modèle châle 165-4 on tricote avec combien de fils svp merci
14.08.2021 - 18:10
Sili skrifaði:
¡Amo el ganchillo! Es relajante, divertido, versátil. Siempre da una apariencia rústica inconfundible. Y el fino crochet en verdad es como encaje.
04.08.2021 - 08:38
Teal Crossover Sweater#tealcrossoversweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er heklað með köðlum, stuðlakrókum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-29 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Þegar heklað er fram og til baka: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur eru heklaðar sem viðbót við þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja. Loftlykkjan kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur er hekluð sem viðbót við þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Þegar heklað er í hring: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur eru heklaðar sem viðbót við þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð . MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR STUÐLAKRÓKSMYNSTUR: Þegar stuðlakróksmynstur er heklað er mikilvægt að stuðlakrókslykkjurnar séu ekki of stífar né of lausar. Ef stuðlakrókslykkjurnar eru of stífar þegar heklaðir eru stuðlakrókar-fjórbrugðnir stuðlar, er hægt að hekla stuðlakróka-fimmbrugðna stuðla í staðinn. Ef stuðlakrókslykkjurnar eru of lausar, er hægt að hekla stuðlakróka-þríbrugðna stuðla í staðinn. ÚRTAKA: Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkjuna og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur um heklunálina), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri). Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul þannig: * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um undir ermum): Heklið 2 stuðla í 3. stuðul í umferð, heklið þar til 3 stuðlar eru eftir, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, heklið út umferðina (= 2 stuðlar fleiri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er heklað fram og til baka hvort fyrir sig. Heklað er stuðlakróksmynstur á framstykki og bakstykki - sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR STUÐLAKRÓKSMYNSTUR. Ermar eru heklaðar í hring, en snúið er við í hverri umferð, þannig að áferðin verði eins á fram- og bakstykki. Síðan er stykkið saumað saman. Að lokum er heklaður kantur í hálsmáli hringinn. BAKSTYKKI: Heklið 84-87-96-105-114-123 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 4,5 með DROPS Merino Extra Fine. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í hverja og eina af síðustu 80-83-92-101-110-119 loftlykkjum = 81-84-93-102-111-120 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með. Heklið nú þannig: Heklið 3 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið A.1 út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 8 cm – stillið af að síðasta umferðin sem er hekluð sé umferð með fastalykkjum frá röngu og fækkið um 1-0-1-0-1-0 lykkjur í þessari umferð – sjá ÚRTAKA = 80-84-92-102-110-120 fastalykkjur + 1 loftlykkja til að snúa við með. Heklið nú mynstur frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 3-5-9-9-13-18 fastalykkjum, A.2 yfir næstu 2 fastalykkjur, A.3 yfir næstu 60-60-60-70-70-70 fastalykkjur (= 6-6-6-7-7-7 mynstureiningar með 10 lykkjum), A.4 yfir næstu 12 lykkjur, 1 stuðull í hverja af síðustu 3-5-9-9-13-18 fastalykkjum. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið A.X á hæðina. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Heklið 1 keðjulykkju í hverja af fyrstu 2-3-5-7-8-10 lykkjum, heklið mynstur eins og áður yfir næstu 76-78-82-88-94-100 lykkjur (nú eru eftir 2-3-5-7-8-10 lykkjur í lok umferðar), snúið stykkinu. Í stærð S, M og L er heklað áfram frá ALLAR STÆRÐIR að neðan. Í stærð XL, XXL og XXXL er heklað þannig: Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður, jafnframt er fækkað um 1 stuðul í hvorri hlið á stykki með því að hekla 2 stuðla saman – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 1-2-4 sinnum. ALLAR STÆRÐIR: = 76-78-82-86-90-92 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og áður yfir miðju 74-74-74-84-84-84 lykkjur og heklið 1 stuðul í hvern stuðul yfir 1-2-4-1-3-4 stuðla í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, heklið eins margar lykkjur af stuðlakróksmynstri og pláss er fyrir, fyrir axlar, lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru heklaðar sem stuðlar, JAFNFRAMT er næsta umferð hekluð þannig: Heklið yfir fyrstu 24-25-27-28-30-31 lykkjur, heklið næstu 2 stuðla saman – munið eftir ÚRTAKA = 25-26-28-29-31-32 lykkjur yfir öxl. Snúið og heklið til baka frá röngu. Klippið þráðinn. Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm. Hoppið yfir miðju 24-24-24-26-26-26 lykkjur eftir öxl (= 24-24-24-26-26-26 lykkjur = hálsmál). Heklið frá réttu þannig: Heklið næstu 2 stuðla saman – munið eftir ÚRTAKA, heklið eins og áður út umferðina = 25-26-28-29-31-32 lykkjur fyrir öxl. Snúið og heklið til baka frá röngu. Klippið þráðinn og festið. Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm. FRAMSTYKKI: Heklið alveg eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg alveg eins og á bakstykki = 76-78-82-86-90-92 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður yfir miðju 74-74-74-84-84-84 lykkju með mynstri og heklið 1 stuðul í hvern stuðul yfir 1-2-4-1-3-4 stuðla í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 49-51-53-54-56-58 cm, heklið næstu umferð þannig: Heklið með eins margar lykkjur af mynstri og pláss er fyrir – lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru heklaðar sem stuðlar. Heklið frá réttu þannig: Heklið eins og áður yfir fyrstu 27-28-30-31-33-34 lykkjur, fækkið um 2 stuðla með því að hekla 2 og 2 stuðla saman yfir næstu 4 stuðla – munið eftir ÚRTAKA. Snúið og fækkið um 2 stuðla með því að hekla 2 og 2 stuðla saman yfir næstu 4 stuðla, heklið mynstur eins og áður út umferðina. Snúið og heklið mynstur eins og áður þar til 4 stuðlar eru eftir, fækkið um 2 stuðla með því að hekla 2 og 2 stuðla saman yfir næstu 4 stuðla = 25-26-28-29-31-32 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist = 56-58-60-62-64-66 cm. Klippið þráðinn. Hoppið yfir fyrstu 14-14-14-16-16-16 lykkjur á eftir öxl (= miðju 14-14-14-16-16-16 lykkjur í umferð = hálsmál). Heklið síðan frá réttu þannig: Fækkið um 2 lykkju með því að hekla 2 og 2 stuðla saman yfir næstu 4 lykkjur, heklið mynstur eins og áður yfir þær 27-28-30-31-33-34 lykkjur sem eftir eru. Snúið og heklið mynstur þar til 4 lykkjur eru eftir, fækkið um 2 lykkju með því að hekla 2 og 2 stuðla saman yfir næstu 4 lykkjur. Snúið og fækkið um 2 lykkjur með því að hekla 2 og 2 lykkjur saman yfir næstu 4 stuðla, heklið mynstur út umferðina = 25-26-28-29-31-32 lykkjur fyrir öxl. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist = 56-58-60-62-64-66 cm. Klippið þráðinn. ERMI: Heklið 52-55-55-58-58-61 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU, með heklunál 4,5 með Merino Extra Fine og heklið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 51-54-54-57-57-60 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með. Heklið nú A.1 hringinn í umferð – jafnframt er stykkinu snúið í hverri umferð þannig að önnur hver umferð sé hekluð frá réttu og röngu. Stuðlakrókslykkjur í mynsturteikningu eiga alltaf að vera heklaðar frá réttu. Endurtakið síðustu 4 umferðir í mynsturteikningu þar til stykkið mælist 11 cm. Heklið áfram með stuðlum. Þegar stykkið mælist 19-20-20-20-20-20 cm, aukið út um 2 stuðla undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 12-10½-5-4½-3-2½ cm millibili alls 3-3-5-5-7-7 sinnum = 57-60-64-67-71-74 stuðlar. Þegar ermin mælist 47-45-45-43-42-39 cm, heklið ermakúpuna fram og til baka að loknu máli. Heklið eftir mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S, M og L: Heklið áfram með stuðlum í ca 1-3-3 cm. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Heklið áfram með stuðlum í ca 4-5-8 cm. Næsta umferð er hekluð þannig: Fækkið um 1-2-4 stuðla með því að hekla 2 og 2 stuðla saman yfir fyrstu 2-4-8 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til 2-4-8 stuðlar eru eftir, heklið 2 og 2 stuðla saman yfir síðustu 2-4-8 stuðla = 65-67-66 stuðlar. ALLAR STÆRÐIR: Ermin mælist ca 48 cm í öllum stærðum og það er klauf 1-3-3-5-6-9 cm efst á ermi. Klippið þráðinn og festið. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana í lykkjurnar eina og eina. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handveg – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma innan við ysta stuðul. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við annan axlasauminn og heklið með heklunál 4,5 með DROPS Merino Extra Fine þannig: Heklið 1 fastalykkju, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið 1 fastalykkju *, heklið frá *-* alls 24-24-24-28-28-28 sinnum í kringum hálsmál, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 3 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 3 stuðla um hvern af 24-24-24-28-28-28 loftlykkjuboga, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 72-72-72-84-84-84 stuðlar. Heklið A.1 hringinn þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 11 cm frá loftlykkjubogum, jafnframt í síðustu umferð, heklið 1 auka loftlykkju á eftir 6. hverja lykkju. Þetta er gert til að kanturinn í hálsi dragist ekki saman og beygist út. Klippið þráðinn, en skiljið eftir enda ca 50 cm fyrir frágang. Brjótið niður kantinn að innanverðu á stykki. Saumið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tealcrossoversweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.