DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15708.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Teal Crossover

Hekluð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er heklað með köðlum, stuðlakróksmynstri og kraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 227-30
DROPS Design: Mynstur me-231
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
850-950-1050-1150-1250-1350 g litur 37, skýjaskógur

DROPS TALA, Buffelhorns NR 536: 5-5-6-6-6-6 st.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 4,5.

HEKLFESTA:
16 stuðlar á breidd og 8 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15708.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Þegar heklað er fram og til baka:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur eru heklaðar sem viðbót við þær lykkjur sem eftir eru í umferð.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja. Loftlykkjan kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur er hekluð sem viðbót við þær lykkjur sem eftir eru í umferð.
Þegar heklað er í hring:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur eru heklaðar sem viðbót við þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð .

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldur mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.5 og A.6).

HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR STUÐLAKRÓKSMYNSTUR:
Þegar stuðlakróksmynstur er heklað er mikilvægt að stuðlakrókslykkjurnar séu ekki of stífar né of lausar. Ef stuðlakrókslykkjurnar eru of stífar þegar heklaðir eru stuðlakrókar-fjórbrugðnir stuðlar, er hægt að hekla stuðlakróka-fimmbrugðna stuðla í staðinn.
Ef stuðlakrókslykkjurnar eru of lausar, er hægt að hekla stuðlakróka-þríbrugðna stuðla í staðinn.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkjuna og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur um heklunálina), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul þannig:
* bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við um undir ermum):
Heklið 2 stuðla í 3. stuðul í umferð, heklið þar til 3 stuðlar eru eftir, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, heklið út umferðina (= 2 stuðlar fleiri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkið er heklað fram og til baka hvort fyrir sig. Heklað er stuðlakróksmynstur á framstykki og bakstykki - sjá HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR STUÐLAKRÓKSMYNSTUR.
Ermar eru heklaðar í hring, en snúið er við í hverri umferð, þannig að áferðin verði eins á fram- og bakstykki. Síðan er stykkið saumað saman. Að lokum er heklaður kragi fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Heklið 84-87-96-105-114-123 loftlykkjur – sjá LOFTLYKKJA, með heklunál 4,5 með DROPS Merino Extra Fine. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í hverja og eina af síðustu 80-83-92-101-110-119 loftlykkjum = 81-84-93-102-111-120 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með.
Heklið nú þannig:
Heklið 3 loftlykkjur – sjá HEKLLEIÐBEININGAR, heklið A.1 út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 8 cm – stillið af að síðasta umferðin sem er hekluð sé umferð með fastalykkjum frá röngu og fækkið um 1-0-1-0-1-0 lykkjur í þessari umferð – sjá ÚRTAKA = 80-84-92-102-110-120 fastalykkjur + 1 loftlykkja til að snúa við með.
Heklið nú mynstur frá réttu þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 3-5-9-9-13-18 fastalykkjum, A.2 yfir næstu 2 fastalykkjur, A.3 yfir næstu 60-60-60-70-70-70 fastalykkjur (= 6-6-6-7-7-7 mynstureiningar með 10 lykkjum), A.4 yfir næstu 12 lykkjur, 1 stuðull í hverja af síðustu 3-5-9-9-13-18 fastalykkjum.
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið A.X á hæðina.
Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Heklið 1 keðjulykkju í hverja af fyrstu 2-3-5-7-8-10 lykkjum, heklið mynstur eins og áður yfir næstu 76-78-82-88-94-100 lykkjur (nú eru eftir 2-3-5-7-8-10 lykkjur í lok umferðar), snúið stykkinu.
Í stærð S, M og L er heklað áfram frá ALLAR STÆRÐIR að neðan. Í stærð XL, XXL og XXXL er heklað þannig:
Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður, jafnframt er fækkað um 1 stuðul í hvorri hlið á stykki með því að hekla 2 stuðla saman – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 1-2-4 sinnum.

ALLAR STÆRÐIR:
= 76-78-82-86-90-92 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka með mynstri eins og áður yfir miðju 74-74-74-84-84-84 lykkjur og heklið 1 stuðul í hvern stuðul yfir 1-2-4-1-3-4 stuðla í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, heklið næstu umferð þannig: Heklið mynstur eins og áður yfir fyrstu 28-29-31-32-34-35 lykkjur, heklið næstu 2 stuðla saman – munið eftir ÚRTAKA = 29-30-31-32-34-35 lykkjur, heklið næstu 2 stuðla saman – munið eftir ÚRTAKA = 29-30-32-33-35-36 lykkjur fyrir öxl. Snúið og heklið til baka frá röngu. Klippið þráðinn. Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm.
Hoppið yfir miðju 16-16-16-18-18-18 lykkjur eftir öxl (= 16-16-16-18-18-18 lykkjur = hálsmál). Heklið frá réttu þannig: Heklið næstu 2 stuðla saman – munið eftir ÚRTAKA, heklið eins og áður út umferðina = 29-30-32-33-35-36 lykkjur fyrir öxl. Snúið og heklið til baka frá röngu. Klippið þráðinn og festið. Stykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið 48-50-54-60-64-70 loftlykkjur – munið eftir LOFTLYKKJA, með heklunál 4,5 með DROPS Merino Extra Fine. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 44-46-50-56-60-66 loftlykkjum = 45-47-51-57-61-67 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með.
Heklið nú þannig:
Heklið 3 loftlykkjur, heklið A.1 út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 8 cm – stillið af að síðasta umferðina sem er hekluð sé umferð með fastalykkjum frá röngu og að fækkað sé um 0-0-0-0-0-1 fastalykkju í þessari umferð = 45-47-51-57-61-66 fastalykkjjur + 1 loftlykkja til að snúa við með.
Heklið nú mynstur frá réttu þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 4 fastalykkjum (= kantur að framan), heklið A.5 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 6-6-6-12-12-12 fastalykkjur, A.3 yfir næstu 20 fastalykkjur (= 2 mynstureiningar með 10 lykkjum), A.4 yfir næstu 12 fastalykkjur, 1 stuðull í hverja af síðustu 3-5-9-9-13-18 fastalykkjum.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina endurtakið A.X á hæðina.
Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg í næstu umferð frá röngu þannig: Heklið 1 keðjulykkju í hverja af fyrstu 2-3-5-7-8-10 stuðlum, heklið síðan eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru = 43-44-46-50-53-56 lykkjur.
Í stærð S, M og L er heklað áfram frá ALLAR STÆRÐIR að neðan. Í stærð XL, XXL og XXXL er heklað þannig:
Haldið áfram með mynstur fram og til baka með mynstur eins og áður, jafnframt er fækkað um 1 stuðul í hlið fyrir handveg með því að hekla 2 stuðla saman – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og röngu) alls 1-2-4 sinnum.

ALLAR STÆRÐIR:
= 43-44-46-49-51-52 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður og heklið 1 stuðul í hvern stuðul yfir 1-2-4-1-3-4 stuðla við handveg.
Þegar stykkið mælist 49-51-53-54-56-58 cm, heklið áfram með eins margar lykkjur af mynstri og pláss er fyrir – lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru heklaðar í stuðlum.
Heklið frá réttu þannig: Heklið 1 keðjulykkju í hverja af fyrstu 8-8-8-10-10-10 lykkjum (= kantur að framan og hálsmál), fækkið um 2 lykkjur með því að hekla 2 og 2 stuðla saman yfir næstu 4 lykkjur, heklið mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Snúið og heklið mynstur þar til 4 lykkjur eru eftir, fækkið um 2 lykkjur með því að hekla 2 og 2 stuðla saman yfir næstu 4 lykkjur. Snúið og fækkið um 2 lykkjur með því að hekla 2 og 2 lykkjur saman yfir næstu 4 stuðla, heklið mynstur út umferðina = 29-30-32-33-35-36 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Klippið þráðinn.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið 48-50-54-60-64-70 loftlykkjur – munið eftir LOFTLYKKJA, með heklunál 4,5 með DROPS Merino Extra Fine. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 44-46-50-56-60-66 loftlykkjum = 45-47-51-57-61-67 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með.
Heklið nú þannig:
Heklið 3 loftlykkjur, heklið A.1. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 8 cm – stillið af að síðasta umferðina sem er hekluð sé umferð með fastalykkjum frá röngu og að fækkað sé um 0-0-0-0-0-1 fastalykkju í þessari umferð = 45-47-51-57-61-66 fastalykkjjur + 1 loftlykkja til að snúa við með.
Heklið nú mynstur frá réttu þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 3-5-9-9-13-18 fastalykkjum, heklið A.2 yfir næstu 2 fastalykkjur, heklið A.3 yfir næstu 30 fastalykkjur (= 3 mynstureiningar með 10 lykkjum), heklið A.6 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir næstu 6-6-6-12-12-12 fastalykkjur, 1 stuðull í hverja af síðustu 4 fastalykkjum (= kantur að framan).
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina endurtakið A.X á hæðina.
Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg í næstu umferð frá réttu þannig: Heklið 1 keðjulykkju í hverja af fyrstu 2-3-5-7-8-10 stuðlum, heklið síðan eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru = 43-44-46-50-53-56 lykkjur.
Í stærð S, M og L er heklað áfram frá ALLAR STÆRÐIR að neðan. Í stærð XL, XXL og XXXL er heklað þannig:
Haldið áfram með mynstur fram og til baka með mynstur eins og áður, jafnframt er fækkað um 1 stuðul í hlið fyrir handveg með því að hekla 2 stuðla saman – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og röngu) alls 1-2-4 sinnum.

ALLAR STÆRÐIR:
= 43-44-46-49-51-52 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður og heklið 1 stuðul í hvern stuðul yfir 1-2-4-1-3-4 stuðla við handveg.
Þegar stykkið mælist 49-51-53-54-56-58 cm, heklið áfram með eins margar lykkjur af mynstri og pláss er fyrir – lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru heklaðar í stuðlum.
Heklið frá réttu þannig: Heklið þar til 12-12-12-14-14-14 lykkjur eru eftir í umferð, fækkið um 2 lykkjur með því að hekla 2 og 2 stuðla saman yfir næstu 4 lykkjur. Nú eru eftir 8-8-8-10-10-10 lykkjur í umferð (= kantur að framan og hálsmál), snúið stykkinu og heklið til baka frá röngu þannig: Fækkið um 2 lykkjur með því að hekla 2 og 2 stuðla saman yfir næstu 4 lykkjur, heklið mynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Snúið og heklið mynstur þar til 4 lykkjur eru eftir, fækkið um 2 lykkjur með því að hekla 2 og 2 stuðla saman yfir næstu 4 lykkjur = 29-30-32-33-35-36 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Klippið þráðinn.

ERMI:
Heklið 52-55-55-58-58-61 loftlykkjur – munið eftir LOFTLYKKJA, með heklunál 4,5 með Merino Extra Fine og heklið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð. Heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja loftlykkju, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 51-54-54-57-57-60 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með.
Heklið nú A.1 hringinn í umferð – jafnframt er stykkinu snúið í hverri umferð þannig að önnur hver umferð sé hekluð frá réttu og röngu. Stuðlakrókslykkjurnar í mynsturteikningu eiga alltaf að vera heklaðar frá réttu. Endurtakið síðustu 4 umferðir í mynsturteikningu þar til stykkið mælist 11 cm. Heklið áfram með stuðlum. Þegar stykkið mælist 19-20-20-20-20-20 cm, aukið út um 2 stuðla undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 12-10½-5-4½-3-2½ cm millibili alls 3-3-5-5-7-7 sinnum = 57-60-64-67-71-74 stuðlar. Þegar ermin mælist 47-45-45-43-42-39 cm, heklið ermakúpuna fram og til baka að loknu máli. Heklið mismunandi eftir stærðum þannig:

STÆRÐ S, M og L:
Heklið stuðla í ca 1-3-3 cm.

STÆRÐ XL, XXL og XXXL:
Heklið stuðla í ca 4-5-8 cm. Næsta umferð er hekluð þannig:
Fækkið um 1-2-4 stuðla með því að hekla 2 og 2 stuðla saman yfir fyrstu 2-4-8 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til 2-4-8 stuðlar eru eftir, heklið 2 og 2 stuðla saman yfir síðustu 2-4-8 stuðla = 65-67-66 stuðlar.

ALLAR STÆRÐIR:
Ermin mælist ca 48 cm í öllum stærðum og það er klauf 1-3-3-5-6-9 cm efst á ermi. Klippið þráðinn og festið.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana í lykkjurnar eina og eina.
Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handveg – sjá teikningu.
Saumið hliðarsauma innan við ystu lykkju í hvorri hlið frá handveg og niður. Að lokum eru tölur saumaðar í vinstri kant að framan þannig: Efsta talan á að vera ca 2 cm frá kanti í hálsi og neðsta talan á að vera ca 8 cm frá neðri kanti. Deilið þeim 3-3-4-4-4-4 tölum sem eftir eru jafnt yfir með 9½-10-8½-9-9-9½ cm millibili. Tölunum er hneppt á milli 2 stuðla í kanti að framan.

KRAGI:
Byrjið frá réttu á hægra framstykki þannig:
Hoppið yfir 4 lykkjur fyrir kant að framan, festið þráðinn með 1 fastalykkju í næstu lykkju, * heklið 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið 1 fastalykkju *, heklið *-* 6-6-6-7-7-7 sinnum upp að axlasaumi, heklið áfram með 7-7-7-8-8-8 loftlykkjubogum fram að næsta axlasaumi, heklið 6-6-6-7-7-7 loftlykkjuboga í vinstra framstykki þar til 4 lykkjur eru eftir (= kantur að framan) = 19-19-19-22-22-22 loftlykkjubogar.
Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 3 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í fyrstu fastalykkju, heklið 3 stuðla um hvern og einn af 19-19-19-22-22-22 loftlykkjubogum, endið með 1 stuðul í síðustu fastalykkju = 59-59-59-68-68-68 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með.
Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul.
Heklið nú áfram fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 3-3-3-3-3-3 stuðlum, heklið 2 stuðla í næsta stuðul (= 1 lykkja fleiri), * 1 stuðull í hvern af næstu 3 stuðlum, heklið 2 stuðla í næsta stuðul (= 1 stuðull fleiri), * heklið frá *-* alls 13-13-13-15-15-15 sinnum (= 13-13-13-15-15-15 lykkjur fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af síðustu 3-3-3-4-4-4 stuðlum = 73-73-73-84-84-84 lykkjur.
UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 3-3-3-4-4-4 stuðlum, heklið 2 stuðla í næsta stuðul (= 1 lykkja fleiri), * 1 stuðull í hvern af næstu 4 stuðlum, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, * heklið frá *-* alls 13-13-13-15-15-15 sinnum (= 13-13-13-15-15-15 lykkjur fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 4-4-4-4-4-4 stuðlum = 87-87-87-100-100-100 lykkjur.
UMFERÐ 4: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
UMFERÐ 5: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 4-4-4-4-4-4 stuðlum, heklið 2 stuðla í næsta stuðul (= 1 lykkja fleiri), * 1 stuðull í hvern af næstu 5 stuðlum, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, * heklið *-* 13-13-13-15-15-15 sinnum (= 13-13-13-15-15-15 lykkjur fleiri), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 4-4-4-5-5-5 stuðlum = 101-101-101-116-116-116 lykkjur.
UMFERÐ 6: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
Kraginn mælist ca 7 cm. Klippið þráðinn og festið.

Mynstur

symbols = Umferðin hefur nú þegar verið hekluð. Byrjaðu við ör

symbols = Byrjið hér
symbols = 1 STUÐLAKRÓKUR- TVÍBRUGÐINN STUÐULL (einungis er heklað frá réttu): Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um 1 stuðul/stuðlakrókur - tvíbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með stuðlum/stuðlakrókslykkjum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfan stuðulinn/stuðlakróksstuðul-tvíbrugðinn stuðul)

symbols = 1 fastalykkja í lykkju
symbols = 1 stuðull í lykkju (heklið frá röngu)
symbols = 1 stuðull í lykkju (heklið frá réttu)
symbols = 1 STUÐLAKRÓKUR-ÞRÍBRUGÐINN STUÐULL (einungis er heklað frá réttu): Heklið 1 þríbrugðinn stuðul um 1 stuðul frá fyrri stuðlaumferð frá réttu (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur utan um sjálfan stuðulinn).
Hringur í lok stuðlakróks-þríbrugðin stuðuls sýnir hvaða stuðul á að hekla utan um. Byrjun á línu = umferð þar sem þessi stuðlakrókur-þríbrugðinn stuðull byrjar.
Í fyrstu umferð í A.2 til A.4 eru hekluð 2 tákn sem standa á ská yfir hvort annað um sama stuðul
symbols =
1 STUÐLAKRÓKUR-FJÓRBRUGÐINN STUÐULL (einungis er heklað frá réttu): Heklið 1 fjórbrugðinn stuðul um 1 fjórbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með stuðlakrókslykkjum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur utan um sjálfan fjórbrugðna stuðulinn).
Svartur punktur í lok á tákni sýnir hvaða lykkju á að hekla utan um.
Byrjun á línu = umferð þar sem þessi stuðlakrókur-fjórbrugðinn stuðull byrjar.
symbols = 1 stuðull og 1 STUÐLAKRÓKUR-FJÓRBRUGÐINN STUÐULL (einungis er heklað frá réttu): Heklið 1 stuðul í næstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið síðan 1 fjórbrugðinn stuðul um 1 fjórbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með stuðlakrókslykkjum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur utan um sjálfan fjórbrugðna stuðulinn), þegar bregða á þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, dragið þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni.
Svartur ferningur í lok á tákni sýnir hvaða lykkju á að hekla utan um.
Byrjun á línu = umferð þar sem þessi stuðlakrókur-fjórbrugðinn stuðull byrjar.
symbols = 1 STUÐLAKRÓKUR-FJÓRBRUGÐINN STUÐULL og 1 stuðull (einungis er heklað frá réttu): Heklið 1 fjórbrugðinn stuðul um 1 fjórbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með stuðlakrókslykkjum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur utan um sjálfan fjórbrugðna stuðulinn), en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn. Heklið síðan 1 stuðul í næstu lykkju, þegar bregða á þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, dragið þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni.
Hvítur ferningurinn í lok á tákni sýnir hvaða lykkju á að hekla utan um. Byrjun á línu = umferð þar sem þessi stuðlakrókur-fjórbrugðinn stuðull byrjar.
symbols = 1 STUÐLAKRÓKUR-STUÐULL (einungis heklað frá réttu): Heklið 1 stuðul um 1 fjórbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með stuðlakrókslykkjum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur utan um sjálfan fjórbrugðinn stuðul). Stjarnan í enda á tákni sýnir hvaða lykkju á að hekla utan um.
Byrjun á línu = umferð þar sem þessi stuðlakróks-stuðull byrjar.
symbols = Þessi stuðlakróks-fjórbrugðinn stuðull er teiknaður inn þannig að það á að vera einfaldara að sjá hvernig skiptingin verður á milli mynsturteikninga
symbols = Ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Jackie wrote:

I am just at the beginning the the pattern. Working the back piece...I did the 84 chain stitches then I worked a double crochet in the 4th chain and in the rest of the chains for a total of 81 double crochet's and then added 3 chain stitches and turned. My question is the next sentence says 3 chain stitches.. read crochet information. So I'm confused. This would be a total of 6 chain stitches..by the A.1 diagram it shows we are on the wrong side doing double crochet's across. Thanks

12.09.2023 - 02:42

DROPS Design answered:

Dear Jackie, you only crochet 3 chains to begin a new row, this means at the end of the first row, turn and now crochet 3 chains (as explained under CROCHET INFO, these 3 chains do not replace the first stitch on row) and now work A.1. The first row in A.1 is worked from the right side, read from the right towards the left as shown with the arrow. Happy crocheting!

12.09.2023 - 09:40

country flag Denise wrote:

Do you have a video that shows exact where the stitches go for A.3 and A4? It is a bit confusing, reading the instructions.

15.08.2023 - 03:37

DROPS Design answered:

Dear Denise, we only have diagram to this pattern; just follow the instructions step by step to be able to work each stitch just as explained around the correct stitch. Happy crocheting!

15.08.2023 - 09:21

country flag Jo Anne wrote:

You have so many beautiful crochet patterns. I wish I could make some of them, but I don’t understand graphs. I want to make this cardigan so bad. Do you by any chance sell a written pattern?

14.07.2023 - 10:34

country flag Josiane Fabre wrote:

Bonjour Je ne comprend pas le diagramme A quel moment faire les triplés bridés, les quadruple je m’y perd ? Sur le rang envers c’est en maille serré ou en bride ? Cordialement

22.05.2023 - 21:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fabre, les torsades se font sur les rangs crochetés sur l'endroit seulement, suivez bien les symboles de la légende pour savoir quelle bride/triple- ou quadruple bride faire (début de la ligne) et autour de quelle maille (extrémité en forme de rond noir, losange noir, losange blanc ou étoile). Au 2ème rang de A.3 (flèche), crochetez par exemple 1 quadruple-bride en relief autour de la maille indiquée 2 rangs plus bas + 1 bride crochetées ensemble et ce 2 fois de suite au début puis 2 fois de suite après 2 brides. Bon crochet!

23.05.2023 - 08:42

country flag Marte wrote:

Hei! Jeg hekler størrelse S men sliter med å få riktig bredde på bakstykke. Står i diagrammet at den vil bli 49cm bred, men jeg klarer ikke få noe mindre enn 55cm. Har prøvd å justere heklefastheten og gått ned til pinne 3,5. Leser jeg diagrammet feil eller skal det være så bredt i starten?

16.04.2022 - 21:43

DROPS Design answered:

Hei Marte. Du skal hekle over 80 masker og det hekles slik: Hekle 1 stav i hver av de første 3 fastmaskene, A.2 over de neste 2 fastmaskene, A.3 over de neste 60 fastmaskene (= 6 rapporter á 10 masker), A.4 over de neste 12 fastmaskene, 1 stav i hver av de siste 3 fastmaskene = 3+2+60+12+3= 80 masker. Har du flere enn 80 masker?

19.04.2022 - 14:25

country flag Pandora wrote:

What a beautiful pattern! I'm going to give it a go but I was hoping you could help me with the measurements. Based on my bust size (92cm), I was going to follow the M size pattern since I still want the piece to fit loosely. However, I have quite broad shoulders. Will the M become to snug on the shoulders then? Should I oversize to L? Thank you in advance.

27.02.2022 - 12:11

DROPS Design answered:

Dear Pandora, for size M you have around 19 cm for each shoulder. If this is still too small in your case, you may need to size up. Take into account that these are not drop sleeves; they are glued sleeves. If you want to have broader shoulders, you can work a drop sleeve; you don't cast off for the armhole. Happy crocheting!

27.02.2022 - 16:41

country flag Adelina wrote:

Ho una domanda riguardo al colore di questo modello. Dalle foto sembra blu petrolio ma dalle spiegazioni è il n. 37 che è un colore molto diverso. È corretta questa indicazione?

08.10.2021 - 15:04

DROPS Design answered:

Buongiorno Adelina, abbiamo inoltrato la sua segnalazione al settore design: se ci dovessero essere delle correzioni le potrà trovare direttamente sul sito. Buon lavoro!

09.10.2021 - 13:16

country flag Benee wrote:

Love the cable design

30.09.2021 - 23:22