DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 21978.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

White Autumn

Hekluð peysa úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað með stuðlakrókum, kraga, vösum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 227-19
DROPS Design: Mynstur sk-147
Garnflokkur A + B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 01, hvítur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
175-200-225-250-250-275 g litur 01, natur

DROPS TALA, Marble NR 630: 5-5-6-6-6-6 st.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5.

HEKLFESTA:
14,5 stuðlar á breidd og 8,5 umferðir á hæðina með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 21978.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Þegar heklað er fram og til baka:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur eru heklaðar sem viðbót við þær lykkjur sem eftir eru í umferð.
Endið umferð með 1 stuðli í fyrsta stuðul frá fyrri umferð.
Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja. Loftlykkjan kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur er hekluð sem viðbót við þær lykkjur sem eftir eru í umferð.
Endið umferð með 1 fastalykkju í fyrstu fastalykkju frá fyrri umferð.

Þegar heklað er í hring (á við um ermar):
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur. Þessar loftlykkjur koma ekki í stað fyrsta stuðuls, heldur eru heklaðar sem viðbót við þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju.
Í byrjun á umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur ekki í stað 1. fastalykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR STUÐLAKRÓKSMYNSTUR:
Þegar stuðlakróksmynstur er heklað er mikilvægt að stuðlakrókslykkjurnar séu ekki of stífar né of lausar. Ef stuðlakrókslykkjurnar eru of stífar þegar heklaðir eru stuðlakrókar-fjórbrugðnir stuðlar, er hægt að hekla stuðlakróka-fimmbrugðna stuðla í staðinn.
Ef stuðlakrókslykkjurnar eru of lausar, er hægt að hekla stuðlakróka-þríbrugðna stuðla í staðinn.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 fastalykkju með því að hekla 2 fastalykkjur í 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í gegnum fyrstu lykkjuna og sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn (= 3 lykkjur um heklunálina), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul þannig:
* bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkin eru hekluð fram og til baka í stykkjum hvert fyrir sig.
Ermar eru heklaðar í hring, en snúið er við í hverri umferð þannig að önnur hver umferð sé hekluð frá réttu og frá röngu. Þetta er gert til að áferðin á fram- og bakstykki og ermum verði alveg eins. Að lokum eru heklaðir vasar og kragi fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Heklið 75-81-87-93-102-111 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) – sjá LOFTLYKKJA, á heklunál 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja af þeim 71-77-83-89-107 loftlykkjum sem eftir eru = 72-78-84-90-99-108 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með. Sjá HEKLLEIÐBEININGAR:
Heklið nú mynstur þannig: Heklið A.1 fram og til baka. Endurtakið síðustu 2 umferðir í mynsturteikningu þar til stykkið mælist 10 cm – stillið af að endað sé eftir síðustu umferð í mynsturteikningu og að fækkað er um 2-2-2-2-1-2 fastalykkjur í þessari umferð – sjá ÚRTAKA (= frá röngu) = 70-76-82-88-98-106 lykkjur.
Heklið síðan fram og til baka með 1 stuðl í hverja lykkju. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm, fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið þannig:
Heklið 1 keðjulykkju í hvern af fyrstu 2-3-5-6-8-10 stuðlum, heklið stuðla eins og áður yfir næstu 66-70-72-76-82-86 lykkjur (nú eru eftir 2-3-5-6-8-10 lykkjur í umferð).
Heklið síðan fram og til baka í mismunandi stærðum þannig:
Í stærð S, M, L og XL er heklað áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan.
Í stærð XXL og XXXL er heklað þannig:
Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul, jafnframt er fækkað um 1 stuðul í hvorri hlið með því að hekla 2 stuðla saman – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum = 78-82 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul yfir 66-70-72-76-78-82 lykkjur.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu.
Heklið nú 1 stuðul í hverja af fyrstu 24-26-27-28-29-31 lykkjum, fækkið um 1 stuðul með því að hekla 2 næstu stuðla saman – munið eftir ÚRTAKA = 25-27-29-29-30-32 lykkjur eftir á hægri öxl. Snúið, heklið fram og til baka yfir axlalykkjur þar til stykkið mælist alls 66-68-70-72-74-76 cm. Klippið þræðina og festið.
Hoppið yfir miðju 14-14-14-16-16-16 lykkjur á bakstykki (= hálsmál) og heklið yfir lykkjur fyrir vinstri öxl þannig:
Festið þráðinn í 15.-15.-15.-17.-17.-17. lykkju og heklið 3 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið síðan yfir síðustu 26-28-30-30-31-33 lykkjur þannig – fyrsta lykkjan er hekluð í sömu lykkju og 3 loftlykkjur:
Fækkið um 1 stuðul með því að hekla fyrstu 2 stuðla í 1 stuðul (= 1 stuðull færri), heklið 1 stuðul í hverja og eina af þeim lykkjum sem eftir eru = 25-27-29-29-30-32 lykkjur eftir fyrir vinstri öxl. Snúið, heklið fram og til baka yfir axlalykkjur þar til stykkið mælist alls 66-68-70-72-74-76 cm. Klippið þræðina og festið.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið 48-51-54-57-60-66 loftlykkjur – munið eftir LOFTLYKKJA, með heklunál 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja af þeim 44-47-50-53-56-62 loftlykkjum sem eftir eru = 45-48-51-54-57-63 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með. Sjá HEKLLEIÐBEININGAR:
Heklið nú mynstur þannig:
Heklið A.1 fram og til baka. Endurtakið síðustu 2 umferðir í mynsturteikningu þar til stykkið mælist 10 cm – passið uppá að heklaðar séu jafn margar umferðir og á bakstykki, þannig að endað sé eftir síðustu umferð í mynsturteikningu (= frá röngu) og að fækkað sé um 2-2-2-2-0-2 fastalykkjur í þessari umferð – sjá ÚRTAKA = 43-46-49-52-57-61 lykkjur.
Heklið nú þannig:
Heklið A.2 yfir fyrstu 6 lykkjur, heklið fyrstu 2 lykkjur í A.2 (= kantur að framan), heklið 1 stuðul í hverja lykkju út umferðina. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm, heklið næstu umferð frá röngu þannig:
Heklið 1 keðjulykkju í hverja af fyrstu 2-3-5-6-8-10 lykkjum, heklið eins og áður út umferðina = 41-43-44-46-49-51 lykkjur.
Heklið síðan fram og til baka mismunandi eftir stærðum þannig:
Í stærð S, M, L og XL er heklað áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan.
Í stærð XXL og XXXL er heklað þannig:
Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul, jafnframt eru heklaðir 2 stuðlar saman yst við handveg í hlið. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum = 47-49 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Heklið fram og til baka þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm – stilið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu. Klippið þræðina frá. Hoppið yfir fyrstu 9-9-9-10-10-10 stuðla, byrjið í 10-10-10-11-11-11 stuðli og heklið 2 og 2 stuðla saman yfir næstu 6 stuðla (= 3 stuðlar færri), heklið út umferðina = 29-31-32-33-34-36 stuðlar.
Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til 4 stuðlar eru eftir, heklið 2 og 2 stuðla saman yfir næstu 4 stuðla (= 2 stuðlar færri) = 27-29-30-31-32-34 stuðlar.
Snúið og heklið 2 og 2 stuðla saman yfir næstu 4 stuðla (= 2 stuðlar færri), heklið 1 stuðul í hvern og einn af síðustu stuðlum í umferð = 25-27-28-29-30-32 stuðlar.
Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist alls 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. Klippið þræðina og festið.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið 48-51-54-57-60-66 loftlykkjur – munið eftir LOFTLYKKJA, með heklunál 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir).
Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 stuðul í hverja af þeim loftlykkjum sem eftir eru = 45-48-51-54-57-63 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með. Sjá HEKLLEIÐBEININGAR:
Heklið nú mynstur þannig:
Heklið A.1 fram og til baka. Endurtakið síðustu 2 umferðir í mynsturteikningu þar til stykkið mælist 10 cm – passið uppá að heklaðar séu jafn margar umferðir og á bakstykki, þannig að endað sé eftir síðustu umferð í mynsturteikningu (= frá röngu) og að fækkað sé um 2-2-2-2-0-2 fastalykkjur í þessari umferð – sjá ÚRTAKA = 43-46-49-52-57-61 lykkjur.
Heklið nú þannig:
Heklið 1 stuðul í hverja lykkju þar til 8 lykkjur eru eftir, heklið 2 síðustu lykkjur í A.2, heklið A.2 yfir síðustu 6 lykkjur.
Haldið svona áfram fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm, heklið næstu umferð frá réttu þannig:
Heklið 1 keðjulykkju í hverja af fyrstu 2-3-5-6-8-10 lykkjum, heklið eins og áður út umferðina = 41-43-44-46-49-51 lykkjur.
Heklið síðan fram og til baka mismunandi eftir stærðum þannig:
Í stærð S, M, L og XL er heklað áfram frá ALLAR STÆRÐIR – sjá útskýringu að neðan.
Í stærð XXL og XXXL er heklað þannig:
Heklið fram og til baka með 1 stuðul í hvern stuðul, jafnframt eru heklaðir 2 stuðlar saman yst við handveg í hlið. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum = 47-49 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
Heklið fram og til baka þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm – stilið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu. Klippið þræðina frá. Hoppið yfir fyrstu 9-9-9-10-10-10 stuðla, byrjið í 10.-10.-10.-11.-11.-11. stuðli og heklið 2 og 2 stuðla saman yfir næstu 6 stuðla (= 3 stuðlar færri), heklið út umferðina = 29-31-32-33-34-36 stuðlar.
Snúið og heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til 4 stuðlar eru eftir, heklið 2 og 2 stuðla saman yfir næstu 4 stuðla (= 2 stuðlar færri) = 27-29-30-31-32-34 stuðlar.
Snúið og heklið 2 og 2 stuðla saman yfir næstu 4 stuðla (= 2 stuðlar færri), heklið 1 stuðul í hvern og einn af síðustu stuðlum í umferð = 25-27-28-29-30-32 stuðlar.
Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist alls 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður. Klippið þræðina og festið.

ERMI:
Heklið 43-46-46-49-49-52 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU, með heklunál 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Heklið 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju sem var hekluð. Heklið síðan stykkið hringinn, en eftir hverja umferð er stykkinu snúið við þannig að önnur hver umferð sé hekluð frá réttu og frá röngu.
1. Umferð er hekluð frá röngu þannig: Heklið 3 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af 42-45-45-48-48-51 loftlykkjum = 42-45-45-48-48-51 stuðlar + 3 loftlykkjur.
Snúið stykkinu og heklið 1. umferð í A.1 frá réttu (= 14-15-15-16-16-17 mynstureiningar A.1 + 3 loftlykkjur til að snúa við með). Haldið svona áfram með aðra hverja umferð frá réttu og röngu þar til stykkið mælist 12 cm. Heklið nú áfram alveg eins með stuðlum í hverri umferð.
Þegar stykkið mælist 13 cm, byrjar útaukning undir ermi. Aukið út um 1 lykkju í fyrstu og síðustu lykkju í umferð með því að hekla 2 lykkjur í eina lykkju. Aukið svona út með ca 17-16½-8-10-5½-5 cm millibili alls 3-3-5-4-6-6 sinnum = 48-51-55-56-60-63 stuðlar + 3 loftlykkjur til að snúa við með. Heklið síðan áfram þar til ermin mælist ca 47-46-45-44-41-39 cm.
Aukið nú út um 1 lykkju í fyrstu og síðustu lykkju í umferð í báðum næstu 2 umferðum = 52-55-59-60-64-67 lykkjur + 3 loftlykkjur til að snúa við með.
Heklið nú fram og til baka frá byrjun á umferð þannig að það myndist lítil klauf mitt undir ermi. Þegar ermin mælist alls 50-50-50-50-50-49 cm, er ermin tilbúin. Klippið þræðina frá og festið. Heklið hina ermina á sama hátt.

VASI:
Heklið 24 loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni. Heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 20 loftlykkjum = 21 stuðull + 3 loftlykkjur til að snúa við með. Heklið A.1 fram og til baka þar til vasinn mælist 14 cm – stillið af að síðasta umferðin sé hekluð frá röngu. Klippið þræðina og festið.
Heklið annan vasa á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman axlasauma í eina og eina lykkju.
Saumið ermar í við fram- og bakstykki eins og teikning sýnir. Saumið hliðarsaum frá handveg og niður þar til eftir eru ca 25 cm fyrir klauf í hlið – eða að óskaðri lengd. Endurtakið í hinni hliðinni.
Saumið tölur í vinstri kant að framan í 6. lykkju frá kanti, þannig: Efsta talan er saumuð ca 2 cm frá hálsi, síðan eru þær tölur sem eftir eru saumaðar með ca 10-10-8½-9-9½-9½ cm millibili. Tölum er hneppt í gegnum kant að framan.
Staðsetjið 1 vasa á hvort framstykki: Það eiga að vera ca 4 til 6 cm á milli hlið á vasa og kants að framan og ca 17 til 22 cm frá axlasaumi og niður að vasa. Til að stilla staðsetningu á vösum eftir eigin ósk, verður að máta peysuna áður en vasarnir eru festir. Saumið vasana með því að sauma nokkur smá spor meðfram hvorri hlið og neðri kanti á vösum.

KRAGI:
Byrjið frá réttu á hægra framstykki og heklið með 1 þræði í hvorri tegund með heklunál 5 þannig:
Hoppið yfir 8 lykkjur fyrir í kanti að framan, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju, * heklið 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 til 1½ cm, heklið 1 fastalykkju *, heklið frá *-* 7 sinum upp að axlasaumi, síðan eru heklaðir 6-6-6-7-7-7 loftlykkjubogar alveg eins fram að hinum axlasaumnum, síðan eru heklaðir 7 loftlykkjubogar alveg eins fram að 8 lykkjum í kanti að framan á vinstra framstykki = 20-20-20-21-21-21 loftlykkjubogar.
Heklið síðan kragann fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í fyrstu fastalykkju, heklið 3 stuðla um hvern loftlykkjuboga, endið með 1 stuðul í síðustu fastalykkju, heklið 3 stuðla um hvern loftlykkjuboga, endið með 1 stuðul í síðustu fastalykkju = 62-62-62-65-65-65 stuðlar.
UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
UMFERÐ 4: Heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul (= 1 lykkja fleiri), heklið * 1 stuðul í hvern og einn af næstu 3 stuðla, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, * heklið frá *-* 7 sinnum (= 7 lykkjur fleiri), heklið 1 stuðul í hvern og einn af næstu 4-4-4-7-7-7 stuðla. Heklið 2 stuðla í næsta stuðul (= 1 lykkja fleiri), heklið * 1 stuðul í hvern og einn af næstu 3 stuðlum, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, * heklið frá *-* 7 sinnum (= 7 lykkjur fleiri) = 78-78-78-81-81-81 stuðlar.
UMFERÐ 5: Heklið 2 stuðla í fyrsta stuðul (= 1 lykkja fleiri), heklið 1 stuðul í hvern stuðul þar til 1 stuðull er eftir, heklið 2 stuðla í síðasta stuðul (= 1 stuðull fleiri) = 80-80-80-83-83-83 stuðlar.
UMFERÐ 6 – 8: Heklið eins og umferð 5 = 86-86-86-89-89-89 stuðlar.
Kraginn mælist ca 10 cm. Klippið þræðina og festið.

Mynstur

symbols = Umferðin er nú þegar hekluð – byrjaðu við ör
symbols = Byrjið hér
symbols = 1 STUÐLAKRÓKUR- TVÍBRUGÐINN STUÐULL: Heklið 1 tvíbrugðinn stuðul um 1 stuðul/stuðlakrókur - tvíbrugðinn stuðull frá fyrri umferð (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur í kringum sjálfan stuðulinn/stuðlakrókur-tvíbrugðinn stuðull)
symbols = 1 fastalykkja í lykkjuna fyrir neðan (heklið frá röngu)
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan (heklið frá röngu)
symbols = 1 stuðull í lykkjuna fyrir neðan (heklið frá réttu)
symbols = 1 STUÐLAKRÓKUR-FJÓRBRUGÐINN STUÐULL (einungis er heklað frá réttu): Heklið 1 fjórbrugðinn stuðul um 1 fjórbrugðinn stuðul frá fyrri umferð með stuðlakrókslykkjum (ekki er heklað í lykkjubogana, heldur utan um sjálfan fjórbrugðna stuðulinn).
Svartur punktur í lok á tákni sýnir hvaða fjórbrugðna stuðul á að hekla utan um.
Byrjun á línu = umferð þar sem þessi stuðlakrókur-fjórbrugðinn stuðull byrjar.
symbols = Ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (2)

country flag Patricia De Smet wrote:

Dit ziet er een hele mooie vest uit die ik zeker wil maken

01.01.2022 - 15:24

country flag Jolanda Van Rijn wrote:

Ijs

05.08.2021 - 20:11