Marta skrifaði:
Czapka po dwóch godzinach noszenia rozciągnęła się . Podobnie jak czapka, którą zrobiłam mężowi z wełnianej włóczki Nepal. Czytałam w internecie, że jest to standardem, że czapki wełniane się rozciągają. Proszę o dodawanie porad jak temu zapobiegać??? Kupiłam wełnę z dodatkiem poliestru i teraz czapka nie zmienia swojego kształtu. Jednak wolałbym czapkę w 100% wełnianą...
27.10.2024 - 13:41DROPS Design svaraði:
Witaj Marto, aby uniknąć nadmiernego rozciągnięcia należy czapki przerabiać dosyć ścisło. Najlepiej jest użyć drutów o pół albo o cały rozmiar mniejszych. Następnie prać delikatnie, w rękach, w chłodnej wodzie. Czapka powinna wrócić do swojego kształtu. Pozdrawiamy!
28.10.2024 - 09:00
Lovisa skrifaði:
Hej, jättefint mönster, men upptäckte att minskningen inte stämmer på mössan, blir så förvirrande när det står sticka ihop 3 maskor och att det då blir 8 minskade per varv, går inte riktigt ihop. Ska man sticka ihop 2 maskor eller 3 maskor?
07.11.2023 - 21:11DROPS Design svaraði:
Hei Lovisa. Når luen måler 30 cm setter du 4 merker i luen (merkene settes i en rett maske) og du starter fellingene. Når du strikker vrangbord som før blir det slik: 1. maske = rettmaske, 2.maske vrang (som strikkes sammen med 3. og 4. maske) = du har strikket over 4 masker, men det er nå 2 masker, siden du har felt 2 masker. Du feller 4 steder, og det felles 8 masker pr. felle omgang. mvh DROPS Design
13.11.2023 - 11:26
Eva skrifaði:
Welche Wolle könnte ich als Alternative nehmen? Melodie hat kein grün.
02.03.2022 - 09:11DROPS Design svaraði:
Liebe Eva, benutzen Sie den Garnumrechner, um die Alternative zu finden, in den neuen vorgeschlagenen Garne finden Sie grüne Farben. Viel Spaß beim stricken!
02.03.2022 - 10:07
Scenic Snow#scenicsnowset |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð hipsterhúfa og hálsskjól með axlarsæti úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað í stroffprjóni. Stærð S – L.
DROPS 225-9 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING-(á við um útaukningu fyrir axlarsæti á hálsskjóli): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Húfan er prjónuð frá röngu, passið uppá að festa þræðina þeim megin sem húfan er prjónuð frá. HÚFA: Fitjið upp 72-80-88 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið hringinn í stroffprjóni (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist ca 30 cm í öllum stærðum, (nú eru eftir ca 8-9-10 cm að loka máli). Setjið 4 prjónamerki í stykkið, prjónamerkin eru sett í slétta lykkju og eru staðsett þannig að það eru 17-19-21 lykkjur á milli prjónamerkja – látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Prjónið stroff eins og áður og fækkið lykkjum þannig: Prjónið 3 lykkjur brugðið saman eftir hverja lykkju með prjónamerki (= 8 lykkjur færri í hverri umferð). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 6-7-8 sinnum = 24-24-24 lykkjur. Prjónið 2 umferðir þar sem allar lykkjur eru prjónaðar brugðið saman 2 og 2 = 6-6-6 lykkjur. Klippið þráðinn, notið nál og þræðið endann á þræðinum í gegnum síðustu lykkjurnar. Herðið að og festið þráðinn vel í þessari hlið á stykkinu. Snúið húfunni við að hinni hliðinni, þetta verður núna réttan á stykkinu. Stykkið mælist ca 38-39-40 cm. Brjótið upp neðstu 10 til 12 cm á húfunni að réttu. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður, og aukið er út fyrir axlarsæti. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvor öxl er prjónuð síðan fram og til baka á hringprjóna. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 68-76-84 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Melody. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – byrjun á umferð er hægri öxl að aftan þegar hálsskjólið er mátað. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 12 cm frá uppfitjunarkanti. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið, hvert prjónamerki er sett í slétta lykkju og prjónamerkin eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar: Setjið 1. prjónamerki í fyrstu sléttu lykkjuna í umferð, hoppið yfir 13-15-17 lykkjur (= öxl), setjið 2. prjónamerki í næstu sléttu lykkju, hoppið yfir 19-21-23 lykkjur (= framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu sléttu lykkju, hoppið yfir 13-15-17 lykkjur (= öxl) og setjið 4. prjónamerki í næstu sléttu lykkju. Það eru 19-21-23 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Í næstu umferð eru lykkjur auknar út fyrir axlarsæti JAFNFRAMT því sem prjónað er í stroffprjóni á milli 1. og 2. prjónamerkis og á milli 3. og 4. prjónamerkis, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri – útauknar lykkjur tilheyra framstykki og bakstykki og eru prjónaðar í sléttprjóni, fjöldi axlalykkja verður sá sami). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 6-7-8 sinnum = 92-104-116 lykkjur. Í næstu umferð eru lykkjur felldar af fyrir öxl og stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki, byrjið við 1. prjónamerki og prjónið þannig: Prjónið lykkju með 1. prjónamerki slétt, fellið af næstu 13-15-17 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur til og með lykkju með 3. prjónamerki, fellið af næstu 13-15-17 lykkjur og prjónið sléttar lykkjur til og með lykkju með 1. prjónamerki í. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað hvort fyrir sig, setjið lykkjur fyrir framstykki á þráð og prjónið bakstykkið eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Nú eru 33-37-41 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist ca 8-10-12 cm (mælt frá þar sem stykkinu var skipt). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og aukið út jafnt yfir 4-4-4 lykkjur yfir lykkjur í sléttprjóni = 37-41-45 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið og prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir afgang af lykkjum. Prjónið þar til stroffið mælist ca 4 cm. Sjá AFFELLING og fellið af í næstu umferð frá réttu. Klippið þráðinn frá og festið. FRAMSTYKKI: Setjið 33-37-41 lykkjur af þræði á prjóninn. Prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist ca 10-12-14 cm (mælt frá þar sem stykkið skiptist). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og aukið jafnt út um 4-4-4 lykkjur yfir lykkjur í sléttprjóni = 37-41-45 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið og prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið þar til stroffið mælist ca 4 cm. Fellið af í næstu umferð frá réttu – munið eftir AFFELLING. Klippið þráðinn og festið. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #scenicsnowset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 225-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.