DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Karisma yarn
DROPS Karisma
100% Ull
frá 610.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4270.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Skyscraper Vest

Prjónað vesti / slipover úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með V-hálsmáli, köntum í stroffprjóni og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 228-3

#skyscrapervest

DROPS Design: Mynstur u-920
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-450-500-550-600-700 g litur 21, milligrár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 60-60-60-80-80-80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 60-60-60-80-80-80 cm.

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 610.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4270.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 119 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim 107 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 20) = 5,3.
Í þessu dæmi eru prjónaðar til skiptis ca 4. og 5. hver lykkja og 5. og 6. hver lykkja slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkjur í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkjum í garðaprjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 12 lykkjur garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

ÚRTAKA-3:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum í byrjun umferðar þannig:
Fækkið um 1 lykkju á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni og 3 lykkjur slétt þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig:
Fækkið 1 lykkju á undan 3 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni (= 1 lykkja færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykki og framstykki er prjónað fram og til baka hringprjón upp þar til klaufin hefur verið prjónuð til loka, síðan eru bæði stykkin sett inn á sama hringprjón og prjónið er í hring á hringprjón upp að handveg. Stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað fram og til baka til loka hvort fyrir sig. Að lokum er kantur í handvegi og í hálsmáli prjónað í hring á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 119-129-139-151-165-179 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Karisma. Prjónið síðan stroff þannig:
6 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1, 6 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 9 cm.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þanngi:
Prjónið sléttprjón eins og áður yfir fyrstu 6 lykkjurnar, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 107-117-127-139-153-167 lykkjur og fækkið jafnframt um 20-22-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1, prjónið garðaprjón eins og áður yfir síðustu 6 lykkjur = 99-107-115-125-137-149 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið nú sléttprjón og 6 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 18 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu, geymið stykkið. Prjónið framstykki.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið lykkjur á framstykki og bakstykki á sama hringprjón = 198-214-230-250-274-298 lykkjur. Byrjið umferð á undan 12 lykkjur garðaprjón í annarri hliðinni.
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og 12 lykkjur í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 20 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 12 lykkjur í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm = 190-206-222-242-266-290 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið af 12-12-14-16-18-20 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 12 lykkjur í garðaprjóni og 0-0-1-2-3-4 lykkjur hvoru megin við lykkjur í garðaprjóni).
Prjónið síðan framstykki og bakstykki til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 83-91-97-105-115-125 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Jafnframt í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-3.
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 1-1-3-7-12-18 sinnum síðan í 4. hverri umferð 7-9-8-6-4-1 sinnum (= 8-10-11-13-16-19 lykkjur færri fyrir handveg í hvorri hlið) = 67-71-75-79-83-87 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm.
Fellið nú af miðju 33-33-35-35-37-37 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan í næstu umferð frá hálsmáli er fækkað um 1 lykkju = 16-18-19-21-22-24 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist alls 63-65-67-69-71-73 cm, fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 83-91-97-105-115-125 lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Jafnframt í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir handveg alveg eins og á bakstykki.
Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 lykkjur, setjið miðju lykkju á framstykki á þráð (= miðjulykkja) og setjið allar lykkjur eftir þessa miðju lykkju á þráð (= hægra framstykki). Lykkjur á undan miðjulykkju eru enn á prjóninum (= vinstra framstykki).
Vinstra framstykki:
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið og úrtaku fyrir handveg eins og áður, jafnframt í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli:
Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir við háls, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 11-11-11-11-11-11 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 6-6-7-7-8-8 sinnum (= 17-17-18-18-19-19 lykkjur fyrir V-hálsmáli) = 16-18-19-21-22-24 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 63-65-67-69-71-73 cm. Fellið af.
Hægra framstykki:
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni, 1 kantlykkja í garðaprjón í hvorri hlið og úrtöku fyrir handveg eins og áður, jafnframt í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir V-hálsmáli:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 11-11-11-11-11-11 sinnum, síðan í 4. hverri umferð 6-6-7-7-8-8 sinnum (= 17-17-18-18-19-19 lykkjur færri fyrir hálsmáli) = 16-18-19-21-22-24 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 63-65-67-69-71-73 cm. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkanta.

KANTUR Í HANDVEGI:
Byrjið frá réttu þar sem stykkið skiptist fyrir handveg. Notið hringprjón 3,5 og prjónið upp ca 132 til 154 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2).
Prjónið stroff eftir mynsturteikningu A.1 hringinn í 4½-5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt ofan á annarri öxlinni með hringprjón 3,5 og DROPS Karisma og prjónið upp 158 til 188 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í kringum alla kantinn í hálsmáli meðtalin miðjulykkja á þræði mitt að framan (lykkjufjöldinn verðu að vera deilanlegur með 2).
Prjónið stroff eftir mynstri A.2 hringinn í umferð – stillið mynstrið af þannig að mynstrið sé prjónað eftir A.3 yfir 14 lykkjur mitt að framan (lykkja með stjörnu í A.3 á að vera miðjulykkja mitt að framan) og að mynstrið gangi jafnt upp með 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið hringinn í fyrstu umferð sem er prjónuð.
Haldið áfram hringinn og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í A.3 þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, jafnframt er lykkjum fækkað eins og áður yfir miðju 3 lykkjur mitt að framan.

Mynstur

snúin slétt lykkja frá réttu, snúin brugðin lykkja frá röngu<br />
<br />
= snúin slétt lykkja frá réttu, snúin brugðin lykkja frá röngu

brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
slétt lykkja = slétt lykkja
lyftið næstu 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri) = lyftið næstu 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri)
þessi lykkja = miðjulykkja mitt að framan = þessi lykkja = miðjulykkja mitt að framan
Diagram for DROPS 228-3
Diagram for DROPS 228-3

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (66)

country flag Baudic skrifaði:

Bonjour je voudrais sa voir sur 151m il faut il rajouté 6m pour les bordures et les diminué les 6m fur a mesure

01.02.2024 - 11:31

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Baudic, en taille XL, montez 151 mailles, ce nombre comprend les côtes et les 6 mailles de bordure au point mousse de chaque côté. Bon tricot!

01.02.2024 - 15:46

country flag Christina Lundkvist skrifaði:

Hej Jag mäter 104 cm i omkrets över bysten när jag bara har bh på mig. Vilken storlek är lämplig?

26.01.2024 - 08:06

DROPS Design svaraði:

Hej Christina, vil du have den lidt tight så vælg M eller om den skal se ud som på billedet skal du vælge L :)

02.02.2024 - 12:29

country flag Diane skrifaði:

Hi... Am I blind or does it not say how much yarn for this vest? If someone could let me know that would be great and ill order the correct amount of Karisma Drops. thanks.

21.01.2024 - 06:25

DROPS Design svaraði:

Hi, the amount of yarn is specified in the header under Material, next to the main photo of the model :-) . Choose the quantity according to your size: S - M - L - XL - XXL - XXXL, MATERIALS: DROPS KARISMA from Garnstudio (belongs to yarn group B) 450-450-500-550-600-700 g colour 21, medium grey. Happy knitting!

21.01.2024 - 10:44

country flag KRISTIN STEEN skrifaði:

The V-neck area either is not laid out properly for the pic or the V-neck needs to be re-knitted...looks crooked with a space there on the left side of starting the V...they are tricky-dicky until one learns how to do them...Also the knitted stitch up the middle is not straight...looks like a twisted stitch...I love long necked Vs and have 2 of them. I see where the boxed triangle shows over the pattern but there are other ways of working with these 3 stitches . I am out of space to write

18.01.2024 - 21:52

country flag Amanda Berks skrifaði:

Skyscraper Vest: on back piece, after ribbing 9 cm, I worked the garter stitch decrease row. It says that the decrease row is knitted from the right side. Then it says to continue in stocking stitch. Well, then the right side cannot be correct as it will show the ridges’ The next row should be knit, and if so, the knit will show the wrong side? I’m confused. Please advise how to make it look like the photo.

11.01.2024 - 21:22

DROPS Design svaraði:

Hi Amanda, After the ribbing you knit 1 row from the right side and decrease stitches as advised in the text. Then you continue with stocking stitch, not garter stitch, so purl from the wrong side and knit from the right side. Happy crafting!

12.01.2024 - 06:25

country flag John Bringetto skrifaði:

Skyscraper Vest: on back piece, after robbing 9 cm, I worked the garter stitch decrease row. It says that the decrease row is knitted from the right side. The bit says to continue in stocking stitch. Well, the. The right side is not correct. The next row should be knit, and if so, the nit will show the wrong side? I’m confused. Please advise how to make it look like the photo.

11.01.2024 - 21:17

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Bringetto, after the rib you will work in stocking stitch with the first and last 6 sts in garter stitch jus as before. Happy knitting!

12.01.2024 - 08:01

country flag Karolin skrifaði:

Leider passt es gar nicht mit den Maschenproben. Wäre gut wenn beide MaPro bei der Anleitung stehen würden. Die angegebene MaPro erreiche ich mit der 3,5 Nd. Der Hauptteil des Pullunders wird ja aber mit der 4,5 Nd gestrickt. Es passt einfach dann auch mit den Maßen für die Größen nicht wenn ich auf die 4,5er übergehe... :-( Wollte doch einfach nur nen Pullunder stricken... der auch passt

03.01.2024 - 00:07

DROPS Design svaraði:

Liebe Karolin, die Maschenprobe soll mit den grösseren Nadeln gestrickt werden, so wenn Sie 20 Maschen = 10 cm haben, dann sind die 99 Maschen nach Bündchen in S ca 50 cm, genauso wie bei der Maßskizze. Sollte Ihre Maschenprobe stimmen, dann sollten die Maschenprobe mit den Bündchen auch stimmen; man braucht aber dafür mehr Maschen damit das untere Rand nicht zu eng wird wegen Rippenmuster. Viel Spaß beim stricken!

03.01.2024 - 08:35

country flag María Victoria skrifaði:

Es posible conseguir el patrón para tejer con agujas simples? Me refiero a no usar agujas circulares. No me acostumbro a usarlas y a veces es complicado ajustar el patrón

07.12.2023 - 17:48

DROPS Design svaraði:

Hola María Victoria, puedes usar agujas rectas para este patrón excepto las cenefas del elástico y del escote, que se tienen que trabajar con agujas circulares. Para ajustar este patrón a agujas rectas, puedes usar la siguiente lección: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=13&cid=23. Nosotros no hacemos patrones personalizados.

11.12.2023 - 00:09

country flag Marta Soto skrifaði:

Cuando pueden enseñar a tejer una chaleca sin mangas sencilla y fácil por favor ...gracias

01.12.2023 - 02:26

DROPS Design svaraði:

Hola Marta, puedes encontrar aquí todos nuestros chalecos slipovers: https://www.garnstudio.com/search.php?action=browse&c=women-slipovers&lang=es. Puedes ver todos los videos relevantes para trabajar cada patrón en su sección de video tutoriales correspondiente.

03.12.2023 - 19:38

country flag Karolin skrifaði:

Hallo, ich wollte grad loslegen und bleib leider schon bei der Maschenprobe hängen. Ist diese bei Nd 3,5 oder 4,5 gemeint?

18.11.2023 - 12:08

DROPS Design svaraði:

Liebe Karolin, die Maschenprobe wird Glattrechts mit den grösseren Nadeln gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

20.11.2023 - 09:56