Jolanda skrifaði:
Patroon 227-4. Is het mogelijk om het telpatroon voor het boord uit te schrijven voor op 4 breinaalden? Alvast bedankt voor uw hulp.
05.11.2022 - 21:30DROPS Design svaraði:
Dag Jolanda,
Het telpatroon is er helaas alleen als tekening. Je breit 1 recht, 2 averecht aan de goede kant en dat herhaal je steeds tot het einde van de naald. Aan de verkeerde kant brei je de steken die je aan de goede kant averecht breide, recht. De steken die je aan de goede kant recht breide, brei je aan de verkeerde kant averecht.
06.11.2022 - 13:31
Jantine skrifaði:
Patroon 227-4. Is het mogelijk om het telpatroon ( boord) voor de mouwen op 4 naalden uit te schrijven? Helaas kom ik er niet uit. Alvast bedankt voor uw hulp
05.11.2022 - 20:51
Jantine skrifaði:
Patroon 227-4. Is het mogelijk om het telpatroon A.1. voor het boord voluit te beschrijven ? Ik kom er met de tekening niet uit. Alle instructies gelezen en bekeken maar ik krijg het helaas niet voor elkaar. De bedoeling is dat ik heen en weer ga breien (plat). Met vriendelijke groet, Jantine
29.10.2022 - 10:09DROPS Design svaraði:
De hokjes met lege vakken brei je gedraaid recht aan de goede kant en gedraaid averecht aan de verkeerde kant. De hokjes met de streepjes brei je averecht aan de goede kant en recht aan de verkeerde kant. Je leest het telpatroon van rechts naar links en van onder naar boven.
30.10.2022 - 17:03
Birgitta Ottosson skrifaði:
Jag lyckas inte med att få resåren på ärmen att se likadan ut som när man stickade på två stickor. Hur gör man på strumpstickor? Jag har fastnat och vill gärna komma vidare. Tack
29.04.2022 - 10:41DROPS Design svaraði:
Hei Birgitta. Om du ønsker å strikke vrangborden (A.1) frem og tilbake på parpinner, ta en titt her: Hur man stickar en resår med 1 vridet rät och en avig - fram och tillbaka Om du ønsker å se hvordan en lignende vrangbord som strikkes rundt, se her: Hur masn tickar en resår med 1 vridet rät, 1 avig Ønsker du å se hvordan man strikker rundt med settpinner, se her Strumpstickor Mvh DROPS Design
02.05.2022 - 11:18
Shivani Prakash skrifaði:
In the back piece it is mentioned to 'Then bind off 1 stitch on the next row from the neck'. So now I have bound off stitches for the neck. Should I bind 1 more stitch and then knit the shoulders?
08.03.2022 - 19:14DROPS Design svaraði:
Dear Shivani, yes, you need to bind off 1 more stitch before working the shoulder, so that the neck has a more oval shape. Happy knitting!
08.03.2022 - 21:27
María-Jose skrifaði:
Hi. I cannot find anywhere how to calculate my size. I.e. the equivalent in cm to your letters (S, M, L, etc.). Thanks!
14.12.2021 - 22:28DROPS Design svaraði:
Dear María-Jose, you can find the measurements of the finished piece in cm-s, on the schematoc drawing at the bottom of the isntructions. We suggest that you take a garment that fits the intended wearer and compare. Happy Stitching!
15.12.2021 - 00:50
Siesa Moll skrifaði:
Goedemiddag! Ik maak dit patroon (mooi!) en ik vraag me af of ik bij het inzetten van de mouw de split daarin moet beschouwen als ‘b’ uit de tekening ? Of wordt de split aan het pand vastgenaaid. Bijvoorbaat dank, Hartelijke groet, Siesa
09.11.2021 - 15:04DROPS Design svaraði:
Dag Siesa,
De split van de mouw wordt tegen B, dus het horizontale stukje van het pand vast genaaid.
10.11.2021 - 16:17
Polar Daylight#polardaylightsweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað með háum kraga eða tvöföldum kanti í hálsmáli í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 227-4 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 127 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 125 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 32) = 3,9. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 4. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi ca 3. og 4. hver lykkja slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð í umferð frá réttu: Fækkið lykkjum fyrir hálsmál þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið síðustu 4 lykkjur eins og áður. Fækkið lykkjum fyrir hálsmál þannig: Prjónið fyrstu 4 lykkjur eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkju slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Síðan við frágang eru stykkin saumuð saman. Að lokum er prjónaður hár kragi eða tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring á stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 127-136-148-160-172-190 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Karisma eða DROPS Daisy. Prjónið stroff þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins), 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 11 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 32-33-37-39-41-47 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 95-103-111-121-131-143 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (ysta kantlykkjan í hvorri hlið er prjónuð slétt). Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af 2-2-4-7-8-10 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á næstu 2 umferðum = 91-99-103-107-115-123 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið nú af miðju 31-31-33-33-35-35 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 29-33-34-36-39-43 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 127-136-148-160-172-190 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Karisma eða DROPS Daisy. Prjónið stroff þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 11 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 32-33-37-39-41-47 lykkjur jafnt yfir = 95-103-111-121-131-143 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (ysta kantlykkjan í hvorri hlið er prjónuð slétt). Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af 2-2-4-7-8-10 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á næstu 2 umferðum = 91-99-103-107-115-123 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm. Setjið nú miðju 19-19-21-21-23-23 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum í hverri umferð frá réttu alls 7 sinnum – sjá ÚRTAKA = 29-33-34-36-39-43 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 51-54-57-60-63-66 lykkjur á sokkaprjóna 3,5. Prjónið A.1 hringinn í 11 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 13-12-11-10-9-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 64-66-68-70-72-74 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, síðar eru lykkjur auknar út hvoru megin við prjónamerkið! Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 15-15-15-15-15-17 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 15-14-9-6½-5-3½ cm millibili alls 2-3-4-5-6-7 sinnum = 68-72-76-80-84-88 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 49-48-47-45-44-42 cm. Prjónið nú ermina áfram fram og til baka í sléttprjóni frá byrjun á umferð, þannig að það myndist lítil klauf mitt undir ermi. Þegar ermin mælist alls 50-49-49-49-48-47 cm, fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki – sjá teikningu fyrir frágang. Saumið hliðarsauma frá handveg og niður þar sem stroffið endar (= 11 cm klauf í hvorri hlið). HÁR KRAGI: Prjónið upp 108 til 126 lykkjur (ásamt lykkjum af þræði) á stuttan hringprjón 3,5 með DROPS Karisma eða DROPS Daisy innan við 1 kantlykkju í kringum hálsmál. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3. Prjónið A.1 hringinn í 11 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 108 til 126 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með DROPS Karisma eða DROPS Daisy innan við 1 kantlykkju í kringum hálsmál. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3. Prjónið A.1 hringinn í 12 cm. Aukið nú út um 1 lykkju í hverri einingu með brugðnum lykkjum. Prjónið stroffprjón þar til kanturinn í hálsmáli mælist alls 16 cm. Síðar er kanturinn brotinn saman tvöfaldur þannig að það myndist kantur í hálsmáli ca 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #polardaylightsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.