Suse skrifaði:
Hallo liebes Drops Design Team. Bei der Teilung in Vorder und Rückenteil habe ich festgestellt, dass ich jeweils 20 Maschen mehr auf der Nadel habe, wenn ich laut Chart in einer geraden Runde abteile. In diesem Fall bearbeite ich ja 9 statt 8 Maschen je Rapport. Danach ging alles prima auf. Grüße und Dankeschön von mir für Eure Mühe.
26.05.2023 - 06:43DROPS Design svaraði:
Liebe Sue, also die Umschläge von Diagrammen werden nicht als Maschen gezählt, so es kann sein, daß Sie mehr Maschen haben, wenn Sie diese Umschläge mitzählen. Viel Spaß beim stricken!
26.05.2023 - 10:16
Charlotte Lomholt skrifaði:
Mit bærestykke måler nu 33 cm efter jeg har strikket A2 mønsteret, og så står der at det er vigtigt at næste omgang stater med en “lige omgang”. HVad betyder det? Er det 2. Linie i A2 mønsteret eller er det en runde med 8 masker (a2 veksler jo mellem 8 og 9 masker)
21.05.2023 - 13:11DROPS Design svaraði:
Hej Charlotte, ja du skal sørge for at snoningspinden kommer fra retsiden når du deler arbejdet :)
23.05.2023 - 11:20
Ave skrifaði:
Eesti keelses juhendis on viga! Kirjas on ,et "3 kokku (tõsta 1 silmus kudumata parempidi võttega, koo 2 parempidi kokku, tõsta kudumata silmus üle kokkukootud silmuste)" Tegelikult tõstad ühe paremidise võttega, siis kood kaks paremidi ja pärast tõstad selle kudumata üle nende kahe kootud silmuse. Kui on ebaselge, soovitan videost vaadata all!
16.04.2023 - 10:42
Sofia skrifaði:
Ho notato che molti dei vostri bellissimi modelli sono realizzati con ferri circolari. Io non ho esperienza. Come posso fare il modello con i ferri dritti? Grazie
15.03.2022 - 00:57DROPS Design svaraði:
Buongiorno Sofia, questo modello è lavorato in tondo. Può lavorarlo in piano con i ferro dritti aggiungendo 1 maglia di vivagno a ogni lato per la cucitura e adattando le spiegazioni alla lavorazione in piano. Buon lavoro!
15.03.2022 - 08:51
Sofia skrifaði:
Ho notato che molti dei vostri bellissimi modelli sono realizzati con ferri circolari. Io non ho esperienza. Come posso fare il modello con i ferri dritti?
15.03.2022 - 00:56DROPS Design svaraði:
Buongiorno Sofia, questo modello è lavorato in tondo. Può lavorarlo in piano con i ferro dritti aggiungendo 1 maglia di vivagno a ogni lato per la cucitura e adattando le spiegazioni alla lavorazione in piano. Buon lavoro!
15.03.2022 - 08:51
Åsa skrifaði:
I diagrammet A1 till DROPS 221-14 står det i teckenförklaringen: svart ruta = ingen maska, hoppa över denna rutan. Hur gör man det?
12.03.2022 - 23:10DROPS Design svaraði:
Hei Åsa. Den sorte firkanten indikerer på at det ikke er noen maske der. I begynnelsen av A.1 bestod diagrammet av 8 masker, men når du strikker omgang 13 av diagrammet strikker du 2 steder 2 masker sammen, du har minsket til 6 masker (tidligere har du økt med 2 masker slik at maskeantallet har vært det samme). Så på omgang 14 strikker du 1 rett + 4 vrang + 1 rett . På omgang 15 minsker du igjen, slik at du på omgang 16 kun har 4 masker igjen + 2 vrangen + 1 rett. mvh DROPS Design
14.03.2022 - 14:19
Roberta Marchini skrifaði:
Credo ci sia un errore nello schema A1 - la terz'ultima riga dovrebbe avere 6 maglie totali invece di 4
18.08.2021 - 17:17DROPS Design svaraði:
Buonasera Roberta, abbiamo inoltrato la sua segnalazione al settore design: se ci dovessero essere delle correzioni, il modello verrà corretto direttamente online. Buon lavoro!
21.08.2021 - 23:26
Alla skrifaði:
Summer Dream
16.02.2021 - 19:36
Christina Tännérus Carlé skrifaði:
Namnförslag: Bethina
09.01.2021 - 14:22
Helene skrifaði:
I had a name very similar to Natalia's "Fresh Breeze".
07.01.2021 - 20:27
Amalfi Blue#amalfibluetop |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 221-14 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ATH! Lykkjur í A.2 eru alltaf taldar sem 8 lykkjur, jafnvel þó fjöldi lykkja í kaðli skiptast á milli 2 og 3 lykkjur. Lykkjur í A.3 eru alltaf taldar sem 12 lykkjur í S/M og 16 lykkjur í L/XL og XXL/XXXL. Sjá mynsturteikningu í þinni stærð í A.3. ÚRTAKA: Lykkjum er fækkað innan við 7 lykkjur í hvorri hlið. Fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað hvort fyrir sig fram og til baka á hringprjón til loka máls. Band á öxl á framstykki er saumað niður á bakstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 512-640-768 lykkjur á hringprjón 3 með Safran. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 64-80-96 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 256-320-384 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur (= 32-40-48 mynstureiningar með 8 lykkjum). ATH! Lykkjur í A.2 eru alltaf taldar sem 8 lykkjur, jafnvel þó fjöldi lykkja í kaðli skiptast á milli 2 og 3 lykkjur. Prjónið A.2 hringinn – setjið jafnframt 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= vinstri hlið þegar flíkin er mátuð) og 1 prjónamerki eftir 128-160-192 lykkjur (= hægri hlið þegar flíkin er mátuð). Bæði prjónamerkin sitja á milli 2 lykkja slétt. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 33-33-35 cm, prjónið næstu umferð þannig (nú er eftir ca 1 cm þar til fellt er af fyrir handveg): ATH! Stillið af að næsta umferð sem er prjónuð sé slétt tala í umferð í mynstri, þetta er mikilvægt til að umferð þar sem kaðli er snúið sé frá réttu þegar stykkið er prjónað fram og til baka. Prjónið GARÐAPRJÓN yfir fyrstu 15-15-15 lykkjur – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 98-130-162 lykkjur, prjónið garðaprjón yfir næstu 30-30-30 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 98-130-162 lykkjur og prjónið garðaprjón yfir síðustu 15-15-15 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur þar til prjónaða hafa verið 6 umferðir garðaprjón yfir lykkjur í hlið. Í næstu umferð eru lykkjur felldar af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 10-10-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 98-130-162 lykkjur, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, fellið af 20-20-20 lykkjur fyrir handveg, prjónið 5 lykkjur í garðaprjón, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 98-130-162 lykkjur, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni og fellið af þær 10-10-10 lykkjur sem eftir eru fyrir handveg. Klippið þráðinn frá. Bakstykkið og framstykkið er nú prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 108-140-172 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umferð mynstur eins og áður með 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Haldið áfram með A.2 og garðaprjón, jafnframt er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum alls 17-19-23 sinnum = 74-102-126 lykkjur eftir. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn dragi ekki stykkið saman. Bakstykkið mælist ca 12-14-16 cm frá þar sem stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki. FRAMSTYKKI: = 108-140-172 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umferð mynstur eins og áður með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið áfram með A.2 og garðaprjón, jafnframt eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu. Fækkið lykkjum alls 17-19-23 sinnum = 74-102-126 lykkjur eftir. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Framstykkið mælist ca 12-14-16 cm frá þar sem stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 12-16-16 lykkjur og setjið þær síðan á þráð, fellið af næstu 50-70-94 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 12-16-16 lykkjur í umferð. Haldið eftir síðustu 12-16-16 lykkjum á prjóni og prjónið band á öxl eins og útskýrt er að neðan. BAND Á ÖXL: = 12-16-16 lykkjur. Prjónið A.3 (= 12-16-16 lykkjur) – sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Prjónið mynstur fram og til baka þar til bandið mælist ca 9-13-13 cm – mátið e.t.v. toppinn og prjónið að óskaðri lengd, bandið á að halda áfram yfir öxl og niður að bakstykki. Fellið af. Setjið til baka 12-16-16 lykkjur af þræði á hringprjón 3 og prjónið hitt bandið alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið band á öxl á bakstykki – byrjið yst í hvorri hlið og saumið með 1 spori í hverja lykkju. Klippið þráðinn frá og festið . |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #amalfibluetop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.