DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blue Cove

Prjónaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 221-13
DROPS Design: Mynstur e-313
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M - L/XL - XXL/XXXL
Málin á teikningu sýnir flíkina þegar búið er að strekkja á flíkinni, toppurinn er minni vegna mynsturs.

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-350 g litur 05, lavender

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir mynstur.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ATH! Lykkjur í A.2 eru alltaf taldar sem 8 lykkjur, jafnvel þó fjöldi lykkja í kaðli skiptast á milli 2 og 3 lykkjur. Lykkjur í A.3 eru alltaf taldar sem 12 lykkjur í S/M og 16 lykkjur í L/XL og XXL/XXXL. Sjá mynsturteikningu í þinni stærð í A.3.

ÚRTAKA-1 (á við um bakstykki):
Lykkjum er fækkað innan við 7 lykkjur í hvorri hlið. Fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman.

ÚRTAKA-2 (á við um framstykki):
Lykkjum er fækkað hvoru megin við kaðal + 1 lykkja brugðið í hvorri hlið. Öll úrtaka er gerð frá réttu.
FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU HVORU MEGIN VIÐ KAÐAL ÞANNIG:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan kaðli, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið kaðal, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur brugðið saman = 2 lykkjur færri.

FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR HVORU MEGIN VIÐ KAÐAL ÞANNIG:
Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan kaðli, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið kaðal, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið 2 lykkjur brugðið saman = 4 lykkjur færri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Síðan er bakstykkið og framstykkin 2 prjónuð hvert fyrir sig fram og til baka á hringprjón til loka máls. Band á öxl á framstykki er saumað niður á bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 512-640-768 lykkjur á hringprjón 3 með Safran. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 64-80-96 mynstureiningar með 8 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 256-320-384 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur (= 32-40-48 mynstureiningar með 8 lykkjum). ATH! Lykkjur í A.2 eru alltaf taldar sem 8 lykkjur, jafnvel þó fjöldi lykkja í kaðli skiptast á milli 2 og 3 lykkjur.
Prjónið A.2 hringinn – setjið jafnframt 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= vinstri hlið þegar flíkin er mátuð) og 1 prjónamerki eftir 128-160-192 lykkjur (= hægri hlið þegar flíkin er mátuð). Bæði prjónamerkin sitja á milli 2 lykkja slétt.
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 33-33-35 cm, prjónið næstu umferð þannig (nú er eftir ca 1 cm þar til stykkið skiptist mitt að framan og fellt er af fyrir handveg): ATH! Stillið af að næsta umferð sem er prjónuð sé slétt tala í umferð í mynstri, þetta er mikilvægt til að umferð þar sem kaðli er snúið sé frá réttu þegar stykkið er prjónað fram og til baka.
Prjónið GARÐAPRJÓN yfir fyrstu 15-15-15 lykkjur – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 42-58-74 lykkjur, prjónið garðaprjón yfir næstu 14 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 10 lykkjur mitt að framan), prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 42-58-74 lykkjur, prjónið garðaprjón yfir næstu 30-30-30 lykkjur, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 98-130-162 lykkjur (= bakstykki) og prjónið garðaprjón yfir síðustu 15-15-15 lykkjur.
Nú eru 128-160-192 lykkjur á bakstykki og 124-156-188 lykkjur á framstykki. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 6 umferðir garðaprjón yfir lykkjur í hlið.
Í næstu umferð eru lykkjur felldar af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 10-10-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 42-58-74 lykkjur, prjónið 10 lykkjur í garðaprjóni (= mitt að framan), haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 42-58-74 lykkjur, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, haldið áfram með mynstur eins og áður yfir næstu 98-130-162 lykkjur, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni og fellið af þær 10-10-10 lykkjur sem eftir eru fyrir handveg. Klippið þráðinn frá. Bakstykkið og framstykkið er nú prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 108-140-172 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umferð mynstur eins og áður með 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið.
Haldið áfram með A.2 og garðaprjón, jafnframt er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum alls 17-19-23 sinnum = 74-102-126 lykkjur eftir.
Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af, en passið uppá að affellingarkanturinn dragi ekki stykkið saman. Bakstykkið mælist ca 12-14-16 cm frá þar sem stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki.

FRAMSTYKKI:
= 104-136-168 lykkjur. Skiptið stykkinu mitt að framan og setjið helming af lykkjum á þráð eða hjálparprjón. Prjónið síðan fyrri hluta eins og útskýrt er að neðan.

HLUTI-1:
= 52-68-84 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umferð mynstur eins og áður með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Setjið 1 prjónamerki á milli 2 miðju lykkja í umferð (= mitt í miðju kaðal). Prjónamerkið merkir miðju.
Prjónið síðan mynstur eins og áður með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið, jafnframt er lykkjum fækkað hvoru megin við miðju í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við miðju kaðal alls 20-18-18 sinnum, síðan er fækkað um 2 lykkjur hvoru megin við miðju kaðal alls 0-4-8 sinnum = 12-16-16 lykkjur eftir á prjóni fyrir band á öxl og framstykkið mælist ca 12-14-16 cm frá þar sem stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki. Prjónið bandið eins og útskýrt er að neðan.

BAND Á ÖXL:
= 12-16-16 lykkjur. Prjónið A.3 (= 12-16-16 lykkjur) – sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Prjónið mynstur fram og til baka þar til bandið mælist ca 9-13-13 cm – mátið e.t.v. toppinn og prjónið að óskaðri lengd, bandið á að halda áfram yfir öxl og niður að bakstykki. Fellið af.

HLUTI-2:
Setjið til baka 52-68-84 lykkjur af þræði eða hjálparprjóni á hringprjón 3 og prjónið hluti-2 alveg eins og hluti-1. Prjónið síðan band á öxl alveg eins og hluti-1. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið band á öxl á bakstykki – byrjið yst í hvorri hlið og saumið með 1 spori í hverja lykkju. Klippið þráðinn frá og festið .

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.06.2021
Leiðrétting í mynsturteikningu A.1.
Yfirfarið á vefsvæði: 13.05.2022
EFNI: DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-350 g litur 05, lavender

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það á að myndast gat
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Pia Thorn wrote:

Hvordan skal indtagningstips 1 forstås? Skal man tage ind i de 5 retstrikmasker og så lave 2 nye retstrikmasker ind i mønsteret? Mvh Pia

04.10.2023 - 20:22

DROPS Design answered:

Hei Pia. Nei, du skal felle innenfor 7 masker i hver side, ikke lage 2 nye masker. Fell ved å strikke 2 masker vrang sammen. mvh DROPS Design

16.10.2023 - 13:07

country flag Luna Estrella García Sánchez wrote:

Como se hace la puntada de grafting o punto de colchoneta

25.08.2023 - 10:54

country flag MARGHERITA PETAZZO wrote:

LE DIMINUZIONI 1 (PER IL DIETRO) VANNO FATTE PRENDENDO 2 MAGLIE INSIEME DOPO LE 5 MAGLIE DI VIVAGNO OPPURE DOPO 7 MAGLIE (5 MAGLIE DI VIVAGNO + 2) QUINDI PRENDENDO L'8^ E LA 9^ MAGLIA INSIEME?

07.06.2022 - 21:46

DROPS Design answered:

Buonasera Margherita, deve diminuire dopo 7 maglie. Si ricordi di scrivere in minuscolo la prossima volta. Buon lavoro!

07.06.2022 - 22:49

country flag Marjo wrote:

Ich finde es schade, dass es kein Foto von der Rückseite gibt.

28.05.2022 - 11:26

country flag Tina wrote:

Kan I venligst rette garn forbrug, det passer ikke og kan se andre har samme problem, jeres beregning er forkert hvis I har regnet med 8 masker i rapporterne, de fleste pinde er med 9 masker. Der skal bruges 100 gram mere, meget irriterende hvis man ikke kan få fat i samme indfarvning, ellers en super fin top.

14.04.2022 - 11:28

DROPS Design answered:

Hej Tina, Tak for information - design kigger på det og der kommer en rettelse!

21.04.2022 - 14:57

country flag Winnie Akselsen wrote:

Hej, jeg har simpelthen problemer med A1, jeg har prøvet at lave bare to rapporter men allerede ved 3 pind har jeg 4 masker for lidt. Hvad mon jeg gør forkert? Mvh Winnie Akselsen

24.03.2022 - 15:23

DROPS Design answered:

Hei Winnie. Når du strikket etter diagram A.1 skal det på 1.-4. omgang ha det samme maske antallet. Kun rett og vrangmasker. Når du begynner på 5. omgang strikkes det 2 masker vrang sammen 2 steder, MEN det lages også 2 kast, slik at her blir også maskeantallet det samme. Men når du skal strikke omgang 15 minsker maskeantallet med 2 masker pr gang A.1 strikkes. Om du har veldig mange maskemarkører kan du sette en maskemarkør mellom hver rapport av diagrammet, så har du bedre oversikt over hvor du evnt "mister" masker. mvh DROPS Design

28.03.2022 - 12:00

country flag Gitte wrote:

Meget fin model, men jeg må bruge 100g mere garn end angivet i opskriften, drops Safran. 😊

06.08.2021 - 10:12

country flag MajBritt wrote:

Stickade storlek smal, men behövde använda mer garn än angivet. 250 gr istället för 150 gr

04.08.2021 - 11:56

country flag Mariell wrote:

Hei, Om brystvidden er 96 cm på den man skal strikke til, hvilken størrelse bør man strikke? Det står at "Målene på målskissen viser plagget i strukket tilstand, toppen blir smalere pga mønsteret", så jeg skjønner ikke hvordan jeg skal ta hensyn til det i forhold til valg av størrelse. Er personen da en S/M eller en L/XL?

03.08.2021 - 19:05

DROPS Design answered:

Hei Mariell, Du strikker den størrelsen på målskissen som gir dine mål. Dette betyr at plaget sitter fint, men når det ikke brukes er det smalere enn vanlig pga mønsteret. God fornøyelse!

04.08.2021 - 09:03

country flag CHIARA CELLAMARE wrote:

Buongiorno una volta avviate le maglie non si unisce in tondo? Si unisce in tondo solo in un secondo momento? grazie mille! Chiara Avviare 512-640-768 maglie con i ferri circolari n° 3 mm con Safran. Lavorare A.1 su tutte le maglie (= 64-80-96 ripetizioni di 8 maglie). Alla fine di A.1, ci sono 256-320-384 maglie sul giro. Lavorare A.2 su tutte le maglie (= 32-40-48 ripetizioni di 8 maglie).

04.07.2021 - 22:29

DROPS Design answered:

Buonasera Chiara, il lavoro parte subito in tondo. Buon lavoro!

05.07.2021 - 19:35