Patricia skrifaði:
Style chic
17.01.2021 - 17:14
Maarte skrifaði:
Dreamcloud
10.01.2021 - 23:29
Maria Teresa skrifaði:
Es un lindo modelo y apto para diferentes ocasiones
10.01.2021 - 23:21
Joana Pérez skrifaði:
Este modelo lleva un discreto punto calado, es de algodón y la línea es joven. Muy correcto para el verano...
09.01.2021 - 20:41
Ellen skrifaði:
Midsummerdream!
08.01.2021 - 21:08
Inke skrifaði:
Summer mystery
07.01.2021 - 23:28
Doris skrifaði:
Die Jacke gefällt mir. Paßt auch gut zu Röcken oder Kleidern.
07.01.2021 - 17:24
Doves Bay Cardigan#dovesbaycardigan |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Light eða DROPS Sky. Stykkið er prjónað með gatamynstri, köðlum og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 221-9 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið síðan umferð 2. ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í A.1. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = Prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist S: 2, 11, 20 og 29 cm M: 2, 12, 21 og 31 cm L: 2, 10, 18, 26 og 34 cm XL: 2, 10, 19, 27 og 36 cm XXL: 2, 10, 19, 27 og 36 cm XXXL: 2, 11, 20, 29 og 38 cm ATH: Síðasta hnappagatið sem ekki er með í útskýringu hér, er fellt af í kanti í hálsmáli. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í hlutum og prjónað er neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í perluprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 101-113-119-131-143-155 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 3 með Cotton Light eða Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan þannig frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð (= 16-18-19-21-23-25 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið 3 fyrstu lykkjurnar í A.1 þannig að mynstrið byrji og endi aldveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-1-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 2-4-5-5-6-8 sinnum í hvorri hlið = 91-95-99-103-107-111 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm, fellið af miðju 33-33-35-35-37-37 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 27-29-30-32-33-35 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykkið mælist ca 45-47-49-51-53-55 cm frá öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 60-66-68-74-80-86 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan og 1 kantlykkju í hlið) á hringprjón 3 með Cotton Light eða Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að framan): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í perluprjóni við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið og fækkið jafnframt um 1-1-0-0-0-0 lykkju í fyrstu umferð = 59-65-68-74-80-86 lykkjur. Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að framan): 5 kantlykkjur að framan í perluprjóni, prjónið A.2 (= 25-25-25-29-29-29 lykkjur), prjónið 1-1-4-0-0-0 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð (= 4-5-5-6-7-8 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið 3 fyrstu lykkjurnar í A.1 og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-1-3-3-4 sinnum og 1 lykkju 2-4-5-5-6-8 sinnum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-38-39-41-42-44 cm, fækkið 2 lykkjur yfir kaðli næst miðju að framan með því að prjóna lykkjur í sjálfum kaðlinum slétt saman 2 og 2 = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru fyrstu 11-11-12-12-13-13 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, eru lykkjurnar prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn. Prjónið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 29-31-32-34-35-37 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir = 27-29-30-32-33-35 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Framstykkið mælist ca 45-47-49-51-53-55 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 60-66-68-74-80-86 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á hringprjón 3 með Cotton Light eða Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 5 kantlykkjum að framan í perluprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í perluprjóni við miðju að framan og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið og fækkið jafnframt um 1-1-0-0-0-0 lykkju í fyrstu umferð = 59-65-68-74-80-86 lykkjur. Prjónið síðan frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 24-30-30-36-42-48 lykkjur (= 4-5-5-6-7-8 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið 3 fyrstu lykkjurnar í A.1, prjónið 1-1-4-0-0-0 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 25-25-25-29-29-29 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í perluprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-1-3-3-4 sinnum og 1 lykkju 2-4-5-5-6-8 sinnum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Þegar stykkið mælist 36-38-39-41-42-44 cm, fækkið um 2 lykkjur yfir kaðli næst miðju að framan með því að prjóna lykkjur í sjálfum kaðlinum slétt saman 2 og 2 = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Í næstu umferð frá röngu eru fyrstu 11-11-12-12-13-13 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, eru lykkjurnar prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn. Prjónið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkja 3 sinnum = 29-31-32-34-35-37 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 2 lykkjur jafnt yfir = 27-29-30-32-33-35 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Framstykkið mælist ca 45-47-49-51-53-55 cm. ERMI: Fitjið upp 46-48-50-52-54-56 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 3 með Cotton Light eða Sky. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 2 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 2 umferðir sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan þannig (1. umferð = rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1-2-0-1-2-0 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 þar til 2-3-1-2-3-1 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1-2-0-1-2-0 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar ermin mælist 4-4-8-5-9-6 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 14-16-17-19-20-22 sinnum í hvorri hlið = 74-80-84-90-94-100 lykkjur. Þegar ermin mælist 45-44-44-43-41-40 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum og 1 lykkja 2-4-4-4-6-7 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 50 cm í öllum stærðum. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 51 cm ofan frá og niður í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn. Saumið ermar innan við 1 kantlykkju á fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við aðra öxlina og prjónið upp ca 101 til 115 lykkjur í kringum hálsinn (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 3 með Cotton Light eða Sky – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1. Fyrsta umferð er prjónið frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í perluprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í perluprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm, en eftir ca 1 cm er fellt af fyrir síðasta hnappagatinu í hægri kanti að framan. Þegar kantur í hálsi hefur verið prjónaður til loka, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur -sjá AFFELLING! Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dovesbaycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 221-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.