Easy Twist |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 221-36 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 8 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 2) = 4. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um ermar í stærð XL-XXL-XXXL): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir axlarsæti, síðan eru lykkjur auknar út fyrir berustykki og að lokum eru lykkjur auknar út fyrir ermar. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónaðar í hring, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-76-80-84-88-88 lykkjur á hringprjóna 4,5, með Paris. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff frá þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið og 1 lykkja slétt. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. BERUSTYKKI: Í næstu umferð frá réttu eru lykkjur auknar út jafnt yfir og það eru sett 4 prjónamerki í stykkið. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir axlarsæti. Prjónið þannig: 8 lykkjur slétt og aukið út 1-1-1-2-4-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚTAUKNING-1 (= hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki, A.1 yfir næstu 24 lykkjur (þ.e.a.s. sléttar lykkjur halda áfram yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu = axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki, 12-12-16-20-24-24 lykkjur sléttprjón og aukið út 6-6-2-0-0-0 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= framstykki), setjið 3. prjónamerki, A.1 yfir næstu 24 lykkjur (þ.e.a.s. sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu = axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki, 8 lykkjur sléttprjón og aukið út 1-1-1-2-4-4 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 90-90-90-98-106-106 lykkjur. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki á eftir 45-45-45-49-53-53 lykkjur (= mitt að framan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! Stykkið er nú prjónað með A.2 yfir lykkjur í A.1 (27-27-27-29-29-29 lykkjur) og sléttprjón yfir lykkjur á framstykki og bakstykki. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir axlarsæti þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og aukið út á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi axlalykkja verður sá sami. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! A.2 er endurtekið á hæðina. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út í hverri umferð 10-10-12-12-12-12 sinnum (= 130-130-138-146-154-154 lykkjur). ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Færið nú 2 af prjónamerkjunum og setjið 4 ný prjónamerki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar þannig: Látið 1. prjónamerkið vera áfram í stykkinu, teljið 13-13-13-14-14-14 lykkjur af A.2, setjið 2. prjónamerki, teljið 1 lykkju í A.2 (= mitt ofan á öxl), setjið 3. prjónamerkið, teljið 13-13-13-14-14-14 lykkjur í A.2, setjið 4. prjónamerkið, látið næsta prjónamerki vera áfram í stykkinu (þ.e.a.s. á undan næsta A.2 = 5. prjónamerki), teljið 13-13-13-14-14-14 lykkjur í A.2, setjið 6. prjónamerkið, teljið 1 lykkju í A.2, setjið 7. prjónamerkið, teljið 13-13-13-14-14-14 lykkjur og setjið 8. prjónamerki. Í næstu umferð er haldið áfram með mynstur eins og áður og aukið er út þannig: Aukið út um 1 lykkju á undan 1., 3., 5. og 7. prjónamerki og 1 lykkju á eftir 2., 4., 6. og 8. prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri alls). Í næstu umferð er aukið út á undan 1. og 5. prjónamerki og á eftir 4. og 8. prjónamerki (= alls 4 lykkjur auknar út). Endurtakið þessar tvær umferðir, aukið út til skiptis 8 lykkjur og 4 lykkjur – munið eftir ÚTAUKNING-2. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni, þ.e.a.s. það verða 2 lykkjur fleiri á milli gatamynstra í hverri einingu A.2 í hvert skipti sem aukið er út. Aukið út fyrir fram- og bakstykki í hverri umferð og ermum í annarri hverri umferð. Aukið út fyrir fram- og bakstykki alls 6-6-8-8-10-10 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. aukið hefur verið út alls 16-16-20-20-22-22 sinnum fyrir fram- og bakstykki frá kanti í hálsi) og alls 3-3-4-4-5-5 sinnum fyrir ermi = 166-166-186-194-214-214 lykkjur. Stykkið mælist ca 8-8-10-10-11-11 cm frá prjónamerki. ÚTAUKNING Á ERMUM: Haldið áfram í sléttprjóni, A.2 eins og áður. Haldið áfram að auka út á eftir 2. og 6. prjónamerki og á undan 3. og 7. prjónamerki (= alls 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 10-12-13-14-14-16 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. það hefur verið aukið út alls 13-15-17-18-19-21 sinnum á ermi) = 206-214-238-250-270-278 lykkjur. Stykkið mælist ca 18-20-23-24-25-27 cm. Prjónið e.t.v. þar til stykkið mælist 18-20-23-24-25-27 cm (nú eru eftir ca 3-3-2-3-4-4 cm). Aukið síðan út í hverri umferð alls 6-6-4-6-8-8 sinnum = 230-238-254-274-302-310 lykkjur. Stykkið mælist ca 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki í hálsi. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 25-25-29-30-34-34 lykkjur sléttprjón, mynstur eins og áður yfir næstu 12-12-12-13-13-13 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 41-45-45-51-57-61 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-12-14 lykkjur undir ermi, mynstur eins og áður yfir næstu 12-12-12-13-13-13 lykkjur, 50-50-58-60-68-68 lykkjur sléttprjón, mynstur eins og áður yfir næstu 12-12-12-13-13-13 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 41-45-45-51-57-61 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 10-10-10-12-12-14 lykkjur undir ermi, mynstur eins og áður yfir næstu 12-12-12-13-13-13 lykkjur, 25-25-29-30-34-34 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-168-184-196-212-216 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, mynstri eins og áður. Lykkjurnar undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 22 cm frá skiptingu (mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli), aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá röngu = 176-176-192-204-220-224 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 41-45-45-51-57-61 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-10-12-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 51-55-55-63-69-75 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Í stærð XL-XXL-XXXL er lykkjum fækkað þannig: STÆRÐ XL-XXL-XXXL: Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 12-12-14 lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi. Það á síðar að fækka lykkjum hvoru megin við þetta prjónamerki. Þegar ermin mælist 5 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 12-10-5 cm millibili alls 1-3-5 sinnum = 61-63-65 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 51-55-55-61-63-65 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 39-37-36-34-33-31 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru ca 3 cm að loka máli). Í næstu umferð eru auknar út 13-13-13-11-13-11 lykkjur jafnt yfir = 64-68-68-72-76-76 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 3 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (43)
Kaarroksen lisäykset Ohesta sanotaan SIIRRÄ 2 merkkiä ja KIINNITÄ 4 merkkiä... Kun luin eteenpäin EI ollut yhtäkään siirrä sanaa ja 6 kertaaKIINNITÄ... Miten toimin? krisTina kalenius
09.09.2021 - 10:02DROPS Design answered:
Hei, jätä 1.merkki työhön, sitten kiinnität uudet merkit työhön ohjeen mukaisesti, kun olet kiinnittänyt 4.merkin, jätä seuraava merkki työhön, kiinnitä sitten loput merkit ohjeen mukaisesti. Eli työstä poistetaan 2 merkkiä, ja nämä samat merkit kiinnitetään työhön uudelleen, uusiin kohtiin.
09.09.2021 - 17:06Hei, tehdäänkö ensimmäiset merkkilankalisÄYkset heti a1maLLIN 2? kerroksella tehdäänkÖ LISÄYKSET ainaa MERKKILANkaväliin
07.09.2021 - 17:30Hei, tehdäänkö ensimmäiset merkkilankalisäykset jo KUVIOn A1 toisella kerrokselta tehdäänkö saatukaolkapäälisöykset aina siihen langanmerkkiväliin? ystävällisesti kristina kakenius
07.09.2021 - 17:25DROPS Design answered:
Ensimmäiset lisäykset tehdään piirroksen A.2 ensimmäisellä kerroksella.
09.09.2021 - 17:16Bij het meerderen van de mouwen staat : het werk meet ongeveer 23 cm. Brei tot het werk 23 cm meet. Moet ik dan door breien zonder meerderen tot het werk van af de markeerdraad in de hals 23 cm meet?
14.06.2021 - 15:08DROPS Design answered:
Dag Jessica,
Ja dat klopt. Als het werk nog geen 23 cm meet brei je door zonder verdere meerderingen.
16.06.2021 - 16:29Czy opis dotyczący dodawania oczek we fragmencie 'DODAWANIE OCZEK NA RAMIONA /RĘKAWY SADDLE SHOULDER' , który mówi o o dodaniu oczek np.12 razy w każdym okrążeniu, jest prawidłowy? Czy chodzi raczej o dodanie po 4 oczka w każdym z 12 okrążeń?
07.06.2021 - 05:54DROPS Design answered:
Witaj Jolu, chodzi o dodanie 4 oczek w każdym z 12 następujących po sobie okrążeń. Serdecznie pozdrawiamy!
07.06.2021 - 14:25Właśnie czekam na włóczkę Drops Paris, by wydziergać ten sweterek.
28.05.2021 - 12:14Bonjour Je ne comprends pas les explications pour faire l’empiètement après le col et je ne trouve pas de tuto correspondant Pouvez vous m’aider Remerciements
05.05.2021 - 21:04DROPS Design answered:
Bonjour Mme Testa, au 1er rang de l'empiècement, tricotez comme indiqué en plaçant vos marqueurs, en augmentant et en tricotant le 1er rang de A.1, ensuite, augmentez ensuite alternativement 8 et 4 mailles aux marqueurs indiqués pour les épaules comme dans cette vidéo (dans la vidéo, on augmente 8 m). Puis augmentez pour les manches aux marqueurs indiqués (cf cette vidéo. Bon tricot!
06.05.2021 - 07:35I've been trying to download the pattern but can't seem to save it to my favourites. Can you tell me what I'm doing wrong please?
21.04.2021 - 13:19DROPS Design answered:
Hi Maureen, our patterns can only be printed (or using a virtual printer, you can save them as a .pdf file) - to add them as a favorite, click on the heart on the top at the right side of page and follow instructions. Happy knitting!
21.04.2021 - 13:29Wanneer komt dit patroon beschikbaar. Wil graag aan de slag
07.04.2021 - 17:38Hele mooie trui mooi patroon ook .wat is de moeilijkheidsgraad ? is t voor beginner of gemiddelde breister. wanneer is t patroon beschikbaar.
28.03.2021 - 20:17DROPS Design answered:
Dag Sylvia,
We geven bij onze patronen geen moeilijkheidsgraden aan omdat dit heel persoonlijk is, afhankelijk van wat voor soort technieken je al beheerst. We hebben wel bij elk patroon instructievideo's staan en je kunt een vraag stellen, mocht je er niet uit komen. We hebben wel een algemene categorie met basispatronen. Ik verwacht dat het patroon ergens eind volgende week online komt.
02.04.2021 - 10:11