Jody skrifaði:
Thank you, pattern and graph suddenly appeared before I eft page.
03.11.2024 - 22:02
Jody skrifaði:
I am not finding the actual pattern/instructions.
03.11.2024 - 21:59DROPS Design svaraði:
Dear Jody, after you select the first section under the title "Bunny Steps" (Pattern) it should show you the pattern, under the pattern instructions. You can also select the language in the box right behind the pattern button. Happy knitting!
03.11.2024 - 22:27
Lizzie skrifaði:
I don’t understand the start of the pattern section - my beginning of row marker is the middle of the heel but the pattern doesn’t start until one stitch before the top of foot is this correct? Surely I’ll only have one half of my foot with the pattern if I do that?
31.03.2021 - 22:59DROPS Design svaraði:
Dear Lizzie, you have to center the pattern so that the stitch marked with an arrow in A.1 should be placed before the marker thread on top of foot - this lesson explains how to center a diagram and will help you there. Happy knitting!
07.04.2021 - 08:50
Bunny Steps#bunnystepssocks |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri og kanínum / páskakanínum. Stærð 35 – 46. Þema: Páskar.
DROPS Extra 0-1537 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 56 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 7. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 6. og 7. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR-1 (á við um hæl): Til að styrkja hælinn er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan úr og utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði. LEIÐBEININGAR-2: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-8-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-8-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-7-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-7-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 12-12-14-14 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA-2: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. SOKKUR: Fitjið upp 48-52-56-56 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litum dökk bleikur. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með litnum sinnepsgulur og litnum dökk bleikur þannig: Prjónið 2 umferðir með litnum dökk bleikur, 2 umferðir með litnum sinnepsgulur, 3 umferðir með litnum dökk bleikur, síðan er prjónað stroff með litnum sinnepsgulur þar til stykkið mælist 3-3-4-4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 0-0-2-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 48-52-54-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið 1 umferð slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið nú eftir fyrstu 12-13-14-14 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 24-26-26-28 lykkjur á þráð (= mitt á fæti) og haldið eftir síðustu 12-13-14-14 lykkjur á prjóni fyrir hæl. Sjá LEIÐBEININGAR-1 og prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum sinnepsgulur yfir 24-26-28-28 hællykkjur í 5-5½-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – prjónamerkið er notað til að mæla lengd á fæti frá! Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Þegar hælúrtakan hefur verið gerð til loka, prjónið næstu umferð með litnum sinnepsgulur þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 6-6-7-7 lykkjur á hæl – umferðin byrjar nú hér (= mitt á hæl), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 6-6-7-7 lykkjur á hæl, prjónið upp 10-11-12-13 lykkjur meðfram hlið á hæl innan við 1 kantlykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir 24-26-26-28 lykkjur frá þræði mitt á fæti, prjónið upp 10-11-12-13 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hæl innan við 1 kantlykkju og prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 6-6-7-7 lykkjur á hæl = 56-60-64-68 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 24-26-26-28 lykkjur á fæti. Að auki er sett 1 prjónamerki mitt í 24-26-26-28 lykkjur á fæti – látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það þegar staðsetja á mynstur mitt á fæti. Sjá LEIÐBEININGAR-2 og prjónið A.1 hringinn – lykkjan merkt með ör í A.1 á að vera staðsett á undan prjónamerki mitt á fæti, teljið út hvar umferðin byrjar. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 24-26-26-28 lykkjur á fæti þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á UNDAN fyrra prjónamerki á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á EFTIR seinna prjónamerki á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-6-4-6 sinnum = 48-48-56-56 lykkjur. ATH: Mynstureiningin kemur ekki til með að ganga jafnt upp við prjónamerki þegar lykkjum er fækkað og þegar úrtöku lýkur, teljið uppá nýtt byrjun á umferð frá ör í A.1 og prjónamerki mitt á fæti þannig að það komi ein kanína mitt á fæti og mynstureiningin gangi jafnt upp hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum sinnepsgulur. JAFNFRAMT í fyrstu umferð með litnum sinnepsgulur er fækkað um 4-0-4-0 lykkjur jafnt yfir = 44-48-52-56 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 18-20-22-25 cm frá prjónamerki á hæl. Nú eru eftir ca 4-4-5-5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. sokkinn og prjónið sléttprjón hringinn að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 22-24-26-28 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni og með litnum sinnepsgulur og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-5-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-6-6-7 sinnum = 8 lykkjur eftir í öllum stærðum. Klippið þráðinn frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27-30 cm frá prjónamerki á hæl. Prjónið annan sokk á sama hátt, en þegar A.1 byrjar á lykkjan, sem er merkt með ör í A.1, að vera staðsett mitt ofan á fæti. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bunnystepssocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1537
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.