Michèle skrifaði:
Bonjour Lors des augmentations 2 au début de l ouvrage on tricote 2 mailles mousse. Dois je continuer à les tricoter mousse et les autres jersey. Bien cordialement
02.12.2022 - 15:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Michèles, les augmentations sur les côtés du chausson se tricotent en jersey, autrement dit, en rond, vous tricotez les mailles à l'endroit, et les augmentations des côtés vont être tricotées torse à l'endroit. Bon tricot!
06.12.2022 - 08:08
Michèle GOEHRY skrifaði:
Bonjour Au début de l'ouvrage on fait donc les augmentations 2 de chaque côté des deux marqueurs avec donc 2 mailles mousse. Ces deux mailles mousse seront elles tricotées mousse tout le long er les autres en jersey? Avec mes remerciements
02.12.2022 - 15:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Goehry, les chaussons se tricotent d'abord en jersey, autrement dit, le augmentations de chaque côté des 2 marqueurs se tricotent en jersey; vous tricoterez au point mousse seulement quand vous allez tricoter la partie ouverture pour le pied, en rangs. Bon tricot!
06.12.2022 - 08:05
Caroline skrifaði:
Hello. I love your patterns and would like to knit some felted slippers but I have never used double pointed needles. Is it possible to use a small circular needle instead for this pattern? Thank you.
04.09.2022 - 19:05DROPS Design svaraði:
Dear Caroline, you can work with a small circular needle or two regular circular needles, whichever is more comfortable for the number of stitches in this pattern. You can check the following video for more help: https://www.garnstudio.com/video.php?id=97&lang=en. Happy knitting!
04.09.2022 - 23:22
Dea skrifaði:
Buongiorno, non sarebbe possibile avere un video dove viene mostrata la costruzione della pantofola con il relativo infeltrimento? Così si vedrebbero bene le cuciture finali, ad esempio quella della punta. Grazie.
01.12.2021 - 11:46DROPS Design svaraði:
Buonasera Dea, la cucitura della pantofola in punta è un semplice passaggio tra le maglie del bordo di avvio. In ogni caso abbiamo inoltrato la sua richiesta al settore design. Buon lavoro!
08.12.2021 - 18:23
Dea skrifaði:
Buonasera ho bisogno un chiarimento sull'infeltrimento. Quando dice di lavare a 40 ° , vuol dire ciclo cotone a 40°? Inoltre per centrifuga normale? 400 o 800 giri? Le lvatrici di oggi hanno troppe funzioni... Grazie.
28.11.2021 - 21:40DROPS Design svaraði:
Buonsera Dea, può provare ad infeltrire dei campioni in modo da valutare il risultato per lei migliore. Buon lavoro!
03.12.2021 - 21:15
Dea skrifaði:
Buonasera, perchè sono indicati gli aumenti per la maniche? Sono delle pantofole...
23.11.2021 - 18:03DROPS Design svaraði:
Buonasera Dea, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
23.11.2021 - 18:18
Mie skrifaði:
Jeg har 100 gram tilovers efter at have strikket størrelse 41-43
21.09.2021 - 13:01
Lemon Loafers#lemonloafersslippers |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðar og þæfðar tátiljur fyrir börn og fullorðna úr DROPS Alaska. Stærð 26 – 46. Þema: Páskar.
DROPS Extra 0-1535 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (merkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið lykkjum hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, merki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá tá, síðan skiptist stykkið fyrir miðju ofan á fæti og afgangur af tátilju er prjónaður fram og til baka á hringprjóna. Tátiljan er saumuð saman fyrir miðju að aftan. Í lokin er tátiljan þæfð. TÁTILJA: Fitjið upp 9-10-11-10-11-12-13 lykkjur á sokkaprjóna 5,5 með DROPS Alaska. Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju á eftir hverja lykkju – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 18-20-22-20-22-24-26 lykkjur. Í næstu umferð eru sett 2 merki í stykkið þannig – byrjun á umferð = miðja á fæti: Prjónið 4-5-6-5-6-6-7 lykkjur, setjið 1 merki, prjónið 10-10-10-10-10-12-12 lykkjur, setjið 1 merki og prjónið síðustu 4-5-6-5-6-6-7 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 merkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 4-4-4-5-5-5-5 sinnum á hæðina = 34-36-38-40-42-44-46 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10-11-11½-13½-15-16-17½ cm, skiptist stykkið við byrjun á umferð. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka á hringprjóna. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka er sett 1 merki innan við 6 ystu lykkjur í hvorri hlið. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við 2 merkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri) = 30-32-34-36-38-40-42 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 23-24½-27-30-32½-37-40 cm frá uppfitjunarkanti. FRÁGANGUR: Saumið þráð upp og niður í gegnum uppfitjunarlykkjurnar á tá, herðið á þræði og festið vel. Saumið tátiljuna saman fyrir miðju að aftan kant í kant svo saumurinn verði ekki þykkur. ÞÆFING: Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík Í ÞVOTTAVÉL: Þvottavélar þæfa mismunandi. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt GERIÐ ÞANNIG: Settu stykkið í þvottavélina, notaðu þvottakerfi sem tekur um 40 mínútur (ekki ullarþvottakerfi). Þvoðu við 40°C án forþvottar - sápa er valfrjáls. Eftir þvott skaltu móta stykkið á meðan það er enn blautt. Í ÞURRKARA: Að þæfa stykki í þurrkara gefur góða stjórn á því hversu mikið stykkið þæfist. Hægt er að opna þurrkarann á meðan á ferlinu stendur til að athuga stærð verksins. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt. GERIÐ ÞANNIG: Leggið stykkið allt í bleyti í vatn. Setjið stykkið síðan í þurrkara og byrjið að þurrka. Þurrkið þar til stykkið er í þeirri stærð sem óskað er eftir - athugið á meðan á ferlinu stendur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lemonloafersslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1535
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.