Angela skrifaði:
"Bij een hoogte van 23 (22-25-26-30) cm (er is ongeveer 4 (5-5-5-5) cm over), " Is dit de hoogte gemeten vanaf het begin van het week, inclusief het boord?
07.09.2024 - 13:04DROPS Design svaraði:
Dag Angela,
Er is dan ongeveer 4 (5-5-5-5) cm over totdat je de totale lengte hebt bereikt en dit is gemeten vanaf de opzetnaald, dus inclusief de boord.
18.09.2024 - 16:50
Lut skrifaði:
Muts: Als de boordsteek 10 (10-12-12-14) cm meet (inclusief ongeveer 8 (8-10-10-12) cm vouwrand), Wil dit zeggen dat de boordsteek in totaliteit 18 cm hoog is? mvg
18.09.2022 - 13:46DROPS Design svaraði:
Dag Lut,
Nee, een stukje van de boordsteek blijft aan de binnenkant, dus er zit nog 2 cm van de boord onder de vouw.
19.09.2022 - 21:20
SaJo skrifaði:
Kann man statt des Rippenmusters (= 2 Maschen rechts/2 Maschen links) einfaches Bündchen (1 Masche rechts/1 Masche links) stricken, oder ändert sich dadurch der Umfang der Mütze?
09.03.2022 - 17:15DROPS Design svaraði:
Liebe SaJo, also Bündchen 1 Masche rechts / 1 Masche links werden wahrscheinlich anders aussehen und vielleicht etwas enger als Bündchen 2 Maschen rechts/2 Maschen links aussehen. Viel Spaß beim stricken!
09.03.2022 - 19:02
Irene Motti skrifaði:
Liebes Drops-Team!\r\nDiese Aussage für den Daumenkeil erscheint mir falsch: "dabei beidseitig ALLER zugenommenen Maschen zunehmen". Dann käme man auf viel mehr Maschen für den Daumen. Richtig ist doch sicherlich, weiterhin beidseitig der markierten Masche zuzunehmen. Korrekt!?
20.10.2021 - 06:43DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Motti; bei der 1. Zunahmenrunde stricken Sie beideseitig von der Maschen mit der Markirer; bei der 2. Zunahmenrunde stricken Sie beidseitig von 3 Maschen = die vorrige Zunahme + die Masche mit der Markierung + die vorrige Zunahme, bei der 3. Zunahmen stricken Sie vor die 5 Maschen usw.. Viel Spaß beim stricken!
20.10.2021 - 08:02
Liesbet skrifaði:
Waar brei ik de mosterdkleur in de wantjes ? Staat nergens aangegeven bij strepen-2.
06.10.2021 - 22:17DROPS Design svaraði:
Dag Liesbet,
Mosterd gebruik je voor de duim, zoals te zien is in de afbeelding. Maar het staat inderdaad niet in de beschrijving van de tekst. Ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling om aan te passen.
07.10.2021 - 10:18
Fun Outside Set#funoutsideset |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð húfa og vettlingar fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine með röndum. Stærð 12 mánaða – 12 ára.
DROPS Baby & Children 38-16 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR-1 (á við um húfu): * Prjónið 2 umferðir með litnum blá þoka, prjónið 2 umferðir með litnum gallabuxnablár *, prjónið frá *-* til loka. RENDUR-2 (á við um vettlinga): Prjónið 2 umferðir með blá þoka. Prjónið 4 umferðir með gallabuxnablár. Prjónið 3 umferðir með blá þoka. Prjónið 2 umferðir með gallabuxnablár. Prjónið 3 umferðir með blá þoka. Prjónið 4 umferðir með gallabuxnablár. Prjónið með blá þoka þar til stroffið hefur verið prjónað til loka. Prjónið 2 umferðir ryð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um vettlinga): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um vettlinga): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 96 (108-112-116-120) lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum blá þoka. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 10 (10-12-12-14) cm (meðtalið ca 8 (8-10-10-12) cm uppábrot, prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 6 (8-8-8-10) lykkjur jafnt yfir = 90 (100-104-108-110) lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn – í RENDUR-1 – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 23 (22-25-26-30) cm (nú eru eftir ca 4 (5-5-5-5) cm), fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 0 (0-4-8-0) lykkjur jafnt yfir = 90 (100-100-100-110) lykkjur. Setjið 10 prjónamerki með 9 (10-10-10-11) lykkja millibili. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki með því að lyfta fyrstu lykkjunni yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuð lykkjuna = 10 lykkjur færri í umferð. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5 sinnum (= 40 (50-50-50-60) lykkjur) og síðan í hverri umferð alls 3 (4-4-4-4) sinnum = 10 (10-10-10-20) lykkjur. Prjónið allar lykkjur 2 og 2 saman = 5 (5-5-5-10) lykkjur. Klippið þráðinn frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 27 (27-30-31-35) cm ofan frá og niður. Brjótið upp neðstu 8 (8-10-10-12) cm. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 36 (36-40-44) lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum ryð. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í RENDUR-2 – sjá útskýringu að ofan, í 6 (7-8-8) cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6 (4-6-8) lykkjur jafnt yfir = 30 (32-34-36) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir slétt með litnum ryð, prjónið áfram með litnum blá þoka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar prjónaðar hafa verið 3 (5-5-7) umferðir í sléttprjóni byrjar útaukning fyrir þumalopi, aukið út 1 lykkju hvoru megin við 2. lykkju í umferð – sjá leiðbeiningar ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 3 (3-4-4) sinnum (aukið er út hvoru megin við allar þumallykkjur, þ.e.a.s. þannig að það verða 2 lykkjur fleiri á milli uppsláttar í hvert skipti sem aukið er út). Eftir allar útaukningar eru 7 (7-9-9) þumallykkjur og 36 (38-42-44) lykkjur alls í umferð. Þegar vettlingurinn mælist 9 (10½-12-12½) cm (stykkið mælist ca 3 (3½-4-4½) cm frá stroffi), setjið 7 (7-9-9) þumallykkjur á þráð. Fitjið upp 1 nýja lykkju yfir lykkjur á þræði = 30 (32-34-36) lykkjur. Þegar vettlingurinn mælist 14 (15-17-18) cm (stykkið mælist ca 8-8-9-10 cm frá stroffi), prjónið með litnum ryð til loka. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 15 (16-17-18) lykkjur. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4 sinnum og síðan í hverri umferð alls 2 sinnum = 6 (8-10-12) lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 3 (4-5-6) lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 17-18-20-21 cm. ÞUMALFINGUR: Setjið til baka 7 (7-9-9) þumallykkjur af þræði yfir þumalopi á sokkaprjóna 3,5 og prjónið að auki upp 5 nýjar lykkjur með litnum blá þoka í kanti á bakhlið á þumallykkjum = 12 (12-14-14) lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum sinnep í 3 (3½-4-4½) cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 6 (6-7-7) lykkjur. Klippið þráðinn frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið vinstra vettling á sama hátt, en aukið út fyrir þumlfingri hvoru megin við næst síðustu lykkju í umferð. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #funoutsideset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.