DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Baby Merino yarn
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 920.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Sweet Marigold

Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og gatamynstri. Stærð 6 mánaða – 8 ára.

DROPS Baby & Children 38-11

#sweetmarigoldcardigan

DROPS Design: Mynstur bm-021-bn
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Stærð: 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 ára)
Stærðin jafngildir ca hæð á barni cm:
68/74 - 80/86 (92 - 98/104 - 110/116 - 122/128)

EFNI:
DROPS BABYMERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150 (150-200-200-200) gr litur 45, sítróna

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón/gatamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir kant í garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 5-5 (5-5-6-6) st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 920.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um ermar):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 7) = 10,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 10. hverja lykkju. Ekki í aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu!
Á framstykki og bakstykki er laksalínu útaukningin inni í mynsturteikningu.
Aukið er út í laskalínu á hvorri ermi þannig:
Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð (= frá röngu).
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4(4-4-5-5) næstu hnappagötum með ca 6- 6½ (7-7½-7-7½) cm millibili.

LEIÐBEININGAR AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 82-86 (92-95-100-104) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Baby Merino. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 7-3 (3-0-9-5) lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 89-89 (95-95-109-109) lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Setjið 1 prjónamerki mitt að framan innan við 5 kantlykkjur að framan. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

BERUSTYKKI:
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Vinstra framstykki: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 (= 10-10 (12-12-14-14) lykkjur), A.4 (= 2-2 (1-1-3-3) lykkjur).
Vinstri ermi: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 2. prjónamerki, 1 lykkja sléttprjón.
Bakstykki: Prjónið A.5 (= 1-1 (1-1-2-2) lykkjur), A.2 yfir 20-20 (24-24-28-28) lykkjur, A.4 yfir 2-2 (1-1-3-3) lykkjur.
Hægri ermi: Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 3. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 14 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið 4. prjónamerki, 1 lykkja sléttprjón.
Hægra framstykki: Prjónið A.5 yfir 1-1 (1-1-2-2) lykkjur, A.3 (= 11-11 (13-13-15-15) lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 97-97 (103-103-113-113) lykkjur (meðtalinn allur uppsláttur).
Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, aukið út í hverri umferð frá réttu alls 14-16 (17-18-19-20) sinnum (meðtalin útaukning í fyrstu umferð frá réttu á eftir kanti í hálsmáli). Þegar útaukning fyrir ermar hefur verið gerð til loka, prjónið í sléttprjóni og mynstri eins og áður.
Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu og þegar A.4/A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 219-227 (255-259-287-291) lykkjur í umferð.
Stykkið mælist ca 10-10 (12-12-15-15) cm frá kanti í hálsi.
Prjónið nú mynstur þannig (frá réttu):
Vinstra framstykki: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.2 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.3 yfir 11-11 (13-13-15-15) lykkjur.
Vinstri ermi: Prjónið 43-47 (49-51-53-55) lykkjur sléttprjón.
Bakstykki: Prjónið A.1 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.2 yfir 40-40 (48-48-56-56) lykkjur (= 4 sinnum á breiddina), A.3 yfir 11-11 (13-13-15-15) lykkjur.
Hægri ermi: Prjónið 43-47 (49-51-53-55) lykkjur sléttprjón.
Hægra framstykki: Prjónið A.1 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.2 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.3 yfir 11-11 (13-13-15-15) lykkjur og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 12-13 (14-15-16-17) cm frá prjónamerki eftir kant í hálsi mitt að framan – endið þannig að síðasta umferð sé prjónuð frá réttu.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig:
Haldið áfram með kant að framan og mynstur eins og áður yfir fyrstu 36-36 (42-42-48-48) lykkjur (= framstykki), setjið næstu 43-47 (49-51-53-55) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9 (11-11-13-13) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfarm með mynstur eins og áður yfir næstu 61-61 (73-73-85-85) lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 43-47 (49-51-53-55) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9 (11-11-13-13) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram með mynstur eins og áður yfir síðustu 36-36 (42-42-48-48) lykkjur (= framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 151-151 (179-179-207-207) lykkjur.
Næst umferð er prjónuð frá réttu þannig (haldið áfram í réttri umferð í mynsturteikningu): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir 10-10 (12-12-14-14) lykkjur, A.2 yfir 120-120 (144-144-168-168) lykkjur (= 12 sinnum á breidd), A.3 yfir 11-11 (13-13-15-15) lykkjur og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 14-15 (17-19-22-25) cm frá skiptingu – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING.

ERMI:
Setjið 43-47 (49-51-53-55) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 9-9 (11-11-13-13) lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 52-56 (60-62-66-68) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju undir ermi og byrjið umferð hér.
Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 1½-1½ (2-3-3-3) cm millibili alls 8-9 (9-8-9-9) sinnum = 36-38 (42-46-48-50) lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 16-19 (22-28-32-33) cm.
Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5.
Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 17-20 (23-29-33-34) cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
2 lykkjur slétt saman = 2 lykkjur slétt saman
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
Diagram for DROPS Baby & Children 38-11
Diagram for DROPS Baby & Children 38-11
Diagram for DROPS Baby & Children 38-11
Diagram for DROPS Baby & Children 38-11
Diagram for DROPS Baby & Children 38-11
Diagram for DROPS Baby & Children 38-11

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (37)

country flag Suzanne MacDonald skrifaði:

Hi, I am knitting size 2-3/4 and am having trouble with A.5. It seems to me that there are more increases than shown on the pattern for the next row. For example, in row 11, it shows two yarn overs and one stitch increase which would result in two additional stitches, but only one additional stitch is shown in the pattern. This seems to occur again for rows 13 (3 increases but only two shown on pattern) and again in 15, 17 and 19. Please help, thanks

01.07.2023 - 09:38

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs MacDonald, correct you are increasing sometimes only 1 stitch (eg row 1, 3,5 in A.5) and sometimes 2 sts (row 11, 13, 19... in A.5), and same in A.4, you will increase 1 st in row 1, 5... in A.4 and 2 sts in row 3, 11,13... in A.4), just follow diagram and make sure you get the correct number of increases / stitches to let the lace pattern matching. Happy knitting!

03.07.2023 - 09:44

country flag Le Hunsec Sophie skrifaði:

Bonjour, je tricote la taille 3/4. Sur le premier rang après le col, il me reste plus de 5 mailles. ... merci pour votre aide Sophie

12.05.2023 - 07:21

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Le Hunsec, tricotez vos 95m ainsi: 5 m point mousse, A.1 (12 m), A.4 (1 m) (devant gauche), 1 m, 14 m, 1 m (manche), A.5 (=1 m), A.2 (24 m), A.4 (1 m) (dos), 1 m, 14 m, 1 m (manche), A.5 (1 m), A.3 (13 m), 5 m point mousse (devant droit) =5+12+1+1+14+1+1+24+1+1+14+1+1+13+5=95 m. Bon tricot!

12.05.2023 - 08:06

country flag Francine skrifaði:

Bonjour,pour les boutonnières, est-ce que je les tricotent lorsque je commence sur l’envers? Merci!

28.02.2023 - 20:26

DROPS Design svaraði:

Bonjour Francine, les boutonnières sont faites en fin de rang sur l'endroit, tricotez le rang sur l'endroit comme indiqué jusqu'à ce qu'il reste 3 mailles, faites 1 jeté, tricotez les 2 m suivantes ensemble à l'endroit et tricotez la dernière maille à l'endroit. Au rang suivant (sur l'envers), tricotez le jeté à l'endroit. Bon tricot!

01.03.2023 - 09:42

country flag Mathilda skrifaði:

Dank voor het antwoord. Dus in de eerste serie van opvolging: 5 boord, A1, A4, etc. Dus voor en na de 14 mouwsteken een omslag. Is dat de omslag van de raglan? Begreep uit het patroon dat ik de serie moest volgen EN de toevoeging voor de raglan. Dus het mouwdeel is -1 tricot-1 omslag-14 steken-1 omslag-1 tricot is. en de volgende dan 16 steken inplaats van 14 etc. Als dat zo is waarom dan de extra aandacht vestigen op het niet vergeten raglan meerderen. Is het 1 of 2 voor en na de 14 bijmaken

20.02.2023 - 00:17

DROPS Design svaraði:

Dag Mathilde,

Op de voor- en achterpanden zijn de raglanmeerderingen in de telpatronen weergegeven. De omslagen naast de 14 steken zijn inderdaad de meerderingen voor de mouw voor de raglan.

22.02.2023 - 13:21

country flag Mathilda skrifaði:

Klopt dit patroon? Bij de pas staat bij de mouwen de volgende omschrijving: Markeerder - omslag - 14 steken tricot - omslag - markeerder. Als ik een steek na de eerste markeerder bij maak en voor de 2e markeerder dan is het mouwdeel dus omslag 14 steken omslag. Dat geeft een gaatje. Op de foto is in het mouwgedeelte geen gaatje zichtbaar. er staat ook niet dat je deze omslag verdraaid moet breien in de opvolgende averechtse toer. Mijn vraag: klopt dat wel met die omslagen bij de mouw?

18.02.2023 - 14:00

DROPS Design svaraði:

Dag Mathilda,

Bovenaan onder het kopje 'RAGLAN' staat aangegeven dat je de omslagen op de volgende naald gedraaid moet breien.

19.02.2023 - 18:30

country flag Solveig Bisgaard skrifaði:

Jeg strikker Sweet Marigold 38-11 størrelse 5-6 år og jeg kan ikke få mønsteret til at gå op med diagrammerne. Jeg har det antal masker, jeg skal have på pinden, men det er flere end diagrammerne bruger. Hvad gør jeg? If des der est et diagram, som sampler hélé opskriften elles bare starten?

30.12.2022 - 15:49

DROPS Design svaraði:

Hei Solveig. I str. 5/6 år har du 109 masker når du begynner på diagrammene. Du strikker først venstre forstykke: 5 stoplemasker + A.1 (14 masker) + A.4 (3 masker) = 22 masker. Så strikker du Venstre erm: 1 + 14 +1 = 16 masker (ikke tell med kastene). Så strikkes Bakstykket: A.5 (2 masker) + A.2 (28 masker av diagram A.2) + A.4 (3 masker). Deretter høyre erme: 1+14+1= 16 masker (ikke tell kastene). Og til slutt: A.5 (2 masker) + A.3 (15 masker) + 5 stolpemasker = 22 masker = 22+16+33+16+22= 109 masker, som du begynte med. Eller var det et annet sted i diagrammene du mente? mvh DROPS Design

05.01.2023 - 12:59

country flag Ann-Britt skrifaði:

Stickar st.12/18 mån. Oket: har ju 97 m på första mönstervarvet. Men på v.2 stämmer det inte. När jag kommer till slutet av varvet så återstår det 4 m alltså innan framkantsmaskorna. Bli även 93 maskor när jag räknar ut med miniräknare på v.2??

01.11.2022 - 16:21

DROPS Design svaraði:

Hej Ann-Britt, har du talt omslaget med du strikkede på første varv i A.4, sæt gerne et mærke for hver gang du har gentaget diagrammet, så er du sikker på at få alle udtagninger med :)

02.11.2022 - 14:23

country flag Søren Bo Linde Nielsen skrifaði:

Hi My wife is looking for this pattern, but for adults. Can you help me finde this pattern?

16.07.2022 - 20:03

DROPS Design svaraði:

Dear Søren, you can find this pattern HERE . You can choose your preferred language in the menu below the main photo. May your wife have a fun knitting!

16.07.2022 - 20:14

country flag Mirella Curcio skrifaði:

Buongiorno , vorrei eseguire questo modello per una bimba di 8 anni , ma mi trovo in difficoltà con con gli schemi del motivo , non riesco a seguirli ,perchè sono molti e quasi tutti uguali, inoltre sulla pagina degli aiuti ,non trovo il video riguardante il punto da eseguire , perchè ,ripeto non riesco a capire i diagrammi da fare per la tagliadi 8 anni , che devo fare ? help me , grazie

06.06.2022 - 07:06

DROPS Design svaraði:

Buonasera Mirella, deve lavorare i diagrammi nell'ordine indicato nel testo; quando viene richiesta la lavorazione di un diagramma deve cercare quello corrispondente all'età 7/8 anni. Buon lavoro!

06.06.2022 - 22:27

country flag Martine Gidon skrifaði:

Bonjour, je voulais savoir si A1, A2, A3 se tricotaient 2 fois en hauteur pour atteindre 32 rangs comme A4 et A5 (dans la première partie du tricot). MERCI.

28.04.2022 - 05:26

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Gidon, tout à fait, quand A.1, A.2 et A.3 sont terminés, reprenez-les au 1er rang et continuer A.4 et A.5 comme dans les diagrammes. Bon tricot!

28.04.2022 - 11:47