Masson Laurence skrifaði:
Je vais essayer, alors. Merci beaucoup !
09.05.2021 - 22:50
Manoa skrifaði:
Bonjour, ce modèle me plaît beaucoup. Est-il possible de le réaliser avec un niveau basique en crochet, svp ? Merci beaucoup. Bonne journée.
08.05.2021 - 21:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Manoa, ma copine qui est debutante a fait cette robe pour la bapteme :) Chacun de nos modèles a des tutoriels vidéo spécifiques pour vous aider. Si vous avez des questions au cours de travail, n'hesitez pas a nous demander. Bonne chance!
09.05.2021 - 22:10
Mona skrifaði:
Ik probeer het telpatroon te ontcijferen samen met de geschreven tekst, maar ik zie totaal geen gelijkenissen. Ik snap niet goed hoe dit telpatroon moet ontleed worden. Bij A.1A en A.1B staat in het midden een lijn tussen, waarom? En dan heb je nog A.2A en A.2B. volgen deze op de A1 en A1B? Ik zie dit echt nergens duidelijk in de tekst staan en geraak er niet mee weg. Dit is zo een ingewikkeld patroon!!
30.04.2021 - 13:26DROPS Design svaraði:
Dag Mona,
De telpatronen staan niet in de tekst beschreven. Als je bij de paragraaf over het lijf bent haak je eerst toer 1 tot en met toer 5 zoals beschreven in de tekst. Daarna Brei je telpatroon A.1 Je breit eerst A.1a. Daarna herhaal je steeds A.1b de streep laat zien waar de herhaling begint/eindigt, dus wat links van de streep van A.1 b staat is het zelfde als A.1b. Wanneer je A.1 b in de hoogte hebt gehaakt (je leest het telpatroon van onder naar boven) dan haak je A.2 in de hoogte zoals aangegeven in de tekst.
04.05.2021 - 20:23
Spring Fairy#springfairydress |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður kjóll fyrir börn úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu og opnu sólfjaðramynstri. Stærð 0 mánaða – 4 ára.
DROPS Baby & Children 38-1 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju. Þegar heklað er í hring, endið umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju frá byrjun á umferð. Þegar heklað er fram og til baka, endið umferð með 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð með stuðlum. Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjur. Þegar heklað er í hring, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. Þegar heklað er fram og til baka, endið umferð með 1 stuðli í loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð með fastalykkjum. ÁFERÐAMYNSTURS UMFERÐ: * 1 umferð fastalykkjur, 1 umferð stuðlar *, heklið frá *-* (1 umferð fastalykkjur + 1 umferð stuðlar = 1 áferðamynsturs umferð). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Aukið út 1 fastalykkju/stuðul með því að hekla 2 fastalykkjur/stuðla í sömu lykkju. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 136 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 57) = 2,4. Í þessu dæmi er aukið út í ca til skiptis í aðra hverja og 3. hverja lykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að aftan þar til allt opið að aftan hefur verið heklað til loka, síðan er stykkið heklað áfram í hring. BERUSTYKKI: Heklið 94-99-104 (104-115) loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3,5 með Safran. Fyrsta umferð er hekluð þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 0-1-2 (2-1) loftlykkjur og endið með 1 fastalykkju í hverja af síðustu 0-1-2 (2-1) loftlykkjum = 70-74-78 (78-86) fastalykkjur í umferð. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið fyrir miðju að að aftan – ATH: Það er EKKI heklað þegar prjónamerkin eru sett í stykkið): Hoppið yfir 10-11-12 (12-14) fastalykkjur (= hægra bakstykki þegar flíkin er mátuð), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 13 fastalykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 20-22-24 (24-28) fastalykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 13 fastalykkjur (= ermi) og setjið síðasta prjónamerki í næstu fastalykkju (nú eru 10-11-12 (12-14) fastalykkjur í vinstra bakstykki á eftir síðasta prjónamerki. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ HEKLAR! Lestu HEKLLEIÐBEININGAR og heklaðu næstu umferð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en í hverja fastalykkju með prjónamerki í eru heklaðir 2 stuðlar + 2 loftlykkjur + 2 stuðlar = 82-86-90 (90-98) stuðlar í umferð. Heklið síðan ÁFERÐAMYNSTURS UMFERÐ – sjá útskýringu að ofan (heklað er fram og til baka með 1 fastalykkju/stuðull í hverja lykkju frá fyrri umferð, en í hverja umferð með fastalykkju frá röngu eru heklaðar 2 loftlykkjur yfir 2 loftlykkjur frá fyrri umferð í laskalínu). JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu (þ.e.a.s. í umferð með stuðlum) aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga í hverri laskalínu (= 16 stuðlar fleiri í umferð). Endurtakið útaukningu í hverri umferð frá réttu, alls 4-5-5 (6-6) sinnum = 146-166-170 (186-194) lykkjur í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er hekluð 1 umferð með fastalykkjum frá röngu eins og áður (með 2 loftlykkjur yfir 2 loftlykkjur frá fyrri umferð). Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 20-23-24 (26-28) fastalykkjum (= hægra bakstykki), hoppið yfir næstu 33-37-37 (41-41) fastalykkjur (= ermi), heklið 8-6-10 (10-10) LAUSAR loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 40-46-48 (52-56) fastalykkjum (= framstykki), hoppið yfir næstu 33-37-37 (41-41) fastalykkjur (= ermi), heklið 8-6-10 (10-10) LAUSAR loftlykkjur og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 20-23-24 (26-28) fastalykkjum (= vinstra bakstykki). Berustykkið er nú tilbúið og stykkið er heklað í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Byrjið mitt að aftan með réttuna út (byrjun á umferð = mitt að aftan) og heklið 1 umferð með fastalykkjum (heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul frá fyrri umferð og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju undir hvorri ermi – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR) = 96-104-116 (124-132) fastalykkjur í umferð. Heklið nú þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en aukið út 6-4-4 (8-12) stuðla jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 = 102-108-120 (132-144) stuðlar. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul. UMFERÐ 3: * 1 stuðull í fyrstu/næstu fastalykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 34-36-40 (44-48) stuðlar með 2 loftlykkjur á milli hverra. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga = 136-144-160 (176-192) fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið fastalykkjur og aukið út 57-61-57 (53-49) fastalykkjur jafnt yfir = 193-205-217 (229-241) fastalykkjur. Heklið síðan mynstur hringinn eins og útskýrt er í A.1, þ.e.a.s. heklið A.1A yfir fyrstu lykkjuna, heklið síðan 16-17-18 (19-20) mynstureiningar með A.1B. Þegar umferð 1-5 hefur verið heklað einu sinni, endurtakið umferð 2-5 áfram þar til stykkið mælist ca 23-28-32 (37-43) cm frá öxl – ATH: Stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu á hæðina. Heklið síðan þannig: Endurtakið nú umferð 2-5 í A.2A og A.2B alveg eins þar til heklaðar hafa verið 3 mynstureiningar á hæðina með A.2 (e.t.v. að óskaðri lengd). Klippið þráðinn frá og festið. Kjólinn mælist ca 35-40-44 (49-55) cm frá öxl og niður. HÁLSMÁL: Til að flíkin passi betur er hekluð smá upphækkun aftan í hnakka. Setjið 1 prjónamerki í lykkjur í hvert "horn" í hálsmáli, þ.e.a.s. í byrjun á hverri laskalínu og 1 prjónamerki mitt að framan. Heklið með heklunál 3,5 með Safran þannig: Byrjið mitt að aftan og heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju, 1 stuðul í lykkju með prjónamerki í og 1 hálfan stuðul í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir á undan næstu lykkju með prjónamerki í, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, 1 stuðul í lykkju með prjónamerki í og 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til eftir eru 4-5-5 (5-5) lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan. Snúið stykkinu og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju til baka mitt að aftan, en við hvert prjónamerki eru heklaðar 3 fastalykkjur saman, þ.e.a.s. heklið 1 fastalykkju í hálfan stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju í stuðul með prjónamerki í, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju í næsta hálfa stuðul, en nú á að draga síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (= 2 fastalykkjur færri). Klippið þráðinn frá og endurtakið frá miðju að aftan að miðju að framan í hinni hliðinni. TÖLUKANTUR AÐ AFTAN: Heklið meðfram vinstra opið mitt að aftan þannig: Heklið 1 fastalykkju um hverja fastalykkju umferð og 2 fastalykkjur um hverja stuðla umferð. Heklið alls 4 umferðir með fastalykkjum fram og til baka, klippið þráðinn frá og festið. Meðfram hægra opi mitt að aftan eru hekluð hnappagöt þannig (byrjið frá réttu við hálsmál): Heklið 3 fastalykkjur (1 fastalykkja í fastalykkju umferð og 2 fastalykkjur um stuðla umferð). 4 loftlykkjur (= 1 hnappagat), hoppið yfir ca 1 cm, heklið fastalykkjur til ca miðju á kanti að framan, 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið fastalykkjur þar til 1 cm er eftir í kanti að framan, 4 loftlykkjur og festið með 1 fastalykkju í síðustu lykkju. Klippið þráðinn frá og festið. Saumið tölur í tölukant í vinstri hlið. PICOTKANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið í kringum hálsmálið þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* út umferðina, klippið þráðinn frá og festið. SÓLFJAÐRAKANTUR Í KRINGUM ERMI: Heklið í kringum op á ermum þannig: 1 fastalykkja í hverja af 8-6-10 (10-10) lykkjum mitt undir ermi og 1 fastalykkju í hverja af 33-37-37 (41-41) fastalykkjum yfir ermi = 41-43-47 (51-51) fastalykkjur í umferð. Heklið síðan þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en aukið út 1-5-1 (0-0) stuðla jafnt yfir = 42-48-48 (51-51) stuðlar. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul. UMFERÐ 3: * 1 stuðull í fyrstu/næstu fastalykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 14-16-16 (17-17) stuðlar með 2 loftlykkjur á milli hverra. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga, en 7-3-3 (7-7) sinnum í umferð er einungis heklaðar 2 fastalykkjur um loftlykkjuboga = 49-61-61 (61-61) fastalykkjur. Heklið síðan mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.1A og A.1B alveg eins og á fram- og bakstykki = 4-5-5 (5-5) sólfjaðrir í umferð. Þegar umferð 1-5 hefur verið heklað einu sinni, klippið þráðinn frá og festið. Endurtakið í kringum hina ermina. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springfairydress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.