Lena Knutsson skrifaði:
Hej igen! Hur läser man diagrammet spring fariy modell e-080-by. jag förstår ingenting av diagrammet vissa symboler finns inte med, stl 12-18 månader Vad betyder de lodräta strecken?
27.06.2022 - 15:50DROPS Design svaraði:
Hej Lena, det är samma diagram till alla storlekar. Vilket symbol finns inte med? De lodräta strecken delar upp, så du ser själva rapporten :)
29.06.2022 - 10:23
Lena Knutsson skrifaði:
Hur läser man diagrammet spring fariy modell e-080-by. jag förstår ingenting av diagrammet vissa symboler finns inte med,
27.06.2022 - 10:59DROPS Design svaraði:
Hei Lena. Helt nederst på oppskriften er det en generell veiledning på "Hur man läser virkdiagram". Ta en titt der. Hvilken symboler er det du mener ikke finns med? Om du skriver hvilken str. du hekler, hvilken symboler du mener mangler og litt mer spesikk du ikke skjønner, så skal vi hjelpe deg så godt vi kan. mvh DROPS Design
27.06.2022 - 11:18
Charlotte skrifaði:
Hur gör jag här? "Nästa varv virkas så här från rätsidan: Virka 1 stolpe i var och en av de första 20-23-24 (26-28) fastmaskorna (= höger bakstycke), hoppa över de nästa 33-37-37 (41-41) fastmaskorna (= ärm), virka 8-6-10 (10-10) LÖSA luftmaskor, virka 1 stolpe i var och en av de nästa 40-46-48 (52-56) fastmaskorna (= framstycke), hoppa över de nästa 33-37-37 (41-41) fastmaskorna (= ärm), virka 8-6-10 (10-10) LÖSA luftmaskor och virka 1 stolpe i var och
06.04.2022 - 16:09DROPS Design svaraði:
Hej Charlotte, her ser du hvordan man gør, det er et andet mønster men princippen er samme med at hoppe over og hækle luftmasker under ærmerne raglan ovanifrån och ner
08.04.2022 - 09:12
Doina Rząsa skrifaði:
"ale w każdym rzędzie oczek ścisłych na lewej stronie robótki, przerabiać 2 oczka łańcuszka ponad 2 oczkami łańcuszka raglanu poprzedniego rzędu" nie wiem jak robić. Jak dojdę oczkami ścisłymi do łuku robię 2 oczka łańcuszka i dalej w oczka ścisłe za łukiem? A w następnym rzędzie jak przyjdzie do raglanu to w tym łańcuszku robię 2 słupki +2 oczka łańcuszka +2 słupki?
10.02.2022 - 21:01DROPS Design svaraði:
Witaj, jak dojdziesz oczkami ścisłymi do łuku to robisz 2 oczka łańcuszka i dalej oczka ścisłe za łukiem (łuki są tylko na reglanach). W następnym rzędzie (na prawej stronie robótki) w ten łańcuszek (łuk) przerabiasz 2 słupki +2 oczka łańcuszka +2 słupki. Wszystko się zgadza. Pozdrawiamy!
11.02.2022 - 15:14
Rosi Lauber skrifaði:
Hallo, vielen Dank für so ausfürliche Einleitung, hoffe nur das mein stück auch so schön wird wie Ihres. Danke
02.02.2022 - 14:40
Rosi Lauber skrifaði:
Hallo, vielen Dank für so ausfürliche Einleitung, hoffe nur das mein stück auch so schön wird wie Ihres. Danke
02.02.2022 - 14:39
Rosi Lauber skrifaði:
Halo, konacno sam nasla sta mi treba, malo ce mi dulje trebati da tako uradim kako je opisano ali cu se potruditi, hvala Vam puno na tako detaliranom opisu. Pozdrav
02.02.2022 - 14:36
Paulin skrifaði:
Hei, jeg er ganske ny i hekle verden, og har kommet til bærestykket delen hvor det nå totalt skal være 146 masker (0-6mnd). Jeg har 121 staver etter 4 strukturrader og 135 etter 5 rader, hva er det jeg gjør galt??
28.01.2022 - 01:28DROPS Design svaraði:
Hei Paulin. Litt usikker på hvor det har blitt feil hos seg, men når du starter med bærestykket har du 94 luftmasker og etter 1.rad har du 70 fastmasker. Så settes det 4 merketråder i arbeidet og etter det hekles det 1 stav i hver fastmaske, men i hver fastmaske med merketråd hekles det 2 staver + 2 luftmasker + 2 staver = 82 staver på raden. Videre hekles det strukturmønster samtidig som det økes til raglan på 1.rad fra retten. Etter 1.raglanøkning er det 82 + 16 = 98, etter 2. raglanøkning: 98 + 16 = 114, etter 3. raglanøkning: 114+ 16 = 130 og etter 4. raglanøkning: 130 + 16 = 146 masker på raden. mvh DROPS Design
31.01.2022 - 13:34
Farha skrifaði:
Are we supposed to join with a slip stitch on the last round of the yoke, or the first round of the body?
16.01.2022 - 18:35DROPS Design svaraði:
Dear Farha, since you join with a slip stitch when working in the round, you join with the slip stitch in the first round of the body. Happy crocheting!
16.01.2022 - 23:35
Paola skrifaði:
Salve, non mi è chiaro un passaggio, dopo aver apposto i segnapunti dite di lavorare la riga successiva sul dritto del lavoro, ma dal punto in cui ci si trova se si volta per ricominciare si è sul rovescio Quindi la mia domanda è per trovarsi a lavorare la nuova riga sul dritto del lavoro bisogna iniziare la lavorazione con un nuovo filo sul lato opposto? Grazie se vorrete chiarire questo punto
21.09.2021 - 15:56DROPS Design svaraði:
Buongiorno Paola, ha inserito i segnapunti nel lavoro senza lavorare le maglie come indicato? Buon lavoro!
22.09.2021 - 18:29
Spring Fairy#springfairydress |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður kjóll fyrir börn úr DROPS Safran eða DROPS Magic. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu og opnu sólfjaðramynstri. Stærð 0 mánaða – 4 ára.
DROPS Baby & Children 38-1 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju. Þegar heklað er í hring, endið umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju frá byrjun á umferð. Þegar heklað er fram og til baka, endið umferð með 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð með stuðlum. Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjur. Þegar heklað er í hring, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð. Þegar heklað er fram og til baka, endið umferð með 1 stuðli í loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð með fastalykkjum. ÁFERÐAMYNSTURS UMFERÐ: * 1 umferð fastalykkjur, 1 umferð stuðlar *, heklið frá *-* (1 umferð fastalykkjur + 1 umferð stuðlar = 1 áferðamynsturs umferð). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Aukið út 1 fastalykkju/stuðul með því að hekla 2 fastalykkjur/stuðla í sömu lykkju. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 136 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 57) = 2,4. Í þessu dæmi er aukið út í ca til skiptis í aðra hverja og 3. hverja lykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að aftan þar til allt opið að aftan hefur verið heklað til loka, síðan er stykkið heklað áfram í hring. BERUSTYKKI: Heklið 94-99-104 (104-115) loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3,5 með DROPS Safran eða DROPS Magic. Fyrsta umferð er hekluð þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, * 1 fastalykkja í hverja af næstu 3 loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 0-1-2 (2-1) loftlykkjur og endið með 1 fastalykkju í hverja af síðustu 0-1-2 (2-1) loftlykkjum = 70-74-78 (78-86) fastalykkjur í umferð. Setjið nú 4 merki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið fyrir miðju að að aftan – ATH: Það er EKKI heklað þegar merkin eru sett í stykkið): Hoppið yfir 10-11-12 (12-14) fastalykkjur (= hægra bakstykki þegar flíkin er mátuð), setjið 1 merki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 13 fastalykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 20-22-24 (24-28) fastalykkjur (= framstykki), setjið 1 merki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 13 fastalykkjur (= ermi) og setjið síðasta merki í næstu fastalykkju (nú eru 10-11-12 (12-14) fastalykkjur í vinstra bakstykki á eftir síðasta merki. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ HEKLAR! Lestu HEKLLEIÐBEININGAR og heklaðu næstu umferð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en í hverja fastalykkju með merki í eru heklaðir 2 stuðlar + 2 loftlykkjur + 2 stuðlar = 82-86-90 (90-98) stuðlar í umferð. Heklið síðan ÁFERÐAMYNSTURS UMFERÐ – sjá útskýringu að ofan (heklað er fram og til baka með 1 fastalykkju/stuðull í hverja lykkju frá fyrri umferð, en í hverja umferð með fastalykkju frá röngu eru heklaðar 2 loftlykkjur yfir 2 loftlykkjur frá fyrri umferð í laskalínu). JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu (þ.e.a.s. í umferð með stuðlum) aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga í hverri laskalínu (= 16 stuðlar fleiri í umferð). Endurtakið útaukningu í hverri umferð frá réttu, alls 4-5-5 (6-6) sinnum = 146-166-170 (186-194) lykkjur í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er hekluð 1 umferð með fastalykkjum frá röngu eins og áður (með 2 loftlykkjur yfir 2 loftlykkjur frá fyrri umferð). Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hverja af fyrstu 20-23-24 (26-28) fastalykkjum (= hægra bakstykki), hoppið yfir næstu 33-37-37 (41-41) fastalykkjur (= ermi), heklið 8-6-10 (10-10) LAUSAR loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 40-46-48 (52-56) fastalykkjum (= framstykki), hoppið yfir næstu 33-37-37 (41-41) fastalykkjur (= ermi), heklið 8-6-10 (10-10) LAUSAR loftlykkjur og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 20-23-24 (26-28) fastalykkjum (= vinstra bakstykki). Berustykkið er nú tilbúið og stykkið er heklað í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Byrjið mitt að aftan með réttuna út (byrjun á umferð = mitt að aftan) og heklið 1 umferð með fastalykkjum (heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul frá fyrri umferð og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju undir hvorri ermi – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR) = 96-104-116 (124-132) fastalykkjur í umferð. Heklið nú þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en aukið út 6-4-4 (8-12) stuðla jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 = 102-108-120 (132-144) stuðlar. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul. UMFERÐ 3: * 1 stuðull í fyrstu/næstu fastalykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 34-36-40 (44-48) stuðlar með 2 loftlykkjur á milli hverra. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga = 136-144-160 (176-192) fastalykkjur. UMFERÐ 5: Heklið fastalykkjur og aukið út 57-61-57 (53-49) fastalykkjur jafnt yfir = 193-205-217 (229-241) fastalykkjur. Heklið síðan mynstur hringinn eins og útskýrt er í A.1, þ.e.a.s. heklið A.1A yfir fyrstu lykkjuna, heklið síðan 16-17-18 (19-20) mynstureiningar með A.1B. Þegar umferð 1-5 hefur verið heklað einu sinni, endurtakið umferð 2-5 áfram þar til stykkið mælist ca 23-28-32 (37-43) cm frá öxl – ATH: Stillið af að endað sé eftir heila mynstureiningu á hæðina. Heklið síðan þannig: Endurtakið nú umferð 2-5 í A.2A og A.2B alveg eins þar til heklaðar hafa verið 3 mynstureiningar á hæðina með A.2 (e.t.v. að óskaðri lengd). Klippið þráðinn frá og festið. Kjólinn mælist ca 35-40-44 (49-55) cm frá öxl og niður. HÁLSMÁL: Til að flíkin passi betur er hekluð smá upphækkun aftan í hnakka. Setjið 1 merki í lykkjur í hvert "horn" í hálsmáli, þ.e.a.s. í byrjun á hverri laskalínu og 1 merki mitt að framan. Heklið með heklunál 3,5 þannig: Byrjið mitt að aftan og heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með merki í, heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju, 1 stuðul í lykkju með merki í og 1 hálfan stuðul í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir á undan næstu lykkju með merki í, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, 1 stuðul í lykkju með merki í og 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til eftir eru 4-5-5 (5-5) lykkjur á undan merki mitt að framan. Snúið stykkinu og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju til baka mitt að aftan, en við hvert merki eru heklaðar 3 fastalykkjur saman, þ.e.a.s. heklið 1 fastalykkju í hálfan stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju í stuðul með merki í, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju í næsta hálfa stuðul, en nú á að draga síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (= 2 fastalykkjur færri). Klippið þráðinn frá og endurtakið frá miðju að aftan að miðju að framan í hinni hliðinni. TÖLUKANTUR AÐ AFTAN: Heklið meðfram vinstra opið mitt að aftan þannig: Heklið 1 fastalykkju um hverja fastalykkju umferð og 2 fastalykkjur um hverja stuðla umferð. Heklið alls 4 umferðir með fastalykkjum fram og til baka, klippið þráðinn frá og festið. Meðfram hægra opi mitt að aftan eru hekluð hnappagöt þannig (byrjið frá réttu við hálsmál): Heklið 3 fastalykkjur (1 fastalykkja í fastalykkju umferð og 2 fastalykkjur um stuðla umferð). 4 loftlykkjur (= 1 hnappagat), hoppið yfir ca 1 cm, heklið fastalykkjur til ca miðju á kanti að framan, 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið fastalykkjur þar til 1 cm er eftir í kanti að framan, 4 loftlykkjur og festið með 1 fastalykkju í síðustu lykkju. Klippið þráðinn frá og festið. Saumið tölur í tölukant í vinstri hlið. PICOTKANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið í kringum hálsmálið þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* út umferðina, klippið þráðinn frá og festið. SÓLFJAÐRAKANTUR Í KRINGUM ERMI: Heklið í kringum op á ermum þannig: 1 fastalykkja í hverja af 8-6-10 (10-10) lykkjum mitt undir ermi og 1 fastalykkju í hverja af 33-37-37 (41-41) fastalykkjum yfir ermi = 41-43-47 (51-51) fastalykkjur í umferð. Heklið síðan þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en aukið út 1-5-1 (0-0) stuðla jafnt yfir = 42-48-48 (51-51) stuðlar. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul. UMFERÐ 3: * 1 stuðull í fyrstu/næstu fastalykkju, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 14-16-16 (17-17) stuðlar með 2 loftlykkjur á milli hverra. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga, en 7-3-3 (7-7) sinnum í umferð er einungis heklaðar 2 fastalykkjur um loftlykkjuboga = 49-61-61 (61-61) fastalykkjur. Heklið síðan mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.1A og A.1B alveg eins og á fram- og bakstykki = 4-5-5 (5-5) sólfjaðrir í umferð. Þegar umferð 1-5 hefur verið heklað einu sinni, klippið þráðinn frá og festið. Endurtakið í kringum hina ermina. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springfairydress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby & Children 38-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.