Lola Luft skrifaði:
New romantic
13.01.2021 - 13:09
Monica Belotti skrifaði:
"Carmen" (quella di Bizet...) . La lavorazione spalla -manica è deliziosa
12.01.2021 - 17:20
Milena skrifaði:
Un des plus beaux modèles de votre sélection, la forme des manches et le travail des jours sur l'épaule créent à la fois originalité et équilibre
11.01.2021 - 12:41
Eva skrifaði:
Head in the clouds 💚
10.01.2021 - 23:35
Magdalena skrifaði:
Piękny wzór, rękawy są oszałamiające. Pięknie dobrany kolor do wzoru. Nazwa "niezapominajki w dolinie".
09.01.2021 - 18:07
Marianne skrifaði:
"Renaissance"
09.01.2021 - 10:37
Emilie Van Dijk skrifaði:
Interesting how the sleeves are flowing, it seems ine one piece. I am curious to know how it is done.
08.01.2021 - 22:55
Inge skrifaði:
Blue dolfin
08.01.2021 - 15:18
Ruth skrifaði:
"Quill" would make a good name for this design I think
08.01.2021 - 13:58
Tina skrifaði:
Smukke ærmer
08.01.2021 - 11:05
Sapphire Trails#sapphiretrailssweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og ¾-löngum blöðruermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 222-24 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16) = 6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. eða 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út í gatamynstri á öxlum. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-99-105-111-114-120 lykkjur á hringprjón 3 með Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-17-15-29-30-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 112-116-120-140-144-148 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 12-13-14-19-20-21 lykkjurnar, A.1 yfir næstu 32 lykkjur, sléttar lykkjur yfir fyrstu 24-26-28-38-40-42 lykkjur, A.1 yfir næstu 32 lykkjur, sléttar lykkjur yfir síðustu 12-13-14-19-20-21 lykkjur. Haldið svona áfram hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 5½-6-6½-6½-7-7½ sinnum á hæðina hafa verið auknar út 264-288-312-312-336-360 lykkjur = 376-404-432-452-480-508 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 24-26-28-30-32-34 cm frá prjónamerki við kant í hálsi. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 42-46-51-55-60-65 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið næstu 104-110-114-116-120-124 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-12-14 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 84-92-102-110-120-130 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 104-110-114-116-120-124 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-12-14 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 42-46-51-55-60-65 lykkjur (= ½ bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-200-220-240-264-288 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermum (= 4-4-4-5-6-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með ca 4 cm millibili alls 4 sinnum = 200-216-236-256-280-304 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 21 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm til loka. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Í næstu umferð eru auknar út 22-24-28-32-35-38 lykkjur jafnt yfir = 222-240-264-288-315-342 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 104-110-114-116-120-124 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 112-118-122-126-132-138 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 28-26-25-23-22-20 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Í næstu umferð er prjónað þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 54-57-59-61-64-67 lykkjur færri), prjónið síðustu 2 lykkjurnar slétt = 58-61-63-65-68-71 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 57-60-63-66-69-72 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 31-29-28-26-25-23 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sapphiretrailssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 222-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.