Sarah skrifaði:
Bonjour, Pour le modèle S/M, pourriez-vous me dire combien de pelotes de laine vous avez utilisé ? Merci
29.01.2024 - 09:59DROPS Design svaraði:
Bonjour Sarah, vous trouverez les quantités requises pour chaque taille, au poids, dans l'en-tête, autrement dit, Il faut ici en taille S/M 150 g DROPS Merino Extra Fine / 50 g la pelote = 3 pelotes. Bon tricot!
30.01.2024 - 07:22
Erika skrifaði:
Hej! Hur maskar jag av första och sista maskan (kantmaskorna) i slutet av mittpartiet?
26.12.2023 - 00:33DROPS Design svaraði:
Hej Erika, dem maskar du bara av som vanligt :)
02.01.2024 - 10:19
Edward skrifaði:
Hi, I am wondering how many stitches along from the edge I am supposed to increase from as it isn’t clear to me in the pattern instructions? From looking at the photo I can see the increase stitches are not at the beginning. From what I am understand these increases are created from the second stitch marker from ‘the beginning of the row’. Thanks for your time!
28.08.2023 - 18:18DROPS Design svaraði:
Dear Edward, the increases on each side (towards face-opening) are worked inside 5 sts on each side, see INCREASE TIP (for sides of face-opening):, this means you increase after the first 5 sts on a right side row and before the last 5 sts on the same right side row. You will increase that way on every 4th row a total of 6 times (-= 6 new stitches on each side). That applies to INCREASES MID-FRONT:, if I misunderstood your question, please feel free to let us now which increases you were thinking of. Happy knitting!
29.08.2023 - 09:03
Jen skrifaði:
Hi, at the start of the mid section where it says: Cast on 28-28 stitches (including 1 edge stitch on each side) what does it mean by edge stitch? are the edge stitches included in the 28 stitch count? are they knitted differently to the rest of the piece? thanks
22.02.2023 - 10:57DROPS Design svaraði:
Dear Jen, the edge stitches are used when picking up stitches (inside this edge stitch) and will be worked in garter stitch (knit from right as well as from wrong side); and they are included in the number of stitches to cast on, this means you don't have to cast them extra. Happy knitting!
22.02.2023 - 13:26
Kethnaly skrifaði:
Bonjour, Pouvez-vous expliquer comment faire les côtes mousse? 1 côte mousse = Tricoter 2 rangs endroit.
14.12.2022 - 09:30DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Kethnaly, effectivement, pour tricoter 1 côte mousse, on tricote 1 rang endroit sur l'endroit puis 1 rang endroit sur l'envers. Retrouvez dans cette vidéo comment tricoter au point mousse. Bon tricot!
14.12.2022 - 13:12
Maminou skrifaði:
Est il possible d’avoir les explications du modèle en français et en cm. Je saurai adapter selon la laine utilisée ici. Merci d’avance pour mes petites filles qui aiment beaucoup votre modèle.
10.12.2022 - 18:16DROPS Design svaraði:
Bonjour, vous pouvez voir les explications en français ici: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=10083&cid=8. Bon tricot!
11.12.2022 - 20:40
Monique Bannink-Douven skrifaði:
Ik brei al heel lang maar ik begrijp het patroon echt niet. Begin ik met rondbreinaald of een gewone naald en ga later met rondbreinaald verder. De steken, zet ik 2x steken op.............er staat zet 28-28 steken op....begrijp het echt niet.....filmpje zou handig zijn
15.11.2022 - 15:35DROPS Design svaraði:
Dag Monique,
De reeks getallen (28-28) die je steeds in het patroon ziet staan staan voor de verschillende maten, dus in dit geval 28 steken voor maat S/M en 28 steken voor maat L.
Je breit eerst een rechthoek heen en weer gebreid. Daarna neem je steken op langs beide zijkanten van die rechthoek (dus aan weerskanten van de steken die je al op de naald hebt staan en vervolgens brei je alle steken heen en weer verder. Vanwege het aantal steken brei je op de rondbreinaald, maar je breit wel heen en weer. Voor de hals brei je wel weer verder in de rondte
16.11.2022 - 15:35
Alex skrifaði:
Could you make a video for this pattern from the beginning to the end, please? It would be helpful. Thank you.
29.10.2022 - 15:00
ANNICK PLATTEEURO skrifaði:
Bonjour Je pense que je vais me lancer et réaliser ce modèle .Pour moi tout me parait à peu près clair sauf cette histoire de marqueur au milieu du rang qui sera le milieu du dos ! Là vous m'avez perdu ,je ne visualise pas la chose et je décroche ...Une petite explication serait la bienvenue Merci pour votre aide .Cordialement
23.09.2022 - 19:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Platteeuro, lorsque vous avez terminé le dessus de la tête, vous relevez les mailles à droite de cette partie, tricotez ces mailles et relevez les mailles à gauche de cette partie pour tricoter la cagoule au niveau de l'ouverture du visage (d'un côté à l'autre du visage), on doit placer un marqueur au milieu de ce rang (= milieu dos de la cagoule) pour diminuer de chaque côté de ce marqueur, et, simultanément, vous augmentez de chaque côté (ouverture du visage). En espérant que ce soit plus clair ainsi, bon tricot!
26.09.2022 - 09:00
Josée skrifaði:
Bonjour C’est un modèle que j’ai fait pour moi cet hiver en vert sapin. Beaucoup de compliments et aucune remarque désagréable. J’en referai une ,c’est sûr,probablement en blanc.merci
23.07.2022 - 08:17
Uncharted Territory#unchartedterritorybalaclava |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð balaclava / húfa / lambhúshetta úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með kanti í stroffprjóni.
DROPS 214-72 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (á við um í hvorri hlið við miðju að framan): Aukið út innan við ystu 5 lykkjur við miðju að framan. Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 102 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 22) = 4,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um mitt aftan á húfu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Byrjið 5 lykkjum á undan prjónamerki mitt að aftan, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 6 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- LAMBHÚSHETTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Miðjueiningin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna frá miðju framan á höfði og aftur. Lykkjur eru prjónaðar upp hvoru megin við miðjueininguna. Síðan er húfan prjónuð fram og til baka á hringprjóna, áður en lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli mitt að framan. Síðan er afgangur af húfunni prjónaður í hring á hringprjóna að loka máli. Að lokum er prjónaður kantur í stroffprjóni í kringum op að framan. MIÐJUEINING: Fitjið upp 28-28 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 13-14 cm, fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið = 26-26 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn frá. Prjónið síðan húfuna eins og útskýrt er að neðan. HÚFA: Prjónið nú upp lykkjur hvoru megin við miðjueiningu, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið upp 28-32 lykkjur meðfram hlið á miðjueiningu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón yfir 26-26 lykkjur á prjóni og prjónið upp 28-32 lykkjur meðfram hinni hlið á miðjueiningu innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni = 82-90 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= miðja að aftan). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt að aftan. Að aukið er sett 1 prjónamerki í byrjun á umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Aukið síðan út í hvorri hlið við miðju að framan og fækkið lykkjum mitt að aftan eins og útskýrt er að neðan – lestu kaflann um útaukningu og úrtöku áður en þú prjónar áfram! ÚTAUKNING Í HVORRI HLIÐ VIÐ MIÐJU AÐ FRAMAN: Þegar stykkið mælist 13-15 cm frá þar sem prjónamerkið var sett í, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið við miðju að framan – sjá ÚTAUKNING-1 (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 6 sinnum í hvorri hlið. ÚRTAKA MITT AÐ AFTAN: JAFNFRAMT þegar auka á út í 3. skiptið, fækkið um 2 lykkjur mitt að aftan – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 4 sinnum (útaukning og úrtaka endar samtímis). Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 86-94 lykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 20-22 cm frá þar sem prjónamerki var sett, á að fitja upp lykkjur fyrir hálsmáli mitt að framan. Mátið e.t.v. húfuna og prjónið að óskaðri lengd áður en nýjar lykkjur eru fitjaðar upp. Fitjið upp 16-16 nýjar lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 102-110 lykkjur í umferð. Prjónið síðan hálsmál í hring á hringprjóna eins og útskýrt er að neðan. HÁLSMÁL: Prjónið 5 umferðir sléttprjón yfir allar lykkjur. Í næstu umferð er aukið út um 22-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 124-132 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 3 cm, aukið út allar 2 lykkjur slétt til 3 lykkjur slétt með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverri sléttri einingu (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, svo ekki myndist gat) = 155-165 lykkjur. Haldið áfram hringinn með 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist 11-12 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Stykkið mælist ca 39-42 cm frá miðju á miðjueiningu og niður meðfram hlið. KANTUR Í KRINGUM OP AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst í opi að framan, þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir hálsmáli. Prjónið upp ca 140-152 lykkjur í kringum op að framan innan við 1 kantlykkju á stuttan hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #unchartedterritorybalaclava eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-72
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.