Marina skrifaði:
Fifties romance
11.01.2021 - 14:45
Marga skrifaði:
Beauty
11.01.2021 - 11:21
Melo Moubarek skrifaði:
Brume d’opale
10.01.2021 - 23:39
Mela skrifaði:
Dreams
10.01.2021 - 01:36
Alexandra Bühler skrifaði:
Warming Ice
09.01.2021 - 15:39
Inge skrifaði:
Spring blue
08.01.2021 - 15:16
Carola Wijma skrifaði:
Summer leaves
08.01.2021 - 06:55
Anna Sarjanen skrifaði:
Havsbris
07.01.2021 - 21:43
Charlaine skrifaði:
Esprit dentelle pour un pull vaporeux, sympa. Ne doit pas être facile à réaliser.
07.01.2021 - 20:40
Nadzeya skrifaði:
Forget-me-not
07.01.2021 - 19:55
Life’s Stream#lifesstreamsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 220-6 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka í 2 stykkjum sem saumuð eru saman eins og útskýrt er í uppskrift. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Að lokum er prjónaður hár kragi. Stykkið er prjónað úr 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. BAKSTYKKI: Fitjið upp 57-63-63-69-75-81 lykkjur á hringprjón 8 með 4 þráðum Brushed Alpaca Silk. Takið frá 2 þræði og prjónið nú með 2 þráðum. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú mynstur þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1A (= 6 lykkjur), A.1B yfir næstu 42-48-48-54-60-66 lykkjur (= 7-8-8-9-10-11 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.1C (= 7 lykkjur) og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjurnar, prjónið eins og áður út umferðina. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 6 lykkjurnar, prjónið eins og áður út umferðina = 45-51-51-57-63-69 lykkjur eftir. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1A (= 6 lykkjur), A.1B yfir næstu 30-36-36-42-48-54 lykkjur (= 5-6-6-7-8-9 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.1C (= 7 lykkjur) og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 44-46-48-49-51-53 cm, prjónið í sléttprjóni (kantlykkjur halda áfram í garðaprjóni). Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 19-21-21-23-23-25 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. JAFNFRAMT er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsi = 12-14-14-16-19-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram eins og áður þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 57-63-63-69-75-81 lykkjur á hringprjón 8 með 4 þráðum Brushed Alpaca Silk. Takið frá 2 af þráðunum og prjónið nú með 2 þráðum. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan mynstur þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 6 lykkjur), A.1B yfir næstu 42-48-48-54-60-66 lykkjur (= 7-8-8-9-10-11 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.1C (= 7 lykkjur) og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 6 lykkjurnar, prjónið eins og áður út umferðina. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 6 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina = 45-51-51-57-63-69 lykkjur eftir. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1A (= 6 lykkjur), A.1B yfir næstu 30-36-36-42-48-54 lykkjur (= 5-6-6-7-8-9 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.1C (= 7 lykkjur) og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 44-46-48-49-51-53 cm, prjónið sléttprjón (kantlykkjur halda áfram í garðaprjóni). Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, setjið miðju 13-15-15-17-17-19 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 12-14-14-16-19-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 33-33-33-39-39-39 lykkjur á hringprjón 8 með 4 þráðum Brushed Alpaca Silk. Takið frá 2 af þráðunum og prjónið nú með 2 þráðum. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan mynstur þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1A (= 6 lykkjur), A.1B yfir næstu 18-18-18-24-24-24 lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar með 6 lykkjum), endið með A.1C (= 7 lykkjur) og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 7-6-5-7-5½-4½ cm millibili alls 6-7-8-6-7-8 sinnum í hvorri hlið = 45-47-49-51-53-55 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til aukið hefur verið nægilega út til að prjóna 1 auka einingu af A.1 í hvorri hlið. Prjónið áfram þar til ermin mælist 49-47-48-46-45-43 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi – prjónamerkið merkir hvar botninn á handveg byrjar. Prjónið áfram þar til ermin mælist alls 54-52-53-51-50-48 cm. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Frágangur á stykkinu er gerður með 1 þræði. Saumið axlasaumana kant í kant, þannig að ekki myndist þykkur saumur. Saumið affellingarkantinn á ermi við handveg á framstykki og bakstykki – sjá teikningu. Saumið botninn á handveg – prjónamerkin sem voru sett í á ermum eiga að passa við hliðar á fram- og bakstykki. Saumið saum neðan á ermum og hliðarsaum í eitt – byrjið neðst á ermi og saumið upp að handveg, saumið síðan niður að uppfitjunarkanti á fram- og bakstykki. Endurtakið í hinni hliðinni. KRAGI: Prjónið upp ca 46 til 60 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á stuttan hringprjón 8 með 2 þráðum Brushed Alpaca Silk. Prjónið sléttprjón í 8-9 cm, fellið af með 4 þráðum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lifesstreamsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.