Sabine Adam skrifaði:
Mein Vorschlag: in der Mitte der Halsblende eine Reihe links stricken, damit sie sich beim nach innen-Nähen besser falten lässt (wie es im Video auch angegeben ist, aber leider nicht in der Anleitung, sodass ich es zu spät gesehen habe). Viele Grüße
14.03.2021 - 14:37
Sabine Adam skrifaði:
Danke
01.03.2021 - 17:13
Sabine Adam skrifaði:
Vielen Dank für Ihre schnelle Antwort! Bedeutet das, dass ich am Ende der Zunahmen füe die Passe (dort, wo 'Maschenprobe beachten' im Text steht) evtl. meine Maschenanzahl jetzt noch ändern soll, falls sie nicht der Maschenprobe entspricht?
01.03.2021 - 16:03DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Adam, es bedeutet, daß die Maßen in der Höhe/in der Breite nicht stimmen werden wenn Ihre Maschenprobe beim stricken nicht in der Höhe/in der Breite stimmt - dann sollen Sie die Anleitung anpassen - hier lesen Sie mehr über Maschenprobe. Viel Spaß beim stricken!
01.03.2021 - 16:14
Sabine Adam skrifaði:
Unter 'Passe' steht nach den Zunahmen 'Maschenprobe beachten' - was bedeutet das? Die Maße/Breite der Jacke sind doch durch das bereits gestrickte Stück bereits vorgegeben und können jetzt nicht geändert werden, oder? Danke
01.03.2021 - 14:11DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Adams, es bedeutet, daß die Maschenprobe immer stimmen muss, auch wenn Sie die Jacke stricken, damit die fertige Maßen immer stimmen (genauso eng/locker stricken damit Sie die ganze Zeit immer 11 M x 15 R glatt rechts =10 x 10 cm haben/behalten). Viel Spaß beim stricken!
01.03.2021 - 14:44
Maria Carmen skrifaði:
Buenos días, Me encanta este modelo y voy a hacerlo, mi pregunta es ¿Puedo usar hilo Nepal en vez de Air, ¿sería en doble y la misma cantidad de hilo? Muchas gracias y que paseis buen día.
05.02.2021 - 13:16DROPS Design svaraði:
Hola Maria, puedes usar DROPS Nepal, en doble, pero necesitas mas hilo que esta escrito en el patron. Como calcular esto puedes ver AQUI. Buen trabajo!
05.02.2021 - 18:21
Pernilla Stake skrifaði:
Så fin :)
21.01.2021 - 13:20
Carme Capdevila Albor skrifaði:
Jaquelin Cardigan
19.01.2021 - 22:04
Gabriela Cervantes skrifaði:
Es muy bonito este diseño
12.01.2021 - 17:18
Monica Belotti skrifaði:
Io lo chiamerei "Audrey". Un modello ADORABILE. Must Have!!!!
12.01.2021 - 17:14
MARÍA ROSA skrifaði:
Audrey
12.01.2021 - 13:40
Joy of the Harvest Jacket#joyoftheharvestjacket |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Air eða 1 þræði Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli og víðum ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 223-9 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 51 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 2) = 26,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 26. og 27. hverja lykkju, ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð) þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 11 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 10-10½-9-9½-9½-10 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 61-63-65-67-73-75 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 7 með 2 þráðum Air eða 1 þræði Wish. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 11 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 2-4-5-4-5-7 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 63-67-70-71-78-82 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni) – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Hoppið yfir fyrstu 13-14-15-15-17-18 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstra framstykkis og vinstri ermi), hoppið yfir næstu 9 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), hoppið yfir næstu 19-21-22-23-26-28 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), hoppið yfir næstu 9 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og hægra framstykkis), það eru 13-14-15-15-17-18 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Í fyrstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð (= hverri umferð frá réttu) alls 14-15-17-18-20-22 sinnum, síðan er aukið út 1 sinni til viðbótar á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri og ekki er aukið út á ermum) = 179-191-210-219-242-262 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið áfram þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá prjónamerki eftir kanti í hálsmáli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 28-30-33-34-38-41 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 37-39-43-45-49-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 49-53-58-61-68-74 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 37-39-43-45-49-53 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 28-30-33-34-38-41 lykkjur (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 117-125-136-145-160-172 lykkjur. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni og 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 20 cm frá skiptingu í öllum stærðum, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-18-21-20-23-25 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir kantlykkjur að framan í garðaprjóni) = 133-143-157-165-183-197 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður). Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 37-39-43-45-49-53 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 43-45-49-53-57-61 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 25-23-22-20-18-17 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-7-7-7-9-9 lykkjur jafnt yfir = 50-52-56-60-66-70 lykkjur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 29-27-26-24-22-21 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið uppá stroffið efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsi verði of stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #joyoftheharvestjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 223-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.