DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 724.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7910.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Good Book Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með smáum sjalkraga og uppábroti á ermum. Stærð XS - XXL.

DROPS 215-36
DROPS Design: Mynstur ab-107
Garnflokkur C + A eða D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-250-300-300-350-350 g litur 2020, ljós beige
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-100-100-100-100-125 g litur 20, ljós beige

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 60 cm og 80 cm kanta í garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 724.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7910.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MÁL:
Öll mál á breidd eru gerð þegar stykkið liggur flatt án þess að strekkja það.
Öll mál á lengd eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur peysan til með að verða of síð þegar hún er mátuð.

ÚTAUKNING (á við um í hliðum á ermum):
Aukið út um 1 lykkju innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Allt stykkið er prjónað með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Bakstykki, framstykki og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig, neðan frá og upp. Síðan er stykkið saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 62-68-73-79-85-91 lykkjur á hringprjóna 7 með 2 þráðum Kid-Silk og 1 þræði Alpaca Bouclé (= 3 þræðir).
Takið frá annan þráðinn með Kid-Silk (afgangur af bakstykki er prjónaður með 1 þræði í hvorri tegund, en fitjað er upp með 1 auka þræði til að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði stífur).
Skiptið yfir á hringprjóna 6 og prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan.
Skiptið til baka yfir á hringprjóna 7 og prjónið sléttprjón með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 45-47-48-49-50-51 cm – sjá MÁL, fellið af 3-4-5-7-7-7 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 56-60-63-65-71-77 lykkjur eftir. Prjónið áfram eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 61-64-66-68-70-72 cm, fellið af miðju 10-10-11-11-13-13 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 21-23-24-25-27-30 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til bakstykkið mælist 63-66-68-70-72-74 cm.
Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING!
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 34-37-39-42-45-48 lykkjur á hringprjóna 7 með 2 þráðum Kid-Silk og 1 þræði Alpaca Bouclé (= 3 þræðir).
Takið frá annan þráðinn með Kid-Silk (afgangur af framstykki er prjónaður með 1 þræði í hvorri tegund).
Skiptið yfir á hringprjóna 6 og prjónið 6 umferðir garðaprjón.
Skiptið til baka yfir á hringprjóna 7 og prjónið sléttprjón með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hlið og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 45-47-48-49-50-51 cm, fellið af 3-4-5-7-7-7 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu umferð frá röngu = 31-33-34-35-38-41 lykkjur eftir. Prjónið áfram eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan.

Þegar stykkið mælist 63-66-68-70-72-74 cm, fellið af á öxl, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Fellið af fyrstu 21-23-24-25-27-30 lykkjurnar á öxl og prjónið sléttar lykkjur yfir þær 10-10-10-10-11-11 lykkjur sem eftir eru í umferð = kragi. Kraginn er prjónaður eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI KRAGI:
= 10-10-10-10-11-11 lykkjur. Haldið eftir lykkjum á hringprjón 7. Byrjið frá réttu og prjónið garðaprjón fram og til baka með 1 þræði í hvorri tegund þannig: * Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 6-6-6-6-7-7 lykkjur við miðju að framan *, prjónið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-8-8-8-8 cm innst þar sem stykkið er minnst. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 34-37-39-42-45-48 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum Kid-Silk og 1 þræði Alpaca Bouclé (= 3 þræðir):
Takið frá annan þráðinn með Kid-Silk (afgangur af framstykki er prjónaður með 1 þræði í hvorri tegund).
Skiptið yfir á hringprjóna 6 og prjónið 6 umferðir garðaprjón.
Skiptið til baka yfir á hringprjóna 7 og prjónið sléttprjón með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hlið og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 45-47-48-49-50-51 cm, fellið af 3-4-5-7-7-7 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu umferð frá réttu = 31-33-34-35-38-41 lykkjur eftir. Prjónið áfram eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg og 3 kantlykkjur í garðaprjóni við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 63-66-68-70-72-74 cm, fellið af á öxl, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 21-23-24-25-27-30 lykkjurnar á öxl og prjónið sléttar lykkjur yfir þær 10-10-10-10-11-11 lykkjur sem eftir eru í umferð = kragi. Kraginn er prjónaður eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI KRAGI:
= 10-10-10-10-11-11 lykkjur. Haldið eftir lykkjum á hringprjón 7. Byrjið frá röngu og prjónið garðaprjón fram og til baka með 1 þræði í hvorri tegund þannig: * Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjurnar, prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir fyrstu 6-6-6-6-7-7 lykkjur við miðju að framan *, prjónið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-8-8-8-8 cm innst þar sem stykkið er minnst. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

ERMI:
Fitjið upp 28-30-32-32-34-36 lykkjur á hringprjóna 7 með 2 þráðum Kid-Silk og 2 þráðum Alpaca Bouclé (= 4 þræðir):
Takið frá 1 þráð í hvorri tegund (afgangur af ermi er prjónaður með 1 þræði í hvorri tegund, en fitjað er upp með 2 auka þráðum til að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði stífur).
Skiptið yfir á hringprjóna 6 og prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan.
Skiptið til baka yfir á hringprjóna 7. Prjónið 1 umferð brugðið frá réttu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Síðan er prjónað sléttprjón (slétt frá réttu, brugðið frá röngu) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar ermin mælist 8 cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Þessi prjónamerki merkja hvar brjóta á uppá ermina og stykkið er síðan mælt frá þessum prjónamerkjum.
Haldið áfram með sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 9 cm frá prjónamerki, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4-3½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 9-10-10-11-12-12 sinnum í hvorri hlið = 46-50-52-54-58-60 lykkjur.
Þegar ermin mælist 45-44-43-42-41-40 cm frá prjónamerkjum, setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið. Þessi prjónamerki merkja hvar botninn á handvegi byrjar.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 48-47-47-47-46-45 cm frá prjónamerkjum neðst á ermi. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Öll ermin mælist ca 56-55-55-55-54-53 cm frá affellingarkanti að uppfitjunarkanti.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni og saumið botninn á handvegi – prjónamerki sem var sett í hvora hlið efst á ermum á að passa við hliðar á fram- og bakstykki.
Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur.
Saumið kragann saman mitt að aftan, en passið uppá að saumurinn snúi inn þegar kraginn er brotinn niður. Saumið kraga við hálsmál aftan í hnakka.
Brjótið upp neðstu 8 cm á hvorri ermi og saumið e.t.v. niður með nokkrum smáum sporum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.11.2022
HÆGRI KRAGI + VINSTRI KRAGI:..prjónið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-8-8-8-8 cm innst þar sem stykkið er minnst. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

Mynstur

symbols = Ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Anna wrote:

En ymmärrä pätkää: oikea kaulus. 10 silmukkaa puikolla kudottu 4 kerrosta aina oikeaa. Siitä eteenpäin en ymmärrä ollenkaan

23.05.2024 - 07:55

country flag Eva Svensson wrote:

Hej! Önskar ett mer formfast alternativ till Alpacka Boucle. Ska passa till Drops Kid Silk uni colour beige. Mvh Eva.

25.09.2023 - 09:10

DROPS Design answered:

Hej Eva, da kan du bruge DROPS Alaska 49 som passer perfekt og er på tilbud eller så finder du en selv: Beige - garngrupp c

26.09.2023 - 15:46

country flag Mary Roche wrote:

Where the pattern calls for 2 strands one each of drops alpaca bouclé and drops kid-silk and I would like to use only Bouclé should I reduce the needle size to 4/5 mm in place of 6/7mm and adjust for size (with a tension sample)?\r\nThanks you

18.09.2023 - 14:05

DROPS Design answered:

Dear Mrs Roche, you will have to make your own swatch and recalculate the whole pattern - read more here - it might be easier to look at the pattern for a yarn group C, just as Alpaca Bouclé and with 1 strand - see here. Happy knitting!

18.09.2023 - 16:12

country flag Lise wrote:

Bonjour, Merci beaucoup pour vos modèles. Est-il possible d’avoir ce modèle en3XL ou 4XL?

16.05.2023 - 19:41

DROPS Design answered:

Bonjour Lise, ce modèle ne va que jusqu'au XXL, mais vous trouverez ici tous nos modèles de gilets et vestes en XXXL, n'hésitez pas à ajouter des filtres pour affiner votre recherche. Bon tricot!

17.05.2023 - 08:05

country flag Else Marie Johansen Panagiotaki wrote:

Hei Er strikket ermet til deit man skal sette 1 nytt merke i hver siden for å marker hvor bunnen av ermhullet starter. Oppskrift: Strikk vieder til ermet måler .....cm fra merkene nederst på ermet. Fell løst av fra retten. Sy bunnen av ermet? I følge dette vil jo ikke ermet passet inn i ermfellingen på bak- og forstykkene jmf diagramforklaringen. Hvordan skal dette forståes?

02.03.2023 - 16:12

DROPS Design answered:

Hej Else Marie, jo da det stemmer, se skissen hvordan du syr sammen :)

08.03.2023 - 07:55

country flag Iuliia wrote:

Hi! Thank you for this beautiful model. Question - back and front are casted using 3 threads while sleeves are casted using 4. Why?

05.12.2022 - 00:22

DROPS Design answered:

Dear Iuliia, you cast on the sleeves with 4 strands so that you will be sure to get an ealastic edge (needs to be more elastic on wrist than on bottom edge). Happy knitting!

06.12.2022 - 11:33

country flag Katleen wrote:

@Katrien, voor de kraag heb ik geen 2 maar 1 ribbel gebreid voor de lange toeren. Succes !

19.11.2022 - 01:23

country flag Katrien wrote:

Hallo, IVM de kraag : op 2/10/22 schreef u (aan Kathleen) dat u de ontwerpafdeling contacteerde om evt aanpassingen te doen? Ik wacht nu enkele weken om de kraag te breien, wacht ik nog, of heeft u tips voor mij, zodat de kraag mooi lukt. Ik lees hier dat bij velen die kraag niet lukt. Mvg

30.10.2022 - 18:33

country flag Dominique Masson wrote:

Bonjour je m'aperçois au moment de les assembler que les 2 morceaux du col st bcp trop longs... j'ai une encolure de 30cm env et 2 morceaux de col de 22cm. J'ai fait 9 fois 3 rangs de côtes et 1 rang envers comme indiqué pour taille M, les autres mesures st ok avec le modèle. Dois je refaire ? coudre froncé ? Merci de votre conseil Dominique Par contre la laine est très belle et le modèle très cocooning, top !

25.10.2022 - 17:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Masson, les deux parties du col doivent mesurer 7 ou 8 cm (cf taille) du côté le plus court (= côté épaule/ c'est le côté qui est cousu le long de l'encolure dos), de l'autre côté (côté bordure devant/ouverture de la veste), il sera 2 fois plus long à cause des rangs raccourcis, mais c'est le côté qui sera replié - cette vidéo montre un col châle sans rangs raccourcis (le côté le plus court est le côté où vous avez tricoté moins de rangs), en espérant qu'elle puisse vous aider. Bon tricot!

26.10.2022 - 07:38

country flag Katleen wrote:

Er zijn hier al veel vragen gesteld ivm de kraag. Inderdaad, als je de instructies volgt heb je veel meer dan 8 cm aan de korte kant ( kant die aangenaaid wordt aan rugpand). Toch graag eens duidelijke instructies.

29.09.2022 - 02:04

DROPS Design answered:

Dag Katleen,

Inderdaad lijkt het alsof er een fout in zit en dat je minder ribbels moet breien. Ik heb het doorgegeven aan de ontwerpafdeling om naar te kijken. Hopelijk komt er spoedig een correctie.

02.10.2022 - 16:14