DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Campfire Snuggles Cardigan

Prjónuð peysa í garðaprjóni úr 2 þráðum DROPS Melody. Stærð S - XXXL.

DROPS 215-34
DROPS Design: Mynstur ml-060
Garnflokkur D + D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
150-200-200-250-250-250 g litur 03, perlugrár
150-200-200-250-250-250 g litur 15, beige

PRJÓNFESTA:
8 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með garðaprjóni og 1 þræði í hvorum lit = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 12: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir garðaprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble nr 629: 5-5-5-6-6-6

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka, neðan frá og upp, á hringprjón frá miðju að framan, upp að handveg. Hér skiptist stykkið og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Ermar eru prjónaðar upp í handveg og eru prjónaðar fram og til baka á prjóni, ofan frá og niður. Að lokum er prjónaður upp kantur í hálsmáli.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 82-90-94-102-110-118 lykkjur á hringprjón 12 með 1 þræði í litnum perlugrár og 1 þræði í litnum beige (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið þar til stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm frá uppfitjunarkanti. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið fyrstu 20-22-23-24-26-28 lykkjur, fellið af næstu 4-4-4-6-6-6 lykkjur, prjónið næstu 34-38-40-42-46-50 lykkjur, fellið af næstu 4-4-4-6-6-6 lykkjur og prjónið síðustu 20-22-23-24-26-28 lykkjur í umferð. Héðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 20-22-23-24-26-28 lykkjur. Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm setjið fyrstu 6-6-6-6-7-7 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, síðan er fellt af í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig: 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 2 sinnum = 10-12-13-14-15-17 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm (19-20-21-22-23-24 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg).

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt, fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu.

BAKSTYKKI:
= 34-38-40-42-46-50 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Fellið af miðju 12-12-12-12-14-14 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju við hálsmál = 10-12-13-14-15-17 lykkjur eftir á hvorri öxl. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg).

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka, ofan frá og niður.
Prjónið upp 30-32-34-36-36-38 lykkjur í kringum op fyrir ermi í ystu lykkjubogana á hringprjón 12 með 1 þræði í hvorum lit, þ.e.a.s. byrjið mitt í 4-4-4-6-6-6 lykkjum sem felldar voru af við skiptingu á fram- og bakstykki, takið upp 15-16-17-18-18-19 lykkjur fyrir axlasaum og takið upp 15-16-17-18-18-19 lykkjur frá axlasaumi og niður að miðju í 4-4-4-6-6-6 lykkjum sem felldar voru af við skiptingu fyrir fram- og bakstykki. Prjónið garðaprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki. Fækkið lykkjum með 10-8-8-6½-7-6 cm millibili, alls 5-6-6-7-6-7 sinnum = 20-20-22-22-24-24 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 52-50-50-50-48-47 cm (styttri ermar í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu með 1 þræði í hvorum lit á hringprjón 12 og prjónið upp ca 35 til 41 lykkjur í kringum hálsinn meðtaldar lykkjur frá þræði.
Passið uppá að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 2 + 1. Prjónið þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff í 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma. Staðsetjið og saumið 5-5-5-6-6-6 tölur jafnt yfir í vinstri kanti að framan. Efsta talan er staðsett beint undir kanti í hálsmáli og neðsta talan er ca 8 cm frá neðri kanti. Tölum er hneppt í gegnum lykkjur í hægra framstykki.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag MM wrote:

Hello, So the bind off at beginning of every row from right side ( for the right front piece) after slipping the first 6-6-6-6-7-7 stitches on a stitch holder for neck, is the bind off of the stitches right after the 6-6-6-6-7-7 slipped stitches for neck?

16.12.2023 - 11:44

DROPS Design answered:

Dear MM, slip the first stitches, then work the rest of the row and work back. Then, on the next row from the right side, start binding off the first stitches of the row. Happy knitting!

17.12.2023 - 18:58

country flag Mia wrote:

Hello, the 6 stitches I need to put on hold for the neck, are those the first 6 stitches next to the front opening of the cardigan or are they on the other side? Thank you so much

19.01.2022 - 19:27

DROPS Design answered:

Hi Mia, They are the stitches by the neck opening. Happy knitting!

20.01.2022 - 07:49

country flag Sjanie Vd Berge wrote:

Hallo, ik heb dit vest gebreid met Drops Melody, nu wil ik er nog een maken met Drops Sky, moet ik dan 1 draad of 2 draden gebruiken en hoeveel bollen heb ik dan nodig? en op welke naalddikte? groeten Sjanie

23.04.2021 - 14:17

DROPS Design answered:

Dag Sjanie,

Sky valt in garengroep B en als je 2 draden van garengroep B neemt, dan komt dat ongeveer overeen met garengroep D. Je hebt dus 4 draden Sky nodig. De hoeveelheid benodigde garen kun je uitrekenen aan de hand van de looplengte van beide garens. In dit artikel staat dat uitgelegd.

25.04.2021 - 18:21

country flag Gitte wrote:

Hej Hvordan er det muligt at slå alle maskerne op rundt om hele ærmegabet på en DROPS rundpind 12? Jeg kan ikke nå rundt med pinden og er nød til at sy under ærmegab

03.04.2021 - 19:16

DROPS Design answered:

Hej Gitte, opskriften er skrevet så den strikkes frem og tilbage på rundpind. Hvis du vil strikke rundt, så er du nødt til at bruge strømpepinde eller lave magic loop. God fornøjelse!

06.04.2021 - 13:29

country flag Stine wrote:

Jeg forstår ikke flg. (Højre forstykke): Når arbejdet måler 44-46-48-50-52-54 cm sættes de første 6-6-6-6-7-7 masker på en tråd til hals, derefter lukkes der af i begyndelsen af hver pind fra retsiden således: 2 masker 1 gang, 1 maske 2 gange = 10-12-13-14-15-17 masker tilbage på skulderen. Findes der en video til det? Mvh Stine

24.02.2021 - 22:45

DROPS Design answered:

Hej Stine, du strikker først de 6 masker, flytter dem over på en sikkerhedsnål eller en tråd. Strikker pinden ud. Vend arbejdet strik til maskerne på sikkerhedsnålen, vend arbejdet og luk 2 masker af, strik pinden ud, vend arbejdet og strik tilbage, vend arbejdet og luk 1 maske af strik pinden ud. Det gør du en gang til på samme måde :)

25.02.2021 - 14:19

country flag Sigrid wrote:

Hallo! Könnte man die Ärmel auch rund stricken? Mit abwechselnd 1 Reihe re / 1 Reihe li und den entsprechenden Abnahmen? Danke!

20.02.2021 - 18:48

DROPS Design answered:

Liebe Sigrid, die ersten 3 cm sollen aber in Reihen gestrickt werden, denn diese 3 cm werden dann am Armloch zusammengenäht (siehe Video. Viel Spaß beim stricken!

22.02.2021 - 08:21

country flag Mien wrote:

Wat wordt bedoeld, hoe moet je het volgende breien? Zet een hoogte van X cm, de eerste 6 steken op een hulpdraad voor de hals, kant dan af op het begin van iedere naald aan de goede kant als volgt. Moet je de eerste 6 steken eerst breien en dan op een hulpnaald zetten? Of moet je deze gelijk op een hulpdraad zetten? Maar wat doe je dan met de draad door dan nog vooraan zit? Alvast bedankt

31.01.2021 - 17:02

DROPS Design answered:

Dag Mien,

Je kunt de eerste 6 steken eerst breien en dan op een hulpdraad zetten, zodat je niet de draad af hoeft te knippen.

01.02.2021 - 08:42

country flag Claire wrote:

Hallo, Welche Größe trägt das Modell in dem Photo? Und welche Größe trägt sie normalerweise?

15.01.2021 - 08:57

DROPS Design answered:

Liebe Claire, das Modell trägt entweder eine S oder M - aber um die richtige Größe zu wählen, messen Sie eine ähnliche Jacke, die Sie gerne haben und vergleichen Sie die Maßen mit den in der Maßskizze. Hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!

15.01.2021 - 15:18

country flag Martsa wrote:

Hei, miten voin korvata ohjeessa olevan beigen Melody-langan? Lanka on ollut jo pitkään loppu verkkokaupoista, mutta haluaisin silti tehdä neuleen saman sävyisenä.

02.01.2021 - 19:55

DROPS Design answered:

Hei, voisit korvata langan esim. beigellä DROPS Sky-langalla. Tee kuitenkin aluksi koetilkku, jotta näet miltä neulepinta näyttää.

16.03.2021 - 18:17

country flag Esther Bosveld wrote:

Hallo, graag zou ik willen weten hoe ik de maat kan bepalen. Wat is de omvang van maat s/m/l Welke maten/ omtrek moet ik hanteren voor welke maat? Alvast bedankt Esther

09.12.2020 - 21:29

DROPS Design answered:

Dag Esther,

Onderaan het patroon staat een tekening waarin de maten staan aangegeven. Het kleinste getal voor de kleinste maat, het grootste getal voor de grootst maat.

14.12.2020 - 13:12