DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Ready, Set, Go

Settið samanstendur af: Peysu fyrir börn með röndum og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Húfa fyrir börn með röndum og eyrnaleppum og sokkar. Stærð fyrirburar - 4 ára. Settið er prjónað úr DROPS Alpaca.

DROPS Baby 31-18
DROPS Design: Mynstur z-099-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)
Höfuðmál: 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52) cm
Lengd fótar: 10-11-12 (14-16) cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-200-200 (200-250) g litur 618, ljós beige
50-50-50 (50-50) g litur 506, dökk grár
50-50-50 (50-50) g litur 101, hvítur
50-50-50 (50-50) g litur 3900, tómatrauður

-----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: (0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
(40/44) 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(100) 100-100-100-150 (150-150) g litur 618, ljós beige
(50) 50-50-50-50 (50-50) g litur 506, dökk grár
(50) 50-50-50-50 (50-50) g litur 101, hvítur
(50) 50-50-50-50 (50-50) g litur 3900, tómatrauður

DROPS HRINGPRJÓNN (40 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS TRÉTALA, Eik NR 503: 4 st í allar stærðir.
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: (0) 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Höfuðmál: (28/32) 34/38 - 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52) cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
(50) 50-50-50-50 (50-50) g litur 618, ljós beige
(50) 50-50-50-50 (50-50) g litur 506, dökk grár
(50) 50-50-50-50 (50-50) g litur 101, hvítur
(50) 50-50-50-50 (50-50) g litur 3900, tómatrauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – fyrir snúru.
----------------------------------------------------------

SOKKAR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2- 3/4) ára
Lengd fótar: 10-11-12 (14-16) cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 (50-50) g litur 618, ljós beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 - eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferð með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka – á við um peysu og húfu):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (á við um peysu):
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Það er aukið út með uppslætti, uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð, það á ekki að myndast gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

ÚRTAKA (á við um peysu):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki.
Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

ÚRTAKA-1 (á við um sokka):
Fækkið um 1 lykkju á undan 1 lykkju brugðið þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið um 1 lykkju á eftir 1 lykkju brugðið þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

ÚRTAKA FYRIR TÁ (á við um sokka):
Fækkið lykkjum 3 lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er berustykkið prjónað fram og til baka síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjón, síðan eru ermar prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir kant að framan hvoru megin við laska op og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka í lokin.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp (88) 88-92-92-96 (100-100) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 3 með litnum ljós beige. Prjónið nú fram og til baka frá annarri laskalínunni (þ.e.a.s. á milli framstykkis og vinstri ermi).
Prjónið frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið 1 lykkju sléttprjón og setjið 1. prjónamerki í þessa lykkju, (16) 16-14-14-14 (16-14) lykkjur í sléttprjóni og aukið út um (2) 4-4-6-6 (6-6) lykkjur jafnt yfir (= vinstri ermi) – lesið ÚTAUKNING, prjónið 1 lykkju sléttprjón og setjið 2. prjónamerki í þessa lykkju, (24) 24-28-28-30 (30-32) lykkjur í sléttprjóni, prjónið 1 lykkju sléttprjón og setjið 3. prjónamerki í þessa lykkju (= bakstykki), (20) 20-18-18-18 (20-18) lykkjur sléttprjón og aukið út um (2) 4-4-6-6 (6-6) lykkjur jafnt yfir (= hægri ermi), prjónið 1 lykkju sléttprjón og setjið 4. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið (21) 21-25-25-27 (27-29) lykkjur sléttprjón, prjónið 1 lykkju sléttprjón og setjið 5. prjónamerki í þessa lykkju og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = (92) 96-100-104-108 (112-112) lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Í næstu umferð frá réttu er aukið út fyrir laskalínu þannig: Aukið út um 1 lykkju á eftir 1. prjónamerki, 1 lykkja hvoru megin við 2., 3. og 4. prjónamerkis (= alls 2 lykkjur fleiri hvoru megin við þessi prjónamerki) og auki út um 1 lykkju á undan 5. prjónamerki (= alls 8 lykkjur fleiri í hverri umferð sem aukið er út). Aukið út í annarri hverri umferð alls (2) 4-8-9-13 (14-20), síðan í hverri umferð alls (4) 4-3-3-2 (2-0) (= alls (6) 8-11-12-15 (16-20) sinnum) = (140) 160-188-200-228 (240-272) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist (7) 8-9-10-11 (12-13) cm fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = (144) 164-192-204-232 (244-276) lykkjur. Prjónið nú stykkið í hring í sléttprjóni (umferðin byrjar í skiptingunni á milli vinstri ermi og framstykkis) þar til stykkið mælist (8) 9-10-11-12 (13-14) cm. Nú skiptist fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið (34) 40-44-48-54 (58-64) fyrstu lykkjurnar á þráð fyrir ermi (= vinstri ermi), fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið (38) 42-52-54-62 (64-74) lykkjur slétt, setjið næstu (34) 40-44-48-54 (58-64) lykkjur á þráð fyrir ermi (= hægri ermi), fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu (38) 42-52-54-62 (64-74) lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= (92) 100-120-124-140 (144-164) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan í hring í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist (6) 9-12-13-14 (17-20) cm prjónið A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni, prjónið næstu umferð brugðið (= uppábrot). Prjónið 12 sléttar umferðir með ljós beige. Fellið af með sléttum lykkjum.

ERMI:
Setjið (34) 40-44-48-54 (58-64) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3. Takið upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = (42) 48-52-56-62 (66-72) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá þar sem stykkið skiptist frá fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona í (2.) 4.-4.-4.-4. (4.-5.) hverri umferð (3) 5-7-9-11 (12-14) sinnum = (36) 38-38-38-40 (42-44) lykkjur. Þegar stykkið mælist (4) 8-10-12-15 (18-23) cm prjónið A.2 (síðustu 12 umferðirnar af A.2 á að brjóta inn og sauma við ermi í lokin). Fellið af með litnum ljós beige.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

LASKA OP:
Prjónið nú upp 1 kant að framan innan við 1 kantlykkju á framstykki, fram og til baka, þannig: Prjónið upp (17) 19-22-24-26 (29-31) lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós beige frá réttu. Prjónið A.3 (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu, síðustu 10 umferðir af A.3 á að brjóta inn og sauma að peysu frá röngu í lokin).
JAFNFRAMT í 6. umferð (= frá réttu) er fellt af fyrir 3 hnappagötum jafnt yfir með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman og slá 1 sinni uppá prjóninn (fyrsta hnappagatið er gert ca 2 cm niður í hálsmáli, deilið jafnt fyrir hinum 2 hnappagötunum sem eftir eru). Fellið af fyrir hnappagötum alveg eins í 16. umferð. Munið eftir að hnappagötin verði að liggja yfir hvert annað þegar brotið er uppá kantinn, þannig að tölum er hneppt í gegnum bæði götin.
Prjónið nú 1 kant að framan innan við 1 kantlykkju á vinstri ermi, fram og til baka þannig:
Prjónið upp (17) 19-22-24-26 (29-31) lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós beige frá réttu. Prjónið 10 umferðir sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu), fellið af með sléttum lykkjum frá röngu.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá kantinn á fram- og bakstykki og saumið fallega niður að fram- og bakstykki frá röngu með litnum ljós beige.
Brjótið uppá kantinn á ermum og saumið niður fallega að ermum frá röngu með ljós beige.
Brjótið uppá kant að framan á framstykki saman tvöfalt, leggið kant á vinstri ermi undir og saumið niður neðst niðri þar sem fitjaðar voru upp 2 lykkjur með litnum ljós beige.

HÁLSMÁL:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Byrjið á kanti að framan á framstykki og prjónið upp ca 70-97 lykkjur frá réttu í kringum allan hálsinn að kanti framan á ermi (prjónaðar eru upp lykkjur í gegnum bæði lögin á kanti að framan á framstykki). Prjónið A.3 yfir allar lykkjur (1. umferð = ranga) JAFNFRAMT í 6. umferð er fellt af fyrir 1 hnappagati, með því að prjóna 4. og 5. lykkju slétt saman og slá 1 sinni uppá prjóninn, fellið af fyrir hnappagati alveg eins í 16 umferð.
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er fellt af með ljós beige. Brjótið kantinn saman tvöfaldan og saumið fallega niður þar sem prjónaðar voru upp lykkjur fyrir hálsmáli með litnum ljós beige frá röngu. Saumið saman op hvoru megin við háls í ystu lykkjubogana með litnum ljós beige frá réttu. Saumið tölur í kant í hálsmáli og kant að framan á vinstri ermi.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÚFA:
Fitjið upp (70) 82-92-96-98 (108-112) lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum ljós beige. Prjónið 5 cm sléttprjón. Prjónið 1 umferð brugðið (= uppábrot). Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið A.4 yfir allar lykkjur. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er stykkið prjónað áfram með litnum ljós beige. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (9) 8-9-10-10 (10-11) cm fækkið um (4) 4-2-0-2 (0-4) lykkjur jafnt yfir = (66) 78-90-96-96 (108-108) lykkjur. Setjið síðan 6 prjónamerki með (11) 13-15-16-16 (18-18) lykkju millibili. Nú eru eftir ca (5) 6-6-6-6 (7-7) cm eftir á húfu. Fækkið um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman í annarri hverri umferð alls (7) 8-6-5-5 (6-6) sinnum, síðan í hverri umferð alls (2) 3-7-9-9 (10-10) sinnum = 12 lykkjur. Prjónið allar lykkjur 2 og 2 saman = 6 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og herðið að. Öll húfan mælist ca (19) 19-20-21-21 (22-23) cm (meðtalið uppábrot).
Brjótið uppá neðri kant á húfu og saumið fallega niður frá röngu með litnum ljós beige.

EYRNALEPPUR 1:
Haldi á húfunni með toppinn að þér og prjónið upp á 1 sokkaprjón 3 með litnum ljós beige (18) 22-24-24-24 (28-30) lykkjur neðst meðfram annarri hlið – prjónið upp 1 lykkju í hverja lykkju. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – fram og til baka – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í hvorri hið með því að prjóna 2 næst síðustu lykkjur slétt saman, fækkið lykkjum í 4. hverri umferð (5) 3-2-4-6 (5-6) sinnum og síðan í annarri hverri umferð (2) 6-8-6-4 (7-7) sinnum = 4 lykkjur, prjónið þessar lykkjur saman 2 og 2 og steypið þeim 2 lykkjum sem eftir verða yfir hvor aðra, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna sem eftir verður. Eyrnaleppurinn mælist ca (5) 5-5-6-6½ (7-8) cm.

EYRNALEPPUR 2:
Byrjið að prjóna upp (22) 26-28-32-34 (34-34) frá fyrri lepp (þessar (22) 26-28-32-34 (34-34) lykkjur = miðja frama á húfu). Prjónið upp á 1 sokkaprjón 3 með litnum ljós beige, 1 lykkja í hverja og eina af næstu (18) 22-24-24-24 (28-30) lykkjum. Nú eru (12) 12-16-16-16 (18-18) lykkjur á milli eyrnaleppa við miðju að aftan.
Prjónið þennan eyrnalepp á sama hátt og fyrri eyrnalepp.

SNÚRA:
Heklið með litnum ljós beige með heklunál 3 þannig: Heklið 1 keðjulykkju í gegnum toppinn á erynaleppnum, heklið loftlykkjur í ca 20-30 cm, snúið stykkinu og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju, endið með 1 keðjulykkju í toppinn á eyrnaleppnum. Klippið frá og festið enda. Heklið 1 snúru í hvorn eyrnalepp.

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður að tá.

SOKKAR:
Fitjið upp 40-44-48 (52-56) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum ljós beige. Prjónið stroff í hring (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 5-6-7 (9-10) cm.
Setjið síðustu lykkju sem var prjónuð á sama prjón og fyrstu 19-19-23 (23-27) lykkjur í umferð = 20-20-24 (24-28) lykkjur á prjóni fyrir hæl.
Aðrar 20-24-24 (28-28) lykkjur (= ofan á fæti) eru settar á þráð - stroff ofan á fæti kemur nú til með að byrja og enda með 1 lykkju brugðið.
Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 3-3-4 (4-4) cm.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki mitt í þessar lykkjur (= 10-12-12 (14-14) lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað þannig:
UMFERÐ 1 (frá réttu): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 18-18-22 (22-26) lykkjur.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjur sléttar saman (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur út umferðina = 16-16-20 (20-24) lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru og saumið þær saman í ystu lykkjubogana (= mitt undir fæti).
Prjónið síðan upp 24-24-28 (28-32) lykkjur í ystu lykkjubogana yfir hæl. Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 44-48-52 (56-60) lykkjur. Haldið áfram að prjóna hringinn. ATH: Prjónið stroff yfir 20-24-24 (28-28) lykkjur ofan á fæti og sléttprjón yfir 24-24-28 (28-32) lykkjur undir fæti. JAFNFRAMT í annarri hverri umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við stroff ofan á fæti – lesið ÚRTAKA-1! Fækkið lykkjum svona 2 sinnum = 40-44-48 (52-56) lykkjur.
Þegar sokkurinn mælist 7½-8½-9 (11-12) cm frá aftast á hæl (nú eru ca 2½-2½-3 (3-4) cm til loka) skiptast lykkjurnar þannig að það verða 20-22-24 (26-28) lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – lesið ÚRTAKA FYRIR TÁ!
Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5-5-6 (6-7) sinnum = 20-24-24 (28-28) lykkjur. Prjónið allar lykkjur 2 og 2 saman = 10-12-12 (14-14) lykkjur.
Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt með tómatrauðum
symbols = slétt með ljós beige
symbols = slétt með dökk gráum
symbols = slétt með hvítum
symbols = brugðin lykkja frá réttu og slétt lykkja frá röngu með ljós beige (= uppábrot)
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 31-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Hilde wrote:

Har problemer med Plassering av øreklaffene. Får ikke maskeavstanden mellom de 2 klaffene til å stemne. Strikke opp 24 masker 28 maskers avstand fra første klaff. Plasseringen ser OK ut men jeg har mye mer enn 16 masker mellom øreklaffene bak.

25.10.2023 - 20:36

DROPS Design answered:

Hej Hilde, du har 92 masker: 28m foran, 24m øreklap, 16m bagpå, 24m øreklap :)

26.10.2023 - 14:09

country flag Mirjam wrote:

Goeden avond. Ik ben bezig met het breien van het mutsje. Moet je de steken voor de oorflappen nu opnemen aan de omvouwrand van de ribbelsteek of aan de binnenkant van het mutsje waar die naar binnen is vastgezet (bovenkant zoompje)? Hoor graag van U. Groetjes Mirjam Goudswaard

28.11.2021 - 17:29

DROPS Design answered:

Dag Mirjam

Je neemt de steken voor de oorflap op in de omvouwrand, en niet aan de binnenkant.

01.12.2021 - 12:22

country flag F__ wrote:

Bonjour, Je suis en train de tricoter les chaussettes en 0-3mois. Je ne comprends pas tres bien la phrase suivante pour le talon: "Rabattre les mailles restantes et les assembler dans le brin le plus à l'extérieur des mailles (= milieu sous le pied)." Est ce que vous avez un schema ou une video pour expliquer ca ? Dans les videos de chaussettes que j'ai regarde, souvent les dernieres mailles du talon ne sont pas rabattues mais tricotees avec le reste de la chaussette.

01.07.2021 - 12:19

DROPS Design answered:

Bonjour F., cette vidéo montre une technique similaire pour tricoter le talon, (dans la vidéo, on ne rabat pas les mailles, on les tricote ensemble, dans ce modèle, vous les rabattez avant de passer aux diminutions indiquées. Elle devait vous aider à visualiser comment terminer ce talon. Bon tricot!

01.07.2021 - 12:59

country flag Sarah wrote:

...und 3. Nachdem ich dann die äußerste Masche weggenäht habe, soll ich genau dort wieder 24 Maschen auffassen??? Kann man das nicht verbinden? Das versteh ich auch nicht.... Danke vorab!

25.03.2021 - 22:19

DROPS Design answered:

Liebe Sarah, schauen Sie mal das Video unten gelinkt, auch wenn das Technik etwas unterschiedlich ist (bei den Socken werden die Maschen zusammengenäht; im Video werden sie zusammengestrickt), aber am Ende sehen Sie die Öffnung von der Ferse, wo Sie die Maschen auffassen werden. Viel Spaß beim stricken!

26.03.2021 - 07:40

country flag Sarah wrote:

Hallo, ich bräuchte bitte Hilfe bei der Sockenanleitung, obwohl ich eigtl. schon so viele Erwachsenensocken gestrickt habe.... ;) Es heißt dort nach den 3 Reihen Fersenmaschen: Die restlichen Maschen abketten und am äußeren Maschenglied der äußersten Masche zusammennähen (= Mitte unter dem Fuß)." 1. Sind mit "restlichen Maschen" die 16 verbleibenden M. der 4. Rückreihe gemeint? 2. Was soll ich nun genau mit was zusammennähen? Es bleibt ja nur eine Abkettmasche? Danke vorab!

25.03.2021 - 22:15

DROPS Design answered:

Liebe Sarah, die 16 M am Ende der 3 Reihen werden zusammengenäht (8 und 8), dh einfach so zusammennähen oder die 16 M doppelt legen und so zusammennähen; Dann werden 24 Maschen aufgefassen: in die 3 cm für die Fersen auf einer Seite bis zur Naht + von der Naht entlang die 3 cm für die Fersen, und dann die andere Maschen zusammenlegen. Dieses Video zeigt eine ähnliche Ferse, also nicht genau wie bei diese Socken, es kann Ihnen aber helfen. Viel Spaß beim stricken!

26.03.2021 - 07:38

country flag Fuchs wrote:

Bonsoir, Je suis entrain de tricoter le pull taille 6/9 mois et j'ai fais les 9 augmentations (de 8mailles par rang) tous les 2 rangs (sur l'endroit) + 3x sur chaque rang. J'ai donc 200 mailles actuellement. Par contre ce que je ne comprend pas, c'est que mon tricot mesure que 6cm et non pas 10 comme indiqué sur le modèle. Dois-je continuer de tricoter "droit" sans faire d'augmentations supplémentaires jusqu'à10 cm ou bien je continue à augmenter ? Merciii

01.02.2021 - 20:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fuchs, quand les augmentations du raglan son terminées, tricotez comme avant mais sans augmenter (= "droit") jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 10 cm et alors montez 2 mailles à la fin des 2 rangs suivants. Bon tricot!

02.02.2021 - 09:55

country flag Emma wrote:

Hej! På tröjan så står det att raglanökningarna ska göras först på vartannat varv x antal gånger och sedan på varje varv. Men arbetet stickas ju fram och tillbaka, så vartannat varv är avigsidan. Menas att det ska stickas först på vartannat RÄTT varv och sedan varje RÄTT varv?

22.01.2021 - 14:57

DROPS Design answered:

Hej Emma, du stickar raglan på vartannat varv = varje varv från rätsidan. Sedan på varje varv = både från rätsidan och avigsidan. Lycka till :)

27.01.2021 - 15:10

country flag Anne wrote:

På trøjen skal man starte med at tage ud på hver 2.pind og dernæst på hver pind. Er det en fejl? Det bliver ikke pænt for der kommer huller selvom jeg drejer maskerne.

11.04.2020 - 08:22

DROPS Design answered:

Hej Anne, hvis du ikke vil have små huller, så kan du tage ud på denne måde:

How to increase: M1 (make one) from Garnstudio Drops design on Vimeo.

24.04.2020 - 09:46

country flag Anne wrote:

På bærestykket på trøjen skal man først tage ud på hver 2.pind og så på hver pind. Er det en fejl? Det bliver ikke så pænt, der kommer huller selvom jeg drejer maskerne.

11.04.2020 - 07:48

country flag Rina Blijdorp wrote:

Ik vind het jammer dat de meeraderig en voor de raglan halverwege al eindigen. Zou het niet mooier zijn om de raglan tot de onderkant van de mouw door te laten lopen? Dat zou je kunnen bereiken door elke derde naald te meerderen misschien? Ik vraag me af of ik het niet beter opnieuw kan baan doen ....

29.08.2019 - 06:45