DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Glitter
DROPS Glitter
60% Cupro, 40% Málmþræðir
frá 572.00 kr /10g
DROPS SS24

Christmas Lights

Prjónuð umgjörð utan um kertalukt úr DROPS Cotton Viscose og DROPS Glitter. Þema: Jól.

DROPS Extra 0-1003
DROPS Design: Mynstur nr n-152
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Passar fyrir glerkrukku með eftirfarandi máli:
Ummál: ca 44 - 57 cm
Hæð: ca 15 - 20 cm
Umgjörðin er prjónuð ca 10% styttra en ummál í kringum krukkuna, þar sem umgjörðin strekkist lítillega þegar hún er sett utan um svo að hún sitji vel.

Efni:
DROPS COTTON VISCOSE frá Garnstudio
50-50 gr litur nr 17, ljós beige
DROPS GLITTER frá Garnstudio
1 rúlla í báðar stærðir, litur nr 01, gull

DROPS PRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni með 1 þræði af Cotton Viscose og 1 þræði af Glitter verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Glitter
DROPS Glitter
60% Cupro, 40% Málmþræðir
frá 572.00 kr /10g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

HÆGRI BYLGJULAGA KANTUR:
UMFERÐ 1 (frá réttu): 3 l sl, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 1 l br, 3 l sl.
UMFERÐ 2 (frá röngu): 5 l sl, (= 4 l slétt og 1 l slétt frá uppslætti) 1 l snúin slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), 3 l sl.
UMFERÐ 3: Fellið af 2 l (= 1 l eftir á hægri prjóni), 2 l sl, 1 l br, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 2 l snúnar slétt saman, 1 l snúin slétt.
UMFERÐ 4: Prjónið 2 l sl, 1 l sl í uppsláttinn, hinn uppslátturinn er látinn falla niður, 4 l sl.

VINSTRI BYLGJULAGA KANTUR:
UMFERÐ 1 (frá röngu) = 3 l sl, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 4 l sl.
UMFERÐ 2 (frá réttu): 3 l sl, 1 l br, 1 l sl, (fyrri hluti af uppslætti), 1 l snúin slétt (seinni hluti af uppslætti), 3 l sl.
UMFERÐ 3: Fellið af 2 l (= 1 l eftir á prjóni), 3 l sl, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 2 l snúnar slétt saman, 1 l snúin slétt.
UMFERÐ 4: 2 sl, 1 l sl af fyrri uppslætti, seinni uppsláttur er látinn falla niður, 1 l br, 3 l sl.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 eða A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KERTALUKT - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumað saman í lokin.

LÍTIL UMGJÖRÐ:
Fitjið upp 32 l á prjóna nr 3 með 1 þræði af Cotton Viscose og 1 þræði af Glitter.
Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú frá réttu – þannig:
HÆGRI BYLGJULAGA KANTUR yfir fyrstu 7 l, A.1 (= 18 l), sl yfir síðustu 7 l. Næsta umf er prjónuð frá röngu – þannig: VINSTRI BYLGJULAGA KANTUR, A.1, hægri bylgjulaga kantur (2. umf). Haldið svona áfram. ATH! Vegna úrtöku og útaukningu í kanti verður lykkjufjöldinn mismunandi. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 40 cm, eða að óskaðri lengd – stillið af eftir heila mynstureiningu af A.1. Fellið af. Saumið uppfitjunarkantinn og affellingarkantinn saman.

STÓR UMGJÖRÐ:
Fitjið upp 40 l á prjóna nr 3 með 1 þræði af Cotton Viscose og 1 þræði af Glitter.
Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú frá réttu – þannig:
HÆGRI BYLGJULAGA KANTUR yfir fyrstu 7 l, A.2 (= 26 l), sl yfir síðustu 7 l. Næsta umf er prjónuð frá röngu – þannig: VINSTRI BYLGJULAGA KANTUR, A.2, hægri bylgjulaga kantur (2. umf). Haldið svona áfram. ATH! Vegna úrtöku og útaukningu í kanti verður lykkjufjöldinn mismunandi. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 52 cm, eða að óskaðri lengd – stillið af eftir heila mynstureiningu af A.2. Fellið af. Saumið uppfitjunarkantinn og affellingarkantinn saman.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1003

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Rissa wrote:

Weil es ein hübsches Muster ist, aber in den Ausmassen zu gross, habe ich die Anleitung etwas abgewandelt. Das kleine Band mit dünnem Baumwollgarn und Nadeln Nr. 2 ergibt eine Höhe von 10 cm. Passt um ein leeres Marmeladeglas. Für ein etwas kleineres Glas lasse ich die linke Bordüre weg und stricke dafür 2 Maschen kraus rechts = 8 cm Höhe.

31.10.2020 - 04:11

Aurelie Quade wrote:

After reading all the posts from above, I just wanted to write to say thank you for the lovely free pattern, for the support and for your Christmas wishing. Thank you to all the lovely ladies working for the website for sharing their passion for knitting. Joyeux Noel et Bonne Année 2019. Aurélie

17.12.2018 - 23:43

country flag DANA wrote:

Bonjour, Je pense que vous vous êtes trompée dans la mensuration de la circonférence : 44 et même 57 cm c'est énorme pour un photophore. Est-ce une mesure autre?

22.12.2017 - 11:50

DROPS Design answered:

Bonjour Dana, ce sont bien les bonnes mesures, on parle ici de circonférence, les photophores mesurent 40-52 cm pour s'ajuster à un support plus large. Vous pouvez naturellement les tricoter à la longueur souhaitée. Bon tricot!

22.12.2017 - 16:22

country flag Kim wrote:

This Is a very pretty and delicate look. However, its not for an inexperienced knitter. The combination of these two yarns create knots very easily, and you have to be careful not to split them or they stick out and spoil the design. If you are meticulous and patient, then this is the pattern for you.

23.01.2017 - 03:29

country flag Giulia wrote:

Buonasera quanto termino un'intera ripetizione di A1 devo ricominciare dal 1 ferro come spiegato dopo la costa a legaccio quindi terminando il ferro con 7 maglie a diritto? Non sono riuscita a trovare dei vasi con questa circonferenza quindi m chiedevo se fosse possibile avere la misura in cm di un' intera ripetizione di A1 in modo che io possa regolarmi con vasi di diversa misura. Grazie e complimenti per questo carinissimo modello

29.11.2015 - 00:45

DROPS Design answered:

Buongiorno Giulia, dopo la "costa" a m legaccio deve lavorare il motivo A.1 con 7 m per parte con il bordo a pizzo, e continuare a ripeterlo fino alla lunghezza desiderata, ripartendo dal 1° ferro di A.1 con il bordo a pizzo ai lati. Se il suo campione corrisponde a quello indicato A.1 dovrebbe misurare poco più di 3 cm, in ogni caso lavori A.1 fino alla circonferenza desiderata. Buon lavoro!

29.11.2015 - 14:34

country flag Sharron Blackburn wrote:

Why are the measurements given for the size and circumference so large, when the candle holders shown seem clearly not to be as large as the measurements for the finished article? The smaller one in particular. From the photo it looks like a candle holder 10cm in height maximum, which is what a friend purchased for me to make these for her. Do you have a pattern for anything smaller?? Many thanks

12.03.2015 - 15:43

DROPS Design answered:

Dear Mrs Blackburn, the covers on the pictures are approx. 15-20 cm height (= width when working). If you like something smaller, you can adapt pattern, make another edge, use smaller needle .. Remember you can get help and advice from your DROPS store. Happy knitting!

12.03.2015 - 17:41

country flag Trude wrote:

Denne oppskriften var det ikke enkelt å forstå. Midtpartiet var greit men ikke i rysje (ytterkanten).

01.12.2014 - 19:48

country flag Sabine wrote:

Hi, ich hätte auch Angst wegen der Feuergefährlichkeit.... Aber die Anleitung etwas 'vergrößert' gibt das bestimmt eine schöne Bauchbinde für eine Vase. Werd' ich bestimmt ausprobieren...

21.12.2013 - 11:13

country flag Andrea wrote:

Wunderschön! Und ich glaube nicht, dass es zu heiß wird, zumindest nicht bei diesen breiten Gläsern. Sonst musst du es mit einem reinen Baumwollfaden stricken. Schön wären die auch um gläserne Teetassen. Aber leider zu groß.

19.12.2013 - 07:52

country flag Monica wrote:

Ich hätte Angst, dass das Glas zu heiß wird und somit die "Bauchbinde". Obwohl es hübsch ausschaut, werde ich es nicht nacharbeiten.

18.12.2013 - 10:02