Capri |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð stór og lítil umgjörð utan um kertalukt með köðlum og gatamynstri úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS 144-20 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir allar umf í 1 mynstureiningu séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í l í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. LEIÐBEININGAR: Ef prjóna á stærri eða minni umgjörð, getur ummálið á umgjörðinni færst til með því að bæta við eða draga frá l í stroffi (= 3 l sl, 3 l br) í hvorri hlið – fjöldi l sem bæta á við eða draga frá verður að vera deilanlegur með 12, þ.e.a.s. 6 l (3 l sl og 3 l br) í hvorri hlið. Hæðin á umgjörðinni er hægt að færa til með því að bæta við eða draga frá í mynstureiningu á hæðina. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- STÓR UMGJÖRÐ - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. STÓR UMGJÖRÐ: Fitjið upp 120 l á hringprjóna nr 4,5 með Merino Extra Fine – LESIÐ LEIÐBEININGAR. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið * 3 l br, 3 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 3 l br (= 33 l), setjið 1. prjónamerkið * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, 3 l sl, setjið 2. prjónamerkið (= 27 l á milli prjónamerkja 1 og 2), * 3 l br, 3 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, 3 l br (= 33 l), setjið 3. prjónamerkið, * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, 3 l sl, setjið 4. prjónamerkið (= 27 l á milli prjónamerkja 3 og 4). Látið prjónamerkin fylgja áfram með stykkinu. Haldið áfram með stroff 3 l sl, 3 l br. Þegar stroffið mælist 2 cm er fækkað um 4 l í umf þannig: Fækkið um 1 lykkju í hvorri af 2 miðju brugðnu mynstureiningunum á milli prjónamerkja 1 og 2 með því að prjóna 2 l br saman(= 2 lykkjur færri, það eru nú 25 l á milli prjónamerkja 1 og 2, endurtakið úrtöku á milli prjónamerkja 3 og 4 (= 2 l færri, þá eru 25 l á milli prjónamerkja 3 og 4) = 116 l á prjóni. Í næstu umf er prjónað þannig: Prjónið stroffprjón yfir fyrstu 33 l, prjónið A.1 yfir næstu 25 l á milli prjónamerkja, prjónið stroffprjón yfir næstu 33 l, prjónið A.1 yfir síðustu 25 l á milli prjónamerkja. Látið 4. prjónamerkið fylgja með stykkinu = byrjun á umf, fjarlægið öll önnur prjónamerki. Haldið áfram svona með mynstur A.1 og stroffprjóni í hliðum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.1 þar til stykkið mælist ca 17 cm (endið á umf 1, 3 eða 5 í mynstri). Í næstu umf er prjónað þannig: Prjónið stroffprjón yfir fyrstu 33 l, prjónið A.1 yfir næstu 25 l – JAFNFRAMT er aukið út um 2 l – LESIÐ ÚTAUKNING - yfir 7 l í miðju mynstri = 27 l, prjónið stroffprjón yfir næstu 33 l, prjónið A.1 yfir síðustu 25 l og endurtakið útaukningu um 2 l á sama hátt = 120 l. Prjónið stroff umf ca 2 cm hringinn. Fellið laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br (stykkið mælist ca 19 cm á hæðina, þ.e.a.s. ca 1 cm styttri en hæðin á kertaluktinni). ------------------------------------------------------- LÍTIL UMGJÖRÐ - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. LÍTIL UMGJÖRÐ: Fitjið upp 96 l á hringprjóna nr 4,5 með Merino Extra Fine – LESIÐ LEIÐBEININGAR. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið * 3 l br, 3 l sl *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 3 l br (= 21 l) setjið 1. prjónamerki * 3 l sl, 3 l br * endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, 3 l sl, setjið 2. prjónamerki(= 27 l á milli prjónamerkja 1 og 2), * 3 l br, 3 l sl *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 3 l br (= 21 l), setjið 3. prjónamerki, * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, 3 l sl, setjið 4. prjónamerki(= 27 l á milli prjónamerkja 3 og 4). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram með stroff (= 3 l sl, 3 l br). Þegar stroffið mælist 2 cm er fækkað um 4 l í umf þannig: Fækkið um 1 l í hvorri af 2 miðju brugðnu mynstureiningunum á milli prjónamerkja 1 og 2 með því að prjóna 2 l br saman (= 2 lykkjur færri, það eru þá 25 l á milli prjónamerkja 1 og 2), endurtakið úrtöku á milli prjónamerkja 3 og 4 (= 2 lykkjum færri, það eru þá 25 l á milli prjónamerkja 3 og 4) = 92 l á prjóni. Í næstu umf er prjónað þannig: Prjónið stroffprjón yfir fyrstu 21 l, prjónið A.1 yfir næstu 25 l á milli prjónamerkja, prjónið stroffprjón yfir næstu 21 l, prjónið A.1 yfir síðustu 25 l á milli prjónamerkja. Látið 4. prjónamerkið fylgja áfram með í stykkinu = byrjun á umf, fjarlægið öll önnur prjónamerki. Haldið áfram svona með mynstur A.1 og stroffprjón í hliðum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.1 þar til stykkið mælist ca 12 cm (endið á umf 1,3 eða 5 í mynstri). Í næstu umf er prjónað þannig: Prjónið stroffprjón yfir fyrstu 21 l, prjónið A.1 yfir næstu 25 l – JAFNFRAMT er aukið út um 2 l – LESIÐ ÚTAUKNING – yfir 7 l í miðju mynstri = 27 l, prjónið stroffprjón yfir næstu 21 l, prjónið A.1 yfir síðustu 25 l og endurtakið útaukningu um 2 l á sama hátt = 96 l. Prjónið nú stroff ca 2 cm umf hringinn. Fellið laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br (stykkið mælist ca 14 cm á hæðina, þ.e.a.s. ca 1 cm styttri en hæðin á kertaluktinni). |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (1)
Lillian wrote:
Jeg lurer på om det finnes oppskrift på denne der en kan strikke fram og tilbake istedet for rundt. Har lyst til å lage teppe med dette mønsteret.
10.06.2013 - 21:34