Hello Stripes |
|||||||
|
|
||||||
Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með röndum, doppum og laskalínu, buxum og sokkum úr DROPS Fabel
DROPS Baby 19-3 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um laskalínu): FRÁ RÉTTU: Í byrjun á umf: 1 kantlykkja, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Í lok umf (byrjið þegar 3 l eru eftir): Prjónið 2 l slétt saman, 1 kantlykkja. Við 3 prjónamerki er lykkjum fækkað í skiptingunni á milli erma og fram- og bakstykkis (byrjið 3 l á undan prjónamerki): Prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. FRÁ RÖNGU: Í byrjun á umf: 1 kantlykkja, 2 l br saman. Í lok umf (byrjið þegar 3 l eru eftir): 2 l snúnar br saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan), 1 kantlykkja. Við 3 prjónamerki er lykkjum fækkað í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma (byrjið 3 l á undan prjónamerki): 2 lykkjur snúið brugðið saman, 2 lykkjur brugðið (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), 2 lykkjur brugðið saman. ATH! Passið uppá að lykkjur leggist í rétta átt séð frá réttu. ÚRTAKA (á við sokka): Fækkið lykkjum 3 lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt. Fækkið um lykkjur á eftir prjónamerki: 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-6-6 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-6-6 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 8-10-10 (10-12) l eru eftir á prjóni. ÚRTAKA (á við um sokka): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 140-156-176 (192-212) l á hringprjóna nr 2,5 með litnum þokumistur. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff = 2 l sl/2 l br. Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 12-12-16 (16-20) l jafnt yfir = 128-144-160 (176-192) l. Setjið prjónamerki í hvora hlið = 64-72-80 (88-96) l á milli prjónamerkja. Prjónið M.1. Eftir M.1 er M.2 prjónað áfram. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 17-18-21 (24-27) cm – stillið af eftir 1 rönd í M.2 (þ.e.a.s. eftir 5 umf með einum lit) – prjónið næstu umf þannig: Fellið af 4 l fyrir handvegi, prjónið 57-65-73 (81-89) l (= framstykki), fellið af 7 l fyrir handvegi, prjónið 57-65-73 (81-89) l (= bakstykki) og fellið af síðustu 3 l fyrir handvegi, klippið frá. Setjið prjónamerki í miðjulykkju á bakstykki (= miðja aftan við hnakka). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 40-44-44 (48-52) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum þokumistur. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff = 2 l sl/ 2 l br. Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 4 l jafnt yfir = 36-40-40 (44-48) l. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Prjónið M.1. Eftir M.1 er M.2 prjónað áfram upp úr. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkið. Endurtakið útaukningu í 4. – 4.- 4.- (5.- 6.) hverri umf alls 8-8-12 (12-12) sinnum = 52-56-64 (68-72) l – útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur. Þegar stykkið mælist ca 16-17-20 (24-28) cm – stillið af að endað er á sama stað í M.2 eins og á fram- og bakstykki – fellið af í næstu umf 7 l fyrir miðju undir ermi (= 4 l á eftir prjónamerki í byrjun umf og 3 l á undan prjónamerki í lok umf = 45-49-57 (61-65) l eftir á prjóni. Klippið frá og geymið stykkið. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 204-228-260 (284-308) l. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli erma og fram- og bakstykkis nema vinstri hlið að framan (þar sem klætt er í flíkina). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið nú fram og til baka frá vinstri hlið að framan. Haldið áfram með M.2 þannig að rendur passi yfir fram- og bakstykki og ermi. Byrjið með að fækka um 3 l í byrjun á 2 fyrstu umf (= laskaop). LASKALÍNA: Fækkið um 1 l, með byrjun frá réttu, hvoru megin við 3 prjónamerkin, að auki er fækkað um 1 l í byrjun og lok umf (= 8 úrtökur í hverri umf) – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 10-12-11 (12-14) sinnum og síðan í hverri umf: 6-6-11 (12-12) sinnum. Eftir allar úrtöku eru 70-78-78 (86-94) l eftir á prjóna og stykkið mælist ca 28-30-34 (38-42) cm upp að ölx. Prjónið nú upphækkun að aftan við hnakka frá réttu – haldið áfram með þann lit sem notaður er í mynstri og prjónið nú með einum lit: Prjónið að prjónamerki við miðju aftan við hnakka, prjónið að auki 6-7-7 (8-9) l og snúið við (til þess að koma í veg fyrir göt er fyrsta lykkjan tekin laust af þegar snúið er við og hert er á þræði). Prjónið 12-14-14 (16-18) l og snúið við, prjónið 18-21-21 (24-27) l og snúið við, prjónið 24-28-28 (32-36) l og snúið við. Setjið allar lykkjur á þráð og prjónið kant með laskalínu að framan á undan hálsmáli. KANTUR MEÐ LASKALÍNU AÐ FRAMAN: Prjónið upp ca 24 til 32 l (deilanlegt með 4) innan við 1 kantlykkju með fram lasklínu opi á ermi með prjóna nr 2,5 og litnum þokumistur. Prjónið stroff með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 2 l sl í hvorri hlið, séð frá réttu. Þegar kantur að framan mælist 2 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. Endurtakið meðfram laskalínu opi á framstykki, en eftir 2 umf er fellt af fyrir 3 hnappagötum jafnt yfir (það verður einnig 1 hnappagat í hálsmáli). 1 hnappagat = fellið af 2 l og fitjið upp í næstu umf 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af. HÁLSMÁL: Setjið til baka l af þræði í hálsmáli yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið að auki upp 5 nýjar l yfir kant að framan með litnum þokumistur = 80-88-88 (96-104) l. Prjónið stroff fram og til baka frá laskalínu opi, séð frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 l sl/2 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. JAFNFRAMT eftir 2 umf er fellt af fyrir einu hnappagati yfir hin í laskalínu kanti að framan. Þegar hálsmálið mælist 2 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið saman laskalínu kant að framan neðst, með opið á móti ermi. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp. SKÁLM: Fitjið laust upp 52-56-60 (64-68) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum þokumistur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = innan verðu á skálm. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff = 2 l sl/2 l br í hring í 5-5-6 (6-6) cm. Prjónið 1 umf slétt. Síðan er M.1 prjónað. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir M.1 er prjónað áfram með litnum natur og sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umf eftir M.1 er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 3.-4.-5.- (8.-12.) hverri umf alls 10-11-10 (9-8) sinnum = 72-78-80 (82-84) l. Þegar stykkið mælist 16-19-22 (27-33) cm (nú á að vera búið að auka út) skiptist stykkið við innan verðu á skálm og prjónað er áfram fram og til baka (þetta er gert svo að léttara verði að setja skálmarnar saman á sama hringprjón). Fitjið upp 1 nýja l hvoru megin við kant = 74-80-82 (84-86) l. Þegar stykkið mælist 18-21-24 (29-35) cm fellið af 3 l í byrjun á 2 næstu umf, með byrjun frá réttu = 68-74-76 (78-80) l. Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt. BUXUR: Setjið inn skálmarnar á sama hringprjóna nr 2,5 = 136-148-152 (156-160) l – byrjun umf = miðja að aftan. Setjið prjónamerki við miðju að framan. Prjónið sléttprjón í hring með litnum natur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki við miðju að framan – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 5-8-7 (6-5) sinnum = 126-132-138 (144-150) l. Þegar stykkið mælist 32-38-42 (48-55) cm prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fjöldi l jafnaður út til 124-132-140 (144-152) l. Prjónið nú upphækkun að aftan: Prjónið 12 l frá byrjun umf, snúið við (til þess að sleppa við göt er fyrsta l tekin laust af þegar snúið er við og hert á þræði). Prjónið 24 l og snúið við, prjónið 36 l og snúið við, prjónið 48 l og snúið við. Haldið áfram að prjóna 12 l fleiri í hvert sinn sem snúið er við 6-6-6 (8-8) sinnum til viðbótar. Prjónið síðan M.1 yfir allar l en mynstur er prjónað ofan frá og niður eftir mynsturteikningu. Eftir M.1 er prjónað áfram með litnum þokumistur og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 36-42-46 (52-59) cm prjónið næstu umf þannig: * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn (= uppábrot). Prjónið síðan sléttprjón í 2 cm, að kanti, áður en fellt er laust af. FRÁGANGUR: Saumið saman op innan verðu á hvorri skálm innan við 1 kantlykkju. Saumið saman op á milli skálma. Brjótið kantinn saman að röngu í uppábrotskantinn og saumið með fínu spori niður á röngu, skiljið eftir lítið op til þess að þræða teygjuna í gegn. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 48-52-52 (56-60) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum þokumistur. Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 5-6-6 (7-7) cm. Prjónið nú 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 12 l jafnt yfir = 36-40-40 (44-48) l. Prjónið nú M.1. Eftir M.1 er prjónað áfram með litnum natur og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 7-8-8 (9-9) cm haldið eftir fyrstu 18-20-20 (22-26) l á prjóni fyrir hæl og hinar 18-20-20 (22-22) l eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið nú sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið eitt prjónamerki. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Prjónið nú upp 8-9-10 (10-11) l hvoru megin við hæl og l af þræði (ofan á fæti) eru settar til baka á prjóninn = 42-48-50 (52-56) l. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umf, fækkið um 1 l á undan 18-20-20 (22-22) l á fæti með því að prjóna 2 l slétt saman, fækkið um 1 l á eftir 18-20-20 (22-22) l á fæti með því að lyfta 1 lykkju af prjóni, prjóna 1 lykkju slétt og steypa lyftu lykkjunni yfir. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 3-6-7 (5-7) sinnum = 36-36-36 (42-42) l. Prjónið áfram þar til sokkurinn mælist 7-8-9 (10-12) cm frá prjónamerki á hæl, skiptið yfir í litinn þokumistur og haldið áfram í sléttprjóni. Þegar sokkurinn mælist 8-9-10 (12-14) cm frá prjónamerki er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum (= 18-18-18 (21-21) l á milli prjónamerkja, bæði ofan á fæti og undir fæti). Fækkið nú um 1 l hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 7-7-7 (8-8) sinnum = 8-8-8 (10-10) l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festi vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (47)
Belinda wrote:
Jeg er i tvivl med blusen. Jeg er nået til at skulle sætte ærmerne sammen med bærestykket og videre derfra. Der står man ikke skal sætte en markør i venstre side (når den tages på. Er det barnets venstre side når sidder på eller hvordan?
02.06.2021 - 14:29DROPS Design answered:
Hej Belinda, det er tøjets/barnets venstre side når det er på. Altså højre side når det ligger på bordet og du kigger på det :)
04.06.2021 - 14:09Maiju wrote:
Housuosan lopussa sanotaan: "Kun työn pituus on 36-42-46 (52-59) cm, neulo seuraava krs näin:". Otetaanko mitta edestä vai takaa?
05.03.2021 - 22:35DROPS Design answered:
Hei, mitta otetaan edestä.
09.03.2021 - 16:58Yvonne Vest wrote:
I skriver at man i kommentarfeltet, kan se hvilke farver der er brugt i de forskellige eksempler. Det kan jeg ikke finde, og vil gerne vide farve nummer på den der brugt som eksempel i det store billede, den med det lyse i bunden en blå og en brunlig, og hvordan det fordeler sig i gram.
09.11.2020 - 21:15DROPS Design answered:
Colour combinations shown are: A) DROPS Fabel 114, 918 B) DROPS Nord 03, 11 C) DROPS Nord 07, 19
10.11.2020 - 09:13Johanna wrote:
Ergänzung zu meinem vorherigen Kommentar (obwohl die 500 Zeichen Kommentar noch nicht erreicht waren, wurde mir gemeldet, dass das Kommentarfeld entweder leer oder zu lang ist) Hinweis zu "Bis zum Markierungsfaden hinten in der Mitte stricken": hinten in der Mitte befindet sich eigentlich kein Markierungsfaden (nur an den drei Stellen bei den Raglanabnahmen).
13.10.2020 - 17:02Johanna wrote:
Hallo, ich habe mehrere Fragen zu folgendem Abschnitt beim Pulli: "Jetzt hinten in der Mitte, von der Vorderseite, wie folgt stricken– mit der letzten Farbe im Muster [...]" 1. Was bedeutet "von der Vorderseite"? 2. nach dem Abheben der 1. M werden noch 14 weitere M gestrickt also liegen total 15M auf der Nadel? Wird in den Reihen danach auch jeweils die 1. M abgehoben?
13.10.2020 - 17:00DROPS Design answered:
Liebe Johanna, "Von der Vorderseite" bedeutet hier eine Hinreihe - Sie stricken jetzt verkürzten Reihen: stricken sie zuerst eine Hinreihe bis 7 M nach der hinteren Mitte (eine Markierung sollte man hier einsetzen), wenden und dann 14 Maschen stricken, wenden und 21 Maschen stricken, wenden und 28 M stricken, wenden und die Reihe bis zur Ende stricken. Dann legen Sie alle Maschen still und stricken die Blende. Viel Spaß beim stricken!
14.10.2020 - 08:09Anika wrote:
Hallo, ich verstehe nicht, wie lang der Ärmel gestrickt werden soll. Erst 6 cm und dann nochmal 20 cm (Größe 86/92) oder 6 cm und dann noch 14 cm, sodass es insgesamt 20cm werden? Liebe Grüße!
05.10.2020 - 23:31DROPS Design answered:
Liebe Anika, es wird immer von der Anschlagskante gemessen, dh in 2Jahre (= 4. Größe) beginnen die Zunahmen wenn die Arbeit 6 cm misst. Wenn die Ärmel 24 cm mist, ketten Sie die mittleren 7 M ab = 61 Maschen bleiben. Viel Spaß beim stricken!
06.10.2020 - 10:58Birgitta wrote:
Har aldrig stickat raglan nerifrån och upp med öppning för knappar och stickar dessutom ett annat mönster. Ja börjat på vänster sida före armen Har svårt att förstå när jag ska sticka 2 maskor ihop eller lyfta 1 maska vid raglan. Jag börjar med att sticka 1 m sedan 2 ihop? vid nästa övergång den högra armen stickar jag 1 maska sedan 1 maska och lyfter 1 maska? Detta ärframsidan och börjar mönster stickning vid öppningen som knapparna ska sitta?
11.09.2020 - 15:49Marie Roback wrote:
Vad är början och slut på stickningen när man stickar med rundstickor ? Och samtidigt gör raglan minskning. / Marie
29.10.2019 - 20:33DROPS Design answered:
Hej. När du har satt in ärmarna på samma rundsticka som fram- och bakst på oket så stickar du fram och tillbaka på stickan från vänster sida fram. Lycka till!
30.10.2019 - 07:19Andrea Kulas wrote:
Hallo Drops Team, Habe gerade die Maschenprobe in Drops Fabel gestrickt. Komme aber bei den angegeben 26 M mal gerade auf 7 cm . Was ist da falsch?
13.09.2019 - 11:54DROPS Design answered:
Liebe Frau Kulas, Die Maschenprobe ist sehr individuell, einige stricken eher locker, während andere eher fest stricken Sie können die Maschenprobe durch die Nadelstärke variieren, daher wird die Nadelstärke immer nur als Richtwert angegeben! Falls die Maschenprobe mit den angegebenen Nadel nicht erreicht wird, müssen Sie dickere oder dünnere Nadeln verwenden, damit Ihre eigene Maschenprobe mit der in der Anleitung angegebenen Maschenprobe übereinstimmt. Viel Spaß beim stricken!
13.09.2019 - 12:01Enrica wrote:
How many grams of Drops Cotton Merino are needed for the blouse only?? Thanks in advance
13.11.2018 - 20:28DROPS Design answered:
Dear Enrica, the jumper is worked with DROPS Fabel, which belongs to yarn group A - DROPS Cotton Merino belongs to yarn group B and cannot be an alternative to Fabel- check our yarn converter to see the yarn alternatives to this pattern. Happy knitting!
14.11.2018 - 08:08