Ingrid Rosenkvist skrifaði:
Hej! Hur många partier ska jag sticka i A1 ?
01.10.2022 - 03:28DROPS Design svaraði:
Hej Ingrid, hvilken størrelse strikker du? Hvor mange masker har du?
03.10.2022 - 15:18
Julie skrifaði:
Nåh! Det giver mening, tak for svar :) vh Julie
27.01.2022 - 11:56
Julie Petersen skrifaði:
Hej igen, mit spørgsmål er hvad det betyder at skulle strikke 9 partier, da der på billedet kun er 3 partier (?) altså A2 én gang, men opskriften siger man skal strikke A2 tre gange på foden, hvilket ikke kan passe, da jeg har strikket A2 to gange og den er allerede 21 cm, og jeg mangler rib-stykket.. Er opskriften forkert? Vh Julie
27.01.2022 - 10:43DROPS Design svaraði:
Hej Julie, det står at A.2 fortsættes ovenpå foden og at A.2 strikkes totalt 9 gange. Der er strikket 9 partier på strømpen på billedet og det 9.parti fortsættes til indtagningerne yderst ved tæerne!
27.01.2022 - 11:49
Julie Petersen skrifaði:
Hej, jeg er nået til dette sted i opskriften: A.2 ovenpå foden til der er strikket totalt 9-9-10 partier med rib i højden (dvs, A.2 strikkes totalt 3 gange i højden, og i størrelse 41/43 strikkes derefter de første 11 omgange i A.2). Men jeg har nu strikket 6 "partier" (?) (altså A2 to gange), og den er allerede 21 cm i længden (den skal kun være 24 i alt!), og på billedet er der kun strikket A2 én gang. Hvad skal jeg gøre? Vh Julie
25.01.2022 - 09:18DROPS Design svaraði:
Hej Julie, det gør ikke noget, det er fordi du strikker lidt løsere end hvad vi gør i opskriften. Men hovedsagen er at målene stemmer, så sokkerne passer på foden. God fornøjelse!
27.01.2022 - 10:35
Walking The Green Lines#walkingthegreenlinessocks |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Nord. Stykkið er prjónað með áferðamynstri. Stærð 35 - 43.
DROPS 214-56 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR (prjónað í hring á sokkaprjóna): Til að koma í veg fyrir að lykkjan í skiptingunni á milli sokkaprjóna verði of stór og sýnileg, prjónið alltaf inn 3 lykkjur frá næsta sokkaprjóni á prjóninn, þannig að skiptingin á milli 4 sokkaprjónanna í stykki færist um 3 lykkjur í hvert skipti sem prjónað er. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 66 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 11. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 10. og 11. hverja lykkju slétt saman. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-7-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-6-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 14-14-15 lykkjur eru eftir í umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi og niður – sjá LEIÐBEININGAR! SOKKUR: Fitjið upp 66-69-75 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með Nord. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið mynstur A.1 hringinn í umferð. Í síðustu umferð í A.1 er fækkað um 6-6-6 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 60-63-69 lykkjur. Haldið síðan áfram hringinn með A.2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-18-19 cm – stillið af að endað sé eftir 11., 24. eða 37. umferð í A.2, prjónið næstu umferð þannig: Haldið nú eftir fyrstu 13-13-14 lykkjur á prjóni, setjið næstu 34-37-40 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 13-13-15 lykkjum á prjóni = 26-26-29 lykkjur fyrir hæl. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Fækkið síðan lykkjum fyrir hæl – sjá HÆLÚRTAKA. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 11-13-14 lykkjur hvoru megin við hæl og 34-37-40 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 70-77-83 lykkjur. Prjónið síðan A.2 eins og áður yfir 34-37-40 lykkjur mitt ofan á fæti, þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan 4-37-40 miðju lykkjum á fæti slétt saman, þær 2 fyrstu lykkjur á eftir miðju 34-37-40 lykkjum ofan á fæti eru prjónaðar snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónað er í aftari lykkjubogana í stað fremri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 9-10-10 sinnum = 52-57-63 lykkjur. Þegar úrtöku er lokið er prjónað í sléttprjóni undir fæti og A.2 ofan á fæti þar til prjónaðar hafa verið alls 9-9-10 einingar í stroffprjóni á hæðina (þ.e.a.s. A.2 er prjónað alls 3 sinnum á hæðina og í stærð 41/43 eru síðan prjónaðar fyrstu 11 umferðir í A.2). Prjónið síðan síðustu 5 umferðir í A.2 (ofan á fæti). Nú byrjar ekki lengur ný eining A.2, heldur er prjónað stroffprjón (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir miðju 34-37-40 lykkjur á fæti (aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). Prjónið þar til stykkið mælist 18-19-21 cm mælt frá kanti á hæl (nú eru eftir ca 4-5-6 cm að loka máli). Setjið síðan 1 prjónamerki í hvora hlið (það eiga að vera 26-29-31 lykkjur ofan á fæti og 26-28-32 lykkjur undir fæti). Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), 2 lykkjur snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 3-6-7 sinnum og síðan í hverri umferð 7-5-5 sinnum = 12-13-15 lykkjur eftir í umferð. Í næstu umferð er prjónuð 0-1-1 lykkja slétt, síðan eru þær lykkjur sem eftir eru prjónaðar saman 2 og 2 = 6-7-8 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið enda. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #walkingthegreenlinessocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-56
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.