Melanie skrifaði:
Bonjour, comme vous arrêtez ce fil, il est maintenant mpossible de trouver certaines couleurs (comme n 8 ou 19) et pour les autres couleurs, elles ne sont jamais toutes disponibles auprès du même vendeurs (il faut faire plusieurs commandes auprès de différents vendeurs). Par quel fils et couleurs associatives peut on remplacer ?
21.06.2023 - 21:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Melanie, tout dépend des couleurs que vous souhaitez, pour le même type de laine, vous pouvez utiliser DROPS Fabel, utilisez le convertisseur pour voir les autres alternatives et toutes les quantités correspondantes; votre magasin saura vous conseiller les couleurs adaptées à vos goûts, même par mail ou téléphone. Bon crochet!
22.06.2023 - 09:53
Lilliana Katz skrifaði:
To the garnstudio.com administrator, Thanks for the well-structured and well-presented post!
08.02.2023 - 19:02
Aroa skrifaði:
Hola, que proyecto tan bonito! Cuanto hilo necesito para hacerlo? (Qué peso?) Es que no entiendo eso de
26.10.2022 - 22:16DROPS Design svaraði:
Hola Aroa, para realizar estos calcetines necesitas 100gr de DROPS Delight de cada uno de los dos colores. Es decir, necesitas 2 ovillos de DROPS Delight de cada color. Puedes ver las características de DROPS Delight aquí: https://www.garnstudio.com/yarn.php?show=drops-delight&cid=23
30.10.2022 - 17:55
LE RUDULIER skrifaði:
Je voudrai commander cette laine svp DROPS DELIGHT de Garnstudio (appartient au groupe de fils A) 100-100-100 g coloris n° 08, vert/beige 100-100-100 g coloris n° 05, beige/gris/rose
19.03.2021 - 18:03
Olesya Vagner skrifaði:
TOE: Work 1 round with 1 single crochet in every double crochet the entire round= 26-28-28 single crochets. Insert 1 marker thread in a single crochet in each side so that there are 12-13-13 single crochets on top of foot and 12-13-13 single crochets under foot. Question - Maybe it should be 13-14-14 single crochet? Thank you very much
14.03.2021 - 21:41DROPS Design svaraði:
Hi Olesya, If you minus the single crochets the markers are inserted in, then there are 24-26-26 single crochets left on the round and there will be 12-13-13 single crochets between each marker-stitch. Happy crocheting!
15.03.2021 - 07:52
Rainbow Racers#rainbowracerssocks |
|
![]() |
![]() |
Heklaðir sokkar úr 2 þráðum DROPS Delight. Stykkið er heklað ofan frá og niður. Stærð 35-43.
DROPS 214-58 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull/tvíbrugðinn stuðull. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 stuðul/fastalykkju þannig: Heklið 1 stuðul/fastalykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næsta stuðul/fastalykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 stuðul/fastalykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. SOKKAR: Sjá LOFTLYKKJUR í útskýringu að ofan! Heklið 42-44-47 loftlykkjur með heklunál 5 með 1 þræði í hvorum lit af Delight (= 2 þræðir) og tengið saman í hring með því að hekla 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan hringinn þannig: UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 1 stuðull í hverja af fyrstu 1-3-1 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, heklið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 34-36-38 stuðlar. UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 1 stuðull í hvern stuðul umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 34-36-38 stuðlar. Heklið síðan eins og umferð 2, en þegar heklaðar hafa verið 8 umferðir frá byrjun á stykki er fækkað um 1 stuðul hvoru megin við fyrstu 3 loftlykkjur mitt að aftan – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! = 32-34-36 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Haldið áfram að hekla stuðla og endurtakið úrtöku aftur í 18. umferð = 30-32-34 stuðlar. Heklið áfram með stuðlum þar til heklaðar hafa verið alls 19-20-21 umferðir og stykkið mælist ca 21-22-23 cm. Klippið þræðina frá og þræðið í gegnum síðustu lykkju á heklunálinni. Nú á að hekla áfram yfir 16 stuðla mitt að aftan (= 8 stuðlar í lok umferðar + 8 stuðlar í byrjun á umferð). HÆLL: Byrjið frá röngu með að festa þráðinn með 1 keðjulykkju í 8. lykkju frá byrjun á umferð, heklið 1 fastalykkju í sömu lykkju og heklið síðan 1 fastalykkju í hvern af næstu 15 stuðlum = 16 hællykkjur. Snúið stykkinu að réttu. Heklið nú áfram með fastalykkjum fram og til baka yfir hællykkjurnar, JAFNFRAMT er fækkað um 1 fastalykkju – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA – í hvorri hlið í hverri umferð þar til 8 fastalykkjur eru eftir. Snúið stykkinu (næsta umferð er hekluð frá réttu). Setjið 1 prjónamerki sem nota á til að mæla lengdina á fætinum síðar. Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju, að auki eru heklaðar 2 nýjar fastalykkjur meðfram hæl í lok umferðar (= 10 fastalykkjur). Heklið síðan þannig: Fækkið um 1 fastalykkju í byrjun á hverri umferð og heklið 2 nýjar fastalykkjur meðfram hlið á hæl í lok hverrar umferðar. Haldið svona áfram þar til 16 fastalykkjur eru aftur í umferð. Nú hefur verið heklað í allar umferðir meðfram kanti á hæl. Klippið þræðina frá og þræðið í gegnum síðustu lykkju á heklunálinni. FÓTUR: Snúið stykkinu (næsta umferð er hekluð frá röngu). Byrjun á umferð á að vera mitt undir fæti. Heklið síðan 1 stuðul í hverja hællykkju, heklið 4 stuðla í skiptingunni á milli hællykkja og lykkja frá stroffi, heklið stuðla yfir 14-16-18 stuðla frá stroffi. Heklið 4 stuðla á milli lykkja frá stroffi og hællykkja í annarri hliðinni og heklið stuðla yfir þær hællykkjur sem eftir eru = 38-40-42 stuðlar. Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við 14-16-18 lykkjur mitt ofan á fæti. Heklið síðan þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið um 1-1-1 stuðul á undan fyrra prjónamerki og heklið 1-1-1 stuðul á eftir seinna prjónamerki = 36-38-40 stuðlar. UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið um 1-1-1 stuðul á undan fyrra prjónamerki og heklið 1-1-1 stuðul á eftir seinna prjónamerki = 34-36-38 stuðlar. UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið um 1-1-1 stuðul á undan fyrra prjónamerki og heklið 1-1-1 stuðul á eftir seinna prjónamerki = 32-34-36 stuðlar. UMFERÐ 4: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið um 1-1-1 stuðul á undan fyrra prjónamerki og heklið 1-1-1 stuðul á eftir seinna prjónamerki = 30-32-34 stuðlar. UMFERÐ 5: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið um 1-1-1 stuðul á undan fyrra prjónamerki og heklið 1-1-1 stuðul á eftir seinna prjónamerki = 28-30-32 stuðlar. UMFERÐ 6: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og fækkið um 1-1-2 stuðla á undan fyrra prjónamerki og heklið 1-1-2 stuðla á eftir seinna prjónamerki = 26-28-28 stuðlar. Heklið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist ca 19-19-22 cm frá prjónamerki á hæl. TÁ: Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hvern stuðul umferðina hringinn = 26-28-28 fastalykkjur. Setjið 1 prjónamerki í fastalykkju í hvorri hlið þannig að það verða 12-13-13 fastalykkjur ofan á fæti og 12-13-13 fastalykkjur undir fæti. Heklið síðan hringinn með fastalykkjum JAFNFRAMT er fækkað um 2 fastalykkjur í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: Heklið fram þar til 1 fastalykkja er eftir á undan fastalykkju með prjónamerki, heklið 1 fastalykkju, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan fastalykkju með prjónamerki, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 fastalykkju í næstu fastalykkju, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er hann dreginn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni – nú hefur fækkað um 2 fastalykkjur. Haldið svona áfram þar lykkjum hefur verið fækkað 3-4-4 sinnum í hvorri hlið = 14-12-12 fastalykkjur í umferð. Heklið 1 umferð 1 fastalykkjum í hverja fastalykkju. Klippið þræðina frá. Leggið sokkinn flatan með prjónamerki í hliðum og saumið saman lykkju við lykkju. Festið enda. Heklið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rainbowracerssocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 214-58
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.