Marcia skrifaði:
Further to my question about the pattern for the back: for the WS rows, is the order A3, A2, A1, A6, A5, A4, A3, A2, A1?
09.04.2025 - 20:55DROPS Design svaraði:
Dear Marcia, correct this is how the diagrams will be read from the wrong side, remember to read the diagrams from the left towards the right. Happy knitting!
10.04.2025 - 09:45
Marcia skrifaði:
For the back piece, the pattern says to work A1, A2, A3, A4, A5, A6, and that works. But then it says to work A1, A2, A3. Shouldn’t it be A3, A2, and end with A1? I tried several times to knit it as written, but it doesn’t work.
08.04.2025 - 22:22DROPS Design svaraði:
Hi Marcia, You work the pattern, first with diagrams A.1 - A.6, then finish the row by repeating A.1- A.3 (as you do not want 8 purled stitches straight after each other you work A.1 first rather than A.3, and the end of the pattern will be 4 knitted stitches which are symmetrical to the 4 knitted stitches at the beginning of the row). Hope this helps. Happy knitting!
09.04.2025 - 06:47
Catherine Streit skrifaði:
Bonjour, le diagramme A9 me pose un problème. Lorsqu'on fait l'augmentation, est-ce qu'on maintient le dessin pour compenser l'augmentation ou est-ce que le dessin de décale. Difficile d'expliquer mon problème !
09.01.2025 - 19:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Streit, la maille sous la manche avec le marqueur doit être une maille envers (cf AUGMENTATIONS-1, tricotez les augmentations en suivant A.9 autrement dit, en fin de tour, tricotez-la comme la maille suivante du diagramme, et tricotez la en début de tour comme la maille précédente (lisez le diagramme de gauche à droite). Le motif ne tombera plus juste sous la manche, mais il va s'élargir en restant juste sur toutes les mailles de la manche. Bon tricot!
10.01.2025 - 08:18
Elke Naussed skrifaði:
Ich Stelle mir die Frage kann ich wenn ein Ärmel rundgestrickt werden soll, diesen auch in Reihen stricken ? Liebe Grüße
13.11.2024 - 19:33DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Naussed, ja sicher, in diese Lektion erklären wir, wie man sowas anpassen kann. Viel Spaß beim Stricken!
14.11.2024 - 09:48
Cardinal skrifaði:
Comment relever les mailles pour le col et une autre petite question a quel endroit du col faire des augmentation ,? merci d'avances de vos réponses
15.07.2024 - 18:35DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Cardinal, ces vidéos devraient pouvoir vous aider à relever les mailles: le long du côté et celle-ci nous montrons comment augmenter dans les sections envers des côtes, mais n'augmentez d'abord que dans 1 section envers sur 2 (le long de l'encolure V) puis dans les dernières sections 2 m envers de cette même partie (côtes 3/3 en haut et 2/2 le long des bordures devant). Bon tricot!
29.07.2024 - 10:17
Doris Belz skrifaði:
Ich brauche Hilfe beim Diagramm sind das nur die hinreihen ich verstehe das sonst nicht bitte Hilfe. MfG.Doris Belz
09.12.2023 - 08:01DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Belz, alle Reihen sind im Diagram gezeichnet, die Hin-Reihen lesen Sie rechts nach links und die Rückreihen links nach rechts; die leere Kästchen werden glatt rechts gestrickt und die schwarze Quadraten werden glatt links gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
11.12.2023 - 07:52
Josee skrifaði:
Hallo, ik ben net begonnen met dit patroon maat M. Na de ribbelsteek begint het patroon als volgens: 2 kantsteken, 4 averecht, A1, A2, ….., 4 averecht, 2 kantsteken. De 4 averecht steken moeten ook averecht gebreid worden op de retour naald? (Dus het wordt een soort ribbel steek van af een averecht steek) Of het is de bedoeling om ze recht te breien op de retour naald? Al vast bedankt
12.11.2023 - 10:35DROPS Design svaraði:
Dag Josee,
Het staat inderdaad niet goed aangegeven, maar die 4 steken brei je recht aan de verkeerde kant.
12.11.2023 - 17:30
Carol McMillan skrifaði:
I'm having an issue with the decreasing on the back for size XL I have 156 sts , I've decreased the 8 sts in the cables (156-8=148 sts) The pattern says to Bind off 12 sts on next two rows (148-24=124 sts) I have 24 sts. Pattern says I should have 120 sts The pattern says Bind off middle 20 sts (124-20 = 104 sts) I have 52 sts each shoulder The pattern says Bind off 1 st (neck edge) 52-1= 51 sts I have 51 sts. The pattern says I should have 49 sts
06.11.2023 - 18:24DROPS Design svaraði:
Dear Mrs McMillan, you decrease a total of 8 sts (4 sts on each side) = 156-8=148 sts, then cast off the first 14 sts (instead of 12, the US pattens will be edited) at the beg of next 2 rows = 120 sts left. You then cast off the middle 20 sts = 50 sts for each shoulder, cast off 1 st at the beg of next row from neck = 49 sts left. Happy knitting!
07.11.2023 - 08:25
Lucy Smith skrifaði:
Following on from the question about the sleeve increases, I can see you have purl as the midline stitch and before it the first stitch of A.9 and after it also the first stitch of A.9 So it goes purl , purl (the midline one), purl. When the increase comes do you end up with the second stitch of A.9, purl, the last stitch of A.9? If this happened to be on the first row of A.9 this would be knit, purl(midline stitch), knit Have I understood this correctly? Thanks
06.07.2023 - 19:42DROPS Design svaraði:
Dear Lucy, we have a purl middle stitch, which helps introducing the pattern. We will insert the new stitches before the purl middle stitch (1st, 2nd, 3rd, 4th) and right after it (4th, 3rd, 2nd, 1st). Happy knitting!
10.07.2023 - 15:43
Samya Ali skrifaði:
I would like to make this jacket for someone but they have a bust sizeof 48 inches. Does this pattern have positive ease? If I was to increase the cast on for the large size to 146 on the back and 75 on each size, what changes would I need to make for the cable patterns?
06.06.2023 - 16:13DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Ali, measure a garment the person has and likes the shape and compare these measurements to the one in the chart, you can than decide the required ease. Read more about chart here. Happy knitting!
07.06.2023 - 08:52
Cabled Concerto#cabledconcertocardigan |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað með köðlum, gatamynstri, áferðamynstri og v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 216-38 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um v-hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu og lykkjum er fækkað innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 1 KANTLYKKJU Í GARÐAPRJÓNI ÞANNIG: Byrjið 2 lykkjum á undan kantlykkju og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING-1 (á við um miðju undir ermum): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki í þannig: Prjónið fram að lykkju með prjónamerki mitt undir ermi, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki brugðið eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar snúnar, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur jafnóðum inn í A.9. ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu í kraga): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja brugðið (séð frá réttu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjón/stuttan hringprjón, neðan frá og upp að ermakúpu, síðan er afgangur af ermi prjónaður fram og til baka á hringprjóna. Stykkið er saumað saman. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur fyrir kant að framan og kraga – þær eru prjónaðar í stroffprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 122-130-142-158-170-186 lykkjur á hringprjón 3,5 með Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 0-2-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni) = 122-128-140-156-170-186 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 1-4-2-2-1-1 lykkjur brugðið, prjónið A.1 yfir næstu 8-8-16-24-32-40 lykkjur (= 1-1-2-3-4-5 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.2 (= 16 lykkjur), prjónið A.3 (= 8 lykkjur), prjónið A.4 (= 14 lykkjur), prjónið A.5 (= 24 lykkjur), prjónið A.6 (= 14 lykkjur), prjónið A.1 (= 8 lykkjur), prjónið A.2 (= 16 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 8-8-16-24-32-40 lykkjur (= 1-1-2-3-4-5 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið 1-4-2-2-1-1 lykkjur brugðið og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), fækkið um 2-2-2-4-4-4 lykkjur í hvorri hlið með því að prjóna 4 lykkjur í hvern og einn af 1-1-1-2-2-2 ystu köðlum í hvorri hlið slétt saman 2 og 2 = 118-124-136-148-162-178 lykkjur eftir. Í næstu 2 umferðum, fellið af fyrir handveg með því að fella af 7-10-8-14-13-13 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum = 104-104-120-120-136-152 lykkjur eftir. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 lykkju brugðið (séð frá réttu) og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 20-20-20-20-26-26 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 41-41-49-49-54-62 lykkjur eftir. Þegar 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), fækkið um 7-7-9-9-10-12 lykkjur á öxl með því að prjóna lykkjur í hvern og einn af köðlum í A.1/A.3 og A.4/A.6 slétt saman 2 og 2 = 34-34-40-40-44-50 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! Bakstykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 61-65-73-81-89-97 lykkjur á hringprjón 3,5 með Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 0-1-3-3-4-4 lykkjur jafnt yfir (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni) = 61-64-70-78-85-93 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 1-4-2-2-1-1 lykkjur brugðið, prjónið A.1 yfir næstu 8-8-16-24-32-40 lykkjur (= 1-1-2-3-4-5 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið A.2 (= 16 lykkjur), prjónið A.3 (= 8 lykkjur), prjónið A.4 (= 14 lykkjur), prjónið A.7 (= 11 lykkjur) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað/felldar af fyrir v-hásmáli og handveg eins og útskýrt er að neðan. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fækkið lykkjum fyrir V-HÁLSMÁLI við miðju að framan – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í 4. hverri umferð alls 9-9-9-9-11-11 sinnum og síðan í 6. hverri umferð alls 2-2-2-2-3-3 sinnum. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), fækkið um 2-2-2-4-4-4 lykkjur í hlið með því að prjóna 4 lykkjur í hvern og einn af 1-1-1-2-2-2 ystu köðlum við hlið slétt saman 2 og 2. Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir handveg með því að fella af fyrstu 7-10-8-14-13-13 lykkjur í umferð. Eftir allar úrtökur/affellingar fyrir v-hálsmáli og handveg, eru 41-41-49-49-54-62 lykkjur eftir. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 lykkju brugðið (séð frá réttu) og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), fækkið um 7-7-9-9-10-12 lykkjur á öxl með því að prjóna lykkjur í hverjum kaðli í A.1/A.3 og A.4 slétt saman 2 og 2 = 34-34-40-40-44-50 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – munið eftir AFFELLING! Framstykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 61-65-73-81-89-97 lykkjur á hringprjón 3,5 með Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að framan): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni að hlið. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 0-1-3-3-4-4 lykkjur jafnt yfir (kantlykkjurnar eru prjónaðar í garðaprjóni) = 61-64-70-78-85-93 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá miðju að framan): 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.8 (= 11 lykkjur), prjónið A.6 (= 14 lykkjur), prjónið A.1 (= 8 lykkjur), prjónið A.2 (= 16 lykkjur), prjónið A.3 yfir næstu 8-8-16-24-32-40 lykkjur (= 1-1-2-3-4-5 mynstureiningar með 8 lykkjum), prjónið 1-4-2-2-1-1 lykkjur brugðið og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað/felldar af fyrir v-hálsmáli og handveg eins og útskýrt er að neðan. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fækkið lykkjum fyrir V-HÁLSMÁLI við miðju að framan – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í 4. hverri umferð alls 9-9-9-9-11-11 sinnum og síðan í 6. hverri umferð alls 2-2-2-2-3-3 sinnum. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), fækkið um 2-2-2-4-4-4 lykkjur í hlið með því að prjóna 4 lykkjur í hvern af 1-1-1-2-2-2 ystu köðlum í hlið slétt saman 2 og 2. Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir handveg með því að fella af fyrstu 7-10-8-14-13-13 lykkjur í umferð. Eftir alla úrtöku/affellingu fyrir v-hálsmáli og handveg, eru 41-41-49-49-54-62 lykkjur eftir. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 lykkju brugðið (séð frá réttu) og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar 2 umferðir eru eftir þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm (og næsta umferð er prjónuð frá réttu), fækkið um 7-7-9-9-10-12 lykkjur á öxl með því að prjóna lykkjur í hverjum kaðli í A.1/A.3 og A.6 slétt saman 2 og 2 = 34-34-40-40-44-50 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. ERMI: Fitjið upp 40-44-44-48-48-52 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með Karisma. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 6 cm, setjið 1 prjónamerki í umferð. Þetta prjónamerki merkir hvar ermin er brotin upp og ermin er mæld síðar frá þessu prjónamerki. Þegar stroffið mælist 10 cm frá uppfitjunarkanti, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir = 42-46-46-50-50-54 lykkjur. Setjið 1 nýtt prjónamerki í stykkið – í fyrstu lykkju í umferð. Þetta prjónamerki merkir mitt undir ermi og lykkja með prjónamerki er prjónuð brugðið í hverri umferð. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið lykkju með prjónamerki brugðið, prjónið A.9 þar til 1 lykkja er eftir í umferð og prjónið síðustu lykkju eins og fyrstu lykkju í A.9 (þannig að mynstrið byrjið og endi eins hvoru megin við lykkju með prjónamerki). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 10-10-8-6-10-10 cm frá fyrra prjónamerki sem var sett, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 2-2-2-2-1½-1½ cm millibili alls 17-17-19-19-21-21 sinnum = 76-80-84-88-92-96 lykkjur. Þegar ermin mælist 46-46-46-44-43-42 cm frá fyrsta prjónamerki, prjónið ermakúpu fram og til baka á hringprjón frá miðju undir ermi – A.9 heldur áfram eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið til loka (þ.e.a.s. lykkja með prjónamerki og síðasta lykkja í umferð er prjónuð í garðaprjóni). Prjónið þar til ermin mælist 50-51-49-50-48-46 cm frá fyrra prjónamerki (og ca 56-57-55-56-54-52 cm frá uppfitjunarkanti), þ.e.a.s. það er klauf ca 4-5-3-6-5-4 cm efst á ermi. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma á framstykki og bakstykki frá handveg og niður þar sem stroffið byrjar, þannig að það myndist klauf ca 6 cm neðst í hvorri hlið – saumið hliðarsauminn í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur. Saumið ermakúpu við handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram handveg. Saumið síðan opið efst á ermi við botninn á handveg – sjá teikningu. KANTUR AÐ FRAMAN OG KRAGI Í VINSTRA FRAMSTYKKI: Notið hringprjón 3,5 og Karisma, byrjið frá réttu mitt aftan í hnakka og prjónið upp ca 152-156-160-168-172-180 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram hálsmáli aftan í hnakka og síðan niður meðfram framstykki (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Þegar stroffið mælist 3 cm, setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 33-33-33-41-41-41 lykkjur frá miðju að aftan. Í næstu umferð frá réttu eru auknar út 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið frá miðju aftan í hnakka og niður að prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 = 4-4-4-5-5-5 lykkjur fleiri. Þegar stroffið mælist 5 cm, aukið út þær 2 lykkjur brugðið sem eftir eru til 3 lykkjur brugðið frá miðju að aftan og niður að prjónamerki = 4-4-4-5-5-5 lykkjur fleiri. Þegar stroffið mælist 6 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! KANTUR AÐ FRAMAN OG KRAGI Í HÆGRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjónið upp jafn margar lykkjur eins og á vinstri kanti að framan og kraga, frá neðri kanti mitt aftan í hnakka. Prjónið stroff á sama hátt og á vinstra framstykki og aukið út á kragastykkinu á sama hátt og á vinstra framstykki. JAFNFRAMT þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af fyrir 5-5-5-6-6-6 hnappagötum jafnt yfir. Efsta hnappagatið er staðsett ca 1 cm neðan við úrtöku þar sem v-hálsmálið byrjaði og neðsta hnappagatið er ca 6 cm frá neðri kanti. 1 hnappagat =sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 lykkjur saman. ATH: Fallegast er að fella af í brugðinni einingu (séð frá réttu). Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið tölur í vinstri kant að framan og saumið kragann saman við miðju að aftan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cabledconcertocardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.