Laura Foster-May skrifaði:
I want to make the Vermillion Lake vest in Snow, size XL and I'd like to make the edge ribbing/button band all around in a contrasting color, also add a little fair isle motif in same contrasting color for ~ 4-5 rows in the lower part of vest all around. Can you help me estimate how much of each color to order? (total 2 colors)
04.01.2021 - 23:16DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Foster-May, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every single request, please contact your DROPS store for any individual assistance. Thank you for your comprehension. Happy knitting!
05.01.2021 - 11:20
Monica Furuseth skrifaði:
Slik jeg leser oppskriften blir det feil antall masker igjen når man feller av til ermet på str XL.: Fell av 3 masker 0-0-0-0-0-1 gang, 2 masker 0-1-2-2-3-3 ganger, og 1 maske 2-2-2-3-4-4 ganger. Etter alle fellinger til v-hals og ermehull er det 13-14-14-14-15-15 masker igjen på skulderen. jeg har fellt av de tre første likevel; da endte jeg med rett antall...
16.11.2020 - 14:09
Vermillion Lake Vest#vermillionlakevest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti með v-hálsmáli úr DROPS Snow eða DROPS Wish. Stærð S - XXXL.
DROPS 215-38 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 113 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þeim 105 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 13 = 8,1. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 7. og 8. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um v-hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Á EFTIR 4 KANTLYKKJUM AÐ FRAMAN ÞANNIG: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). FÆKKIÐ LYKKJUM Á UNDAN 4 KANTLYKKJUM AÐ FRAMAN ÞANNIG: Byrjið 2 lykkjum á undan 4 kantlykkjum að framan og prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). 1 HNAPPAGAT = prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti (séð frá réttu) slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 4, 14 og 24 cm. M: 5, 15 og 25 cm. L: 4, 15 og 26 cm. XL: 3, 11, 19 og 27 cm. XXL: 4, 12, 20 og 28 cm. XXXL: 5, 13, 21 og 29 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, neðan frá og upp að handvegi. Síðan eru framstykkin og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig til loka. Kantur í hálsmáli er saumaður niður aftan í hnakka. Síðan er prjónaður stroffkantur í kringum báða handvegi. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 113-127-137-147-165-179 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 7 með Snow eða Wish. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm – munið eftir HNAPPAGAT á hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan (á við um S, L, XL og XXL). Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 13-15-17-19-21-23 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-1 = 100-112-120-128-144-156 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 27-30-32-34-38-41 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 46-52-56-60-68-74 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fella á af fyrir handvegi. Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – munið eftir HNAPPAGAT á hægri kanti að framan og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli (þ.e.a.s. ca 1 cm á eftir síðasta hnappagati) – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 3 sinnum í hvorri hlið og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 6-6-6-7-7-7 sinnum í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, fellið af fyrir handvegi. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður (og fækkið e.t.v. lykkjum fyrir v-hálsmáli) þar til 3 lykkjur eru eftir á undan fyrra prjónamerki, fellið af 6 lykkjur fyrir handvegi, prjónið sléttprjón á bakstykki þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, fellið af 6 lykkjur fyrir handvegi og prjónið eins og áður út umferðina (fækkið e.t.v. lykkjum fyrir v-hálsmáli). Framstykkin og bakstykkið er síðan prjónað hvert fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka eins og áður með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðu að framan. Haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli eins og áður. Að auki eru felldar af lykkjur fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-0-1 sinnum, 2 lykkjur 0-1-2-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-3-4-4 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 13-14-14-14-15-15 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til framstykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af ystu 9-10-10-10-11-11 lykkjur á öxl = 4 lykkjur garðaprjón eftir á prjóni. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar 4 lykkjur þar til kantur með garðaprjóni mælist ca 9-9-9-10-10-10 cm frá öxl, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka eins og áður með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðu að framan. Haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli eins og áður. Að auki eru felldar af lykkjur fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-0-1 sinnum, 2 lykkjur 0-1-2-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-3-4-4 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 13-14-14-14-15-15 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til framstykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Fellið af ystu 9-10-10-10-11-11 lykkjur á öxl = 4 lykkjur garðaprjón eftir á prjóni. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar 4 lykkjur þar til kantur með garðaprjóni mælist ca 10-10-10-11-11-11 cm frá öxl, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. BAKSTYKKI: = 40-46-50-54-62-68 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-0-1 sinnum, 2 lykkjur 0-1-2-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-3-4-4 sinnum í hvorri hlið = 36-38-38-40-42-42 lykkjur eftir. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 16-16-16-18-18-18 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið sléttprjón og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 9-10-10-10-11-11 lykkjur á öxl. Prjónið áfram þar til bakstykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm og fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið saman kant með garðaprjóni mitt að aftan – passið uppá að saumurinn snúi inn að röngu. Saumið kant með garðaprjóni við hálsmál aftan í hnakka – strekkið aðeins á kanti með garðaprjóni þegar hann er saumaður. KANTUR Í HANDVEGI: Byrjið í hlið neðst í handvegi og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju, ca 48-50-52-56-58-60 lykkjur í kringum handveg á stuttan hringprjón 7 með Snow eða Wish (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið kant í kringum hinn handveginn á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #vermillionlakevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.