Pia skrifaði:
Hej Drops. Hvor ser jeg hvilken størrelse jeg skal strikke? Hv.h Pia
01.02.2021 - 14:18DROPS Design svaraði:
Hei Pia. Denne genseren er strikket i 6 forskjellige størrelser (XS - S - M - L - XL - XXL). Du finner målene på målskissene helt nederst i oppskriften. God Fornøyelse!
01.02.2021 - 14:23
Margit Funch skrifaði:
Der tages ud ETTER 1. og 3.mærke, og FØR 2. og 4.mærke – husk UDTAGNINGSTIPS-1. Der tages nu kun ud på ærmerne og antal masker på bagstykket og forstykket forbliver det samme. forstår ikke rigtig udtagningerne der står efter, skal man tage ud i den første maske i mønsteret.
14.01.2021 - 11:01DROPS Design svaraði:
Hej Margit, Ja nu går du tilbage og læser UDTAGNINGSTIPS-1 og tager ud i tråden mellem maskerne inden mønsteret og efter mønsteret. God fornøjelse!
20.01.2021 - 08:47
Thalina skrifaði:
Ik heb deze leuke trui gebreid (maat m), maar ik heb geen verticale meerdeŕingennaad voor het armsgat, zoals je op de foto kunt zien. Ik heb de instructies exact opgevolgd. In feite heb ik nu een trui met een ronde pas en beginnen de mouwen in het okselgat. Zoals een Noorse trui. Klopt de beschrijving wel?
04.01.2021 - 07:24DROPS Design svaraði:
Dag Thalina,
Ja, de beschrijving zou moeten kloppen. Heb je op de mouwmeerderingen na de 1e en de 3e markeerdraad gemeerderd en voor de 2e en de 4e markeerdraad? En heb je voor en na de markeerdraad gemeerderd zoals aangegeven bij de instructies. Dan zou er namelijk wel een lijn of naad moeten ontstaan.
09.01.2021 - 15:55
Kirsten Krøjgaard skrifaði:
Hej - og godt nytår. Skal igang med Drops design Outback. Ifølge opskriften strikkes modellen i Drops Snow, men jeg undres lidt over, at der i opskriften står pind nr. 8 og på garn pind 9, og er nu i tvivl om, hvorvidt Drops Snow/Eskimo er det korrekte garn, eller om der er andet garn, som I vil anbefale. På forhånd tak for hjælp.
03.01.2021 - 11:14DROPS Design svaraði:
Hej Kirsten, DROPS Eskimo/ DROPS Snow er samme garn! Det som er vigtigt er at du holder strikkefastheden som står i opskriften, dette for at få de mål som står i måleskitsen. Læs mere om Hvordan måles strikkefastheden ...-
11.01.2021 - 13:58
Christine Pedersen skrifaði:
Hej :) Jeg strikker trøjen i str XL og er færdig med udtagning til ærmer (212 m). I opskriften står der, at arbejdet skal måle 29 cm fra mærketråden og ned midt bagpå, før der deles til ærmer. Men på tegningen er vist, at de 29 cm måles på den synlige søm ved ærmeudtaget, som på mit arbejde pt kun måler 15 cm. Er det stykket fra hvor ærmeudtaget starter, man måler, eller er det længden på bærestykket efter den dobbelte halskant?
19.12.2020 - 23:34DROPS Design svaraði:
Hej Christine. Du måler fra mærketråden, dvs efter den dubbla halskanten, og ned midt bagpå. Mvh DROPS Design
22.12.2020 - 08:23
Marie Serruys skrifaði:
Ik zie de opmerking van HJ Korfage. Ik meldde u ook dit probleem op 28/11 maar kreeg tot nu toe geen reactie. Er staat een verkeerde video bij deze trui voor de meerdering van de mouw.
14.12.2020 - 21:06
Hj Korfage skrifaði:
Hallo, wanneer ik het patroon volg voor de mouwmeerderingen, heb ik de meerderingen op het pand ipv de mouw. Wat doe ik verkeerd.? Mvg. Huberte Korfage
02.12.2020 - 11:28DROPS Design svaraði:
Dag Hj Korfage,
Als je meerdert na de 1e en 3e markeerdraad en voor de 2e en 4e markeerdraad, dan zou je de meerderingen op de mouwen moeten hebben en niet op de panden.
06.12.2020 - 13:56
Marie Serruys skrifaði:
Beste, de video voor de mouwmeerderingen is voor meerderen achterpand en voorpand met behoud van steken in de mouw ? Uitleg staat met behoud van steken achter-en voorpand.
28.11.2020 - 23:02
Monica Ervik skrifaði:
Glem det, jeg har forstået det. Jeg skal bare gå efter den str jeg strikker og bruge det tal..
28.09.2020 - 13:33
Monica Ervik skrifaði:
Jeg forstår ikke det med bærestykket på denne opskrift... Skal jeg stikke 8 masker, lægge 0 ud, så strikke 8 igen, lægge 1 ud osv.. Så står det man er halvejs over bærestykket, men alle masker er jo næsten strikket.. Og, hvad så videre?? Dette stykke er virkelig svært at forstå..
28.09.2020 - 13:07DROPS Design svaraði:
Hei Monica. Se de 2 hjelpevideoene til denne genseren. Om du strikker den minste str. har du etter halskanten 48 masker, nå skal bærestykket strikkes. Du begynner midt bak og strikk slik: Strikk rett over de første 8 maskene ( i den minste str skal det ikke økes, derfor står det 0 = ca halve bakstykke), sett 1.merke, strikk A.1 over de neste 10 maskene (= skuldermasker), sett 2.merke, strikk rett over de neste 14 maskene (= forstykke), sett 3.merke, strikk A.1 over de neste 10 maskene (= skuldermasker), sett 4.merke, strikk rett over de siste 6 maskene (= ca halve bakstykke) = 48 masker. God Fornøyelse!
28.09.2020 - 17:59
Outback#outbacksweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow eða DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti. Stærð XS - XXL.
DROPS 217-23 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------ UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING-1: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 5,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 48-56-56-56-64-64 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með Snow eða Wish. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 13 cm. Setjið einn merkiþráð í byrjun á umferð (= ca mitt að aftan). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið yfir á hringprjón 8. BERUSTYKKI: Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 8-8-8-8-8-8 lykkjurnar á meðan aukið er út um 0-1-1-2-2-2 lykkjur (= ca hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki hér, prjónið A.1 (veldu mynsturteikningu fyrir rétta stærð) yfir næstu 10-10-10-10-14-14 lykkjur (= axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki hér, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 14-18-18-18-18-18 lykkjur á meðan aukið er út um 0-2-2-4-4-4 lykkjur (= framstykki), setjið 3. prjónamerki hér, prjónið A.1 yfir næstu 10-10-10-10-14-14 lykkjur (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki hér, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 6-10-10-10-10-10 lykkjur á meðan aukið er út um 0-1-1-2-2-2 lykkjur jafnt yfir (= ca hálft bakstykki) = 48-60-60-64-72-72 lykkjur. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjurnar á bakstykki og framstykki og prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 yfir 10-10-10-10-14-14 lykkjur fyrir öxl. JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur í umferð þannig: Aukið út á UNDAN 1. og 3. prjónamerki og á EFTIR 2. og 4. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1. Einungis er aukið út á bakstykki og framstykki og fjöldi lykkja verður sá sami. Aukið svona út í hverri umferð alls 16-17-18-19-21-23 sinnum = 112-128-132-140-156-164 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ÚTAUKNING Á ERMUM: Prjónið sléttar lykkjur yfir lykkjur á framstykki og bakstykki og prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 yfir 10-10-10-10-14-14 lykkjur fyrir hvora öxl. JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur í umferð þannig: Aukið út á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og á UNDAN 2. og 4. prjónamerki – munið eftir ÚTAUKNING-1. Nú er einungis aukið út á ermum og lykkjufjöldinn á bakstykki og framstykki verður sá sami. Aukið svona út í hverri umferð alls 3-3-4-6-6-6 sinnum og í annarri hverri umferð 8-8-8-8-8-9 sinnum = 156-172-180-196-212-224 lykkjur. Stykkið á nú að mælast ca 23-24-25-27-29-31 cm frá merkiþræði og niður mitt að aftan. Ef stykkið mælist styttra en þetta er prjónað með sléttprjóni og A.1 að réttu máli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 25-26-27-29-31-33 lykkjurnar (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 30-32-34-38-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 48-54-56-60-64-68 lykkjur, setjið næstu 30-32-34-38-42-44 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 23-28-29-31-33-35 lykkjurnar. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 108-120-128-136-144-152 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 20-21-22-22-21-21 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-20-20-20-24-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 124-140-148-156-168-176 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 7 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá merkiþræði eftir kanti í hálsmáli og niður. ERMI: Setjið til baka 30-32-34-38-42-44 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af nýjum 6-6-8-8-8-8 lykkjum undir ermi = 36-38-42-46-50-52 lykkjur. Setjið prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 3-3-4-4-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Þetta er nú byrjun á umferð. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju slétt hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5½-6½-4-3-2½-2½ cm millibili alls 2-2-4-5-6-6 sinnum = 32-34-34-36-38-40 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-37-37-35-35-34 cm frá skiptingu. Prjónið nú 1 umferð í mynstri eins og áður, þar sem aukið er út um 8-10-10-8-10-12 lykkjur jafnt yfir lykkjur í sléttprjóni = 40-44-44-44-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í umferð – stillið af að stroffið gangi jafnt upp alla leiðina hringinn og að stroffið sé prjónað eins og áður yfir 10-10-10-10-14-14 lykkjur (= axlalykkjur). Þegar stroffið mælist 7 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist alls 45-44-44-42-42-41 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #outbacksweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.