Maren skrifaði:
Hallooo....🤗 Ohne Anleitung kann der Frühling ⚘nicht kommen. Wir warten schon eine halbe Ewigkeit.🙆♀️
19.02.2020 - 19:34
Rosi skrifaði:
Sehr edel!
21.01.2020 - 04:42
Ana Coelho skrifaði:
Très beau modèle! Sehr schön. Ich freue mich schon auf die Anleitung :D
19.01.2020 - 07:28
Fabienne skrifaði:
Jolie forme, nouveauté, hâte d'avoir les explications crochet !
07.01.2020 - 08:56
Valéria skrifaði:
Nagyon tetszik, ez nagy kedvenc lesz!
29.12.2019 - 13:58
BEAULIEUX C skrifaði:
La forme et le motif confèrent une grande élégance à ce sac que je tricoterai dès que les explications en seront fournies. Merci à vous.
25.12.2019 - 19:50
Ursula skrifaði:
Sehr besonders!
13.12.2019 - 17:03
Beatrice skrifaði:
Superbe modèle, forme arrondie originale. Ce fil à tricoter donne des sacs d'une grande élégance.
13.12.2019 - 14:52
Frances Brown skrifaði:
The girls will be fighting over this bag. Guess I'll have to make two.
11.12.2019 - 08:05
Garden Paths#gardenpathsbag |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð taska úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris.
DROPS 211-25 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3 (A.w til A.z sýnir hvernig umferðin í A.2 og A.3 byrjar og endar). LEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur): 1 loftlykkja á að jafngilda 1 fastalykkju/stuðli/tvíbrugðnum stuðli á breidd. Passið uppá að lykkjan sem er gerð í loftlykkjuna sé dregin aðeins upp á heklunálina þannig að hún verði ekki of stíf. Ef loftlykkjurnar verða of stífar, þá kemur mynstrið til með að verða of stíft í einingum þar sem eru margar loftlykkjur. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur í stað fyrstu fastalykkju, þ.e.a.s. hoppið yfir fyrstu lykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar 3 loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul, þ.e.a.s. hoppið yfir 1. stuðul frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 11. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að hekla 10. og 11. hverja fastalykkju saman þannig: Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Taskan er fyrst hekluð fram og til baka í 2 stykkjum sem líkjast hálfum hring. Þessi tvö stykki eru saumuð saman meðfram boga lengst út. Síðan er heklaður kantur í kringum opið efst á töskunni til enda. Að lokum er hekluð ein axlaról. Ólin er hekluð fram og til baka og er fest hvoru megin við opið. HÁLFUR HRINGUR: Byrjið með heklunál 5 með Bomull-Lin eða Paris, heklið 5 loftlykkjur og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð – sjá LEIÐBEININGAR! Heklið mynsturteikningu A.1 (A.1 = 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu). Þegar báðar umferðirnar í A.1 hafa verið heklaðar til loka, heklið næstu umferð þannig: Heklið A.w yfir fyrstu lykkjuna (A.w sýnir hvernig umferðin byrjar frá réttu og endar frá röngu), heklið mynsturteikningu A.2 alls 7 sinnum á breiddina og endið með A.x yfir síðustu lykkjuna (A.x sýnir hvernig umferðin endar frá réttu og byrjar frá röngu). Þegar A.2 hefur verið heklað til loka á hæðina, eru 42 loftlykkjubogar í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – stykkið er síðar mælt frá þessu prjónamerki. Nú er heklað það sem á að verða botninn á töskunni, þ.e.a.s. heklið A.y yfir fyrstu lykkjuna, heklið A.3 alls 21 sinnum á breiddina og endið með A.z yfir síðustu lykkjuna. Klippið frá og festið enda þegar A.3 hefur verið heklað til loka. Heklið annan hálfan hring alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið báða hálfu hringina meðfram boganum lengst út – saumið kant í kant með smáu, fallegu spori. KANTUR Í KRINGUM OPIÐ: Byrjið við sauminn í annarri hliðinni á töskunni, heklið 1 keðjulykkju, heklið 3 loftlykkjur (jafngilda 1 stuðli) og heklið síðan ca 109 stuðla í kringum kantinn efst á töskunni (til að fá jafna skiptingu á stuðlum, heklið ca 2 stuðla um hvern stuðul og 1 stuðul um hverja fastalykkju) = ca 110 stuðlar. Sjá HEKLLEIÐBEININGAR og heklið í hring þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul. UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 28 cm frá prjónamerki. Heklið 1 umferð með fastalykkjum og fækkið jafnframt um 10 fastalykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = ca 100 fastalykkjur. Heklið síðan fastalykkjur hringinn í 2 cm, með 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og festið enda. Taskan mælist ca 30 cm frá prjónamerki. AXLARÓL: Byrjið í annarri hliðinni á töskunni og heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af miðju 8 fastalykkjunum í hliðinni. Heklið fastalykkjur fram og til baka yfir þessar 8 fastalykkjur þar til ólin mælist ca 40 cm (eða að óskaðri lengd). Heklið ólina niður í gagnstæðri hlið á töskunni með 1 fastalykkju í hverja og eina af miðju 8 fastalykkjum í hliðinni (heklið í gegnum bæði lögin). Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #gardenpathsbag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.