Patricia Olivia Fuchs skrifaði:
Lassen sich generell fair isle muster eigentlich auch mit der Hebemaschen-Technik stricken (Mosaik-stricken)? Ich tue mir extrem schwer mit der Fadenhaltung bei der fair-isle-technik.
04.12.2020 - 09:04DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Fuchs, wir haben 2 Videos für das fair-isle stricken: mit den Arbeitsfäden auf der linken Hand und mit den Arbeitsfäden auf der rechten Hand dh alle Maschen werden gestrickt, nicht wie beim Mozaïck abgehoben. Viel Spaß beim stricken!
04.12.2020 - 11:57
Leanne skrifaði:
I just dont understand a cast on of 72 m. I Will drown in then, and when you have a pattern there goes from size 35 - 43 it makes no sense that the cast on are the same, and even after taken in 8 m. There are still 64 m on they will still be huge Both on needle no 3 and 2 1/5. Is it just me or are all your sock pattern very large.
01.06.2020 - 01:04
Mimi Routh skrifaði:
Love and prayers from south end of Lake Tahoe, California! I will make these pretty socks with yarn on hand. It is 6 April, under quarantine. I look at the numbers world-wide and send extra prayers to your designers, the animal herders, the bosses, and the folks who carry boxes. BE WELL! SEE YOU ON THE OTHER SIDE!
06.04.2020 - 17:59
Joannelauer skrifaði:
L like the patterns a lot
28.03.2020 - 00:29
Wilmo skrifaði:
Bonjour, êtes vous sûr de la longueur de la tige? 25cm annoncé, je dirais plutôt 15 cm, non?
04.03.2020 - 09:44DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Wilmo, effectivement il s'agit de la longueur totale de la chaussette (talon y compris) et non seulement de la tige, correction faite. Bon tricot!
04.03.2020 - 10:56
Wilmo skrifaði:
Bonjour, êtes vous sûr de la longueur de la tige? 25cm annoncé, je dirais plutôt 15 cm, non?
03.03.2020 - 20:38
Maarit Laine skrifaði:
Lovely socks for cool summer nights. Fabel is my favory yarn.
02.02.2020 - 16:47
Helga skrifaði:
Ute´s Vorschlag ist toll ! " Am laufenden Band ".
26.01.2020 - 08:26
Ute skrifaði:
Wie wäre derName "Am laufenden Band"?
25.01.2020 - 09:17
Marta Balintová skrifaði:
Ponožky pletu ráda a často hledám inspiraci u DROPSu. Tyhle mě nadchly hneda protože miluji pomněnky a tyhle ponožky mi pomněnky připomínají, navrhovala bych název " POMNĚNKOVÉ POHLAZENÍ".
15.01.2020 - 20:05
Diamond Seas#diamondseassocks |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaðir sokkar með marglitu mynstri úr DROPS Fabel. Stærð 35 – 43.
DROPS 209-21 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.6. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 10 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 10 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 9 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 9 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 15 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Sokkarnir eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. SOKKUR: Fitjið upp 72 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með Fabel með litnum bláa lónið. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan 10 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.1 (= 6 mynstureiningar í umferð). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt með litnum bláa lónið þar sem fækkað er um 8-0-0 lykkjur jafnt yfir = 64-72-72 lykkjur. Prjónið síðan A.2 yfir allar lykkjur (= 8-9-9 mynstureiningar af A.2). Haldið áfram þar til A.2 hefur verið prjónað 3 sinnum á hæðina. Haldið eftir fyrstu 0-2-5 lykkjum í umferð á prjóni, setjið næstu 29-33-35 lykkjur á þráð, haldið eftir síðustu lykkjum í umferð á prjóni = 35-39-37 lykkjur eftir á prjóni fyrir hæl. Prjónið A.3 yfir lykkjur á hæl, JAFNFRAMT er fækkað um 2-6-4 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 33 lykkjur fyrir hæl í öllum stærðum. Þegar A.3 hefur verið prjónað, haldið áfram með A.4. Prjónið A.4 yfir hællykkjur þar til hællinn mælist 5-5½-6 cm, setjið 1 prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan (A.4 heldur áfram). Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 13-13-14 lykkjur hvoru megin við hæl með litnum bláa lónið og 29-33-35 lykkjur af þræði á fæti eru settar til baka á prjóninn = 70-74-78 lykkjur. Þær 29-33-35 lykkjur á fæti eru prjónaðar þannig: A.5, A.6 (sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð), A.5, lykkjur undir fæti halda áfram í A.4 JAFNFRAMT er lykkjum núna fækkað hvoru megin við 29-33-35 lykkjur á fæti þannig: Prjónið 2 lykkjur á undan 29-33-35 lykkjum á fæti slétt saman með lit í núverandi rönd og 2 lykkjur á eftir 29-33-35 lykkjum á fæti snúnar slétt saman með lit í núverandi rönd (= 2 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 6 sinnum í öllum stærðum = 58-62-66 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 18-19-22 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 4-5-5 cm að loka máli). Prjónið síðan þannig: Prjónið A.5 eins og áður yfir 3 lykkjur í hvorri hlið og prjónið A.6 og A.4 eins og áður. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við A.5 í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.5, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum natur, prjónið A.5, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt með litnum natur, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 4-7-7 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-3-3 sinnum = 22-22-26 lykkjur eftir í umferð. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 með litnum natur = 11-11-13 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #diamondseassocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 209-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.