Natasja skrifaði:
Kan je de schouders van achterpand en voorpand ook aan mekaar breien? En hoe ga je dan juist tewerk?
14.04.2020 - 11:28
Gea Koers skrifaði:
Welke breipen is vergelijkbaar met een rondbreinaald 15 mm?
06.04.2020 - 16:06DROPS Design svaraði:
Dag Gea,
De maatdikte voor rechte breipennen en rondbreinaalden is identiek, dus als je een breinaald van 15 mm nodig hebt, heb je ook een rondbreinaald van 15 mm nodig.
13.04.2020 - 11:15
Natasja skrifaði:
Kan je de schouders van achterpand en voorpand ook aan mekaar breien? En hoe ga je dan juist tewerk?
05.04.2020 - 17:43DROPS Design svaraði:
Dag Natasja,
Bedoel je dat je, nadat je het achterpand hebt gebreid, door breit over de schouder en dus de voorpanden van boven naar beneden breit? Dat zou kunnen. Dan zou je de beschrijving van het voorpand omgekeerd moeten doen en bij de hals op het voorpand zou je de steken weer samen moeten brengen.
16.04.2020 - 11:53
Elin M Andersson skrifaði:
Could this pattern be knitted in the round till the decrease for the armholes?
08.02.2020 - 23:48DROPS Design svaraði:
Dear Elin, yes, you can knit the body up until the armholes. Cast on as many stitches as the front and the back, minus the edge stitches. Be careful to knit the moss stitch on the round (and not the way it is knitted back and forth). Happy Knitting!
10.02.2020 - 04:16
Geertje skrifaði:
Ben benieuwd naar de techniek van deze trui.
25.01.2020 - 12:13
Thea Van Son skrifaði:
Supermooie trui !
23.01.2020 - 15:30
Sonia skrifaði:
Non vedo l'ora di farlo !
28.12.2019 - 22:50
Sunsets and Sand#sunsetsandsandsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa í perluprjóni úr DROPS Big Delight og DROPS Melody. Stærð XS - XXL.
DROPS 212-19 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. PERLUPRJÓN (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka á hringprjón í stykkjum og saumuð saman í hlið í lokin. Lykkjurnar fyrir ermar eru prjónaðar upp í handveg á fram- og bakstykki og ermar eru prjónaðar ofan frá og niður. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 34-38-40-42-46-50 lykkjur með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) á hringprjón 15. Prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3 cm, prjónið í sléttprjóni og 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af 1 lykkju í hvorri hlið (merkir handveg) = 32-36-38-40-44-48 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, prjónið perluprjón yfir allar lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð við hálsmál er fækkað um 1 lykkju = 10-12-13-13-15-17 lykkjur eftir á öxl. Fellið laust af allar lykkjur þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 34-38-40-42-46-50 lykkjur með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) á hringprjón 15. Prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3 cm, prjónið með sléttprjóni og 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af 1 lykkju í hvorri hlið (merkir handveg) = 32-36-38-40-44-48 lykkjur. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, prjónið perluprjón yfir allar lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af miðju 6-6-6-8-8-8 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 1 sinni = 10-12-13-13-15-17 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið laust af allar lykkjur þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. VINSTRI ERMI: Prjónið upp lykkjur meðfram handveg efst á peysu og ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Byrjið þar sem 1 lykkja var felld af fyrir handveg á vinstra framstykki og prjónið upp 26-28-30-30-32-34 lykkjur frá réttu með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) á hringprjón 15. Prjónið upp lykkjur meðfram handveg á framstykki og niður meðfram handveg á bakstykki þar sem felld var af 1 lykkja fyrir handveg. Prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 3 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið á stykki. Fækkið lykkjum með 6-6-5-6-5-4 cm millibili alls 5-5-6-5-6-7 sinnum = 16-18-18-20-20-20 lykkjur. Þegar stykkið mælist 37-36-35-34-33-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) prjónið perluprjón yfir allar lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 49-48-47-46-45-43 cm. HÆGRI ERMI: Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en byrjið á bakstykki. Prjónið upp lykkjur meðfram handveg á bakstykki og niður meðfram handveg á framstykki þar sem felld var af 1 lykkja fyrir handveg. FRÁGANGUR-2: Saumið hliðar- og ermasauma í eitt í ystu lykkjubogana. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunsetsandsandsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.