Agnieszka skrifaði:
Chciałabym wykonać ten sweter, ale bez "dziur", czy to się uda kiedy w schemacie A1 i A2 będę podczas wykonywania narzutów przerabiać oczka przekręcone aby uniknąć dziur? Czy proporcje zostaną zachowane a liczba oczek zgodna? Poszukuję takiego wzoru lecz na włóczkę D+A = E ale nie znałam. Dziękuję za pomoc
06.09.2024 - 22:04DROPS Design svaraði:
Witaj Agnieszko, możesz wykonać oczka przekręcone, to nic nie zmieni w wymiarach swetra. Co do swetrów w połączeniu D+A, to może być Melody+ Nord lub Alpaka. Próbka tutaj to 8-10 oczek na 10 cm, z tego połączenia możesz wykonać wszystkie wzory TUTAJ. Efekt końcowy może się jednak różnić. Pozdrawiamy!
10.09.2024 - 10:21
Michèle skrifaði:
Merci pour votre réponse bonne soirée
06.11.2021 - 20:51
Michele skrifaði:
Bonsoir, je ne vois pas les diagrammes A1 et A2 où puis-je les trouver ? Merci Cordialement
05.11.2021 - 20:11DROPS Design svaraði:
Bonjour Michele, ces diagrammes se trouvent a droite du schéma de mesures, en bas de page. Bon tricot!
06.11.2021 - 20:46
Cristina skrifaði:
Nei ferri da utilizzare ci sono indicati quelli di lunghezza 40 cm e 80 cm, ma poi nelle istruzioni non ci sono più indicazioni. Immagino che bisogna partire con quelli da 40 per il collo, quando devo passare a quelli da 80? I ferri lunghi 40 cm esistono solo fissi? (riposto la domanda perchè mi sono accorta di averla precedentemente postata come commento)
26.07.2021 - 12:22DROPS Design svaraði:
Buongiorno Cristina, deve passare ai ferri più lunghi quando il numero di maglie lo consente. In commercio esistono anche ferri circolari da 40 cm con punte intercambiabili. Buon lavoro!
26.07.2021 - 16:26
Marica skrifaði:
Quanto devono essere lunghi i ferri a doppia punta?
26.07.2021 - 12:20DROPS Design svaraði:
Buonasera Marica, la lunghezza dei ferri a doppia punta non è riportata perchè è soggettiva: alcune persone lavorano meglio con i ferri più lunghi ed altre con quelli più corti. Buon lavoro!
26.07.2021 - 16:25
Cristina skrifaði:
Nei ferri da utilizzare ci sono indicati quelli di lunghezza 40 cm e 80 cm, ma poi nelle istruzioni non ci sono più indicazioni. Immagino che bisogna partire con quelli da 40 per il collo, quando devo passare a quelli da 80? I ferri lunghi 40 cm esistono solo fissi?
26.07.2021 - 11:57
Andrea skrifaði:
Where can I order the yarn to make the Frosted Foliage sweater, Drops Design DROPS/212/34. I live in Canada.
17.04.2021 - 23:43DROPS Design svaraði:
Dear Andrea, just below the materials, and above the pattern instructions, you can find an "order this yarn", and also there is a tab for Canadian duppliers. Happy Knitting!
18.04.2021 - 03:55
Benedikte Grane Lindberg skrifaði:
Hvor mange nøgler garn skal jeg bruge til str. medium?
03.03.2021 - 22:48DROPS Design svaraði:
Hej Benedikte, det er tal nummer 2 du skal følge i medium, dvs du skal bruge 100 DROPS Brushed Alpaca silk i både farve 22 og farve 01 :)
04.03.2021 - 11:59
Maria Teresa skrifaði:
Volevo chiedervi un' informazione quando dice avviare 56-56-60-64-64-68 maglie. Quindi maglia di questa corrisponde ad una taglia??? Come funziona per le taglie???
10.02.2021 - 11:06DROPS Design svaraði:
Buonasera Maria Teresa, ogni numero corrisponde alle maglie di una taglia: individui la sua taglia e continui a seguire quel numero. Buon lavoro!
10.02.2021 - 17:46
Maria Teresa skrifaði:
Volevo chiedervi un' informazione quando dice avviare 56-56-60-64-64-68 maglie. Quindi maglia di questa corrisponde ad una taglia??? Come funziona per le taglie???
10.02.2021 - 11:06DROPS Design svaraði:
Buonasera Maria Teresa, ogni numero corrisponde alle maglie di una taglia: individui la sua taglia e continui a seguire quel numero. Buon lavoro!
10.02.2021 - 17:46
Frosted Foliage#frostedfoliagesweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-34 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 56 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 14. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 14.hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 56-56-60-64-64-68 lykkjur á hringprjón 6 með 2 þráðum í litnum ljós ryð (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á 1 þráð í litnum ljós ryð og 1 þráð í litnum natur. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Þegar stroffið hefur verið gert til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út 4-9-10-11-16-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 60-65-70-75-80-90 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat). Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið 1 prjónamerki eftir stroff í byrjun á umferð (= mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm aukið út þannig: FYRSTA ÚTAUKNING: Prjónið A.1 (= 5 lykkjur) alls 12-13-14-15-16-18 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina hafa verið auknar út 24-26-28-30-32-36 lykkjur = 84-91-98-105-112-126 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 8-9-10-10-11-12 cm. ÖNNUR ÚTAUKNING: Prjónið 0-1-2-3-4-0 lykkjur slétt, A.2 (= 6 lykkjur) alls 14-15-16-17-18-21 sinnum hringinn í umferð. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina hafa verið auknar út 28-30-32-34-36-42 lykkjur = 112-121-130-139-148-168 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 12-14-16-17-19-20 cm. ÞRIÐJA ÚTAUKNING: Prjónið 4-1-4-1-4-0 lykkjur slétt, A.2 (= 6 lykkjur) alls 18-20-21-23-24-28 sinnum hringinn í umferð. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina hafa verið auknar út 36-40-42-46-48-56 lykkjur = 148-161-172-185-196-224 lykkjur. Í næstu umferð eru auknar út 0-1-0-3-2-0 lykkjur jafnt yfir = 148-162-172-188-198-224 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 21-23-24-27-28-33 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 32-34-37-39-42-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 42-47-49-55-57-66 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 32-34-37-39-42-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 21-24-25-28-29-33 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 96-106-114-126-130-148 lykkjur. Haldið áfram með 1 þráð í hvorum lit (= 2 þræðir) og sléttprjón. Þegar stykkið mælist 28 cm, aukið út 20-22-26-26-30-32 lykkjur jafnt yfir = 116-128-140-152-160-180 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Skiptið yfir 2 þræði í litnum ljós ryð. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 32-34-37-39-42-46 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 8 og takið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-42-46-50-52-54 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt á milli 6-6-6-8-8-8 nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-40-45-47-50-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með 1 þræði í hvorum lit (= 2 þræðir). Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 6-5-3½-3½-3-2½ cm millibili alls 6-7-9-9-10-12 sinnum = 26-26-27-29-30-30 lykkjur. Þegar ermin mælist 40-39-37-35-34-32 cm (styttri ermi í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), aukið út 2-2-5-3-6-6 lykkjur jafnt yfir = 28-28-32-32-36-36 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 6. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir í 2 þræði í litnum ljós ryð. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 44-43-41-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermin á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostedfoliagesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.