Line upon Line#lineuponlinesethat |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð basker / alpahúfa og hálsskjól úr DROPS Air með einlitu og tvílitu klukkuprjóni með uppslætti.
DROPS 204-38 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI: UMFERÐ 1: Prjónið með litnum þoka. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið með litnum gallabuxnablár. * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 3: Prjónið með litnum þoka. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-*. Endurtakið umferð 2 og 3. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð í umferð með litnum þoka! Það er aukið út í sléttri lykkju þannig: Prjónið 5 lykkjur í lykkju og uppslátt þannig: * Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að steypa lykkjunni yfir á hægri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri). Í næstu umferð í klukkuprjónsmynstri er lykkjan prjónuð sem átti að prjónast saman með uppslætti, án uppsláttar. LEIÐBEININGAR (á við um lykkjufjölda): Allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar, þar sem uppslátturinn tilheyrir sléttu lykkjunni. Slétta lykkjan og uppslátturinn er talinn saman sem 1 lykkja. ÚRTAKA (á við um húfu): Öll úrtaka er gerð í umferð með litnum þoka! Prjónið fram að lykkju með prjónamerki í, lyftið uppslættinum og lausu sléttu lykkjunni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið næstu 3 lykkjur (= 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, 1 lykkja brugðið) slétt saman og lyftir síðan uppslættinum og óprjónuðu lykkjunni yfir (= alls 2 lykkjur og 2 uppslættir færri). Fækkið lykkjum svona við hvert prjónamerki (= 12 lykkjur og 12 uppslættir færri í umferð). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. FORMUN: Bleytið húfuna og pressið vatnið varlega úr. Spennið húfuna yfir flatan disk með ca sama þvermáli og húfan og setjið diskinn á glas til að koma í veg fyrir að húfan komist nærri undirlaginu. Látið húfuna þorna og lyftið varlega af diskinum. Þetta er endurtekið í hvert skipti sem húfan er þvegin. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BASKER / ALPAHÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjón, ofan frá og niður. BASKER / APLAHÚFA: Fitjið upp 12 lykkjur á sokkaprjón 6 með litnum þoka (látið endann vera ca 30 cm langan, það á að nota hann síðar til að sauma gatið saman efst á húfunni). Prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Prjónið nú KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan. Þegar 1. umferð í klukkuprjóns mynstrið hefur verið prjónað, eru 6 lykkjur slétt í umferð. Setjið 1 prjónamerki í hverja og eina af þessum 6 sléttu lykkjum, prjónamerkin eru notuð fyrir útaukningu og síðar fyrir úrtöku. Í umferð 3 í mynstri, aukið út 4 lykkjur í hverja og eina af 6 lykkjum slétt – sjá ÚTAUKNING (= 24 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 12. hverri umferð (þ.e.a.s. í 6. hverri umferð með litnum þoka) alls 5 sinnum – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 132 lykkjur í umferð – sjá LEIÐBEININGAR. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 33-41 cm að þvermáli). Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð og látið prjónamerkið sitja hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Færið 6 prjónamerkin 8 lykkjur (þ.e.a.s. 4 lykkjur slétt) til vinstri. Í næstu umferð með litnum þoka, fækkið um 2 lykkjur við hvert prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 12 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð með litnum þoka) alls 4 sinnum = 84 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 6 cm frá prjónamerki. Prjónið næstu umferð, en án þess að gera uppsláttinn = 84 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff hringinn með litnum gallabuxnablár (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Húfan mælist ca 10 cm frá prjónamerki (ca 27-31 cm ofan frá og niður). Saumið nokkur spor upp og niður í uppfitjunarkantinn og herðið að gatinu að innan verðu, festið enda vel. Sjá FORMUN. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 108-126 lykkjur á hringprjón 6 með litnum gallabuxnablár. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 72-84 lykkjur. Prjónið síðan KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI, en einungis er prjónað með litnum gallabuxnablár – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-18 cm, prjónið áfram með sama hætti, en nú er prjónað bæði með litnum gallabuxnablár og litnum þoka eftir útskýringu. Þegar stykkið mælist 18-20 cm er aukið út um 4 lykkjur í 6.-7. hverja slétta lykkju (þ.e.a.s. í 12.-14. hverja lykkju) – sjá ÚTAUKNING (= 24 lykkjur fleiri) = 96-108 lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR. Haldið áfram hringinn í klukkuprjóni með tveimur litum þar til stykkið mælist 23-27 cm – stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð með litnum þoka. Fellið af með litnum þoka – fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja, þ.e.a.s. uppslátturinn er prjónaður eins og lykkja og síðan felldur af eins og hinar lykkjurnar. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lineuponlinesethat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.