Françoise skrifaði:
Bonjour, puis-je remplacer la laine air par la laine sky. Merci pour la réponse
20.11.2019 - 14:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Françoise, pas vraiment, car DROPS Sky appartient au groupe B alors que Air appartient au groupe C. Vous trouverez ici plus d'infos sur les alternatives, utilisez notre convertisseur pour avoir un aperçu de ce que vous pouvez utiliser. Bon tricot!
20.11.2019 - 15:20
Terry skrifaði:
What does the little pink diamond on the pattern mean?
19.11.2019 - 22:19DROPS Design svaraði:
Dear Terry, can you please specify more closely which pink diamond do you mean? thank you. Happy Knitting!
20.11.2019 - 02:44
Agathe Reusch skrifaði:
Wo kann ich die Anleitung für diesen tollen Pulli finden? Ich nenne ihn Puderwolke.
04.11.2019 - 09:58
Martine Vallat skrifaði:
Bonjour, pourriez-vous me donner le lien pour avoir les explications ? Bien cordialement
28.10.2019 - 15:09
Calsat Taputu Karine skrifaði:
J'adore ce modèle ainsi que la laine AIR qui est un plaisir a tricoter et a porter
20.07.2019 - 12:59
Ellis skrifaði:
Again a quick knit but only for teenagers. for curvy women to thick yarn to big needles. don like the pleat under armpit, it says size is not good
09.06.2019 - 19:51
Beatrice DELEPINE skrifaði:
Tres joli modele, original et douillet en drops air, j'aime beaucoup.
08.06.2019 - 12:54
French Chic#frenchchicsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa í perluprjóni með stórum kaðli. Stykkið er prjónað úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð S – XXXL.
DROPS 206-31 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR: Þegar fellt er af fyrir handveg á fram- og bakstykki, er mikilvægt að fella af í umferð á oddatölu í mynsturteikningu. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að þurfa að gera snúning fyrir kaðal frá röngu þegar stykkið er prjónað áfram fram og til baka á hringprjón. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 118 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 5,25. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca 11. og 12. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermi): Fækkið um 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki í, takið 2 lykkjur óprjónaða eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 óprjónuðu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Lykkjur eru felldar af fyrir handveg. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjón, hvort fyrir sig. Axlasaumar eru saumaðir. Síðan eru teknar upp lykkjur meðfram handveg fyrir ermar. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón þar til ermakúpan hefur verið gerð til loka, síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður til loka. Að lokum er botninn á handveg saumaður og prjónaður er kantur í hálsmáli. Allt stykkið er prjónað úr 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 118-126-134-142-158-166 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10 lykkju jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 128-136-144-152-168-176 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 9. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 17-19-21-21-25-27 lykkjur, prjónið A.3 (= 30-30-30-34-34-34 lykkjur), prjónið A.1 yfir næstu 34-38-42-42-50-54 lykkjur, prjónið A.3 (= 30-30-30-34-34-34 lykkjur) og prjónið A.2 yfir 17-19-21-21-25-27 lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 41-42-43-44-45-46 cm, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. passið uppá að næsta umferð sé oddatölu umferð í A.3 – sjá LEIÐBEININGAR og prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 3-4-5-6-9-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið síðan eins og áður yfir næstu 58-60-62-64-66-68 lykkjur, fellið af 6-8-10-12-18-20 lykkjur fyrir handveg, prjónið síðan eins og áður yfir næstu 58-60-62-64-66-68 lykkjur og fellið af 3-4-5-6-9-10 lykkjur sem eftir eru fyrir handveg. Klippið frá. Bakstykkið og framstykkið er nú prjónað fram og til baka á hringprjón, hvort fyrir sig til loka. BAKSTYKKI: = 58-60-62-64-66-68 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir 30-30-30-34-34-34 lykkjur í A.3 = 48-50-52-54-56-58 lykkjur eftir. Í næstu umferð er fækkað um miðju 12-12-12-14-14-14 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 17-18-19-19-20-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: = 58-60-62-64-66-68 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir 30-30-30-34-34-34 lykkjur í A.3 = 48-50-52-54-56-58 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru miðju 6-6-6-8-8-8 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 17-18-19-19-20-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. ERMI: Prjónið upp lykkjur meðfram handveg á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. byrjið í horni á handveg í annarri hlið á stykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg og prjónið upp frá réttu 38-40-42-44-46-48 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjón 9 með 1 þræði af hvorri tegund (þ.e.a.s. það á ekki að prjóna upp lykkjur meðfram botni á handveg). Prjónið A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 3-4-5-6-9-10 cm þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, setjið 1 prjónamerki í umferð. Prjónamerkið merkir nú hvar á að sauma ermina síðar í botn á handveg og ermin er nú mæld frá þessu prjónamerki! Skiptið yfir á sokkaprjón 9. Setjið eitt prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum og auka út mitt undir ermi. Prjónið A.1 hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-2-3-3-3 cm frá prjónamerki, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2-2-1-1-1 cm millibili alls 6-6-6-8-8-8 sinnum = 26-28-30-28-30-32 lykkjur. Þegar ermin mælist 16-16-16-14-14-14 cm frá prjónamerki, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 7-7-6½-4½-4-4 cm millibili alls 4-4-4-6-6-6 sinnum = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 44-43-42-41-38-37 cm frá prjónamerki (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á sokkaprjón eða stuttan hringprjón 8 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 49 cm í öllum stærðum frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermina við botninn á handveg frá prjónamerki og inn að horni í hvorri hlið. KRAGI: Prjónið upp frá réttu, ca 40 til 46 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 8. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í ca 2 til 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frenchchicsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.