Małgorzata skrifaði:
Prosty,fajny wzór.Właśnie nabyłam włóczkę i szukam inspiracji.Idę zrobić próbkę.Dziękuję
15.11.2019 - 12:26
Anni skrifaði:
Synes den er mega flot. Vente på opskrift
26.10.2019 - 09:00
Denise skrifaði:
Très envie de faire ce joli pull, attends avec impatience les explications
25.08.2019 - 11:06
Sandra skrifaði:
Sehr schön. Hoffe es gibt bald die Anleitung
14.08.2019 - 08:47
Ninette Lander Bæk skrifaði:
Yellow bumper
16.07.2019 - 15:58
Marje skrifaði:
Väga ilus konstruktsioon.
20.06.2019 - 08:34
Cécile skrifaði:
Lumineux, point dentelle, coupe évasée, un rayon de soleil dans l'hiver !
15.06.2019 - 13:05
Ellis skrifaði:
Easy and quick, again. simple for beginners, nice but not beautyfull
06.06.2019 - 20:26
Elżbieta skrifaði:
To może być ciekawy wzór!
06.06.2019 - 09:53
Golden Vintage#goldenvintagesweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með stjörnumynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-34 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni þar til pláss er fyrir 1 nýja einingu af A.1 á breidd. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 176-192-208-224-256-272 lykkjur á hringprjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 7 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið A.1 umferðina hringinn (= 44-48-52-56-64-68 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið áfram með þetta mynstur – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm – stillið af eftir umferð 2 eða 4 í A.1, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. prjónið næstu umferð þannig: Fellið af fyrstu 3-3-3-7-7-7 lykkjur fyrir handveg, prjónið 82-90-98-98-114-122 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 6-6-6-14-14-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið 82-90-98-98-114-122 lykkjur eins og áður, fellið af þær 3-3-3-7-7-7 lykkjur sem eftir eru. BAKSTYKKI: = 82-90-98-98-114-122 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur eins og áður, ysta kantlykkjan í hlið er prjónuð í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 28-28-30-30-32-32 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð við háls = 26-30-33-33-40-44 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm – stillið af þannig að endað sé á 1 umferð án mynsturs, fellið af – sjá AFFELLING. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 82-90-98-98-114-122 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur eins og áður, ysta kantlykkjan í hliðum er prjónuð í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm, setjið miðju 14-14-16-16-18-18 lykkjur á 1 þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 1 sinni = 26-30-33-33-40-44 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm – stillið af eftir bakstykki, fellið af. Prjóni hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 52-56-60-64-68-72 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56-60-64-68 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, það á að nota það í útaukningu mitt undir ermi. Prjónið A.1 hringinn (= 12-13-14-15-16-17 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 43-42-41-40-35-36 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 8 sinnum = 64-68-72-76-80-84 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 53-52-51-50-45-46 cm – stillið af eftir umferð 1. eða 3. umferð í A.1. Prjónið síðan fram og til baka á hringprjón. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur eins og áður. Prjónið fram og til baka í 2-2-2-4-4-4 cm – stillið af að endað sé á 1 umferð án mynsturs – fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju og saumið ermi við botn á handveg. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp frá réttu ca 72 til 80 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #goldenvintagesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.