Lagrange skrifaði:
Bonjour je ne comprends pas au moment de tricoter le diagramme A1 il faut faire le rang 1 au point endroit ce qui donne en dessous du rang 3 du Jersey c’est bien ça? Ou je dois tricoter en côte 2/2?
21.04.2020 - 23:02DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lagrange, le 1er rang de A.1 se tricote sur l'endroit, A.1 commence donc par 2 rangs jersey, 1 rang sur l'endroit avec (1 m env, tricotez les 3 m suivantes 2 fois à l'end avec 1 jeté entre), et 1 rang sur l'envers = 4 rangs. Cette vidéo montre comment tricoter ce point. Bon tricot!
22.04.2020 - 08:29
Marimar skrifaði:
Bonjour, Pouvez vous m'expliquer comment je peux faire pour : " tricoter 3 mailles ensemble à l'endroit (sur l'endroit) sans les lâcher de l’aiguille, faire 1 jeté, 3 mailles ensemble à l'endroit dans les mêmes 3 mailles et lâcher ces mailles de l'aiguille gauche (= on a 3 mailles sur l'aiguille droite)" ? Car en fait j'ai le je te + les 3 mailles. Merci beaucoup
30.12.2019 - 23:02DROPS Design svaraði:
Bonjour! Tricoter 3 mailles ensemble à l'endroit (sur l'endroit) sans les lâcher de l’aiguille > 1 maille sur l'aiguille droite, faire 1 jeté > deuxieme maille sur l'aiguille droite, 3 mailles ensemble à l'endroit dans les mêmes 3 mailles > 3 mailles sur l'aiguille droite et lâcher ces mailles de l'aiguille gauche. Bon tricot!
31.12.2019 - 19:10
Ana skrifaði:
Bom dia, depois de ler as instruções verifiquei que o modelo é tricotado de baixo para cima mas nas indicações dadas é sempre referido que é de cima para baixo, o que me parece que está incorreto!
21.11.2019 - 21:30
MEUNIER skrifaði:
Bonjour, Je ne comprends pas pourquoi vous indiquez l'usage d' une aiguille circulaire jusqu'aux aisselles alors qu'il s'agit d'un gilet donc avec ouverture devant.
19.11.2019 - 14:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Meunier, l'aiguille circulaire permet simplement d'avoir suffisamment de place pour toutes les mailles, mais on va tricoter en allers et retours - cf cette vidéo par exemple. Bon tricot!
19.11.2019 - 16:26
Hamdani skrifaði:
J'adore ce modèle
12.11.2019 - 11:38
Anne RICATTE skrifaði:
Je désespère de voir arriver les explications Ce gilet est tout simplement magnifique
27.10.2019 - 16:58
Alice R skrifaði:
Magnifique hâte qu'il soit publié pour pouvoir le réaliser
27.10.2019 - 16:53
Nina skrifaði:
C'est le modèle dont je rêve, je me réjouis de pouvoir le commencer!
23.10.2019 - 11:04
AT skrifaði:
Love this one too ❤️❤️ When will it be published?
22.10.2019 - 20:23
Thị-Duc skrifaði:
🥰
19.10.2019 - 14:00
Golden Vintage Jacket#goldenvintagejacket |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með stjörnumynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-33 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni þar til pláss er fyrir 1 nýja einingu af A.1 á breidd. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan, 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 16, 23, 30 og 37 cm M: 16, 24, 31 og 39 cm L: 16, 24, 32 og 40 cm. XL: 16, 24, 32 og 40 cm. XXL: 16, 23, 30, 37 og 44 cm XXXL: 16, 23, 30, 37 og 44 cm ATH: Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsi. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 192-208-224-240-272-288 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til strofið mælist 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fækkað er um 5 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 187-203-219-235-267-283 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, endurtakið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir (= 44-48-52-56-64-68 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.2 (= 1 lykkja) og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16 cm, byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 47-51-55-55-63-67 lykkjur eins og áður (= hægra framstykki), fellið af næstu 6-6-6-14-14-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið 81-89-97-97-113-121 lykkjur eins og áður (= bakstykki), fellið af næstu 6-6-6-14-14-14 lykkjur fyrir handveg, prjónið 47-51-55-55-63-67 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki). HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): = 47-51-55-55-63-67 lykkjur. Haldið áfram með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og mynstur eins og áður, kantlykkja í hlið við handveg er prjónuð í garðaprjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 42-44-45-47-48-50 cm. Setjið nú ystu 14-14-15-15-16-16 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinni. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 1 sinni = 25-29-32-32-39-43 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – stillið af að endað sé á 1 umferð án mynsturs, fellið af – sjá AFFELLING. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Prjónið á sama hátt og hægra framstykki. BAKSTYKKI: = 81-89-97-97-113-121 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, ysta kantlykkjan í hliðum er prjónuð í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 29-29-31-31-33-33 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð við hálsmál = 25-29-32-32-39-43 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm – stillið af eftir framstykki, fellið af. Prjóni hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 52-56-60-64-68-72 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56-60-64-68 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, það á að nota það í útaukningu mitt undir ermi. Prjónið A.1 hringinn (= 12-13-14-15-16-17 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 43-42-41-40-35-36 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING (= 2 lykkjur fleiri). Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 8 sinnum = 64-68-72-76-80-84 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 53-52-51-50-45-46 cm – stillið af eftir umferð 1. eða 3. umferð í A.1. Prjónið síðan fram og til baka á hringprjón. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur eins og áður. Prjónið fram og til baka í 2-2-2-4-4-4 cm – stillið af að endað sé á 1 umferð án mynsturs – fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju og saumið ermi við botn á handveg. KANTUR Í HÁLS:MÁLI Prjónið upp frá réttu ca 80 til 88 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið) þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 80-80-84-84-88-88 lykkjur. Prjónið síðan stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #goldenvintagejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.