Anne skrifaði:
Pourquoi le patron indique de faire des diminutions dès les premiers rangs points texturés alors que le diagramme montre a diminution à partir de 26 cm?
02.01.2020 - 05:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Anne, vous le faites pour les côtes d'en bas ne resserre pas votre ouvrage, ainsi la largeur du pull est le meme jusqu'a 26 cm. Bon tricot!
02.01.2020 - 09:42
Helle Pedersen skrifaði:
Hvorfor strikkes denne model på rundpind, når forstykke og ryg strikkes hver for Sigsgaard der altså skal strikkes frem og tilbage?🤔
20.12.2019 - 09:41DROPS Design svaraði:
Hej Helle, Det er lettere for armene at strikke på rundpind også når du strikker frem og tilbage. Men du bestemmer naturligvis selv hvilke pinde du vil strikke på :)
15.01.2020 - 13:11
Walaa Emad skrifaði:
Can someone suggest me color for this sweater,please? i want to get out of my color comfort zone abit so i'm welling to try a new suggestions
16.11.2019 - 01:42DROPS Design svaraði:
Dear Walaa, this sweater looks good just in any color. In natual color (like the original modell) or something bolder, like the 22 yellow, the o 13 or the 07 runbint red. If you like pinks then color no14 is a great choice as well. Happy Knitting!
16.11.2019 - 07:54
Agnes skrifaði:
Ik krijg de beschrijving van het patroon niet open. Er is alleen de foto
08.11.2019 - 10:55
Susanne skrifaði:
Er der ingen opskrift på denne 😊
09.10.2019 - 06:43
Rossana skrifaði:
Aspetto con di conoscere le istruzioni e la qualità della lana! A presto Rossana
28.08.2019 - 16:42
Olga skrifaði:
Mi piace molto.
21.08.2019 - 13:03
Weaving Memories#weavingmemoriessweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-35 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÁFERÐAMYNSTUR: Það eru prjónaðar rendur með áferðamynstri. Kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið er prjónuð til loka. Prjónið þannig: RÖND 1: Prjónið A.1. RÖND 2: Prjónið A.2 í 7-8-8-9-9-9 cm – stillið af að endað sé eftir 1. eða 3. umferð í mynsturteikningu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. RÖND 3: Prjónið A.1. RÖND 4: Prjónið A.3 í 8-8-8-8-10-10 cm – stillið af að endað sé eftir 4. eða 8. umferð í mynsturteikningu. RÖND 5: Prjónið A.1. RÖND 6: Prjónið A.2 í 7-8-8-9-9-9 cm – stillið af að endað sé eftir 1. eða 3. umferð í mynsturteikningu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. RÖND 7: Prjónið A.1. RÖND 8: Prjónið A.3 í 6-6-8-8-8-10 cm – stillið af að endað sé eftir 4. eða 8. umferð í mynstri. RÖND 9: Prjónið 2 umferðir sléttprjón. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur), mínus kantlykkjur í hvorri hlið (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjufjölda sem eftir er með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 10,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 9. og 10. hverja lykkju og 10. og 11. hverja lykkju slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur í garðaprjóni. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 32 lykkjur) mínus kantlykkjur í hvorri hlið (= 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 3,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum og saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 88-94-108-114-120-132 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú ÁFERÐAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 8-8-10-10-10-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 80-86-98-104-110-120 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm fellið af 0-0-3-3-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 80-86-92-98-98-108 lykkjur. Í stærð S og M eru lykkjur ekki felldar af, en til að merkja handveg er sett eitt prjónamerki í hvora hlið á stykki. Þegar 8. röndin hefur verið prjónuð til loka, fellið af miðju 24-24-24-26-26-26 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 27-30-33-35-35-40 lykkjur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 88-94-108-114-120-132 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, prjónið (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú áferðamynstur eins og á bakstykki með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 8-8-10-10-10-12 lykkjur jafnt yfir = 80-86-98-104-110-120 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm fellið af 0-0-3-3-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 80-86-92-98-98-108 lykkjur. Í stærð S og M er lykkjum ekki fækkað, en til að merkja handveg er sett eitt prjónamerki í hvora hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 44-46-46-48-50-50 cm setjið miðju 14-14-14-16-16-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan lykkjur af í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 27-30-33-35-35-40 lykkjur fyrir öxl. Þegar allar rendur með áferðamynstri hafa verið prjónaðar til loka á hæðina, prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 32-34-36-36-38-40 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff fram og til baka þannig: 1 kantlykkja garðaprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið A.1 með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, jafnframt er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – sjá ÚTAUKNING-1 = 40-42-44-44-46-48 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið með A.2 og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 9-11-11-11-11-7 cm aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með ca 3-2½-2½-2-2-2 cm millibili alls 13-14-14-16-16-17 sinnum = 66-70-72-76-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-49-48-47-48-46 cm fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn þannig að það verða 4 umferðir garðaprjón mitt uppi á öxl – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og saumið innan við affellingarkantinn á ermum. Í stærð S og M merkja prjónamerki sem sett voru í hvora hlið hvar handvegurinn byrjar. Í stærð L, XL, XXL og XXXL eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið. Saumið saum undir ermum og síðan niður meðfram hliðarsaum. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu með Air og stuttum hringprjón 4,5 og prjónið upp ca 76-90 lykkjur í kringum hálsmál meðtaldar lykkjur af þræði. Prjónið kant í hálsmáli hringinn þannig: Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í umferð. Þegar stroffið mælist 4 cm prjónið 1 umferð brugðið. Fellið af með brugðnum lykkjum. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #weavingmemoriessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.