DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Weaving Memories Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 207-36
DROPS Design: Mynstur ai-225
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-400-400-450-550 g litur 02, hveiti

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir áferðamynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 7 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÁFERÐAMYNSTUR:
Það eru prjónaðar rendur með áferðamynstri. Á bakstykki er kantlykkjan prjónuð í garðaprjóni í hvorri hlið til loka. Á framstykki er kantlykkjan í hlið prjónuð í garðaprjóni og 8 kantlykkjur að framan við miðju að framan eru prjónaðar í A.4/A.5 til loka.
Prjónið þannig:
RÖND 1: Prjónið A.1.
RÖND 2: Prjónið A.2 í 7-8-8-9-9-9 cm – stillið af að endað sé eftir 1. eða 3. umferð í mynsturteikningu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
RÖND 3: Prjónið A.1.
RÖND 4: Prjónið A.3 í 8-8-8-8-10-10 cm – stillið af að endað sé eftir 4. eða 8. umferð í mynsturteikningu.
RÖND 5: Prjónið A.1.
RÖND 6: Prjónið A.2 í 7-8-8-9-9-9 cm – stillið af að endað sé eftir 1. eða 3. umferð í mynsturteikningu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
RÖND 7: Prjónið A.1.
RÖND 8: Prjónið A.3 í 6-6-8-8-8-10 cm – stillið af að endað sé eftir 4. eða 8. umferð í mynstri.
RÖND 9: Prjónið 2 umferðir sléttprjón.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 95 lykkjur), mínus 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið (= 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjufjölda sem eftir er með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 15) = 6,2. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju slétt saman og ekki er lykkjum fækkað yfir kantlykkjur í garðaprjóni.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 32 lykkjur) mínus kantlykkjur í hvorri hlið (= 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 3,8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
ATH: Fellið af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli.
S: 4, 11, 18, 25, 32, 39 og 46 cm
M: 3, 11, 18, 26, 33, 41 og 48 cm
L: 3, 11, 18, 26, 33, 41 og 48 cm
XL: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm
XXL: 4, 12, 20, 28, 36, 44 og 52 cm
XXXL: 4, 12, 20, 28, 36, 44 og 52 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 95-103-117-123-131-143 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú ÁFERÐAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 15-17-19-19-21-23 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 80-86-98-104-110-120 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm fellið af 0-0-3-3-6-6 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 80-86-92-98-98-108 lykkjur. Í stærð S og M eru lykkjur ekki felldar af, en til að merkja handveg er sett eitt prjónamerki í hvora hlið á stykki. Þegar 8. röndin hefur verið prjónuð til loka mælist stykkið ca 48-50-52-54-56-58 cm. Fellið af miðju 24-24-24-26-26-26 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 27-30-33-35-35-40 lykkjur. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 55-59-67-71-75-81 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig (1. Umferð = rétta): Prjónið A.4 yfir fyrstu 8 lykkjur (= kantur að framan), prjónið (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT á kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú áferðamynstur á sama hátt og á bakstykki, en prjónið A.4 yfir fyrstu 8 kantlykkjur að framan í byrjun á umferð og prjónið 1 kantlykkju garðaprjón að hlið, þ.e.a.s. í lok umferðar séð frá réttu. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 7-8-10-11-12-12 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir 8 kantlykkjur að framan og kantlykkju í garðaprjóni) = 48-51-57-60-63-69 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fellið af 0-0-3-3-6-6 lykkjur. Í byrjun á næstu umferð frá röngu (þ.e.a.s. frá hlið á stykki) = 48-51-54-57-57-63 lykkjur. Í stærð S og M eru ekki lykkjur felldar af, en til að merkja handveg er sett eitt prjónamerki í hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 44-46-46-48-50-50 cm, prjónið áfram frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 15-15-15-16-16-17 lykkjur áður en þær eru settar á þráð fyrir hálsmáli og prjónið áferðamynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur, 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 27-30-33-35-35-40 lykkjur fyrir öxl.
Þegar allar rendur með áferðamynstri hafa verið prjónaðar til loka á hæðina, prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 55-59-67-71-75-81 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig (1. umferð = rétta): 1 kantlykkja garðaprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, A.5 yfir síðustu 8 lykkjur 8 (= kantur að framan). Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið nú áferðamynstur á sama hátt og á bakstykki og hægra framstykki, en prjónið 1 kantlykkju garðaprjón í byrjun á umferð (séð frá réttu) og prjónið A.5 yfir síðustu 8 kantlykkjur að framan í lok umferðar (séð frá réttu (en ekki yfir 8 kantlykkjur að framan og kantlykkju í garðaprjóni) = 48-51-57-60-63-69 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fellið af 0-0-3-3-6-6 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá réttu (þ.e.a.s. frá hlið á stykki) = 48-51-54-57-57-63 lykkjur.
Í stærð S og M eru ekki lykkjur felldar af, en til að merkja handveg er sett eitt prjónamerki í hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 44-46-46-48-50-50 cm, prjónið áfram frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 15-15-15-16-16-17 lykkjur áður en þær eru settar á þráð fyrir hálsmáli og prjónið áferðamynstur eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur, 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 27-30-33-35-35-40 lykkjur fyrir öxl.
Þegar allar rendur með áferðamynstri hafa verið prjónaðar til loka á hæðina, prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Fitjið upp 32-34-36-36-38-40 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff fram og til baka þannig: 1 kantlykkja garðaprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið A.1 með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, jafnframt er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – sjá ÚTAUKNING-1 = 40-42-44-44-46-48 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið með A.2 og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 9-11-11-11-11-7 cm aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með ca 3-2½-2½-2-2-2 cm millibili alls 13-14-14-16-16-17 sinnum = 66-70-72-76-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-49-48-47-48-46 cm fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur!
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn þannig að það verða 4 umferðir garðaprjón mitt uppi á öxl – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og saumið innan við affellingarkantinn á ermum. Í stærð S og M merkja prjónamerki sem sett voru í hvora hlið hvar handvegurinn byrjar. Í stærð L, XL, XXL og XXXL eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið. Saumið saum undir ermum og síðan niður meðfram hliðarsaum. Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu með Air og stuttum hringprjón 4,5 og prjónið upp ca 91-105 lykkjur í kringum hálsmál meðtaldar lykkjur af þræði. ATH: Það verður að prjóna upp lykkjufjölda með oddatölu til að stroffið gangi jafnt upp alla leiðina.
UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið A.5 yfir fyrstu 8 lykkjur í umferð, prjónið sléttar lykkjur þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið A.4 yfir síðustu 8 lykkjur.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið A.4 yfir fyrstu 8 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið A.5 yfir síðustu 8 lykkjur.
Prjónið nú stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með A.4 og A.5 í hvorri hlið.
Stillið af að stroffið gangi jafnt upp alla leiðina (með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur yfir kanta að framan). Munið að fella af fyrir síðasta hnappagatinu á hægri kanti að framan. Þegar stroffið mælist 4 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu, prjónið nú 1 umferð slétt yfir þessar lykkjur. Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Sidsel wrote:

Kan jeg kjøpe oppskrift på papir ? Jeg har ikke skriver …….

15.11.2023 - 10:10

DROPS Design answered:

Hej Sidsel, spørg hos din DROPS forhandler, eller så ved vi at man kan få biblioteket til at skrive ud, hvis du ikke vil læse opskriften direkte på din mobil eller dator :)

16.11.2023 - 14:21

country flag Wilmo wrote:

Bonjour chère équipe de DROPS, lorsque je fais les boutonnières, dois-je tricoter les 2 mailles ensemble et faire un jeté sur un rang envers? ou sur un rang endroit? merci.

05.06.2021 - 20:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Wilmo, ouvrez les boutonnières sur l'endroit, et tricotez la 3ème et la 4ème maille à partir du bord = de A.4 (= 1 m end + 1 m env) ensemble à l'endroit et faites 1 jeté. Bon tricot!

07.06.2021 - 07:18

country flag Ulla Heyn wrote:

Hej ! Skulle vilja sticka denna kofta i ett något tunnare garn. ex. Drops puna ,brun. Kan man göra det ?? ex. genom att sticka en storlek större ??

07.02.2021 - 16:18

DROPS Design answered:

Hei Ulla. Ved å bruke et tynnere garn vil ikke strikkefastheten eller målene stemme, så det anbefales ikke. Men om du føler deg komfortabel med å regne om strikkefastheten, målene osv, kan du jo prøve. mvh DROPS design

08.02.2021 - 14:00

country flag Marie-Laure wrote:

Bonjour, Je cherche un modèle simple de cardigan tricot col plutôt rond et taille légèrement cintrée. Laine Air ou autre. Je peine à trouver. Pourriez-vous svp me suggérer 1-2 modèles ou me dire comment je peux réaliser les diminutions et augmentations (nombres et à quelle hauteur) pour un effet légèrement cintré sur d'autres modèles (taille M/L) ? Avec mes remerciements et cordiales salutations Marie-Laure

06.02.2021 - 13:12

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-Laure, vous trouverez ici tous nos modèles de gilets avec taille ajustée/cintré - tricotés dans une laine du groupe C - Bon tricot!

08.02.2021 - 08:24

country flag Jo Kramer wrote:

Hi this is the second drops pattern that i am attempting to knit and i am a bit confused why i am using a circular needle, and after casting on it says purl 1 row from the wrong side, and i have no idea how to do this as after casting on you are then about to commencing on the right side so how do you starting knitting on wrong side, can this jumper be knitted on normal needles not a circular as i dont undertand the circular sense thanks heaps jo.

21.07.2020 - 14:16

DROPS Design answered:

Hi Jo, We recommend use of circular needle as there are so many stitches that they can fall off a straight needle. You can work back and forth with circular needle by turning at the end of the row and working back from the wrong side. Happy knitting!

22.07.2020 - 07:20

country flag Charlotte wrote:

Bonjour, J'aimerais faire ce modèle en coton, mais le convertisseur m'indique 800g de Drops Paris. Mon gilet ne va-t-il pas être trop lourd ? Pensez-vous que c'est possible de le faire avec ce type de fil ? Merci !

21.05.2020 - 19:02

DROPS Design answered:

Bonjour Charlotte, il est tout à fait normal que la quantité soit différente car le métrage de Paris est plus court que celui de Air - vous trouverez ici d'autres modèles de gilets et de vestes tricotés en Paris pour vous donner une idée. Bon tricot!

22.05.2020 - 09:50

country flag Daniela wrote:

Hello at Garn Studio andthank you for all your lovely free patterns. My question about the weaving memory jacket is this: For the back piece there is no mention of stripe 9 even if it is a part of the textured pattern. So my first question is do I include stripe 9 or not for the back piece? What about the front pieces ? Here the directions talk about "all stripes" - is stripe 9 inlcuded here? Thank you ahead of time!

28.03.2020 - 09:53

DROPS Design answered:

Dear Daniela, yes sure, when stripe-8 has been worked, continue with stripe-9 as explained = 2 rows with stocking stitch, ie on back piece, work 1 row casting off the middle stitches for neck, and 1 row back, then knit 1 ridge over all stitches. Happy knitting!

30.03.2020 - 09:24

country flag Monica Robert wrote:

A1. Stickar man en rad räta, en rad aviga och en rad räta först. ( för att få tre rader räta) Sedan en rad aviga. Sedan en rad räta och en rad aviga (för att få två rader räta) och sedan en rad aviga osv

14.01.2020 - 00:43

DROPS Design answered:

Hej A.1 stickas så här: första varvet räta, andra varvet aviga, tredje varvet räta, fjärde varet räta, femte varvet räta, sjätte varet aviga, sjunde varvet aviga osv Lycka till!

29.01.2020 - 11:14

country flag Monica Robert wrote:

A1. doit in faire un rang droit, un rang envers et un rang droit pour avoir 3 rangs droit. Et ensuite un rang envers. Et ensuite?

14.01.2020 - 00:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Robert, tricotez comme indiqué dans la légende, 1er rang de A.1 = sur l'endroit, donc R1 = à l'end, R2 = à l'env, R3 = à l'end, R4= à l'end, R5 = à l'end, etc.. Un carré blanc se tricote à l'endroit sur l'endroit et à l'enver sur l'envers (= jersey endroit) et un tiret se tricote en jersey envers = à l'envers sur l'endroit et à l'endroit sur l'envers. Bon tricot!

14.01.2020 - 08:22

country flag Penelope B Colby wrote:

I am unable to understand where the instructions for the textured patterns are. I see the diagrams, and have the ribbing done, but completely fail to see where your instructions are for which stitches go where. I understand the garter stitch and the front bands, but where are the directions for the patterned boxes? The videos do not address this problem.

10.01.2020 - 21:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs Colby, you will find some explanations to the diagrams here. Happy knitting!

13.01.2020 - 08:23