Béatrice Betra skrifaði:
Bonjour, Je souhaite faire le modèle ml-038 expliqué en côtés anglaises avec jeté. Est-il possible de faire ce modèle en côte double mailles. Quelles vont être les conséquences par rapport aux explications du gilet. Merci pour votre réponse que j'attends avec impatience.
27.02.2021 - 13:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Betra, il vous faudra d'abord vérifier que vous avez toujours le bon échantillon - et vérifier également si la consommation de fil sera la même ou s'il vous en faudra plus ou moins, vous devrez également ajuster les diminutions et les augmentations qui sont expliquées pour des côtes anglaises à jeté. Votre magasin saura probablement vous aider si besoin, n'hésitez pas à les contacter même par mail ou téléphone. Bon tricot!
01.03.2021 - 08:07
Julie skrifaði:
Ja, det er der Vh Julie
05.08.2020 - 16:21DROPS Design svaraði:
Hej igen Julie, det bliver ikke 3.pind men 6.pind fra retsiden, da diagrammerne går over 4 pinde. God fornøjelse!
06.08.2020 - 08:32
Julie skrifaði:
Ved bagstykke og forstykker går opskriften således: 1. Pind: strik 1pind vrang fra vrangen 2. Pind: strikkes således fra retsiden... 3. Pind: strikkes således fra retsiden... Jeg forstår ikke hvordan to på hinanden følgende pinde kan strikkes fra retsiden? Glæder mig til at strikke denne smukke cardigan :) Vh Julie
02.08.2020 - 15:37DROPS Design svaraði:
Hej Julie, det kan jeg ikke finde... hvor er du i opskrften? Er det her hvor vi skriver, når A.1 og A.2 er færdig strikkes næste pind således fra retsiden.
05.08.2020 - 15:22
Joelle Baudouin skrifaði:
Bonjour je decouvre votre site ou vous avez de beaux modeles . par contre vous parlez d aiguilles circulaire peut on faire ces modeles avec des aiguilles classiques ? je sais pas tricoter autrement merci de votre aide et reponse
07.01.2020 - 17:44DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Baudouin et merci. Vous trouverez ici quelques informations sur l'utilisation des aiguilles circulaires. Bon tricot!
08.01.2020 - 08:20
Baudouin Joelle skrifaði:
Bonsoir j aimerais savoir quand vous parlez d aiguille circulaire pour faire le dos et les devants comment faites vous ? est il possibble avec des aiguilles classiques merci de votre reponse
07.01.2020 - 17:40DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Baudouin, cette vidéo montre comment tricoter (du jersey, mais c'est la même technique pour tout autre point) en allers et retours sur aiguille circulaire. Bon tricot!
08.01.2020 - 08:19
Antonia Ferrer Gadea skrifaði:
Me gusta pero es mi primer proyecto y lo he leído y veo difícil para mi empezar con esto. No se el grado de dificultad de la prenda.Me a gustado mucho la verdad,pero ando perdida con la lectura. Gracias.
04.01.2020 - 06:57
Bullermor skrifaði:
Dejlig!! Endelig en god v-udskærig!!
19.06.2019 - 23:49
Ellis skrifaði:
To big, to long + wide sleeves
09.06.2019 - 21:53
Searching for Spring Jacket#searchingforspringjacket |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð síð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað í klukkuprjóni og sjalkraga. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-41 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. LEIÐBEININGAR: Allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar þar sem uppslátturinn tilheyrir sléttu lykkjunni og er ekki talinn sem 1 lykkja. AFFELLING (á við um klukkuprjón): Til að koma í veg fyrir að affeellingarkanturinn verði stífur, fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja. Þ.e.a.s. uppslátturinn er prjónaður eins og lykkja og er felldur af eins og hinar lykkjurnar. ÚRTAKA-1 (á við um V-hálsmál á hægra framstykki): Öll úrtaka er gerð í 1 umferð frá réttu. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, síðan eru prjónaðar 3 lykkjur og 2 uppslættir (= alls 5 lykkjur) saman þannig: Lyftið fyrstu lykkjunni og 1 uppslætti yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið næstu 2 lykkjur og 1 uppslátt slétt saman, steypið 2 lykkjunum sem lyftar voru yfir (1 lykkja og 1 uppsláttur) frá hægri prjón yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (á við um V-hálsmál á vinstra framstykki): Öll úrtaka er gerð í 1 umferð frá réttu. Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir og 2 uppslættir á undan 5 kantlykkjum að framan og prjónið þessar 3 lykkjur + uppslátt slétt saman (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 HNAPPAGAT = Prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 23, 32 og 41 cm M: 24, 33 og 42 cm L: 25, 34 og 43 cm XL: 26, 35 og 44 cm XXL: 27, 36 og 45 cm XXXL: 28, 37 og 46 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig, fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 51-55-59-63-71-75 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 9 með Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, endurtakið A.1 (= 2 lykkjur) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni – sjá LEIÐBEININGAR. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, endurtakið A.4 (= 2 lykkjur) þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.5 (= 1 lykkja) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. A.4 og A.5 er endurtekið á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm fellið af miðju 9-9-9-11-11-11 lykkjur fyrir hálsmáli – sjá AFFELLING. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 21-23-25-25-29-31 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, fellið af. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, 16-17-18-19-20-21 cm niður frá öxl. Prjónamerkið merkir ermarnar eru saumaðar í. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð). Fitjið upp 30-32-34-36-40-42 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan og 1 kantlykkja í hlið) á hringprjón 9 með Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, endurtakið A.1 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, endurtakið A.4 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur, A.4 er endurtekið á hæðina – munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur fyrir V-hálsmáli – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 10-11-12-9-10-11 cm millibili alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 26-28-30-30-34-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Í næstu umferð frá röngu eru felldar af fyrstu 21-23-25-25-29-31 lykkjur fyrir öxl = 5 lykkjur eftir fyrir sjalkraga. Haldið áfram í garðaprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til sjalkraginn mælist 7-7-7-9-9-9 cm, fellið af. Setjið 1 prjónamerki í hlið, 16-17-18-19-20-21 cm niður frá öxl. Prjónamerkið merkir hvar á að sauma ermina í. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð). Fitjið upp 30-32-34-36-40-42 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan og 1 kantlykkja í hlið) á hringprjón 9 með Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.3 (= 1 lykkja), endurtakið A.1 (= 2 lykkjur) þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.2 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar A.1, A.2 og A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.6 (= 1 lykkja), endurtakið A.4 (= 2 lykkjur) þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.5 (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. A.4, A.5 og A.6 er endurtakið á hæðina. Prjónið þar til stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur fyrir V-hálsmáli – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 10-11-12-8-8-9 cm millibili alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 26-28-30-30-34-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm – stillið af eftir hægra framstykki. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af fyrstu 21-23-25-25-29-31 lykkjur fyrir öxl = 5 lykkjur eftir fyrir sjalkraga. Haldið áfram í garðaprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til sjalkraginn mælist 7-7-7-9-9-9 cm, fellið af. Setjið 1 prjónamerki í hlið, 16-17-18-19-20-21 cm niður frá öxl. Prjónamerkið merkir hvar á að sauma ermina í. ERMI: Fitjið upp 40-40-44-44-48-48 lykkjur á sokkaprjón 6 með Melody. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 7. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar auka á út. Prjónið síðan sléttprjón – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 38-38-37-35-32-31 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3 cm millibili alls 1-2-2-3-2-3 sinnum = 42-44-48-50-52-54 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 46-46-45-43-40-39 cm. Fellið laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið sjalkragann saman mitt að aftan með lykkjuspori og saumið við hálsmál aftan í hnakka – saumurinn á að snúa inn að röngu. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju (frá prjónamerki að prjónamerki). Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #searchingforspringjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-41
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.